Þjóðviljinn - 12.12.1985, Blaðsíða 2
Víkurskip
FRÉTTIR
TORGIÐi
Eldvík kyirsett í Hull
Skipafélagið Víkur á í deilu við umboðsmann íHull.
Finnbogi Kjeldforstjóri: Afleiðing af Hafskipsmálinu.
Tortryggni grípur um sig gagnvart íslenskum skipafélögum.
Eg tel óhugsandi að þetta mál
hefði komið upp áður en Haf-
skipsmálið kom fram í dagsljósið.
Eldvíkin var kyrrsett í Hull vegna
ágreinings okkar við umboðs-
mann í Englandi en við erum að
reyna að leysa málið og ég vona
að það takist í dag, sagði Finn-
bogi Kjeld forstjóri Skipafélags-
ins Víkur í samtali við Þjóðvilj-
ann í gær.
Eldvík, eitt skipa félagsins, var
kyrrsett í Hull í Englandi í gær-
morgun. Að sögn Finnboga snýst
málið um reikning upp á um eina
miljón króna, sem Víkur hefur
ekki viljað samþykkja. Finnbogi
kvaðst búast við að skipið fengist
laust gegn tryggingu. Um 11
manna áhöfn er á skipinu.
„Afleiðing Hafskipsmálsins er
sú að nú er í algleymingi ákveðin
tortryggni gagnvart íslenskum
skipum. Svona mál hefðu áður
verið leyst hávaðalaust og í bróð-
erni, en þetta er eins og hitasótt
sem teygir anga sína víða,“ sagði
Finnbogi.
Hann sagðist ekki eiga von á að
þetta mál færi fyrir dómstóla.
„Við reynum að ná um þetta
samkomulagi".
Eldvík flutti ferskan fisk til
Hull og átti að láta úr höfn í gær-
morgun.
-gg
Matti var ekki lengi að teppa-
leggja allt hjá sér.
Umferð
Sunnutorgi breytt
Breytingar á mótum Langholtsvegar og Laugarás-
vegar til að minnka hraða ogstytta leið barnayfir
gatnamótin
Tilgangurinn með breytingum
á gatnamótum Langholtsveg-
ar og Laugarásvegar er sá að
minnka hraðaakstur inn á Lang-
holtsveginn og stytta gönguleið
barna þarna yfir, sagði Guttorm-
ur Þormar yfirverkfræðingur í
umferðardeild gatnamálastjóra
Reykjavíkur í samtali við Þjóð-
viljann í gær.
Það hefur komið flatt upp á
margan ökumanninn að búið er
að þrengja að umferð frá Laugar-
ásvegi inn á Langholtsveg og nú
eru þar aðeins tvær akreinar í
Nú er betra fyrir ökumenn að hægja á
sór áður en beygt er inn á Langholts-
veginn. Ljósm. E.ÓI.
stað þriggja áður. Ástæðan er sú
að sögn Guttorms að mönnum
hætti til að koma á heldur miklum
hraða inn á Langholtsveginn og
skapaði það mikla slysahættu.
Þarna er fjölfarin leið barna,
strætisvagnar stoppa við gatna-
mótin, barnaheimili er þar einnig
og í grenndinni er Langholts-
skóli. Eftir breytinguna eru
gatnamótin mun einfaldari og
greiðfærari börnum. Upphaflega
voru þessi gatnamót hönnuð á
sjötta áratugnum.
Að ósk íbúanna við Laugarás-
veg var á sínum tíma komið fyrir
upphækkunum á götunni, þar
sem of hraður akstur skapaði
slysahættu. - gg
Samtök lækna
Mótmæla gagnrýni
á alþjóðasamtökin
Stjórn Samtaka íslenskra
lækna gegn kjarnorkuvá hafa
sent frá sér tilkynningu þar sem
hún vísar á bug gagnrýni á starf-
semi alþjóðasamtaka lækna gegn
kjarnorkuvá, gagnrýni sem hefur
miðað að því að gera samtökin
tortryggileg og að þau gangi er-
inda ákveðinna stjórnmálaafla.
