Þjóðviljinn - 19.11.1985, Blaðsíða 2
ÍÞRÓTTIR
Handbolti - 1. deild
Syrtir í
ál KR-inga
Fallí2. deild blasir við Vesturbœingum.
Fimmti sigur Stjörnunnar í röð
Það er heldur farið að syrta í
álinn hjá KR-ingum. Eftir 23-19
tap gegn Stjörnunni er staða
þeirra við botn 1. deildarinnar
mjög slæm og fall í 2. deild blasir
við. Þeir náðu að veita Stjörnunni
harða keppni lengst af, en þó
Garðabæjarliðið hafi oft leikið
betur vann það mjög svo sann-
gjarnan sigur, sinn fimmta í röð.
Úrslitin virtust ráðin eftir 20
mínútur. Stjarnan var komin sex
mörkum yfir en KR náði að laga
stöðuna í 13-10 fyrir hlé. Síðan
var Hannes, lykilmaður Stjörn-
unnar, tekinn úr umferð og við
það riðlaðist leikur Garðbæinga.
KR-ingar héngu á boltanum,
hver langlokusóknin rak aðra og
allt virtist geta gerst þegar seinni
hálfleikur var hálfnaður, staðan
þá 15-13. En þá gerði Stjarnan út
um leikinn með sex mörkum í röð
- síðan gerðu baráttuhugur KR-
inga og áhugaleysi Garðbæinga
það að verkum að munurinn í
lokin var aðeins fjögur mörk.
Stjarnan er með öflugan 7
manna kjarna sem nær vel sam-
an. Sóknarleikur liðsins í fyrri
hálfleik var mjög góður en la-
maðist þegar Hannes var tekinn
úr umferð. Hannes bindur liðið
saman, í vörn og sókn, og hefur
tæplega leikið jafnvel um árabil
og í vetur. Gylfi og Sigurjón léku
ágætlega og Brynjar Kvaran
varði markið vel en aðrir voru
mistækir.
KR-ingar stilltu nú upp Gunn-
ari Gíslasyni í fyrsta sinn í vetur
og við það jókst ógnunin í sókn-
arleiknum - ekki nóg þó til að
koma sterkri vörn Stjörnunnar
verulega úr jafnvægi. KR-liðið
var jafnt- það er skipað reyndum
leikmönnum en vantar tilfinnan-
lega afgerandi skyttu. Leikur
liðsins var skynsamlegur en ekki
að sama skapi mikið fyrir augað.
-vs
Digranes 17. nóv.
Stjarnan-KR 23-19 (10-9)
4-1, 8-3, 10-4, 12-7, 13-10, 14-12,
15-13, 21-13, 23-17, 23-19.
Mörk Stjörnunnar: Hannes Leifs-
son 7(2v), Gylfi Birgisson 5, Hermund-
ur Sigmundsson 3, Sigurjón Guð-
mundsson 3, Magnús Teitsson 2,
Skúli Gunnsteinsson 1, Einar Einars-
son 1, Gunnlaugur Jónsson 1.
Mörk KR: Haukur Geirmundsson 4,
Stefán Arnarson 4(1v), Gunnar Gísla-
son 3, Haukur Ottesen 3, Friðrik Þor-
björnsson 2, Ragnar Hermannsson 2,
Jóhannes Stefánsson 1.
Dómarai: Gunnlaugur Hjálmars-
son og Óli Ólsen - ágætir.
Maður leiksins: Hannes Leifsson,
Stjörnunni.
Handbolti - 1. deild
Skyldustig
Próttur stóð þó lengi vel í FH
FH tók „skyldustigin“ þegar
botnlið Þróttar kom í heimsókn.
Reyndar mátti Hafnarfjarðarlið-
ið hafa fyrir hlutunum framanaf,
Þróttarar eygðu greinilega smá
von um stig og börðust ágætlcga
lengi vel. En þegar staðan var 15-
12 var Konráði sýnt rauða spjald-
ið og þegar Birgir fékk að fjúka
sömu leið rctt á eftir var mót-
spyrna Þróttar á enda og FH vann
28-16.
Þorgils Óttar heldur liði FH
saman og sýnir nú þegar á reynir
að hann er fjölhæfur leikmaður -
ekki bara snjall línumaður.
