Þjóðviljinn - 03.12.1985, Síða 3

Þjóðviljinn - 03.12.1985, Síða 3
3. deild Týr aftur á toppinn Týr er á ný á toppi 3. deildarinnar í handknattleik eftir Reykjavíkurferð um helg- ina. Týsarar unnu Fylki 25-20 á laugardaginn og Ögra 29-12 á sunnudaginn. Norðanliðin Þór og Völsungur léku á Vesturlandinu um helgina, fjóra leiki alls, en fengu samtals aðeins tvö stig. Þór vann Skalla- grím 24-18 í Borgarnesi en tapaði 29-26 fyrir ÍA á Akranesi. Völs- ungur tapaði 33-22 fyrir ÍA og 21-18 fyrir Skallagrími. Reynir frá Sandgerði vann ÍH í Hafnarfirði 30-22. Staðan í 3.deild: Týr........ 10 8 0 2 275-196 16 Reynir S..... 10 7 2 1 245-220 16 lA......... 9 7 1 1 236-192 15 IBK........ 8 7 0 1 208-159 14 Pór A....... 11 6 1 4 258-230 13 Fylkir.... 10 4 1 5 210-197 9 UMFN.......... 9 3 2 4 239-225 8 ÍH......... 9 4 0 5 217-238 8 Völsungur.... 11 3 1 7 262-274 7 Selfoss..... 8 2 2 4 177-187 6 Hveragerði... 8 2 1 5 202-235 5 Skallagrímur.. 9 2 1 6 190-229 5 ögri....... 10 0 0 10 144-181 0 Annað kvöld mætast ÍBK-Hveragerði, Selfoss-Skalla- grímur, Fylkir-ÍH og Týr-Reynir. -,VS. ÍÞRÓTTIR Stórmótið KR varði titilinn Vann Fram í úrslitaleiknum á Akranesi KR sigraði 4-3 í hörkuspenn- andi úrslitaleik á Stórmóti íþróttafréttamanna í innanhúss- knattspyrnu sem fram fór á Akra- nesi á sunnudaginn. KR-ingar vörðu því titil sinn en þeir sigruðu einnig í fyrra. Átta lið léku í tveimur riðlum og var geysihörð keppni um sæti í undanúrslitunum. I A-riðli fékk KR 4 stig, Fylkir 3, ÍA 3 og ÍBK 2 stig. í B-riðli fékk Fram 4 stig, Valur 3, Þór 3 og lið Samtaka fliróttafréttamanna 2 stig. Iþróttafréttamenn unnu frækinn sigur á Þórsurum og komu í veg fyrir að norðanmenn kæmust í undanúrslitin. Fram vann síðan Fylki 5-4 í undanúrslitum og KR vann Val 4-2. Sæbjörn Guðmuncísson skoraði öll fjögur mörk KR í þeim leik. Fylkir vann Val 4-2 í úrslitum um 3.sætið. Úrslitaleikurinn var j afn og tví- sýnn. Fram jafnaði. 3-3, rétt fyrir leikslok en Sævar Leifsson skoraði fyrir KR í framlenging- unni og tryggði Vesturbæjarlið- inu sigur, 4-3. Sæbjörn skoraði öll þrjú mörk KR í venjulegum leiktíma og hann varð marka- hæsti leikmaður mótsins með 14 mörk. KR-ingar hlutu því Adidas-bikarinn í annað sinn en Fram hlaut hann fyrsta árið sem mótið fór fram. -VS Sæbjörn Guömundsson var maðurinn á bakvið sigur KR-inga I Stórmótinu. Vestur-Pýskaland Stuttgart úr leik? Steinlá í Bremen, 6-0. Góður leikur Gladbach og Bayern Möguleikar Stuttgart á að blanda sér í baráttuna um vestur- þýska meistaratitilinn í knatt- spyrnu eru orðnir litlir eftir slæman skell í Bremen á föstu- dagskvöldið. Werder Bremen lék á als oddi og sigraði 6-0 og jók forystu sína uppí þrjú stig á ný. Frank Ordenewitz og Michael Kutzop skoruðu tvö mörk hvor fyrir Bremen í leiknum og liðið er nú orðið haustmeistari, en svo nefnist það lið sem er á toppnum þegar 17 umferðum af 34 er lok- ið. í 17 skipti síðustu 22 árin hefur haustmeistarinn orðið meistari þegar upp hefur verið staðið. Viðureign Borussia Mönc- hengladbach og Bayern Múnc- hen var sýnd