Þjóðviljinn - 24.10.1985, Qupperneq 1
24. OKTÓBER
BORGARNES
AKRANES
HEIMURINN
Erla og Margrét fyrir framan Alþingi í gær: Þeir eru að svipta okkur sjálfsögðum réttindum. Það á að vera réttur allra launamanna að fá að semja um kaup og kjör. Ljósm. E.ÓI.
Ríkisstjórnin
Köld kveðja til kvenna
Ríkisstjórnin œtlarað brjóta verkfall flugfreyja á bakaftur. Margrét
Guðmundsdóttir og Erla Hatlemark: Ríkisstjórnin er að svipta okkur
sjálfsögðum réttindum. Einkennilegtframlag í lok kvennaáratugar.
Flugleiðir Ijúga um launflugfreyja.
að er auðvitað alvarlegt mál
að ríkisstjórnin ætli að svipta
Flugfreyjufélagið samnings- og
verkfallsrétti með lagasetningu.
Það eiga að vera sjálfsögð réttindi
launamanna í landinu að fá að
semja um kaup og kjör og við trú-
um ekki öðru en að stjórnarand-
staðan muni beita öllum tiitækum
ráðum til að hamla gegn slíkum
gerræðisákvörðunum stjórn-
valda, sögðu Margrét Guð-
mundsdóttir formaður Flug-
freyjufélagsins og Erla Hatle-
mark formaður samninganefnd-
ar i samtali við Þjóðviljann í gær,
en ríkisstjórnin ákvað í gær að
stöðva verkfall flugfreyja með
lögum.
Það var kl. 17.30 í gær að Matt-
hías Bjarnason samgöngu-
ráðherra varð við þeirri ósk VSÍ
og Flugleiða h f. að setja gerðar-
dómslög á flugfreyjur. Rök sam-
gönguráðherra voru vægast sagt
léttvæg. Hann talaði um einangr-
að eyland sem ekki mætti teppa
samgöngur við (Arnarflug og
fleiri fljúga enn) og hann talaði
um að ef samið yrði við flug-
freyjur nú þá væri það fordæmi
fyrir komandi kjarasamninga.
Rök Matthíasar voru tætt niður í
umræðum á Alþingi í gær svo
ekki stóð steinn yfir steini. Öll
stjórnarandstaðan andæfði þess-
um gerræðislegu vinnubrögðum
ríkisstjórnarinnar utan Alþýðu-
flokkurinn sem stóð með Sjálf-
stæðisflokknum í þessari aðför að
frjálsri verkalýðshreyfingu. Jó-
hanna Sigurðardóttir skar sig þó
úr þeim flokki og sameinaðist
stjórnarandstöðunni í máli þessu.
„Það er einkennilegt framlag
nkisstjómarinnar til baráttu
kvenna í lok kvennaáratugar að
koma svona fram við stéttarfélag
okkar. Þeir eru að afnema frelsi
okkar til samninga.
Flugleiðir hafa farið með
vísvitandi lygar í vissum fjölmiðl-
um undanfarna daga um laun
flugfreyja. Þeir halda því t.d.
fram að laun okkar séu meira en
60 þúsund á mánuði, en þar telja
þeir dagpeninga og bílastyrk til
launa og það er fráleitt. Allir sem
vinna fjarri heimili fá greiddan
útlagðan kostnað. Þeir vilja einn-
ig halda því fram að við fáum
greitt vaktaálag nú þegar, en
samkvæmt þeirri túlkun eru dag-
vinnulaun byrjenda nú um 15
þúsund krónur. Fleira má telja í
þessum dúr, en þetta eru ekkert
annað en lygar,” sögðu Margrét
og Erla.
Flugfreyjur veittu ferðaskrif-
stofunni Urvali og Ferðamið-
stöðinni undanþágu í gær til
leiguflugs með íslendinga frá
Spáni.
Margréti hefur verið boðið að
tala á útifundi kvenna á Lækjar-
torgi kl. 14.00 í dag.
-gg. - S.dór.
Sjá bls. 3
r Konur! Konur!
Utifundur á Lækjartorgi kl. 14 í dag
A vörp. Tónlist. Leikþáttur. Kl.ll. 00 árdegis opnar Kvennasmiðjan sýningu 70stéttarfélaga á
störfum og kjörum kvenna í Seðlabankabyggingunni.