Guðjón Árnason lék ágætlega og
Héðinn sýndi að mikið býr í hon-
um. Hjá Þrótti var helst að Kon-
ráð héldi hlutunum gangandi -
liðið sýndi ágæta baráttu en átti
við ofurefli að etja eins og ávallt
áður í vetur.
-VS
Hafnarfjöröur 16. nóv.
FH-Þróttur 28-16 (13-9)
6-3, 6-6, 8-8, 13-8, 13-9, 14-11,15-
12, 21-12, 28-15, 28-16.
Mörk FH: Þorgils Óttar Mathiesen
7, Guöjón Árnason 6, Óskar Ármanns-
son 5(3v), Héðinn Gilsson 3, Jón Er-
ling Ragnarsson 3, Finnur Árnason 1,
Valgarður Valgarðsson 1, Stefán
Kristjánsson 1, Péfur 1.
Mörk Þróttar: Konráð Jónsson
5(3v), Birgir Sigurðsson 3, Haukur
Hafsteinsson 2, Gísli Óskarsson
2(2v), Benedikt Ingvason 2, Brynjar
Einarsson 1, Atli Helgason 1.
Dómarar: Árni Sverrisson og Guð-
mundur Stefánsson - slarkfærir.
Maður leiksins: Þorgils Óttar
Mathiesen, FH.
Stadan
í 1. deild karla í handknattleik:
Víkingur.......... 9 8 0 1 222:165 16
Stjarnan.......... 9 6 1 2 215:181 13
Valur............. 8 6 0 2 176:166 12
Fram.............. 8 4 0 4 188:181 8
KA................10 4 0 6 203:209 8
FH................ 9 4 0 5 217:214 8
KR................ 9 2 1 6 186:210 5
Þróttur........... 8 0 0 8 168:249 0
Markahæstir:
Þorgils Óttar Mathiesen, FH........58
ValdimarGrímsson, Val..............53
GylfiBirgisson.Stjörnunni..........53
ÓskarÁrmannsson, FH................52
Konráð Jónsson, Þrótti.............49
Þróttur og Valur leika í Laugar-
dalshöllinni í kvöld kl. 20.
Þorgils Óttar Mathiesen FH, er
markahæstur í 1. deildinni.
10 SIÐA - ÞJOÐVILJINN
Michel Platini hafði ekki skorað
fyrir franska landsliðið síöan í nóvem
ber 1984 en mörk hans gegn Júgó-
slavíu á laugardaginn komu svo
sannarlega á réttum tíma.
HM í knattspyrnu
Platinis
í urslit
Pétur Bjarnason, KA, gnæfir yfir Arna Indriðasyni, þjálfara Víkings. En það voru Víkingar sem gnæfðu yfir norðan-
mönnum á sunnudaginn. Mynd: E.ÓI.
Handbolti - 1. deild
Enn vinna Víkingar
Endasprettur KA kom of seint
Þegar fimmtán mínútur voru
til leiksloka í leik Víkings og KA á
sunnudaginn, var munurinn átta
mörk Víking í hag. En þá fóru
þeir að slaka fullmikið á og KA-
menn gengu á lagið og náðu að
minnka muninn í tvö mörk. Vík-
ingar tóku því svo rólega síðustu
mínúturnar og sigruðu 20-18.
Leikur Víkinga einkenndist af
sterkum varnarleik í fyrri hálfleik
og slæmum sóknarleik í þeim
síðari. Vörn Víkinga í fyrri hálf-
leik var geysisterk, einkum þó
þeir Árni og Steinar. Steinar var
einnig góður í sókninni, en hann
og Páll skoruðu nær öll mörk
Víkingsliðsins. Þess má einnig
geta að Guðmundur fiskaði sex
vítaköst.
KA byrjaði þennan leik eins og
leikinn gegn Val og var sex mörk-
um undir í hálfleik. Undir lok
leiksins fóru KA-menn loksins að
Laugardalshöll 17. nóv.
Víkingur-KA 20-18 (11-5)
3-1, 7-3, 11-4, 12-7, 17-9, 18-11,
18-14, 19-17, 20-18.
Mörk Víkings: Páll Björgvinsson
9(6v), Steinar Birgisson 7, Guðmund-
ur Albertsson 2 og Guðmundur Guð-
mundsson og Bjarki Sigurðsson 1
hvor.
