Þjóðviljinn - 19.11.1985, Page 4
ÍÞRÓTTIR
Enska knattspyrnan
Urslit
í ensku knattspyrnunni:
1. deild:
Arsenal-Oxford.................2:1
Aston Villa-Sheff. Wed.........1:1
Ipswich-Everton................3:4
Liverpool-W.B.A................4:1
Luton-Coventry.................0:1
Manch.Utd-Tottenham............0:0
Newcastle-Chelsea..............1:3
Nottm.For.-Manch-City..........0:2
Q.P.R.-Leicester...............2:0
Southampton-Birmingham.........1:0
West Ham-Watford...............2:1
2. deild:
Barnsley-Sunderland............1:1
BradfordC.-Millwall........frestaö
Brighíon-Huddersfield..........4:3
Charlton-Hull City.............1:2
Fulham-Carlisle............frestað
Grimsby-Portsmouth.............1:0
Leeds-Crystal Palace...........1:3
Middlesboro-Oldham.............3:2
Sheff.Utd-Blackburn............3:3
Stoke-Norwich..................1:1
Wimbledon-Shrewsbury...........2:2
FA-bikarinn - 1. umferð:
Bishops Stortford-Peterboro....2:2
Bournemouth-Dartford...........0:0
Brentford-Bristol Rovers.......1:3
Bury-Chester...................2:0
Chelmsford-Weymouth............1:0
Chorley-Altrincham.............0:2
Dagenham-Cambridge.............2:1
Derby County-Crewe.............5:1
Enfield-BognorRegis............0:2
Exeter-Cardiff City............2:1
Fareham-Maidstone..............0:3
Farnborough-Bath...............0:4
Frickley-Halesowen.............1:1
Gillingham-Northampton.........3:0
Halifax-Scunthorpe.............1:3
Lincoln-Blackpool..............0:1
Macclesfield-Hartlepool........1:2
Mansfield-Port Vale............1:1
NottsCounty-Scarborough........6:1
Nuneaton-Burnley...............2:3
Plymouth-Aldershot.............1:0
Reading-Wealdstone.............1:0
Rochdale-Darlington............2:1
Rotherham-Wolves...............6:0
Runcorn-Boston.................2:2
Slough-Aylesbury...............2:2
Southend-Newport...............0:1
Stockport-Telford..............0:1
Swansea-Leyteon Wingate........2:0
Tranmere-Chesterfield..........2:2
VS Rugby-Orient................2:2
Walsall-Preston N. E...........7:3
Whitby-South Liverpool.........1:0
Wigan-Doncaster................4:1
Winsdor&Eton-Torquay...........1:1
Wrexham-Bolton.................3:1
Wycombe-Colchester.............2:0
Yeovil-Hereford................2:4
York City-Morecambe............0:0
Staóan
1. deild:
Man.Uld 17 13 3 1 35: 7 42
Liverpool 17 11 4 2 39:17 37
Chelsea 17 10 3 4 28:18 33
West Ham.... ,17 9 5 3 30:19 32
Sheff.Wed.... 17 9 5 3 26:24 32
Everton 17 9 3 5 37:22 30
Arsenal 17 9 3 5 22:22 30
Newcastle... 17 7 5 5 25:26 26
Q.P.R 17 8 2 7 19:21 26
Nott.For .17 8 1 8 28:28 25
Luton .17 6 6 5 29:21 24
Watford .17 6 4 7 32:31 22
Tottenham.... 16 6 3 7 28:22 21
Southampton 17 5 6 6 20:23 21
Coventry .17 5 5 7 22:24 20
Aston Villa.... .17 4 7 6 22:23 19
Birmingham 16 5 1 10 11:23 16
Manch.City.. .17 3 6 6 16:25 15
Oxford .18 3 6 9 24:35 15
Leicester .18 3 6 9 21:36 15
Ipswich .17 2 3 12 11:29 9
W.B.A .17 1 3 13 14:43 6
2. deild:
Portsmouth. .16 11 2 3 29:9 35
Wimbledon.. .17 9 4 4 20:15 31
Sheff. Utd.... .17 8 6 3 34:22 30
Charlton .16 9 3 4 31:20 30
Norwich .17 7 6 4 28:18 27
Oldham .17 8 3 6 28:23 27
Cr. Palace... .17 8 3 6 25:21 27
Blackburn.... .17 7 6 4 20:18 27
Barnsley .17 7 5 5 20:14 26
Brighton .17 7 4 6 29:26 25
HullCity .17 6 6 5 29:22 24
Sunderland . .17 6 4 7 17:24 22
Grimsby .17 5 6 6 25:22 21
Leeds .17 5 5 7 20:30 20
BradfordC... .15 5 3 7 17:22 18
Huddersfield 17 4 6 7 23:30 18
Millwall .16 5 3 8 21:28 18
Stoke .17 3 8 6 17:20 17
Fulham .14 5 1 8 12:19 16
Middlesboro 16 3 6 7 10:18 15
Shrewsbury 17 3 5 9 20:29 14
Carlisle .16 2 3 11 17:41 9
Markahæstir í 1. deild:
Frank McAvennie, West Ham......15
Kerry Dixon, Chelsea...........10
Mark Hughes, Man.Utd...........10
Brian Stein, Luton.............10
TonyCottee, WestHam.............9
Peter Davenport, Nottm. For.....9
Mick Harford, Luton.............9
Gerry Lineker, Leicester........9
lan Rush, Liverpool.............9
GraemeSharp, Everton............9
*r
Forskotið góða
fokið að hálfu
Liverpoolfimm stigum á eftir Man. Utd. West Ham komið í
fjórða sætið og McAvennie skorar enn. Óvæntir útisigrar
Coventry og Man. City
Tíu stiga forysta er stór á pappírn-
unum en fljót að hverfa - ekki síst þar
sem þrjú stig eru gefin fyrir sigur. A
háifum mánuði hefur forskot Man.
Utd minnkað um helming og er aðeins
fimm stig eftir markalaust jafntefli
liðsins við Tottenham og 4:1 sigur Li-
verpool á botnliðinu WBA.
Óvæntir atburðir virtust þó í aðsigi
á Anfield þegar Garth Crooks skall-
aði í mark Liverpool eftir 38 mínútna
leik, 0:1. Steve Nicol jafnaði á loka-
sekúndum fyrri hálfleiksins og í seinni
hálfleik réð botnliðið ekki við neitt.
Jan Mölby, Mark Lawrenson og Paul
Walsh skoruðu og úrslitin urðu 4:1.
Man.Utd slapp nokkuð vel með 0:0
jafntefli gegn Tottenham einsog ís-
lenskir knattpyrnuáhugamenn sáu í
beinni útsendingu. Tottenham varð
fyrsta liðið til að halda hreinu á Old
Trafford í vetur og fór illa með gullin
tækifæri í seinni hálfleiknum. Mark
Hughes birtist síðan einsog skrattinn
úr sauðarleggnum rétt fyrir leikslok
og bombaði í þverslána á marki Tott-
enham. Man.Utd saknaði greinilega
fyrirliða síns, Bryans Robsons, og
Glenn Hoddle var einráður á miðj-
unni og lék leikmenn Man.Utd oft
grátt.
Frank McAvennie heldur áfram
að skora fyrir West Ham, sem er nú
komið í fjórða sæti deildarinnar - tap-
laust síðan í ágúst. Mark Ward kom
West Ham í 2:0 en Worrall Sterling
minnkaði muninn fyrir Watford.
Á Portham Road var mikið fjör og
Ipswich skoraði þrjú mörk en hafði
aðeins gert 8 fram að því í vetur. Eftir
skamma stund stóð 2:0 fyrir Ipswich
gegn meisturum Everton, Mich
D’Avray og Kevin Wilson höfðu
skorað. Adrian Heath skoraði með
skalla fyrir Everton á 34. mínútu, 2:1,
og á 47. mín. jafnaði Graeme Sharp,
2:2. Kevin Sheedy, besti maður vall-
arins, kom Everton síðan yfir á 58.
mín, 2:3, en Terry Butcher jafnaði
Glenn Hoddle lék mjög vel þegar
Tottenham gerði jafntefli við Man.
