Þjóðviljinn - 13.11.1985, Qupperneq 15
ÍÞRÓTTIR
Fimleikar
Yfirburðir Sovétmanna
Korolev endurheimti titilinn í karlaflokki
Paul Bracewell verður í byrjunar-
liði Englands í kvöld.
Sovétmenn sigruðu með
nokkrum yfirburðum á heims-
meistaramótinu í fímleikurm sem
lauk í Montreal í Kanada um
helgina. Eins og við höfum sagt
frá sigruðu þeir bæði í sveita-
keppni kvenna og karla og það
sama var uppi á teningunum er
einstaklingskeppninni lauk um
helgina.
Yuri Korolev, heimsmeistari
1981, afsannaði alla spádóma um
að hann væri búinn að vera með
því að sigra glæsilega í karla-
flokki. Kínverjinn Tong Fei var
sá eini sem ógnaði honum
eitthvað að marki og var eini
keppandinn í karlaflokki sem
fékk einkunnina 10. Það var í
æfingum á slá.
Hin 16 ára gamla Elena Shous-
houonova og hin 15 ára Oksana
Omeliantchik deildu með sér
efsta sætinu í kvennaflokki og
sýndu frábær tilþrif. í þriðja sæti,
nokkuð að baki þeim, var Dag-
mar Kersten frá Austur-
Þýskalandi.
Sovétríkin fengu 11 gull, 3 silf-
ur og 2 bronsverðlaun á mótinu.
Kínverjar 3 gull, 3 silfur og 1
brons, Austur-Þjóðverjar 2 gull,
2 silfur og 6 brons, Rúmenar 1
gull og 3 silfur, Frakkar 1 silfur,
Japanir 4 brons og Tékkar 1
brons.
- VS/Reuter
England
Bracewell tekur
stöðu Robsons
Dixon og Waddlefyrir Hateley og Barnes
Paul Bracewell frá Everton
tekur stöðu landsliðsfyrirliðans
Bryans Bobsons þegar England
mætir Norður-írlandi í undan-
keppni HM í knattspyrnu á Wem-
bley í kvöld.
Robson meiddist í síðasta
landsleik Englands og hann hafði
aðeins leikið í 15 mínútur með
Man.Utd sl. laugardag þegar
meiðslin tóku sig upp að nýju.
Bobby Robson landsliðs-
einvaldur hefur gert Ray Wilkins
frá AC Milano að landsliðsfyrir-
liða í stað Robsons. Þá munu
Kerry Dixon frá Chelsea og Chris
Waddle koma inní byrjunarliðið í
staðinn fyrir Mark Hateley og
John Barnes sem eru meiddir.
Lið Englands er því þannig
skipað: Peter Shilton (Sout-
hampton), Gary Stevens (Evert-
on), Kenny Sansom (Arsenal),
Terry Fcnwick (QPR), Mark
Wright (Southampton), Paul
Bracewell (Everton), Ray Wilk-
ins (AC Milano), Glenn Hoddle
(Tottenham), Gary Lineker (Ev-
erton), Kerry Dixon (Chelsea),
Chris Waddle (Tottenham).
Norður-írar þurfa jafntefli til
að komast ásamt Englandi í lok-
akeppni HM, ef þeir tapa verða
þeir að treysta á að Rúmenar tapi
stigi í Tyrklandi í kvöld.
Lið Norður-írlands er þannig
skipað: Pat Jennings (Totten-
ham), Jimmy Nicholl (WBA),
Alan McDonald (QPR), John
O’Neill (Leicester), Mal Donag-
hy (Luton), David McCreery
(Newcastle), Sammy Mcllroy
(Man.City), Norman Whiteside
(Man.Utd), Jimmy Quinn
(Blackburn), Gerry Armstrong
(WBA), Ian Stewart (Newc-
astle).
- VS/Reuter
Sören Lerby hefur lítlnn tíma til að stilla sér svona upp fyrir Ijósmyndara í dag.
Knattspyrna
Lerby á ferð og
flugi í dag!