Mörk KA: Erlingur Kristjánsson
8(2v), Þorleifur Ananíasson 4, Er-
lendur Hermannsson 3 og Sigurður
Pálsson, Hafþór Heimisson og Pétur
Bjarnason 1 hver.
Dómarar: Guðmundur Kolbeinsson
og Þorgeir Pálsson - slakir.
Maður leiksins: Steinar Birgisson,
Víkingi.
spila almennilegan handbolta og
þá var ekki að sökum að spyrja,
þeir skoruðu átta mörk gegn
tveimur Víkingsmörkum. En
eins og í leiknum við Val kom
þessi endasprettur of seint. Er-
lingur var bestur hjá KA, skoraði
mikið, þá átti Erlendur einnig
góðan leik.
Það sem helst háir KA hve
leikur liðsins er köflóttur. Liðið
er of seint í gang, en þegar þeir
loksins fara af stað geta þeir stað-
ið í hvaða liði sem er.
Leikinn dæmdu þeir Guð-
mundur Kolbeinsson og Þorgeir
Pálsson og verða þeir og aðrir
dómarar að reyna að samræma
dóma sína svo að leikmenn viti á
hvað sé dæmt og á hvað ekki,
-Logi
Tveir reknir útafísigri Frakka á Júgóslövum
Paraguay fékk aukasœtið í Suður-Ameríku
Michel Platini kom Frökkum í loka-
keppni HM í knattspyrnu er hann
skoraði tvö glæsimörk í 2:0 sigri á Júg-
óslövum í París á laugardagskvöldið.
Eftir aðeins tvær mínútur fékk Frakk-
land aukaspyrnu rétt utan vítateigs
Júgóslava. Platini skoraði beint úr
spyrnunni eins og honum einum er lagið
-1:0. Þegar 18 mínútur voru til leiksloka
skoraði hann síðan með góðu skoti frá
vítateig, í bláhornið niðri, 2:0. Þetta
voru fyrstu mörk Platinis fyrir franska
landsliðið í heilt ár. Mikill hiti var í leik-
mönnum - fimm voru bókaðir og tveir
þeirra síðan reknir af leikvelli á loka-
mínútunum, þeir Ljubomir Radanovic,
Júgóslavíu, og hinn sterki varnarmaður
Frakka Yvon Le Roux.
Austur-Þjóðverjar gerðu allt sem þeir
gátu, unnu Búlgari 2:1 í Berlín, en það
dugði skammt vegna sigurs Frakka. Zo-
etsche kom Austur-Þjóðverjum yfir á 3.
mínútu, Gochov jafnaði fyrir Búlgari á
39. mín. en Liebers svaraði mínútu síð-
ar, 2:1, með skoti beint úr aukaspyrnu af
25 m færi. Leikið var við mjög erfiðar
aðstæður, í frosti og snævi þöktum velli.
Lokastaðan í 4. riðli:
Frakkland.................8 5 1 2 15:4 11
Búlgaría..................8 5 1 2 13:5 11
A.Þýskaland...............8 5 0 3 16:9 10
Júgóslavía................8 3 2 3 7:8 8
Luxemburg.................8 0 0 8 2:27 0
Paraguay í úrslit
Paraguay er komið í lokakeppnina í
fyrsta skipti í 28 ár eftir 2:2 jafntefli gegn
Chilebúm í Santiago. Paraguay vann
fyrri leikinn 3:0 en vonir Chile vöknuðu
þegar Hugo Rubioskoraði á 13. mínútu.
Schettina og Romero svöruðu fyrir Par-
aguay fyrir hlé, 1:2, og þar með var
draumur Chile búinn. Munoz jafnaði að
vísu skömmu fyrir leikslok, 2:2, en það
dugði skammt.
Jafnt í Munchen
Karl-Heinz Rummenigge forðaði
Vestur-Þjóðverjum frá öðrum tap-
leiknum á heimavelli í röð er hann jafn-
aði gegn Tékkum, 2:2, þremur mínútum
fyrir lok leiks þjóðanna í Múnchen á
sunnudaginn. Ándreas Brehme hafði
skorað fyrir V.Þjóðverja beint úr auka-
spyrnu eftir 45 sekúndur en Josef Novak
og Vladislav Lauda komið Tékkum yfir
með mörkum snemma í seinni hálfleik.
Aðeins 15 þúsund áhorfendur mættu á
leikinn og hafa aldrei verið færri á lands-
leik í Vestur-Þýskalandi.
