Þjóðviljinn - 12.12.1985, Blaðsíða 5
BÚSÝSLAN
Kalt jólaborð
SMIíUð
af hverju
Nú fer brátt að líða að því að jólin hin mikla
hátíð matfólksins gangi í garð. Forráðamenn
heimila standa í ströngu við bakstur og ýms-
an undirbúning. Búsýslan er með ýmsar hug-
myndir til að bæta á undirbúninginn, en
minnka stritið yfir sjálfa hátíðina.
Fiskur í hlaupi:
(handa 4)
700-900 gr. fiskur (ýsa, lúða
eða aðrar tegundir að vild)
4 dl vatn
4 dl þurrt hvítvín
112-314 msk salt
1 laukur
6 piparkorn
Hlaup:
1 I fisksoð, vín og vatn
14 bl matarlím
2 eggjahvítur ogskurn afl eggi
e. t. v. salt og pipar
Til skreytingar:
200 gr rœkjur
2 harðsoðin egg
10 svartar ólívur
dill eða steinselja
1. Leggið matarlímið í kalt vatn.
2. Hreinsið fiskinn og skerið í
sneiðar. Setjið hann í pott ásamt
svo miklu af vatni og hvítvíni að
það rétt fljóti yfir. Setjið salt,
lauk og piparkorn út í. Látið
fiskinn krauma við mjög vægan
hita í 15 mín.
3. Færið fiskinn upp. Þeytið
eyggjahvíturnar og hrærið þeim
saman við soðið ásamt muldri eg-
gjaskurn og matarlíminu. Látið
suðuna koma upp. Takið pottinn
af hellunni og látið hann standa í
10 mín.
4. Sigtið soði gegnum filtkaffi-
poka. Bætið vatni og víni í svo
það verði 1 1. Bragðbætið með
salti og pipar.
5. Hellið þunnu lagi af soði í form
eða skál. Látið það stífna í kæli.
Raðið rækjum, eggjasneiðum,
ólívum og steinselju eða dilli of-
aná. Hellið örlitlu soði yfir
skreytinguna og látið stífna.
6. Leggið fiskinn ofan á ásamt
afganginum af eggjunum og
rækjunum og hellið soðinu yfir.
Látið standa í kæliskáp yfir nótt.
7. Hvolfið hlaupinu á fat og fram-
reiðið með soðnum kartöflum og
remolaðisósu eða annarri bragð-
sterkri sósu.
Síldarsalat:
400-500 gr afvötnuð síldarflök
1 lítil dós rauðrófur
1 epli (helst súrt)
2-3 msk asíur eða pikles
6 soðnar kartöflur
1 laukur
1 dl safi af rauðrófunum
örlítill pipar
Sósa:
2 dl sýrður rjómi eða ýmir
5 tsk rifin piparrót
Skreyting:
Harðsoðin egg.
1. Skerið síld, rauðrófur, epli así-
ur og kartöflur í smáa bita og sax-
ið laukinn í smátt. Blandið öllu
saman ásamt rauðrófusafanum.
Bragðbætið með pipar. Skreytið
salatið þegar það er borið fram
með harðsoðnu eggi. Blandið
piparrót í sýrða rjómann og berið
sósuna með ásamt grófu brauði.
Salatið geymist í nokkra daga í
kæliskáp.
Kjúklingar
í hlaupi:
4 soðnar kjúklingabringur, úr-
beinaðar og niðurskornar
4 sítrónusneiðar
mintu-lauf
3 dl Peter Heering líkjör
1 sléttfull msk gelatín
Leysið upp gelatínið í kjúk-
lingasoði, kælið og bætið Peter
Heering líkjör út í. Þekið vel,
hreinsið mót með þunnu lagi af
blöndunni og skreytið stífnandi
hlaupið með þunnum sítrónusn-
eiðum og mintu-blöðum. Komið
kjúklingabringunum fyrir ofan á
hlaupinu, hellið afganginum af
gelatínblöndunni yfir og látið
stífna. Hvolfið á disk og berið
fram með fersku salati.
