Þjóðviljinn - 17.01.1986, Síða 7
Feargal Sharkey er hér meö hljómsveitinni Undertones árið 1981 aftast til hægri... og 1983, lengst til vinstri.
Feargal Sharkey
gerir það gott
Plötualbúmið og -nærbuxurnar eru smart hjá Feargal Sharkey, enda þótt erfitt
sé að auga sig í gegnum upplýsingarnar á því síðarnefnda.
Feargal Sharkey á heilmikilla
vinsælda að njóta í poppinu
hérog reyndarvíðar. Þessi27
áragamli norðurírski piltur
var, áður en hann gerðist
sólóstjarna, söngvari hljóm-
sveitarinnarThe Undertones,
sem hann stofnaði með 4
skólafélögum sínum í Derry
árið 1975. Þeirfélagar áttu þó
nokkur lög á vinsældalistan-
um í Bretlandi og voru vel
metnir af gagnrýnendum,
sem fannst þeir skemmtilega
ungæðislegirog ferskir. Þeir
höfðu þó rætur í hefð 7. ára-
tugarins, nánar tiltekið í Bítl-
unum, en áferðin á músik
þeirra var í ætt við pönkrokk-
arana Ramones. The Under-
tones hættu samstarfi fyrir
rúmum tveim árum, eða þeg-
ar Feargal ákvað að reyna
fyrir sér á eigin vegum.
Feargal Sharkey er nokkuð
sérstakur söngvari og minnir
rödd hans gamla popphunda á
sérstæðan fýr eins og Roger
Chapman, sem söng með bresku
hljómsveitinni Family, og líka ör-
lítið á Rod Stewart, jafnvel Roy
Orbinson. Fyrsta breiðskífa Fe-
argals, sem út kom fyrir ára-
mótin, hefur gengið vel í fólk og
vel út úr verslunum, þannig að
dengsi getur vel við unað. Hins
vegar eru poppskríbentar sumir
ekki eins hrifnir og telja að Fe-
argal Sharkey hafi breyst frá
Undertones-dögunum og skipt
yfir í glansstíl til að fá notið fjár,
frægðar og frama. Sjálfur segir
hann: „Fyrir tveimur árum átti ég
varla til hnífs og skeiðar og það
var í góðu lagi. Eg er ennþá sarni
náunginn. En ég vona að nú geri
ég betri plötur, skrifi betri lög og
stefni alltaf að því að næsta plata
verði betri en sú næsta á undan.
Nú þegar ég er farinn að gera
plötur með meiri hugsun en áður,
sem fólk vill kaupa, finnst sumurn
að ég ætti að skammast mín fyrir
það. Ég er ekki sammála. Mér er
mikill heiður að því að hálf milj-
ón manna hefur keypt sér „A
good heart“.
Feargal Sharkey segir að Dave
Stewart í Eurythmics eigi mikinn
þátt í fyrstu sólóbreiðskífu hans:
„Ég hefði ekki getað gert þessa
plötu án hans. Ég þarfnaðist ein-
hvers sem gæti gefið mér inn-
blástur, örvað mig og hjálpað
mér að ná fram öllu því sem mig
langaði. Við ákváðum tvennt
áður en við byrjuðum: í fyrsta
lagi varð þetta að vera plata söng-
vara, í öðru lagi plata Feargals
Sharkey, en ekki sólóplata Daves
Stewart... en það er heilmikið af
Dave Stewart á plötunni, dulbún-
um sem Feargal Sharkey“.
Og hvað finnst Feargal Shark-
ey um samnefnda breiðskífu
sína?
„Ég var að hlusta á hana um
daginn, hafði þá ekki hlustað á
hana í sex vikur, og ég hringdi í
Dave og sagði: Ég held að við
höfum gert góða plötu... og ég
meina það. „Love and hate“ er
uppáhaldslagið mitt á henni.
Skemmtilegast við þetta allt
finnst mér að búa til gott lag... ef
ég er ánægður með lag eru það
næg laun, mér er sama þótt ein-
hver annar syngi það meira að
segja“.
Þetta segir sem sagt Feargal
Sharkey. Og satt segir hann að
þeir félagar hafa gert góða plötu
og sammála er ég honum um að
„Love and hate“ sé skemmtileg-
asta lagið á henni, en þeim hefur
tekist ágætlega upp í sameigin-
legri lagasmíð sinni í fleiri lögum.
Gítarspil Daves setur skemmti-
legan blæ á plötuna, villt á stutt-
um köflum, en hann er fyrir minn
smekk á stundum dálítið um of
hrifinn af miklum útsetningum og
hljóðfærafjöld. Tek ég þar sem
dæmi gamla lagið „It’s all over
now“ eftir Bobby Womack sem
erþarna á plötu Feargals. Gamla
Rolling Stones útsetningin á
þessu lagi frá 7. áratugnum ber af
þessari eins og gull af eir, og
reyndar meðferð Stones öll. En
Feargal má samt vel við una eftir
vinsældir lagsins „A good heart“
og „You little thief“ virðist ætla
að öðlast slíkt hið sama.
t>ess skal svo getið til gamans
að „A good heart“ er eftir banda-
rísku stúlkuna Mariu McKee,
söngkonu og gítarleikara kántrí-
rokkhljómsveitarinnar ágætu
Lone Justice, og jafnframt að
hún hugsaði það til hijómborðs-
leikara hljómsveitar Toms Petty,
Benmonts Tench. Hann samdi
annað lag til baka handa henni,
einmitt „You little thief', þannig
að þau skötuhjú eiga hönk upp í
bakið á Feargal... nema hann
hafi þegar borgað með athyglinni
sem hann hefur beint að þeim...
óbeint.
A
Vinsældalistar Þjóðviljans
Fellahellir ( 7) 1. Sentimental eyes - Rickshaw ( 1) 2. Hjálpum þeim - íslenska hjálparsveitin ( 3) 3. Broken wings - Mr. Mister (10) 4. Pretty young girl - Bad boys blues ( 2) 5. Say you, say me - Lionel Richie |f -) 6. Saving all my love for you - Whitney Houston ( -) 7. Great wall of China - Rikshaw ( 6) 8. Samurai - Michael Credu (-) 9.1 can’t lose my heart tonight -C.C. Curtis ( 4) 10. You are a woman -Bad boys blues Grammid (1) 1. Holidays in Europe - Kukl (3) 2. Frankenchrist - Dead Kennedys (-) 3. Easy pieces - Lloyd Cole and the Commotions (-) 4. Can your pussy eat the dog? - Cramps (-) 5. Siave to the rythm - Grace Jones (6) 6. Cut the crap - Clash (-) 7. Wishfull thinking - Propaganda (7) 8. Terminal tower - Pere Ubu (-) 9. Naii - Scrappin’ Poetus of the Wheel (-) 10. The evening visits - The Apartments Rás 2 ( 1) 1. Hjálpum þeim - íslenska hjálparsveitin ( 4) 2. Gaggó-Vest - Eiríkur Hauksson, Gunnar Þórðarson o.fl. ( 2) 3. Allur lurkum laminn - Bubbi Morthens ( 3). 4. In the heat of the night - Sandra ( 3) 5. Segðu mér satt - Stuðmenn ( 7) 6. Sentimental eyes - Rickshaw ( 9) 7. Brothers in arms - Dire Straits ( 5) 8. Fegurðardrottning - Ragnhildur Gísladóttir ( 8) 9. Saving all my love for you (15) 10. Gull -Whitney Houston — Eiríkur Hauksson, Gunnar Þórðarson o.fl.
ÞJÓÐVILJINN - SÍÐA 7