Þjóðviljinn - 14.09.1985, Blaðsíða 18
DÆGURMAL
Pat Metheny
gítarleikari par excellance #
Pat Metheny er nafn sem
flestir unnendur vandaðrar
tónlistar ættu að festa sér í
minni, ef þeir hafa ekki þegar
gertþað. Þaðvarmérsönn
ánægja að kynnast þeirri tón-
list sem þessi maður leikur
svo snilldar vel á gítarinn,
hann virðist búa yfir öllum
þáttum sem prýða góðan
músíkantídag.
Og ekki nóg meö það að Pat
hefur gefið út hátt í tug platna
sem flestar hafa hlotið fádæma
góða dóma þrátt fyrir lítinn
skyldleika með þeim, heldur er
nýjasta skífa þessa framsækna
kappa hingað til hans besta og
ánægjulegasta að hans eigin
sögn. Sú ber heitið First Circle og
er í senn heilsteypt, sér á parti og
áberandi frísk og lifandi, hvergi
dauður punktur.
Það sem gerir First Circle jafn-
framt áhugaverða er sú blandaða
tækni, eða frekar blönduðu
hljómar rafurmagnaðir við óraf-
urmagnaða sem einkenna verkin.
Það er víst öruggt að Pat Met-
heny er einstakur hvað elektrón-
íska gítartónlist varðar, og telst
hann í dag vera einn af boðberum
hinnar nýju tæknivæðingar sem á
sér stað í heiminum nú.
Pat Metheny Grúppan saman-
stcndur af frábærum tónlistar-
mönnum hverjum á sínu sviði, en
sá aöili sem einna mest á í plöt-
unni utan Pats sjálfs er kollega
hans Lyle Mays (píanó-
svuntuþeysar-hljómborð) sem
samiö hefur með Pat ein fimm
lög. Trommuleikur er í fimum
limum Pauls Wertico, en hann
þykir með þeim betri í heiminum
í dag að áliti Methenys, og það er
satt að leikur hans er yndislega
næmur og melódískur þannig að
unun er að. Bassaleikarinn er
ekki síðri tónlistarmaður á sitt
hljóðfæri, Steve Rodby setur sitt
mark á tónlist Grúppunnar á sinn
hógværa, tæra og umfram allt
ególausa hátt, og er það aðal góðs
músíkants að komast yfir heimtu-
frekt og þrjóskt egóið í leik sín-
um. Þá er það Pedro Aznar sem
syngur eins og jarðneskur engill
og söngur hans og rödd eru nýtt
hljóðfæri, sem gefur tónlistinni
merkingu til fyllingar laglínunn-
ar; þannig líða saman tónar í
kosmískri andakt.
Öll lög á First Circle eru svo
óþvinguð að þau virðast spunnin
á staðnum, en hver tónn er á rétt-
um stað og stund og finnst mér
samspil allrar grúppunnar höfuð-
atriði þegar platan er skoðuð í
heild. Pat er líka það fjölhæfur
tónlistarmaður, getur að því er
virðist samið hvaða tónlist sem
er, (samdi t.d. lagið This is not
America sem David Bowie söng
og er úr myndinni Fálkinn og
snjómaðurinn), að allir hinir í
hljómsveitinni fá sín fyllilega not-
ið.
Platan á sér upphaf og endi.
Hún byrjar á marsi í fáránleika-
stíl, Forward March, og ku vera
tileinkaður unglingsárum Pats,
en það var ekki nóg að hann
þyrfti að leika göngumarsa í
gaggó heldur héldu foreldrar
hans mikið upp á slíka tegund
tónlistar og áttu bágt með að
skilja músiksmekk sonarins sem
gleypti í sig tónlist Ornettes Co-
leman, Bítlanna, Miles Davis og
Beach Boys. Segja fróðir að
marsinn minni verulega á Stra-
vinski. Og í þessu lagi frekar en
öðrum á plötunni brúkar hann
synclavier-gítar óspart, og sýnir
okkur hvernig lélegar lúðra-
sveitir eru vanar að hljóma. Úr
þeim skoplega leik rennum við í
gegnum hvert fallega lagið á fæt-
ur öðru, mishörð en alltaf jafn
melódísk, og endum á Lofgjörð,
sem Kristján Sigurjónsson hefur
líka gert að sínu lokalagi í morg-
unþætti Rásar 2. Smekkmaður.