Jólasíld:
3 saltsíldar
1 meðalstór gulrót
2 laukar
1 blaðlaukur (púrra)
3 tsk piparkorn (hvít)
3 tsk piparkorn (svört)
2 tsk sinnepskorn
3 lárviðarlauf
Ediklögur:
2 dl vínedik
3 dl vatn
3 dl sykur
Flakið síldina, roðflettið og
hreinsið flökin. Skolið flökin og
afvatnið þau í miklu af köldu
vatni yfir nótt. Skerið síldina í 2
cm bita. Hreinsið lauk, gulrót og
blaðlauk og skerið í þunnar
sneiðar. Leggið sfld, lauk og
krydd í lögum í krukku. Sjóðið
edikslöginn, kælið hann og hellið
yfir í síldina. Síldina má fram-
reiða eftir 2 daga, en hún geymist
vel í nokkra daga í kæliskáp.
Graflax eða
silungur:
Graflax þykir góður ofan á
brauð en kannski heldur í dýrari
kantinum, en það er hægt að
grafa fleira en lax og er tilvalið að
prufa þessa kúnst á ódýrari fisk-
tegundum eins og t.d. ýsufl-
ökum.
4 msk salt, 1 H2 msk pipar, 1
li2 msk dill, 11/2 msk dill-fræ,
1 tsk saltpétur, 1 msk fínt sax-
aður laukur og 1 msk þriðja
krydd.
Öllu blandað vel saman og
dreift jafnt yfir lax-, silungs- eða
ýsuflök. Flökin sett á bakka eða
skál, geymd í kæliskáp og þeim
snúið öðru hverju. Tilbúið eftir
6-24 tíma eftir þykkt flakanna.
Sósa: 3 msk majones, 1 msk
rjómi (gjarnan þeyttur), 1 msk
SS pylsusinnep og 1/2 msk
dökkur púðursykur.
Öllu blandað saman (ath.
magn á púðursykri og sinnepi er
smekksatriði og bætið við eftir
þörfum).
Bökuð lifrarkæfa:
350 gr lambalifur, 50 gr kjúk-
lingalifur, 1 brauðsneið, 1 lítill
laukur, 100 grsvínafita, 112 tsk
hvítlaukssalt, 1/2 tsk mulinn
svartur pipar, 1 tsk blandaðar
kryddjurtir, 1 tsk sítrónusafi, 1
egg og 1 dl rauðvín.
Hreinsið lifrina, skerið úr
henni mestu tægjurnar og skerið
hana í bita. Afhýðið laukinn og
skerið í báta, skerið svínafituna í
lítil stykki. Lifrin, laukurinn,
brauðið og svínafitan er allt
hakkað (tví-hakkað ef kæfan á að
vera fíngerð). Svo er öllu hrært
vel saman og hellt í smurt eldfast
fat sem hægt er að loka, kæfuna
er hægt að skreyta með kry-
ddjurtum sem stráð er yfir áður
en hún er bökuð. Kæfan er sett í
u.þ.b. 170 °C heitan ofn og látin
bakast í ofnskúffu hálffullri af
vatni. Kæfan er bökuð þar til hún
er gegnumsoðin en tíminn fer
eftir því hvað fatið er djúpt. Eftir
30 mín. er óhætt að athuga hvort
kæfan sé soðin með því að stinga
með hníf í hana og þá sést á sárinu
hvort hún er hrá. Þegar kæfan er
bökuð er hún látin kólna og
geymd í kæliskáp yfir nótt. Þetta
er afbragðs álegg og einnig mjög
gott sem forréttur og þá borið
fram með gúrku, tómat, ólívum
og ristuðu brauði.
Verölagskönnun
Verðkönnun á leikföngum
í verðkönnun Verðlagsstofnunar kom m.a. fram: í fjórum tilvikum er lægsta verð
meira en 50% hærra en hæsta verð og þá allt upp í79%. í flestum tilvikum
reyndist lægsta verð vera í verslununum Smáfólk og Dómus.