Leikur á Irlandi kl. 14.30 og
Þýskalandi kl. 19
Borðtennis
Tómas og Hafdís
Tómas Guðjónsson og Hafdís
Ásgeirsdóttir úr KR urðu
Reykjavíkurmeistarar í einliða-
leik karla og kvenna í borðtennis
en Reykjavíkurmótið fór fram
um síðustu helgi.
Tómas sigraði K án Má Em-
ilsson í úrslitaleiknum í karla-
flokki, 21-17, 27-25 og 21-18.
Hafdís sigraði Elísabetu Ólafs-
dóttur úr KR 21-12, 8-21, 21-18
og 21-19 í úrslitaleiknum í
kvennaflokki.
Hafdís og Elísabet sigruðu í
tvíliðaleik kvenna og Tómasarn-
ir, Guðjónsson og Sölvason, í tví-
liðaleik karla. Hafdís og Guð-
Körfubolti
ÍS vann
ÍS vann góðan sigur á ÍR, 48:32, í
kvennadeildinni í fyrrakvöld. Þetta
var fyrsti ósigur ÍR og þá hafa öll liðin
í deildinni tapað leik.
K.R vann hið bráðefnilega lið ÍBK
48:45 í æsispennandi leik í Keflavík á
laugardaginn. Á föstudagskvöldið
vann UMFN öruggan sigur á ÍA á
Akranesi, 43:17.
Staðan í deildinni:
KR................5 4 1 201:168 8
(S................4 3 1 175:141 6
Haukar............5 3 2 231:194 6
IR................3 2 1 128:119 4
IBK...............4 1 3 178:182 2
UMFN..............4 1 3 115:116 2
lA................3 0 3 52:160 0
- VS
mundur Maríusson, KR, sigruðu
í tvenndarleik.
Sören Lerby, sá danski knatts-
pyrnumaður, ætlar sér að leika
tvo mikilvæga leiki í dag - annan
á írlandi og hinn í Vestur-
Þýskalandi!
Danir leika í dag kl. 14.30 við
íra í Dublin. Þetta er síðasti
leikur beggja í undankeppni HM
og Danir eru um 99 prósent ör-
uggir með sæti í lokakeppninni,
hver svo sem úrslitin verða.
Lerby reiknar með því að fá að
skipta útaf í hálfleik. Einkaþota
frá Bayern Mrichen mun bíða
hans á flugvellinum í Dublin og
flytja hann í einum grænum til
Dússeldorf. Þaðan fer hann með
bifreið 60 km vegalengd til Boc-
hum þar sem Bayern leikur við
heimaliðið í vestur-þýsku bikar-
keppninni kl. 19.
Eins gott að allar tímaáætlanir
standist hjá Sören Lerby í dag!
- VS/Reuter
Knattspyrnubók
Skagamenn skor-
uðu mörkin
Skagamenn skoruðu mörkin,
síðara bindi, cr komin út. Þetta er
saga knattspyrnunnar á Akranesi
1970-1984 en í fyrri bókinni, sem
kom út fyrir ári síðan var sagan
rakin frá upphafí til ársins 1984.
Það eru blaðamennirnir Sig-
tryggur Sigtryggsson og Sigurður
Sverrisson sem skráð hafa söguna
ásamt Jóni Gunnlaugssyni sem
um árabil var einn burðarása
Skagaliðsins. I bókinni er greint
sérstaklega frá hverju keppnist-
ímabili fyrir sig frá 1970 og auk
þess er skotið inná milli viðtölum
við þekkta leikmenn og fjöl-
marga aðra sem á einn eða annan
hátt hafa komið við sögu knatt-
spyrnunnar á Akranesi.
Aftast í bókinni er ýtarleg saman-
tekt á upplýsingum um lið IA og ár-
angurþessárin 1946-1984. Þarerskrá
yfir alla leiki í öllum mótum, auk vin-
áttuleikja, leikjafjöldi einstakra leik-
manna tekinn saman, birt meistaralið
ÍA og landsliðsmenn frá upphafi.
Þetta er einstök samantekt sem á sér
enga hliðstæðu hcr á landi.
Hörpuútgáfan gefur bókina út og
Prentverk Akraness hf. sá urn setn-
ingu, prentun og bókband. Bókin er
256 blaðsíður og er prýdd fjölda
mynda af liðum og úr leikjum 1A.