The Pat Metheny Group fær
ekkert annað en lof í bak og fyrir
að margáhlustaðri plötu þessari,
First Circle.
$
Pat Metheny. Hann er 31 árs, fæddur 12. ágúst 1954.
MEGASX KUKL
Samvinnuhreyfingin vinnur sigur
MEGASXKUKL bætti mörg-
um „gömlum slagaranum" viö
menningararf vorn um síö-
ustu helgi, á hljómleikunum
Sjáðu hvað ég sé í Gamla
bíói. Því miður missti undirrit-
uð af framlagi Ijóðskáldanna
sem hófu leikinn, þeirra Jó-
hamarsog Sjón(ar...?), rétt
slapp í sætið fyrir upphaf-
stóna Kukls.
Mikið skolli er Kuklið nú góð
hljómsveit. Uppspretta kraftsins
í músikinni streymir úr iðrum
Sigtryggs trommara, sem er sí-
vinnandi allan tímann, eins og
þeir segja í fótboltanum; dular-
fullan trumbusláttinn seiðir hann
fram úr trommusettinu með
öllum líkamanum, allt frá tágóm-
unum fram í þá á fingrum og höf-
uðið stjórnar náttúrulega öllu.
Annars er jafnræði með hljóð-
færum Kuklara og áhersla lögð á
samspil en ekki sólóhlutverk ein-
staklinga. Björk og Einar Örn
virka að vísu nokkuð sóló eins og
tíðast er með söngvara, annars er
Björk mjög hæversk á sviði en
stelur oft þrátt fyrir það senunni
vegna skemmtilegs raddlags og
sviðsveru. Meira jafnræði var
með þeim Einari en áður á svið-
inu, einkum var samspil þeirra
tveggja og Megasar bæði
skemmtilegt á að horfa og heyra.
Og þá erum við komin að sam-
starfinu Megasar og Kukls. Áður
er talað um gæði Kukls og stend-
ur það enn sem stafur á bók,
nema hvað við bætist fallegt blóm
í hnappagatið Gulla gítarleikara
sem stráði mörgum blómum með
gítarnum í „slagarana", eins og
Megas kynnti samvinnulögin sín
og Kuklara. Lengst hefur lifað í
mér lagið þar sem allt hefur
hækkað nema kaupið og söngur-
inn þar sem Megas hvæsti að
Björk að þegja. Það sem betur
hefði mátt fara var að annað
hvort hækka sönginn örlítið eða
lækka hljómsveitina jafnmikið,
til að heyra betur textana, sem
þetta skemmtilega fólk var að
flytja. Hins vegar var blöndun
hljóðfæranna mjög góð innbyrð-
is.
Þá er bara að spyrja hvort ekki
sé von á framhaldi þessa sam-
starfs hins óviðjafnanlega Megas-
ar og Kukls - það er t.d. of
skemmtilegt til að komast ekki á
plötu, og er þá vægt til orða tekið.
Samvinnustefnan lengi lifi!
A.
Jazzvakning 10 ára
Mikið - en ekki nóg
Afmælishátíð Jazzvakningar
(af hverju heitir hún ekki bara
Djassvakning?) hófst á
fimmtudagskvöld í Háskólabí-
ói. Þetta fyrsta kvöld í 10 ára
afmælisveislunni skemmtu
spánski píanóleikarinn Tete
Montoliu og Daninn Niels-
Henning Örsted Petersen
bassaleikari með tvíleik og
svo hljómsveit þess síðar-
nefnda sem auk hans var
skipuð landa hans píanó-
leikaranum danska Ole Kock
Hansen og íanda okkar Pétri
Östlund trommuleikara og
með þeim söng Etta Camer-
on, sem á ættir að rekja til
Bahama-eyja en býr í Dan-
mörku.