Nú þegar jólahátíðin nálgast,
er kominn sá tími þegar sala á
leikföngum og ýmsum öðrum
gjafavörum er hvað mest. Á
þessum árstíma mun um það bil
helmingur allrar leikfangasölu
eiga sér stað, en hinn helmingur
sölunnar dreifist á aðra mánuði
ársins.
Dagana 28. og 29. nóvember
kannaði Verðlagsstofnun verð á
um 80 tegundum leikfanga í 24
verslunum á höfuðborgarsvæð-
inu og eru niðurstöður könnunar-
innar birtar í 12. tbl. Verðkynn-
ingar Verðlagsstofnunar.
I fjórum tilvikum er hæsta verð
meira en 50% hærra en lægsta
verð. Mestu munaði á Battle
Ram flaug í leikfangaseríunni
„Master of the universe" eða
79% og á flugvél í leikfangaserí-
unni Fabuland eða 66%.
í flestum tilvikum reyndist
lægsta verð vera í versluninni
Smáfólk eða í níu tilvikum og í
versluninni Domus í sjö tilvikum.
Ekki var unnt að sjá mark-
tækan mun á verðlagi á leikföng-
um í s.k. stórmörkuðum og verð-
lagi á sömu vörum í öðruVn versl-
unum.
Ýmsar skýringar eru á þeim
verðmun sem fram kemur í
könnuninni. Má þar nefna m.a.
mismunandi aldur birgða og mis-
munandi smásöluálagningu. í
könnuninni er borið saman verð
á nákvæmlega sömu vörutegund-
um og vörumerkjum, þannig að
gæðamunur skýrir ekki þennan
mismun.
Þeir sem hug hafa á því að
kynna sér betur könnunina á
verðlagi í leikfangaverslunum
sem hér hefur verið getið, geta
fengið Verðkynningu Verðlags-
stofnunar sér að kostnaðarlausu.
Blaðið liggur frammi á skrifstofu
stofnunarinnar og hjá fulltrúum
hennar utan Reykjavíkur. Síma-
númer Verðlagsstofnunar er 91-
27422.
Fimmtudagur 12. desember 1985 ÞJÓÐVILJINN - SÍÐA 5
Eitur
Lampaolía úr seilingarhæð
Hollustuvernd Ríkisins: Eitranir af völdum lampaolíu með-
al algengustu og alvarlegustu eitrunarslysa sem henda
börn. Börn sem neytt hafa lampaolíu mega ekki kasta
upp. Það verður aldrei brýnt nægilega fyrir foreldrum og
forráðamönnum barna að láta ekki olíulampa standa þar
sem börn ná til.
Á síðustu árum hefur aukist
mjög framboð ýmissa olíulampa
til heimilisnota. Fjölbreytin er
mikil, en öryggi þessara lampa
því miður mjög misjafnt. Á sjúkra-
húsum í Reykjavík eru eitranir af
völdum lampaolíu meðal algeng-
ustu og alvarlegustu eitrunar-
slysa sem henda ung börn.
Aðalhættan við eitranir af
völdum lampaolíu er fólgin í
áhrifum á lungu. Þar getur
lampaolían valdið bráðum
lungnabjúg og öndunarbilun.
Aldrei verður of oft lögð áhersla á
að ekki á að láta börn scm hafa
neytt lampaolíu kasta upp. Ef
barn kastar upp eykst hættan á
því að olían geti borist ofan í
lungu. Barn skal flutt tafarlaust á
slysadeild, jafnvel þó hugsanlegt
sé að magnið sé lítið sem það inn-
byrðir.
Olían sem notuð er á lampana
er steinolía (petroleum) sem fell-
ur undir flokk hættulegra efna.
Er hún meðhöndluð á ýmsan veg
til að vera hæf til brennslu innan-
húss, ýmist lyktarlaus eða með
einhverskonar blómaiimi og oft
lituð gul. En það er einmitt þessi
fallegi litur, sem stundum minnir
á ávaxta- eða svaladrykki, sem
virðist freista ungra barna.
(Fréttatilk. frá
Hollustuvernd Rfldsins)