Svíar unnu nauman sigur á Möltu,
2:1. Robert Prytz skoraði fyrir Svía strax
á 2. mínútu en Nadu Farrugia jafnaði
fyrirheimaliðiðá65. mín. GlennStröm-
berg tryggði síðan Svíum sigur með
marki á 73. mín.
Lokastaðan í 2
V.Þyskaland........8 5
Portúgal...........8 5
Sviþjóö............8 4
Tékkóslóvakía.....8 3
Malta..............8 0
riðli:
NBA-deildin
2 1 22:9 12
0 3 12:10 10
1 3 14:9 9
2 3 11:12 8
1 7 6:25 1
- VS/Reuter
Handbolti - 1. deild
Öruggur Valssigur
Gerðu út um leikinn gegn KA ífyrri hálfleik
Kvennahandboltinn
Þrettán marka
sigur Stjömunnar
Fram malaði FH. Víkingur á toppnum eftir sigur á KR
Yfirburöir
LA Lakers
Los Angeles Lakers eru komnir
með yfirburðaforystu í Kyrrahafs-
riðli NBA-deildarinnar í körfuknatt-
leik eftir tvo stórsigra um helgina.
Þeir unnu Los Angeles Clippers
127:67 á föstudagskvöldið og New
Jersey Nets 138:119 á sunnudaginn.
Lakers hafa unnið 10 af 11 lcikjuni
sínum en næsta lið, Portland Trail
Blazcrs er með 8 stiga en 5 töp.
Boston Celtics töpuðu fyrir lndi-
ana Pacers, 111:109, á laugardaginn
en eru samt með örugga forystu í Atl-
antshafsriðlinum. Þeir unnu Was-
hington Bullets 118:114 á föstudagsk-
völdið. Celtics eru með 8 sigra og 2
töp en næstir eru Philadelphia 76ers
með 5 sigra og 5 töp. Milwaukee
Bucks og Detroit Pistons eru með
bestu stöðuna í jöfnum Miðriðlinum
of Houston Rockets og Denver
Nuggets virðast ætla að berjast um
sigurinn í Miðvesturriðlinum.
- VS/Reuter
Körfubolti
Erla Rafnsdóttir
Haukum.
skoraði 9 mörk fyrir Stjörnuna gegn
Valsmenn virðast hafa náð sér
upp úr þeirri lægð sem þeir hafa
verið í að undanförnu. Þeir sigr-
uðu KA nokkuð örugglega á
laugardaginn 20-16. Staðan í
hálfleik var 14-8, Val í hag.
Það voru einkum hraðaupp-
hlaupin sem að skildu liðin að.
Laugardalshöll 16. nóv.
Valur-KA 20-16 (14-8)
3-1, 8-4, 11-6, 14-8, 17-10, 17-14,
19-14, 20-16.
Mörk Vals: Valdimar Grímsson 6,
Jakob Sigurðsson 4, Július Jónasson
4(2v), Theódór Guðfinnsson 2, Geir
Sveinsson 2, Jón Pétur Jónsson og
Þorbjörn Jensson 1 hvor.
Mörk KA: Erlendur Hermannsson
6, Erlingur Kristjánsson 4, Guömundur
Guðmundsson 2, Þorleifur Ananías-
son, Logi Einarsson, Anton Pétursson
og Pétur Bjarnason 1 hver.
Dómarar: Gunnlaugur Hjálmars-
son og Óli Ólsen. - Slakir.
Maöur lelkslns: Sigmar Þröstur
Óskarsson, KA.
Hjá Val voru hraðaupphlaupin
mörg og þeir Valdimar og Jakob
skoruðu grimmt. En það var ann-
að uppi á teningnum hjá KA,
hraðaupphlaupin voru fá og oftar
en ekki náði Ellert boltanum af
seinum KA-mönnum.
Það má segja að Valsmenn hafi
gerti út um leikinn í fyrri hálfleik.
Þá náðu þeir 6 marka forskoti og
náðu KÁ-menn ekki að jafna
leikinn eftir það. Þó gerðu þeir
heiðarlega tilraun og voru það
einkum þeir Erlendur og Sigmar
sem að sýndu einhverja baráttu í
lokin, en forskot Valsmanna var
of stórt og sigur þeirra öruggur.
