Þjóðviljinn - 17.01.1986, Blaðsíða 16

Þjóðviljinn - 17.01.1986, Blaðsíða 16
Aðalsími: 681333. Kvöldsími: 681348. Helgarsfmi: 81663. UÚÐVIUINN Föstudagur 17. janúar Kanakjötið Islensk lög ógild íslenskstjórnvöldafsöluðusérlagaréttiyfirKeflavíkurflugvellimeð „varnarsamningnum“. Lögin um varnir gegn gin- og klaufaveiki aðeinsfyrir íslenska lögsögu Keflavíkurflugvöllur heyrir ekki undir íslenska lögsögu. Þar giida önnur lög en þau sem Al- þingi íslendinga setur hverju sinni. Svonefndur „varnarsamn- ingur“ sem meirihluti Alþingis gerði við Bandaríkjamenn um hersetu á Keflavíkurflugvelli árið 1951 hefur lagagildi umfram önnur lög sem þingið setur. Þetta er álit þriggja lögfræðinga sem kynnt var ríkisstjórninni I gær varðandi lagalegan rétt hersins til að flytja inn til iandsins hrátt kjöt. Það var sl. haust í framhaldi af hörðum deilum þáverandi fjár- málaráðherra og fráfarandi utan- ríkisráðherra sem forsætisráð- herra skipaði þrjá lögfróða menn til að skera úr því, hvort heimilt væri að flytja inn svonefnt „kana- kjöt“. Þeir Gaukur Jörundsson dósent, Arnljótur Björnsson pró- fessor og Jóhannes L.L. Helgason hæstaréttarlögmaður skiluðu inn á ríkisstjórnarfund í gær viðamik- illi álitsgerð þar sem niðurstaðan er sú, að kjötinnflutningurinn á hervöllinn sé löglegur, þrátt fyrir að lög um varnir gegn gin- og klaufaveiki frá 1928 sem banna slíkan innflutning séu enn í fullu gildi á íslandi. Vísaþgir félagar til þess að lagagildi svonefnds „varnarsamnings“ sé umfram önnur innlend lög varðandi Keflavíkurflugvöll. Jafnframt vísa þeir til hefðar um þennan kjötinnflutning. - Ig. Vegartálmar í Smálöndum við Vesturlandsveg. í verkföllunum 1952 og 1955 hægri, næst vegartálmanum. Myndin er úr Ijósmyndasafni Jóns Bjarnasonar, var Reykjavík nánast sett í herkví og öllum aðflutningsleiðum lokað af verkfalls- fyrrum fréttastjóra Þjóðviljans. vörðum. Einar Gunnar Einarsson, sem tók kvikmyndina, stendur lengst til Afmœli Dagsbrúnar Verkfallskvikmynd frá 1955fundin Helmingur myndarinnar illafarinn eða ónýtur. Viðgerð fyrirhuguð í Lundúnum. Guðmundur J.: stórskemmtilegt að sjá sig svona ungan og spengilegan Dagsbrún hefur nýlega fcngið' til varðveislu kvikmynd sem tekin var í verkfallinu 1955 og er hún einstök heimild um samstöðu verkfallsmanna og átökin sem þetta langa verkfall einkenndist af. Það var Einar Gunnar Einars- son lögfræðingur, nú látinn fyrir nokkrum árum, sem tók myndina á 8 mm kvikmyndavél. Hún var upphaflega um klukkutíma löng en á rúmum 30 árum hefur hún látið mjög á sjá og lætur nærri að helmingur hennar sé ónýtur eða mjög illa farinn. Það sem heillegt er hefur Dagsbrún nú látið flytja yfir á myndband og ætlunin er að reynt verði að lagfæra það sem skemmt er í London. Myndin sýnir m.a. fjölmennan útifund á Lækjartorgi og stymp- ingar manna þar, Reykjavíkur- höfn yfirfulla af kyrrsettum skipum, vegartálma við Hólmsá og ryskingar sem þar urðu, verk- fallsverði um borð í olíuskipi í Keflavík, vörslu í Hvalfirði og fleira og fleira. „Ég hef reynt að lesa mér til um þetta sögufræga verkfall og séð ljósniyndir úr því“, sagði Þorleifur Friðriksson sagnfræðingur, starfsmaður Dagsbrúnar, „en það er allt ann- að að sjá þetta á lifandi mynd. Þetta er ómetanleg og mjög sterk heimild.“ Guðmundur J. Guðmundsson formaður Dagsbrúnar sá kvik- mynd fiinars í fullri lengd um hálfu ári eftir að verkfallinu lauk. „Það er óneitanlega skemmtilegt að sjá sig svona ungan og spengi- legan, vippa sér upp í skip og yfir tálma, en ég get ekki neitað því að ég sakna stórmerkra kafla sem nú eru horfnir af filmunni", sagði Guðmundur. „Þarna var t.d. kafli sem sýndi 20-30 lögreglu- menn reyna að stjaka við 2-300 verkfallsvörðum við Hólmsá og annar sem sýndi Kyndil sem við tókum herskildi í 3-4 daga úti af Garðsskaga. Allt er þetta horfið en engu að síður er mikill fengur að myndinni. Henni hefur nú