beint í íslenska sjón- varpinu. Hún var í allt öðrum gæðaflokki en hörmungin Bayern-Bremen helgina á undan. Criens kom Gladbach í 2-0 og þegar hinn stórskemmtilegi Rahn skoraði þriðja markið eftir glæsi- lega sókn virtist leikurinn búinn. En lið Bayern er þekkt fyrir seiglu og þegar Rummenigge og Nachtweih höfðu minnkað mun- inn í 3-2 virtist allt geta gerst. En bakvörðurinn Drehsen bætti upp dauðafæri sem hann hafði klúðr- að illilega með því að skalla í mark Bayern, 4-2, og Gladbach er því komið í annað sætið á ný. Úrslit helgina: í Bundesligunni um Bremen-Stuttgarl.................6-0 Gladbach-Bayern Munchen..........4-2 Kaiserslautern-Saarbrucken.......1-1 Dortmund-Hannover................2-0 Leverkusen-Schalke...............2-0 Dusseldorl-Uerdingen.............1-1 Atli Eðvaldsson og Lárus Guð- mundsson léku báðir með Uer- dingen gegn gamla félaginu hans Atla. Lárus var tekinn útaf skömmu fyrir leikslok en Atli lék allan leikinn. Wolfgang Funkel kom Uerdingen yfir en Bocken- feld jafnaði. Staðan í Bundesligunni: Bremen...... 17 11 3 3 50-27 Gladbach.... 16 9 4 3 37-22 Bayern...... 17 10 2 5 32-20 Hamburger.... 16 9 3 4 27-13 Leverkusen... 16 7 5 4 32-21 Bochum...... 16 8 1 7 33-26 Mannheim.... 15 6 4 5 27-22 Köln........ 15 5 6 4 25-24 Kaiserslautern.. 16 6 4 6 22-21 Stuttgart... 16 7 2 7 28-28 Uerdingen... 16 6 4 6 25-39 Schalke..... 16 5 4 7 20-24 Dortmund.... 16 5 4 7 25-32 Saarbrucken... 17 3 7 7 22-30 Frankfurt... 16 2 8 6 15-27 Hannover.... 16 4 4 8 25-43 Nurnberg.... 16 4 2 10 23-31 Dusseldorl.. 17 3 3 11 25-43 25 22 22 21 19 17 16 16 16 16 16 14 14 13 12 12 10 9 -VS/Reuter Hans-Jörg Criens skoraði tvö mörk fyrir Gladbach gegn Bayern. HM Irakar í úrslit Fimleikar Bima formaður Birna Björnsdóttir var kjörin formaður Finileikasambands Is- lands á ársþingi sambandsins sem haldið var fyrir skömniu. Hún tekur við af Lovísu Einarsdóttur sem hefur gegnt embættinu og starfað af miklum krafti síðustu fjögur árin en gaf ekki kost á sér til áframhaldandi formennsku. í stjórn ásamt Birnu eru þau Asta ísberg, Rúnar Þorvaldsson, Oddný M. Ragnarsdóttir og Ósk- ar Ólafssqn. I varastjórn eru As- laug Dís Asgeirsdóttir, Jónína S. Pálmadóttir og Jóhanna Sigurð- ardóttir. Blak Kanar unnu Bandaríkjamenn tryggðu sér um helgina heimsmcistaratitilinn í blaki karla en þá lauk keppninni í Japan. Bandaríkjamenn unnu alla sjö leiki sína en Sovétmenn og Tékkar komu næstir með fimm sigra í 7 leikjum. - VS/Reuter. Úrvalsdeildin Þriðja tap ÍBK í röð Haukar stungu af strax eftir hlé án heimaleiks írakar eru komnir í úrslit HM í knattspyrnu i fyrsta skipti. Þeir urðu 23. þjóðin af 24 til að tryggja sér Mexíkóför er þeir sigruðu Sýrland 3-1 í Saudi-Arabíu á föstudagskvöldið. Fyrri úrslitaleik þjóðanna sem fram fór í Sýrlandi lauk með marka- lausu jafntefli. Árangur íraka er athyglisverður því þeir urðu að leika alla leiki sína á hlutlausum völlum. Vegna stríðsástandsins í landinu bannaði Alþjóða knattspyrnusamjón Guðmundsson liðsstjóri og Jón Hjaltalín Magnússon formaður HSÍ. Heimsbikarinn