Þjóðviljinn - 17.01.1986, Side 13
HEIMURINN
Afvopnun
Vandræðaleg viðbrögð Nató
Reaganfagnar tillögum Gorbatsjofs, stefna Nató er háð kjarnorkuvopnum
Brussel — Tillögur Gorbatsjofs viðtökur flestra leiðtoga á
leiðtoga Sovétríkjanna um af- Vesturlöndum. Blaðafulltrúi
nám allra kjarnorkuvopna fyrir Reagans forseta Bandaríkj-
aldamót hefur hlotið góðar anna fagnaði tillögunum og
Bretland
Westland málið klýfur
evrópska íhaldsmenn
London — Stífni Margaretar
Thatcher forsætisráðherra
Bretlands og stjórnar hennar í
Westland málinu hefur valdið
pólitískum stormi í London og
rofið skarð í samstöðu evr-
ópskra íhaldsflokka. Krafan
um afsögn Leons Brittan
iðnaðar- og viðskiptaráðherra
hefur enn mikinn hljómgrunn
og fylgi íhaldsflokksins hrapar
í skoðanakönnunum.
Það hefur ýtt undir kröfurnar
um afsögn Brittans að nú er hann
orðinn uppvís um að hafa reynt
að fá breska fyrirtækið British
Aerospace til að hætta aðild sinni
að tilboði evrópskra fyrirtækja í
30% hlutafjár Westland þyrlufyr-
irtækisins. Skrifaði hann forráða-
mönnum fyrirtækisins bréf og
kvað það ekki í þágu breskra
þjóðarhagsmuna að taka þátt í
evrópska tilboðinu.
Þingmenn á Evrópuþinginu í
Strasbourg héldu með sér fund
um Westland málið í gær og þar
gerðist það ótrúlega að þingmenn
úr öllum flokkum, íhaldsmenn,
kommúnistar, frjálslyndir og sós-
íalistar, sameinuðust um ályktun
þar sem eindregið er hvatt til þess
að Westland taki evrópska til-
boðinu.
Margir íhaldsþingmenn höfðu
uppi harða gagnrýni á stjórn
Thatchers sem þeir sökuðu um að
ætla að afhenda bandaríkja-
mönnum tæknileyndarmál Evr-
ópu á silfurfati. Einn þeirra
sagði: „Tryggð við Nató þýðir
Ónœmistœring
Sérstök
deild á
vegum WHO
Genf — Alþjóðaheilbrigðis-
stofnunin, WHO, hefur ákveð-
ið að koma á fót sérstakri deild
sem fær það verkefni að vinna
gegn útbreiðslu ónæmistær-
ingar. Þeir sem tekið hafa
veikina og eru skráðir hjá WHO
eru nú orðnir yfir 20 þúsund.
Langstærstur hluti þeirra sem
fengið hafa veikina eru banda-
ríkjamenn og þar af eru yfir 70%
hommar. Að sögn WHO skiptir
kynhneigðin ekki máli heldur allt
samræði við sýkt fólk svo og
snerting við blóð sem inniheldur
veiruna sem veldur sjúkdómn-
um.
í gær var tilkynnt um fyrstu
sjúklingana sem tekið hafa
veikina í löndum múslima. Tveir
sjúklingar hafa tekið veikina í
Saudi-Arabíu eftir að þeir fengu
sýkt blóð frá Bandaríkjunum.
Mörg ríki Afríku vilja ekki viður-
kenna ónæmistæringu og hafa
mótmælt þeirri kenningu að
veikin sé upprunnin hjá græn-
öpum í Mið-Afríku. Aðeins tvö
ríki, Kenýa og Suður-Afríka,
hafa tilkynnt að veikinnar hafi
orðið vart hjá sér.
ekki að við gerum okkur ánægða
með að vera undirverktakar
Bandaríkjanna." ítrekuðu þing-
mennirnir þær yfirlýsingar að
Westland yrði útilokað frá evróp-
skri samvinnu og að öllum við-
skiptum við fyrirtækið yrði hætt
ef bandaríska tilboðinu verður
tekið.