Þeir Niels-Henning og Tete
hófu leikinn. Aldrei hef ég heyrt í
Spánverjanum, en það sem ein-
kennir leik hans í fljótu bragði er
mjög mikil nákvæmni og
„hittni", ef svo má segja um virta
músikanta, og húmor og hug-
myndaauðgi hefur hann á takt-
einum. Oft kom hann með
skemmtileg, stutt innskot í sóló
Niels-Hennings og var samspil
þeirra mjög leikandi og skemmti-
legt. Eins og áður bæði gapti
maður og góndi á fingrafimi
bassaleikarans og gleypti í sig
melódískan bassaleikinn. Ég
hvet hér með unga liðið til að
berja þennan mann augum og
eyrum, hvaða músik sem það hef-
ur áhuga á.
Eftir hlé áttu leik hljómsveit
NHÖP og Etta Cameron. Etta
Cameron er góð söngkona og til
að lýsa því ögn nánar má nefna að
hún minnti undirritaða á Ninu
Simon og ögn á Billie Holliday.
Ole Kock Hansen er einn af
fremstu djassleikurum Dana og
sá píanisti sem mest hefur unnið
með NHÖP, segir í Afmælisdag-
skrá Jazzvakningar, og Pétur
Östlund kemur of sjaldan heim,
segir í sama bæklingi. Af því fyrst
tilvitnaða fengum við nasasjón á
fimmtudagskvöldið og það síð-
astnefnda er dagsatt, enda klæj-
aði mann í eyrun að fá að heyra
meira af fimleikum þessara
manna, þarna um kvöldið, sér-
staklega langaði mann í trommu-
sóló, alls ekki af þjóðrembu einni
saman, en það var ekki hægt.
Vakningin hafði húsið ekki lengur
til leigu en tæplega 11, er bíósýn-
ing var á dagskrá. Því voru Etta
og NHÖP rétt að komast í sveifl-
andi stuð þegar þau urðu að
hætta. Kannski er rétt að hætta
skuli leik þá hæst hann stendur,
en áður?, það er af og frá. Ég
hefði alls ekki viljað hafa misst af
Tete Montoliu, en vegna þessa
stutta tíma sem Vakningin hafði
til umráða í bíóinu hefði verið al-
veg nóg að hafa Ettu og tríóið á
dagskrá. Þá hefði allt hæfileika-
fólkið á sviðinu fengið að njóta
sín. Það er þó bót í máli að í Lækj-
arhvammi á Hótel Sögu mun Pét-
ur Östlund tromma með sænsku
hljómsveitinni Emphasis on Jazz
í kvöld og annað kvöld. Á sunnu-
dagskvöld hefst dagskráin þar kl.
19 og lýkur kl. 1 og aðrir spilarar
verða Tríó Guðmundar Ingólfs-
sonar, Jazzmiðlar og Léttsveit
Ríkisútvarpsins. í dag (laugar-
dag) leika Mezzoforte í Háskóla-
bíói kl. 14 ásamt ástralska saxó-
fónleikaranum Dale Barlow og
danska trompetleikaranum Jens
Winter. í Lækjarhvammi á Sögu
verða Ófétin íslensku (Eyþór,
Friðrik og Gunnlaugur í Mezzo-
forte og Tómas Einarsson bassa-
leikari og Rúnar Georgsson blás-
ari) og Emphasis on Jazz.
Gleðilega djassvakningu. A.
OPIH TIL KL.4IM«
rVor*«»
' | ^öönbe-t.
vrsA
Jón Loftsson hf.
±
Hringbraut 121 Simi 10600