Utd. á Old Trafford á laugardaginn.
Landsleikir
Skotland
Afram
3ja stiga
forysta
Aberdeen heldur þriggja
stiga forystu í skosku úrvals-
deildinni í knattspyrnu þrátt
fyrir 1:1 jafntefli á útivelli
gegn botnliði Motherwell.
Rangers fékk skell gegn He-
arts í Edinborg, 3:0 en Celtic
komst í annað sætið með 2:0
sigri á Clydebank. Dundee
tapaði 0:3 fyrir nágrönnunum
í Dundee Utd og St. Mirren
tapaði 1:3 fyrir Hibernian.
Aberdeen hefur 21 stig,
Celtic 18, Rangers 17, Dundee
Utd 16, Hearts 16,
HibernianÍ5, St. Mirren 14,
Dundee 13, Clydebank 10 og
Motherwell 8 stig.
- VS/Reuter
Pólland
jagði
ttalíu
Pólverjar lögðu heims-
meistara ítala að velli í vin-
áttulandsleik í knattspyrnu
sem fram fór á hálum velli í
frosti í Chorzow á laugardag-
inn.
Pólland vann 1:0 og skoraði
Dariusz Dziekanowski sigur-
markið með fallegu skoti af 20
m færi eftir aðeins fímm mín-
útna leik. ítalir fengu nokkur
færi til að jafna og Aldo Ser-
ena átti m.a. skalla í slá.
í Puebla, á einum af
leikvöngum HM á næsta ári,
gerðu Mexíkó og Argentína
jafntefli 1:1, á sunnudaginn.
Aguirre kom Mexíkönum yfir
á 2. mínútu en Ruggeri jafnaði
á 68. mín. Þetta var fjórða 1:1
jafntefli liðanna í jafnmörgum
leikjum sl. tvö árin en á föstu-
dagskvöld urðu sömu úrslit er
þau mættust í Los Angeles.
- VS/Reuter
með hörkuskalla, 3:3, á 72. mínútu.
Þegar 12 mínútur voru eftir var Gary
Lineker felldur í vítateig Ipswich og
úr vítaspyrnunni skoraði Trevor Stev-
en sigurmark meistaranna, 3:4.
Glenn Roeder skoraði fyrir New-
castle gegn Chelsea strax á fyrstu
mínútunni. Chelsea náði að snúa
leiknum við og vinna góðan útisigur,
3:1, sem fleytti liðinu uppí þriðj a sæt-
ið. Það voru David Speedie, Nigel
Spackman og Kerry Dixon sem
skoruðu mörkin.
Coventry kom geypilega á óvart
með 1:0 sigri á gervigrasinu í Luton.
David Bowman skoraði eina mark
leiksins.
Þá kom sigur Manchester City í
Nottingham ekki síður á óvart, fyrsti
sigur liðsins í 1. deild síðan 31. ágúst.
Paul Simpson og Clive Wilson, fram-
herjarnir ungu, skoruðu mörkin.
Sjálfsmark frá Nigel Spink mark-
verði Aston Villa færði Sheffield We-
dnesday forystu á Villa Park en Colin
Gibson náði að jafna fyrir Villa. 1:1.
Sigurður Jónsson lék ekki með Sheff.
Wed.
Danny Wallace lyfti Southampton
upp töfluna með því að skora eina
mark leiksins gegn Birmingham sem
ekki hefur unnið leik í tvo mánuði.
Tony Woodcock og Paul Davis
komu Arsenal í 2:0 og það dugði gegn
Oxford. Jeremy Charles náði að vísu
að laga stöðuna fyrir nýliðana, 2:1.