Breska íhaldsblaðið Daily Tele-
graph birti í gær niðurstöður
skoðanakönnunar sem voru á þá
leið að íhaldsflokkurinn er þriðji
stærsti flokkurinn í Bretlandi
með 29,5% atkvæða. Hefur fylgi
flokksins ekki verið minna í
könnunum blaðsins í 5 ár. Breska
blaðið Times sem oftast fylgir
stjórninni að málum sagði um
ræðu Thatcher á þingi í fyrradag
að hún „benti ekki til þess að hún
hefði skilið alvöru málsins“.
sagði að í þeim væri margt
sem vert væri að ræða um.
En í höfuðstöðvum Nató hafa
viðbrögðin orðið hálf vandræða-
leg. Þar er sagt sem svo að ef
kjarnorkuvopnum verði útrýmt
standi Vestur-Evrópa varnarlaus
frammi fyrir yfirburðum Varsjár-
bandalagsins í hefðbundnum
vopnum og herstyrk.
Fréttamaður Reuters bendir á
að röksemdir sérfræðinga Nató
séu mjög svipaðar þeim sem and-
stæðingar geimvarnaráætlunar
Reagans beita gegn Stjörnu-
stríðinu. Að áliti Nató er það
markmiðið með Stjörnustríðinu
að gera öll kjarnorkuvopn „úrelt
og ónothæf" en tillögum sovét-
manna er mætt með þeirri rök-
semd að útrýming kjarnorku-
vopna geri heiminn ekki örugg-
ari.
„Við munum áfram verða háð-
ir ógnarjafnvæginu meðan Var-
sjárbandalagið hefur yfir að ráða
fleiri hermönnum, skriðdrekum,
flugvélum og byssum í Evrópu en
við. Meðan viðræðum um niður-
skurð herafla í Evrópu miðar
ekkert þurfum við á ógnar-
jafnvæginu að halda“, sagði einn
embættismanna Nató. Vestur-
þýskur sendiráðsmaður í Belgíu
bætti því við að jafnvel þótt hefð-
bundinn herstyrkur bandalag-
anna væri jafn hefði Nató þörf
fyrir einhver kjarnorkuvopn í því
skyni að koma í veg fyrir að stríð
hefjist.
Þessi málflutningur er ekki tal-
inn mjög æskilegur í höfuðstöðv-
um Nató þótt hann sé í samræmi
við stefnu bandalagsins. Þar á bæ
eru menn lítt hrifnir af því að
þurfa að viðurkenna hve mjög
stefna bandalagsins er háð kjarn-
orkuvopnum, á meðan kjarn-
orkuvopn eru svo óvinsæl meðal
almennings sem raun ber vitni.
Kjarnorka
Norðmenn mót-
mæla áformum
Osló — Norsk stjórnvöld hafa
mótmælt þeim áformum
bresku stjórnarinnar að reisa
endurvinnslustöð fyrir kjarn-
orkuúrgang á strönd Norður-
Skotlands. Segir í orðsend-
ingu stjórnarinnar að stöðin
muni stórauka hættuna á
geislamengun í Norðursjó.
í orðsendingu norska umhverf-
isráðuneytisins segir að þær þjóð-
ir Vestur-Evrópu sem munu losa
sig við kjarnorkuúrgang sinn í
verksmiðjuna ættu að velja henni
stað nærri sínum eigin landamær-
um en ekki skapa mengunar-
hættu sem bitnar á þjóðum sem
engan hlut eiga að máli.
Suður-Jemen
Friðarviðræður eru
að hefjast í Aden
Bahrain — Fréttir frá Suður-
Jemen hermdu í gær að við-
ræður stjórnar og uppreisnar-
manna væru að hefjast en
þeim er ætlað að binda endi á
bardagana sem geisað hafa í
landinu.
