Þjóðviljinn - 14.09.1985, Page 20

Þjóðviljinn - 14.09.1985, Page 20
Landsliðiðísöngásamtleikstjóranum, Sveini Einarssyni. Framverðirnir i landsliði íslands í söng, þeir Kristján Jóhannsson og Kristinn Sigmundsson. Kristinn og Kristján á Grímudansleik Viðamesta uppfœrsla Þjóðleikhússinsfrá upphafi Einhverviðamestasýning Þjóðleikhússinstil þessaog jafnframt fyrsta frumsýning leikársins verður um næstu helgi er Grímudansleikur eftir Verdi verðurfrumsýndur. Á milli 120-130 manns taka þátt í sýningunni og ber þar hæst „landsliðið" í söng með Kristin Sigmundsson og Kristján Jó- hannsson í fararbroddi. Verkið verður aðeins sýnt um takmark- aðan tíma vegna anna söngvar- anna, en önnur sýning verður á sunnudag og sú þriðja á miðviku- daginn 25. sept. Með stærstu einsöngshlutverk- in fara Kristján Jóhannsson (Gústaf III), Kristinn Sigmunds- son (Renato Ankarström), Elísa- bet F. Eiríksdóttir (Amelía), Sig- ríður Ella Magnúsdóttir (Ul- rika), Katrín Sigurðardóttir (Oscar), Robert W. Becker (Ribbing) og Viðar Gunnarsson (Horn). Leikstjóri er Sveinn Einars- son, hljómsveitarstjóri er Maurizio Barbacini frá Ítalíu og stjórnar hann Sinfóníuhljómsveit íslands. Dansar eru eftir Ingi- björgu Björnsdóttur, leikmynd eftir Björn G. Björnsson, bún- ingateikningar eftir Malínu Ör- lygsdóttur, en lýsingu annast Kristinn Daníelsson. Þessi uppfærsla Þjóðleikhúss- ins á Grímudansleik er frumupp- færsla verksins á íslandi. Jqss gefa út plötu Ófétin í tilefni af 10 ára afmæli sínu ákvað Jazzvakning að gefa út hljómplötuna Þessi ófétis jazz! Þessi hljómplata hefur að geyma 7 ný lög eftir þá Tómas R. Einarsson, Eyþór Gunnarsson og Friðrik Karls- son. Auk þessara þriggja, en þeir leika sem kunnugt er á kontrabassa, píanó og gítar, spila á plötunni þeir Gunn- laugur Briem á trommur og RúnarGeorgsson átenórsax- ófón. Þeir fjórir fyrstnefndu, Tómas, Eyþór, Friðrik og Gunnlaugur hafa leikið töluvert saman síð- ustu 4 árin, en samstarf þeirra hófst í Tónlistarskóla FÍH. Síð- astliðinn vetur fóru þeir félagar að festa á blað drög að nýjum lögum og varð það kveikjan að þessari hljómplötu. Þegar að undirbúningsvinna var langt komin þótti augljóst að saxófón- leikur myndi prýða mjög nokkur laganna og var þá Rúnar Georgs- son fenginn til liðs við sveitina. Platan var tekin upp í Stúdíó Stemmu 10.-13. júní og hafði Sig- urður Rúnar Jónsson veg og vanda af upptökunni. Titillinn Þessi ófétis jazz! er sóttur í leikrit Halldórs Laxness, Straumrof. (Fréttatilkynning) Jassófétin í eigin persónu. Sigríður Ella sem Ulrika í Grímudansleiknum, sem frumsýndur verður í Þjóðleikhúsinu n.k. laugardag. Skagfirska Söngsveitin Nýtt verk eftir Þorkel Sigurbjörnsson Vetrarstarf Skagfirsku söng- sveitarinnar í Reykjavík hefst með fundi og myndakvöldi laugardaginn 21. september. Þar verða sýndar myndir frá ferð kórsins síðastliðið vor til Norður-Ítalíu og Frakklands. Kórinn dvaldi sjö daga í Suður- Týról og söng þar á fjórum stöð- um við mjög góðar undirtektir. Á undan söngnum flutti ítalskur kennari við háskóla í Bolsano stutt erindi um ísland en hann er jarðfræðingur og hefur oft komið til íslands og ferðast mikið um landið. Einnig söng kórinn Litlu orgelmessuna eftir Josep Haydn við guðsþjónustu í kirkju heilags Frans frá Assisi í Bolsano. Á komandi starfsári mun kór- inn hafa innlend og erlend lög á efnisskrá sinni meðal annars nýtt verk eftir Þorkel Sigurbjörnsson sem samið verður fyrir kórinn og flutt á vortónleikum hans. Á- formað er að fara söngferð norður í land jafnvel á Sæluviku Skagfirðinga. Æfingar verða tvisvar í viku og raddþjálfari hjá kórnum í vetur verður Halla S. Jónasdóttir. Kórinn getur bætt við góðum röddum og geta þeir sem hafa áhuga haft samband við söng- stjórann Björgvin Þ. Valdimars- son í síma 36561 á kvöldin.

x

Þjóðviljinn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.