Segja íslensku læknarnir að þessi
gagnrýni sé fyrst og fremst runnin
undan rifjum þeirra sem þola
ekki afskipti almennings af um-
ræðum um frið og afvopnun.
Ennfremur segir: „Við minn-
um á að á meðan stjórnmála-
menn hafa talið fólki trú um að
þeir væru að reyna að draga úr
spennu í heiminum og ræða af-
vopnun hafa kjarnorkuvopna-
birgðir þeirra þrefaldast á 15
árum og nægja nú til að tortíma
öllu lífi á jörðunni. Eitt hundrað
og fimmtíu þúsund læknar í 50
löndum hafa sameinast um að
berjast gegn þessari vitfirringu."
A laugardaginn 14. desember
verður samkoma á Hótel Borg
þar sem minnst verður Nóbels-
verðlauna sem alþjóðasamtök
lækna gegn kjarnorkuvá tóku ný-
lega við. Dagskrá hefst kl. 14.00.
Meðal annars mun Halldór Lax-
ness lesa upp, tónlist verður flutt
og ljóð lesin.
Sinfónían
Amadeus-
tónleikar
Sinfóníuhljómsveitin helgar
tónleika sína í kvöld einu tón-
skáldi, Wolfgang Amadeus
Mozart, sem eftir vinsælt
leikrit og enn vinsælli kvik-
mynd mun orðinn hérumbil
jafnvinsæll og kollegar hans á
vinsældarlistum rása tvö í
heimsbyggðinni.
Tónleikarnir í kvöld hefjast
á sinfóníu nr. 1 sem Mozart
samdi 7 ára gamall árið 1764.
Eftir forleik að óperunni
Brúðkaup Fígarós syngur
Katrín Sigurðardóttir aríur úr
þeirri óperu og úr Don Gio-
vanni. Þá kemur 1. þáttur sin-
fóníu nr. 39, og Langholtskór-
inn syngur. Einar Jóhannes-
son leikur síðan klarinettuein-
leik í 3. þætti klarinettukons-
erts Mozarts, og að lokum er
Lacrymosa úr Requiem, síð-
asta verki Amadeusar.
Stjórnandi í kvöld er Jean-
Pierre Jacquillat. Leikar hefj-
ast kl. 20.30 í Háskólabíó, og
kynnir verður Sigurður Sigur-
jónsson, - sem lék Mozart í
Amadeus-uppsetningu Þjóð-
leikhússins.
Kynnirinn í hlutverki tónskáldsins:
Sigurður Sigurjónsson sem Wolf-
gang Amadeus í Þjóðleikhúsin
Eysteinn
I stomii og stillu
Ut er komið lokabindi ævisögu
Eysteins Jónssonar fyrrum
ráðherra og formanns Framsókn-
arflokksins, skráð af Vilhjálmi
Hjálmarssyni, fyrrverandi al-
þingismanni og ráðherra. Utgef-
andi er Vaka-Helgafell.
Bókin, sem nefnist Eysteinn í
stormi og stillu, er hartnær 400
bls. prýdd tugum mynda af marg-
háttuðum toga. í þessu bindi,
Lokabindi ævisögu Eysteins Jónssonar
hinu síðasta af þremur, segir frá
ævi Eysteins og störfum frá önd-
verðu ári 1956, er hræðslubanda-
lagið var í fæðingu - umbóta-
bandalagið vil ég nú kalla það,
segir Eysteinn - og fram til nýlið-
ins hausts.
Eysteinn Jónsson er, án allra
tvímæl, einn athafnamesti og litr-
íkasti stjórnmálamaður á íslandi
sl. 50 ár. Hann hefur gegnt þing-
mennsku og ráðherrastörfum
lengur en nokkur annar núlifandi
íslendingur. Saga hans er um leið
saga íslenskra stjórnmala í liálfa
öld. Enginn sá sem kynnast vill
þjóðmálabaráttunni á þessu
tímabili getur látið ævisögu
Eysteins Jónssonar ólesna.
Blaðið mun síðar fjalla betur
um þessa bók.
- mhg
2 SÍÐA - ÞJÖÐVILJINN Flmmtudagur 12. desember 1985