Þjóðviljinn - 24.09.1985, Page 1
Viðar Þorkelsson horfir
á boltann bylgja þaknetiö á
marki Glentoran, fallegur
skalli hans hefur fært Fram 2-
1 forystu í Evrópuleiknum á
laugardag. Mynd: E.ÓI. Sjá
bls. 10-11.
-VS/Reuter
Badminton
TBR í Evrópukeppni
TBR tekur þátt í Evrópukeppni félagsliða í badminton í ár sem undan-
farin ár, en hún hefst í V. Þýskalandi á fimmtudag. Liðið fer utan í dag
og er skipað eftirtöldum leikmönnum.:
Guðmundur Adolfsson, Wang Junjie, Jóhann Kjartansson, Sigfús
Ægir Árnason, Árni Þór Hallgrímsson, Snorri Þorgeir Ingvarsson,
Þórdís Edwald, Kristín Magnúsdóttir, Inga Kjartansdóttir og Elísabet
Þórðardóttir.
TBR er í riðli með Racing Club frá Frakklandi, BC frá Portúgal og
BK Smash frá Finnlandi. Sigurvegari kemst í 8-liða úrslit og ætti TBR að
eiga góða möguleika á því. í ferðinni verður einnig leikinn landsleikur
við Belga og fer hann fram á mánudaginn kemur. -VS
Mexíkó
HM verður óhreyfð
Stjórn Alþjóða Knattspyrnusam-
bandsins, FIFA, tilkynnti í gær að
ekkert væri því til fyrirstöðu að loka-
keppni HM geti farið fram í Mexíkó á
réttum tíma á næsta ári - þrátt fyrir
jarðskjálftana miklu þar í landi síð-
ustu daga.
Hinn glæsilegi Aztec-leikvangur í
Mexíkóborg slapp við skemmdir í
skjáiftunum, sem og hinir 11 vellirnir
sem nota á í keppninni, og þá urðu
engar skemmdir á þeim hótelum sem
tekin hafa verið frá. Uppi höfðu verið
raddir um að seinka keppninni um
eitt ár, til 1987, en að öllu óbreyttu
hefst hún þann 31. maí 1986 á Aztec-
leikvanginum.
-VS/Reuter
England
Orient
vann
Tottenham!
Orient, sem er í 13. sæti 4.
deildar ensku knattspyrnunnar,
vann geysilega óvæntan sigur á
stórliðinu Tottenham Hotspur, 2-
0, í 2. umferð mjólkurbikarsins i
gærkvðldi. Tottenham réð gangi
leiksins með Glenn Hoddle og
Ossie Ardiles í finu formi - en tvö
óvænt mörk frá Kevin Godfrey
seint í leiknum tryggðu Orient
óvæntan sigur. Liðin eiga seinni
leikinn eftir - á White Hart Lane.
21-árs liðið
Góðar aðstæður
ísland og Spánn mætast í lands-
leik í knattspyrnu, 21 árs og
yngri, í Huelva í kvöld. Þetta er
síðasti leikurinn í 7. riðli Evrópu-
keppninnar en Skotar eru þriðja
liðið í riðlinum. Spánn hefur þeg-
ar tryggt sér sigur, hefur 5 stig,
Skotland 3 en Island 2 stig. Is-
lenska liðinu dugar jafntefli til að
ná öðru sætinu.
Lið íslands verður með öllum
Sjö með 12
Sjö raðir komu fram með 12 réttum
leikjum í 5. leikviku Getrauna og var
vinningur kr. 75,810 á röð. Alls voru
150 raðir með 11 rétta og er vinningur
þar kr. 1,516.
líkindum þannig skipað: Friðrik
Friðriksson, Þorsteinn Þorsteins-
son, Kristján Jónsson, Mark
'Duffield, Loftur Ólafsson, Pétur
Arnþórsson, Ómar Torfason,
Ingvar Guðmundsson, Kristinn
Jónsson, Björn Rafnsson og
Halldór Áskelsson.
Guðni Kjartansson þjálfari
liðsins sagði í samtali við Þjóð-
viljann í gærkvöldi að sér litist vel
á aðstæður. Völlurinn væri frekar
lítill og það ætti að henta íslenska
liðinu ágætlega. „Þetta verður
erfiður leikur, Spánverjar eru
með sterkt lið, en allt getur gerst.
Ekki reiknaði neinn með því að
við ynnum Skotana í vor“, sagði
Guðni. VS
A. Þjóðverjar
Þrjú heimsmet
Austur-þýskt frjálsíþróttafólk setti
hvorki meira né minna en þrjú heims-
met á móti sem fram fór í Austur-
Berlín á sunnudaginn!
Ulf Timmermann setti nýtt heims-
met í kúluvarpi, kastaði 22,62 metra.
Landi hans, Udo Beyer, átti fyrra
metið, 22,22 metra, sett í Los Ange-
les í júní 1983.
Sabine Busch hljóp 400 m grinda-
hlaup kvenna á 53,56 sekúndum.
Margarita Ponomaryeva frá Sovét-
ríkjunum átti heimsmetið, 53,38 sek.,
sett í Kiev fyrir 15 mánuðum.
Heike Dreschler stökk 7,44 metra í
langstökki kvenna. Hún bætti tveggja
ára gamalt heimsmet rúmensku stúlk-
unnar Anisoara Cusmir um einn
sentimetra.