Aðal leiksins var tvímælalaust
markvarslan. Sigmar Þröstur og Ell-
ert vörðu báðir mjög vel, einkum þó í
síðari hálfleik. Vörn Valsmanna var
einnig mjög sterk og voru þeir Geir
Sveinsson og Þorbjörn Jensson fastir
fyrir. Hjá KA voru það helst þeir Er-
lendur Hermannsson og Guðmundur
Guðmundsson sem stóðu upp úr,
annars var liðið frekar slakt.
-Logi
3. deild
Reynir tapaði
þremur stigum
Reynismenn úr Sandgcrði töpuðu ÞórA................8 5 1 2 191:158 11
þremur dýrmætum stigum í Norðurlands- Týr................7 5 0 2 186:150 10
ferð sinni um hclgina. Þeir léku við Völ- Pe,ynirS........I q ? 1 17
sung á laugardaginn að Laugum og þar 3 1 1 111101 7
varð óvænt jafntefli, 30:30. A sunnudag UMFN...........6 3 1 2 170:146 7
léku þeir síðan við Þór á Akureyri og þar Völsungur......8 3 1 4 196:191 7
vann Þór sinn fyrsta heimasigur í vetur, (®K.............* 3 ° J 170J93 6
20:18- Seifoss.............5 1 2 2 114:119 4
Einn annar leikur fór fram um helgina. SS222™...........V/infioo1 o
UMFN tok óvænt stig af Fylki er hðin Ogri.................6 0 0 6 78:174 q
skildu jöfn, 24:24, í Njarðvík á laugardag- Ánnað kvöld verða leiknir fimm íeikir í
inn. Leikjum Selfoss og Ögra, og 3. deild. Þá mætast ÍA-Skallagrímur,
Skallagríms-ÍBKvarfrestaðvegnaveðurs ÍBK-UMFN, Reynir S.-Selfoss, Fylkir-
á föstudagskvöldið. Ögri og Týr-Hveragerði.
Staðan í 3. deildinni í handknattleik: - VS
Nýliðar 1. deildarinnar
Haukar og Stjarnan mættust í
Hafnarfirði á sunnudaginn. Mik-
ill munur var á liðunum og verð-
ur róðurinn greinilega mjög
þungur hjá Haukunum í vetur.
Stjarnan náði strax tökum á
leiknum og staðan var 13:7 í hálf-
leik. Strax í seinni hálfleik héldu
Stjörnustúlkurnar áfram að bæta
við mörkum og þegar upp var
staðið höfðu þær sigrað, 28:15.
Stjörnuliðið var mjög jafnt í
leiknum og nutu ungu stúlkurnar
sín vel er þær Margrét Theódórs-
dóttir og Erla Rafnsdóttir voru
teknar úr umferð. Haukaliðið á
langt í land með að geta ógnað
hinum liðunum í 1. deild eitthvað
að ráði.
Mörk Stjörnunnar: Erla Rafnsdóttir 9,
Margrét Theódórsdóttir 6(5v), Guöný
Gunnsteinsdóttir 5(1 v), Anna Guðjóns-
dóttir 3, Hrund Grétarsdóttir 2, Ingibjörg
Andrésdóttir 2, Oddný Teitsdóttir 1.
Mörk Hauka: Hrafnhildur Pálsdóttir 7,
Björk Hauksdóttir 5(1 v), Ragnheiöur Júlí-
usdóttir 1, Steinunn Þorsteinsdóttir 1,
Hólmfríöur Garðarsdóttir 1.
Fram vann FH létt
Fram vann sanngjarnan sigur á
FH, 26:16,í Höllinni á sunnudag-
inn. Þar var aldrei spurning um
úrslit, svo miklir voru yfirburðir
meistaranna.
Staðan í hálfleik var 11:5. Sól-
veig Steinþórsdóttir markvörður
Fram kom í veg fyrir að FH
skoraði fleiri en 16 mörk, hún
varði einsog berserkur allan
leikinn og var tvímælalaust mað- Staöan er nú þessi:
ur leiksins. FH-liðið var frekar víkingur 3 3 0
dapurt og var það helst María Fram„...!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!! 2 2 0
Sigurðardóttir sem sýndi smá lit í fh......................320
seinni hálfleik. vaklí!an!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!! 2 o i
Mörk Fram: Arna Steinsen 7(4v), Ing- ..................? ? ®
unn Bernótusdóttir 5, Guðríður Guöjóns- Haukar.................3 0 0
dóttir 4, Guðrún Gunnarsdóttir 4, Sigrún
Blomsterberg 1, Margrét Blöndal 1 ■.. , . . .,
Mörk FH: Arndís Aradóttir 4(2v), María . Næsti leikur verður 1 Hafnar-
Siguröardóttir3, HeiöaEinarsdót1ir3, Katr- firði annað kvöld. FH Og Valur
ín Danivalsdóttir 2, Rut Baldursdóttir 2, mætast ki.20.