- VS
ÍKAGAMENN SKOROD
-------•
UORKUi
Karate
Þýskur
þjálfari
Vestur-Þjóðverjinn Erich
Busch dvelst hér á landi þessa
dagana og kcnnir Shotokan-
karate. Hann hefur orðið sigur-
sæll á ýmsum mótum í Vestur-
Þýskalandi síðustu árin og er fjöl-
hæfur karatemaður, með gráð-
una 3. Dan. Hann mun verða að-
aldómari á meistaramótinu i
Shotokan-karate sem haldið
verður í Gerpluhúsinu í Kópavogi
á laugardaginn kemur.
Handbolti
Tveir
í kvöld
Tveir leikir eru á dagskrá í 1. dcild
karia í handknatleik í kvöld, báðir í
Laugardalshöllinni. Víkingur og
Þróttur leika kl. 20 og kl.21.15 hefst
leikur Vals og FH.
í 2. deild karla leika Haukar og Þór
ye. í Hafnarfirði og Afturelding-
Ármann í Mosfellssveit. Báðir lcikir
hefjast kl. 20. I 3. dcild leika ÍH og
Hveragerði í Hafnarfirði kl. 21.15.
Knattspyrna
í Vestur-
Snorri í
Sandgerði
Snorri Rútsson frá Vcstmannaeyj-
um hefur verið ráðinn þjálfari 3.
deildarliðs Reynis úr Sandgerði.
Snorri lck um langt árabil með IBV en
sneri sér að þjálfun sl. sumar og undir
hans stjórn komst Einherji frá Vopna-
firði uppí 2. deild. Snorri mun einnig
leika með Revnisliðinu.
- VS
Getraunir
Fimm með 12
Fimm raðir með 12 réttum leikjum
komu fram í 12. leikviku íslenskra
getrauna og gaf það 231,535 krónur
fyrir hverja röð. Með 11 rétta voru 97
raðir og fær hver um sig 5,114 krónur
í vinning. Vinningspotturinn varsam-
tals 1,653,840 krónur sem er nýtt met
- fjórðu vikuna í röð
Körfubolti
UÍA vann
UÍ A sigraði Létti 67:60 er liðin léku
í 2. deild karla á Egilsstöðum um helg-
ina. 1 síðustu viku fékk Esja sín fyrstu
stig með því að sigra Árvakur 66:56.
Staðan í B-riðli 2. deildar er þá þessi:
Snæfell..........4 4 0 291:213 8
UÍA..............3 2 1 205:198 4
HSK..............2 1 1 120:116 2
Léttir...........3 1 2 165:188 2
Esja.............3 1 2 156:193 2
Arvakur..........3 0 3 165:194 0
- VS
Júdó
Spennandi úrslitaviðureign
Sovétmenn Evrópumeistarar karla, Frakkar kvenna
Sovétmenn sigruðu F'rakka í úrslit-
aviðureign um Evrópumeistaratitil-
inn í sveitakeppni karla í júdó sem
fram fór í Brússel um síðustu helgi.
Úrslitin réöust á lokasekúndunum í
síðustu viðureigninni og Sovétmenn
sigruðu 3:2. Hvor þjóð hafði orðið
Evrópumeistari 11 sinnum fyrir þessa
keppni og jók það enn á spennuna og
ríginn milli sveitanna. Bretar og Hol-
lendingar deildu bronsinu, Bretar
• eftir 5:2 sigur á Spánverjum og Hol-
lendingar eftir að Belgar höfðu hætt
þátttöku.
Frakkar
meistarar
urðu hinsvegar
í kvennaflokki,
Evrópu-
sigruðu
Vestur-Þjóðverja 4:3 í úrslitaviður-
eign. Bretar og Ilollendingar deildu
einnig bronsinu þar - Bretar eftir 3:2
sigur á ítölum og Hollendingar eftir
3:1 sigur á stúlkunum frá Austurríki.
Þetta var í fyrsta skipti sem keppt var
um Evrópumeistaratitil í sveita-
keppni kvenna.
- VS/Reuter
Þriðjudagur 12. nóvember 1985 ÞJÓÐVILJINN - SÍÐA 15