-VS/Reuter
Kraftlyftingar
Torfi heimsmeistari!
Torfl Ólafsson varð á sunnu-
daginn Evrópu- og heimsmeistari
í yfirþungavigt kraftlyftinga - en
Evrópu- og heimsmeistaramótin
fóru fram samhliða í Soest í
Vestur-Þýskalandi um helgina.
Torfi lyfti samanlagt 807,5 kg.
Hjalti Árnason keppti í 125 kg
flokki og varð annar á
Evrópumótinu en fjórði á
heimsmeistaramótinu. Álls tóku
níu íslenskir kraftlyftingamenn
þátt í mótunum.
-VS
Spánarleikurinn
Allir heilir og
Þorsteinn með
Haukar
Pálmar
með?
Pálmar Sigurðsson, landsliðs-
maður í körfuknattleik, er smám
saman að jafna sig á meiðslunum
sem hann varð fyrir á dögunum.
Haukarnir gera sér vonir um að
hann verði orðinn nægilega góður
þann 5. október til að geta leikið
með þeim fyrr leikinn gegn Táby
frá Svíþjóð í Evrópukeppni bikar-
hafa. Sá leikur fer fram í Hafnar-
firði en sá síðari í Svíþjóð viku
síðar.
Haukar eiga von á bandarísk-
um leikmanni, Mike Schieb að
nafni, til að leika með þeim gegn
Svíum. Hann mun vera öflugur
bakvörður, 27 ára gamall og um
180 sm á hæð. Leyfilegt er að leika
með tvo lánsmenn í Evrópu-
keppni.
-VS
íslenska landsliðið í knatt-
spyrnu býr sig nú undir HM-
leikinn við Spánverja sem fram
fer á Villamarin leikvanginum í
Sevilla annað kvöld. Liðið æfði
við fljóðljós á vellingum í gær-
kvöldi - hann er stór og breiður
og rúmar 45 þúsund manns, en
uppselt er á leikinn.
Állir leikmenn íslenska liðsins
eru heilir eftir leiki helgarinnar,
að sögn Sigurjóns Sigurðssonar
læknis liðsins. Sú breyting var
gerð á hópnum áður en hann fór
að Þorsteinn Bjarnason frá
Keflavík kom í stað Eggerts Guð-
mundssonar markvarðar frá
Halmstad sem er meiddur í
fingri.
Ovíst var hvort Sigurður Jóns-
son gæti komið í leikinn og því
var Omar Torfason til taks, en
hann leikur sem eldri leikmaður í
21 árs liðinu. Ágúst Már Jónsson
úr KR fór með 21 árs liðinu til að
taka stöðu Ómars ef hann yrði
fluttur yfir í A-hópinn. Af því
varð ekki þar sem Sigurður kom
frá Englandi á réttum tíma.
-VS
Drengjaliðið
Skotar fengu forgjöf
Tvö mörk í byrjun leiks og Skotland vann 2-1
Tvö ódýr mörk Skota á fyrstu 9
mínútunum færðu þeim 2-1 sigur
í fyrri viðureigninni við íslenska
drengjalandsliðið í undankeppni
Evrópumótsins í knattspyrnu.
Bæði komu eftir slæm varnarmis-
tök, sjálfsmark í fyrra skiptið og
skalli frá miðherjanum McGarri-
son í það síðara. Leikið var á
Laugardalsvellinum í gær.
íslenska liðið var lengi í gang
eftir þessa forgjöf en náði sér
smám saman á strik og hefði með
örlítilli heppni getað náð hag-
stæðari úrslitum. Baráttuvilji
drengjanna var mikill og þeir gáf-
ust aldrei upp. Ólafúr Viggósson
frá Neskaupstað átti glæsilega
hjólhestaspyrnu eftir aukaspyrnu
Rúnars Kristinssonar mínútu
fyrir hlé sem skoski markvörður-
inn varði. Haraldur Ingólfsson
frá Akranesi komst í dauðfæri
eftir varnarmistök Skota á 3.
mínútu seinni hálfleiks en skaut
framhjá. Varnarmaður bjargaði
skoti Rúnars í hom á 14. mínútu
og á 25. mín. sló markvörðurinn
boltann af höfði Rúnars á síðustu
stundu eftir fyrirgjöf Haraldar.
Rúnar stakk sér strax á eftir
snyrtilega milli varnarmanna en
var felldur. Vítaspyma, og úr
henni skoraði Haraldur, 1-2. En
á korterinu sem eftir var náði ís-
lenska liðið ekki að skapa sér
umtalsverð færi og Skotar standa
því vel að vígi fyrir síðari leikinn
sem fram fer ytra annan mánu-
dag.
Bestir í íslenska liðinu voru
hinn fljóti og hættulegi Ólafur
Viggósson, miðjumennirnir
Steinar Ádolfsson og Rúnar
Kristinsson, sem þó voru nokkuð
mistækir, og bakverðirnir Þor-
móður Egiisson og Gísli Björns-
son. Vörnin var óömgg allan tím-
ann og þar skildi á milli - lið Skot-
anna var heilsteyptara og
kraftmeira. -VS
UMSJÓN: VfÐIR SIGURÐSSON