Tvöfaldur sigur Júgóslavanna Haukar unnu mjög sannfær- andi sigur á ÍBK í Keflavík á laugardaginn, 84-70. Þeir gerðu útum leikinn í fyrri hluta seinni hálflciks þegar þeir skoruðu 22 stig gegn 7 og náðu við það 26 stiga forystu. Er nú heldur farið að draga af nýliðum ÍBK eftir góða byrjun þeirra í mótinu og þetta var þriðja tap þeirra í röð. Það var aðeins urn miðbik fyrri hálfleiks sem einhver spenna var í leiknum. Þá komust Keflvíkingar stigi yfir, en það var í fyrsta og eina skiptið í leiknum. Haukar voru fljótir að snúa leiknum sér í hag, náðu góðri forystu fyrir hlé og stungu síðan af eins og áður er sagt. Haukarnir léku vel og þeir Viðar, Pálmar og ívar Webster voru þar fremstir í flokki. Keflvíkingar voru í heild mjög slakir, sérstaklega var hittnin hjá þeim léleg. Hreinn átti bestan leik og nýliðinn Magnús Guð- finnsson kom á óvart. -SÓM/Suðurnesjum Ketlavík 30.nóv. ÍBK-Haukar 70-84 (31-42) 10-17, 23-22,28-42, 31 -42 - 38-64, 57-77, 70-84. Stig ÍBK: Hreinn Þorkelsson 17, Siguröur Ingimundarson 14, Guöjón Skúlason 13, Hrannar Hólm 7, Magn- ús Guöfinnsson 7, Jón Kr.Gíslason 5, Ingólfur Haraldsson 4, Pétur Jónsson 3, Þorsteinn Bjarnason 1. Stig Hauka: Pálmar Sigurösson 21, Ivar Webster 18, Viðar Vignisson 18, Ólafur Rafnsson 11, Henning Henn- ingsson 6, Ivar Ásgrímsson 4, Kristinn Kristinsson 4, Eyþór Árnason 2. Dómarar: Kristinn Albertsson og Jón Otti Ólafsson - góöir. Maöur leiksins: Viöar Vignisson, Haukum. Júgóslavar fögnuðu tvöföldum sigri þegar svigkeppni heimsbik- arsins á skíðum hófst á sunnudag- inn. Keppt var í Sestriere á Italíu og hinn 19 ára gamli Rok Petrovic fékk besta tímann, sanianlagt 1:40,79 mín. Landi hans, hinn öllu þekktari Boran Krizaj, varð annar á 1:41,53 og Ivano Edalini frá Ítalíu þriðji á 1:41,69. Ingemar Stenmark frá Sví- þjóð varð sjötti en mörgum frægum skíðamönnum tókst ekki að Ijúka keppni, og má þar nefna Marc Girardelli, Andreaz Wenz- el, Max Julen, Paul Frommelt og Pirmin Zurbriggen. Karl Alpiger frá Sviss hefur nú forystu í stigakeppni heimsbik- arsins með 50 stig. Peter Múller frá Sviss er annar með 32 stig og síðan koma þeir Petrovic og Markus Wasmaier frá Vestur- Þýskalandi með 25 stig hvor. -VS/Reuter Útgáfa Leikreglur í körfu Ut eru komnar leikrcglur í körfuknattleik, gefnar út af fræðslunefnd ISÍ. Reglur komu síðast út árið 1981 en síðan hafa orðið miklar breytingar. Leik- reglurnar eru settar upp á að- gengilegan og skemmtilegan hátt að enskri fyrirmynd. Sigurður Valur Halldórsson, hinn kunni körfuknattleiksdómari, þýddi reglurnar en KKÍ sér um dreif- ingu og er hægt að fá þær á skrif- stofu sambandsins. Bekkpressa Met hjá Baldri Baldur Borgþórsson setti ís- landsmet unglinga í bekkpressu þegar hann lyfti 172,5 kg á bekk- pressumóti Æfingastöðvarinnar Engihjalla á sunnudaginn. Hann varð annar á mótinu en Hörður Magnússon sigraði, lyfti 200 kg og hlaut 106,84 stig gegn 101,65 hjá Baldri. Þriðjudagur 3. desember 1985 | ÞJÓÐVILJINN - SÍÐA 11

x

Þjóðviljinn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.