ver- ið bjargað frá skemmdum og vonandi tekst að lengja hana og bæta enn frekar". Verkamannafélagið Dagsbrún var stofnað 26. janúar 1906 og hefur verið rætt um að í tilefni 80 ára afmælisins verði gerð kvik- mynd um sögu reykvísks verka- fólks og sögu Dagsbrúnar sem eru samofnar. Kvikmynd Einars Gunnars er að sögn Þorleifs Friðrikssonar ómetanleg í því sambandi. Til tals hefur komið að sjónvarpið sýni hluta myndarinn- ar í tilefni afmælisins. - ÁI. Helguvík Tíminn Níels við stýríð Níels Árni Lund ritstjórnar- fulltrúi á Tímanum hefur tekið við ritstjórn blaðsins eftir að Helgi Pétursson ákvað skyndi- lega að taka sér frí frá stjórn blaðsins. „Stjórnarmenn Tímans hafa beðið mig um að annast ritstjórn blaðsins meðan Helgi er í þessu fríi og ég hef tekið að mér að sjá um daglega ritstjórn meðan ann- að er ekki ákveðið“, sagði Nfels í samtali í gær. - lg. Miss World Brot á lögum um jafnrétti? Samningur Ferðamálanefndar Reykjavíkur við enska fyrirtækið Miss World Ltd. var staðfestur i borgarstjórn í gærkvöldi við hörð mótmæli þeirra Magdalenu Schram og Guðrúnar Jónsdóttur fulltrúa Kvennaframboðs og eftir að tillaga þeirra um að hætt yrði við samninginn hafði verið felld. Jafnframt var felld tillaga þeirra um að vísa þessu til Jafnréttis- nefndar Reykjavíkur. Borgarfulltrúar Alþýðubanda- lagsins greiddu þessum tillögum atkvæði sitt sem og Gerður Steinþórsdóttir Framsóknar- flokki, en félagi hennar Kristján Benediktsson lýsti sig fylgjandi samningnum, ásamt meirihlutan- um. Borgin ásamt Flugleiðum, Ferðamálaráði, FÍI, SH og Sölu- sambandi fiskframleiðenda hefur þá tryggt sér rétt til notkunar nafns, titils og framkomu Hólm- fríðar Karlsdóttur ungfrú heims í auglýsingskyni og borga fyrir þann rétt um 300 þúsund krónur. Þessir aðilar nefna sig Átak og greiða alls 38.500 sterlingspund fyrir framkomu Hólmfríðar, nafn og titil. Magadalena og Guðrún létu bóka á fundinum í gærkvöldi að fegurðarsamkeppnir viðhaldi þeim viðhorfum til kvenna sem kvenfrelsiskonur hafa um árabil beitt sér gegn. Þær telja að Reykjavík sé vansæmd af að taka þátt í samningi á borð við þenn- an. Þá telja þær að samningurinn stríði gegn 11. grein laga um jafnrétti sem sett voru í fyrra. Langar og snarpar umræður urðu um málið á fundinum í gær, en samningurinn er sem sagt veru-' leiki. - gg. Setur alvarlegt strik í reikninginn Komið hefur í Ijós að strandlengjan þar sem Helguvíkurframkvœmdir standa yfir er ekki í eigu ríkisins eins og haldið var. Ríkið átti heldur ekki alltþað land sem það seldi Keflavíkurbœ 1983 Komið hefur í Ijós við skoðun gamalla skjala að ríkið á ekki allt það land sem það hélt sig eiga og Helguvíkurframkvæmdirnar fyrir hernámsliðið á Keflavíkur- flugvelli fara fram á. Við skoðun þessara skjala kemur í Ijós að þeir íandeigendur, sem seldu ríkinu land hinna svokölluðu Innri Leirubæja undir umsvif banda- ríska hersins árið 1951, tóku undan landræmu meðfram ströndinni allt til Keflavíkur. Munu þeir hafa gert þetta til að halda eftir rekaréttindum og rík- ið ekki talið sig þurfa á bjarg- brúninni að halda. Fyrir bragðið er hluti af Helgu- víkurframkvæmdunum nú á landi sem eigendur Innri Leirubæja eiga, en einn landeigandi þar er Golfklúbbur Suðurnesja. Þá kom líka í ljós vegna þessa sama, að hluti af því landi, sem ríkið seldi Keflavíkurbæ 1983 undir væntan- legar byggingarlóðir, var ekki í eigu ríkisins, heldur Innri Leiru- bæja. I afsali fyrir því landi sem bændurnir seldu ríkinu á sínum tíma stendur að undanskilið sé landsvæði utan við „græna línu á korti“ sem fylgir afsalinu og það er einmitt umrædd landræma meðfram sjónum. Nú má búast við að upphefjist deilur um þetta mál en sam- kvæmt því sem Þjóðviljinn fékk uppgefið hjá lóðaskrá bæjarfóg- etans í Keflavík virðist augljóst að ríkið á ekki þessa umræddu landræmu. - S.dór.

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.