Eva Baldursdóttir 1, Hiidur Haröardóttir 1. _ fyj11
64:50 6
47:35 4
58:56 4
73:61 3
45:47 1
37:52 0
39:62 0
Grindavík
náði Fram
Grindvíkingar náðu Fram að stig-
um á toppi 1. deildarinnar í körfu-
knattleik uni helgina er þeir sigruðu
Þór frá Akureyri 69:62 í Grindavík.
Þórsarar léku einnig við b-lið ÍS í
ferðinni í bikarkeppninni en máttu
þola 15 stiga 'ap gegn Bjarna Gunnari
og félögum.
- VS
Auðveldur
Víkingssigur
Víkingsstúlkurnar áttu ekki í
vandræðum með KR og sigruðu
29:19. Ekki byrjaði þó leikurinn
vel hjá báðum aðilum, mikið var
um mistök og minnti áhorfendur
á „köttinn og músina“, svo lé-
legur var hann á köflum.
Víkingur átti góða spretti inná
milli og leiddi 11:8 í hálfleik. Vík-
ingsstúlkurnar komu ákveðnar til
seinni hálfleiks og sýndu jafnan
og góðan leik og skoruðu mörg
falleg mörk með langskotum.
KR-stúlkurnar verða hinsvegar
að gera hjá sér stórátak ef þær
ætla sér ekki að falla.
Mörk Víkings: Inga Lára Þórisdóttir
8(3v), Jóna Bjarnadóttir 6, Svava Bald-
vinsdóttir 4, Eiríka Ásgimsdóttir 3, Arn-
heiðurBergsteinsdóttir2, Metta Helgadótt-
ir 1, Valdis Birgisdóttir 1.
Mörk KR: Elsa Ævarsdóttir 5, Sigur-
björg Sigþórsdóttir 4(1v), Jóhanna Ás-
mundsdóttir4, Snjólaug Benjamínsdóttir3,
Karolina Jónsdóttir 3, Bryndis Harðardóttir
1.
Þriðjudagur 19. nóvember 1985 ; ÞJÓÐVILJINN - SÍÐA 11
2. deild
Fyrsti sigur
Aftureldingar
Afturelding vann sinn fyrsta lcik í
2. deildinni í handknattleik á laugar-
daginn þegar Þórarar úr Eyjum komu
í heimsókn að Varmá. Axel Axelsson
þjálfari Mosfellinga gat ekki leikið
með liði sínu vegna meiðsla en það
kom að lítilli sök - Afturclding lék
mjög vel með Sigurjón Eiríksson scm
besta mann og vann 27:17. Sigurjón
gerði 8 mörk í leiknum.
Þórurum gekk lítiö betur gegn HK í
Digranesi á sunnudaginn. HK vann
öruggan sigur, 30:22, og heldur sér í
toppbaráttunni. Hörður Sigurðsson
gerði 8 marka HK, Björn Bjömsson
og Stefán Halldórsson 5 hvor, en Sig-
björn Óskarsson 7 og Páll Scheving 6
skoruðu mest fyrir Eyjamenn.
ÍR tapaði sínum þriðja leik í röð er
Breiðablik mætti í Seljaskólann á
laugardaginn. Blikarnir unnu sinn
sjöunda leik í röð, 27:22, og stefna
rakleitt á 1. deild. Á föstudagskvöld-
ið vann HK sigur á Gróttu á Seltjarn-
arnesi, 27:21.
Staðan í 2. deiid:
Breiðablik 8
Ármann 7
HK 8
ÍR 8
8
Afturelding 7
ÞórVe 8
Grótta 8
Annað kvöld leika Breiðablik-
Grótta, HK-Afturelding, ÍR-Haukar
og Ármann-Þór Ve.
- VS
Tvö glæsimötk
og Frakkland