Steve Wicks og Wayne Fereday
skoruðu mörkin í 2:0 sigri QPR á
slöku liði Leicester.
Portsmouth tapaði sínum þriðja
leik í 2. deild, 1:0 í Grimsby, en for-
ysta liðsins minnkaði lítt. Wimbledon
nýtti sér tap hjá Charlton og skaust
uppí annað sætið. Sheffield United er
komið í þriðja sæti og er orðið eitt
líklegasta lið deildarinnar til að vinna
sig uppí 1. deild.
- VS
Evrópuknattspyrnan
Skellur hjá Rapid
Rapid Wien tapaði sínum
fyrsta leik í austurrísku 1.
deildinni í vetur á laugardaginn,
5:1 gegn erkifjendunum í Austria
Wien. Austria hefur því náð fjög-
urra stiga forystu þegar 18 um-
ferðum er lokið, hefur 33 stig og
markatöluna 59:9 en Rapid er
með 29 stig og markatöluna
59:13. í þriðja sæti er Sturm Graz
með 19 stig.
í Portúgal var 2. umferð bikar-
keppninnar á dagskrá. Toppliðin
sluppu ósködduð úr þcim leik,
þrátt fyrir að öll lékju á úti-
völlum. Porto vann Agueda 1:0,
Sporting vann Ponte Sor 2:1, Gu-
Spánn
Þrjú frá
Valdano
Arcihbald
skoraði tvö
Real Madrid heldur forystu
sinni í spænsku 1. deildinni í
knattspyrnu eftir 3:1 sigur á
nýliðum Cadiz á sunnudag-
inn. Argentínumaðurinn
Jorge Valdano skoraði öll 3
mörkin. Sporting Gijon er
áfram eina taplausa liðið í
deildinni eftir 3:1 sigur heima
gegn Pétri Péturssyni og fé-
lögum í Hercules.
Steve Archibald skoraði tví-
vegis fyrir Barcelona sem
vann Celta Vigo 2:0 á útivelli
og komst í fímmta sætið.
Real Madrid hefur 19 stig,
Sporting Gijon 18, Atletico
Madrid 15, Bilbao 15, Barce-
lona 14, Valladolid 14, Zara-
goza 14, Sociedad 13, Sevilla
12, Cadiz 12, Valencia 11,
Real Betis 10, Las Palmas 9,
Hercules 8, Espanol 8, Racing
Santander 8, Osasuna 7 og
Celta Vigo 5 stig.
- VS/Reuter
imares vann Casa Pia 4:0 og Ben-
fica vann Alverca 2:0.
Steauja vann Cluj-Napoca 2:0 í
rúmensku 1. deildinni og er
áfram efst, með 22 stig. Sportul
Student er með 20 stig og Craiova
18. Annars staðar í Evrópu var frí
vegna landsleikja um helgina og
næsta miðvikudag. - VS/Reuter
V.Pýskaland
Öruggir
útisigrar
Borussia Dortmund og Bayer
Leverkusen tryggðu sér sæti í 4.
umferð vestur-þýsku bikar-
keppninnar í knattspyrnu á
laugardaginn með útisigrum gegn
áhugamannaliðum. Dortmund
sigraði Homburg 3:1 og Leverk-
usen vann Eintracht Trier, liðið
sem sló út bikarmeistarana Bayer
Uerdingen, einnig 3:1.
- VS/Reuter
Sovétríkin
Kiev
meistari
Dynamo Kiev tryggði sér
sovéska meistaratitilinn í
knattspyrnu í 11. skipti á
föstudagskvöldið með 1:1
jafntefli gegn fráfarandi
meisturum Zenit Leningrad.
Aðeins Dynamo Moskva hefur
hlotið titilinn jafnoft.
Kiev er með 48 stig þegar
tveimur umferðum er ólokið.
Spartak Moskva hefur 42 stig,
Dynamo Minsk 41 og Dnjepr
40 stig. SKA Rotov er fallið í 2.
deild og Fakel Voronezh fer
sennilega sömu leið.
- VS/Reuter