Þótt stjórnin hafi náð undir-
tökunum í höfuðborginni Aden í
fyrradag var áfram barist hér og
þar úti um land. Hinir ýmsu ætt-
bálkar tóku afstöðu með eða
móti stjórn og uppreisnar-
mönnum eftir því hvaða ættbálki
leiðtogarnir tilheyrðu.
Sagt var að viðræðurnar ættu
að fara fram í sendiráði Sovét-
ríkjanna í Aden. Sovétríkin hafa
áður borið klæði á vopnin þegar
upp úr hefur soðið milli and-
stæðra fylkinga innan stjórnar-
flokksins en því er haldið fram að
bardagarnir hafi að þessu sinni
komið sovétmönnum á óvart.
Fréttir herma að fjórmenning-
arnir sem útvarpið í Aden sagði á
mánudag að hefðu verið teknir af
lífi taki þátt í friðarviðræðunum
fyrir hönd uppreisnarmanna.
ÞJÓÐVILJINN - SÍÐA 13
El Salvador
Pyndingar á föngum aukast aftur
Öryggissveitir stjórnarinnar beita nú nýjum aðferðum,
sálrœnarpyndingar hafa leyst barsmíðar og nagldrátt afhólmi
San Salvador — Mannréttinda-
samtök, kirkjunnar menn, lög-
fræðingar og pólitískir fangar í
El Salvador í Mið-Ameríku hafa
greint frá því að öryggissveitir
stjórnarinnar beiti nú pynding-
um í auknum mæli í stríði sínu
gegn róttækum uppreisnar-
mönnum. Einnig segja þeir að
pyndingaraðferðirnar séu
orðnar „þróaðri" en áður.
Eftir að Jose Napoleon Duarte
forseti kom til valda fyrir rúmlega
hálfu öðru ári lýsti hann sjálfum
sér sem miklum baráttumanni
fyrir mannréttindum. Hét hann
því að binda endi á pyndingar og
misbeitingu valds sem her lands-
ins og öryggissveitir voru orðnar
heimsþekktar fyrir. Að sögn
mannréttindasamtaka dró heldur
úr ofbeldisverkum hermanna
fyrstu tíu mánuðina á ferli Duart-
es en síðan fór allt í sama farið.
Skýringarnar á þessari lægð
eru tvíþættar. Annars vegar er
sagt að nauðsynlegt hafi verið að
draga úr pyndingum meðan her-
menn voru þjálfaðir í nýjum að-
ferðum. Hins vegar er skýringin
sögð sú að herinn hafi þurft að
fegra ásjónu sína frammi fyrir
bandarískum þingmönnum með-
an þeir voru að fjalla um aukna
hernaðar- og efnahagsaðstoð við
stjórn Duartes. Nú er búið að
auka aðstoðina og allt í lagi að
taka til höndunum á nýjan leik.
Breyttar aðferðir
Að sögn mannréttindasamtaka
og pólitískra fanga hafa öryggis-
sveitirnar dregið verulega úr
beinu líkamlegu ofbeldi, bar-
smíðum, nagldrætti oþh.. Þess í
stað er beitt sálrænu ofbeldi.
Fangar eru beittir rafmagnslosti,
þeim er meinað að sofa, aftökur
eru sviðssettar, fangar eru baðað-
ir í ísvatni og þeim er hótað með
öryggissveitir í El Salvador hafa dregið úr beinum líkamsmeiðingum en tekiö
„þróaðri" aðferðir í notkun.
því að fjölskyldur þeirra verði
teknar af lífi ef þeir játa ekki upp
á sig stuðning við skæruliða.
Að sögn lögfræðings sem ann-
ast hefur mál margra pólitískra
fanga eru pyndingaraðferðir
nokkuð mismunandi eftir því
hversu mikilvægir fangar eru
taldir og hvort þeir veita mót-
spyrnu. Hann sagði líka að kon-
um sem teknar eru höndum væri
næstum undantekningarlaust
nauðgað við yfirheyrslur. í
kvennafangelsinu Ilopango í ná-
grenni höfuðborgarinnar eru
margar kvennanna með börn sem
þær hafa orðið þungaðar af við
yfirheyrslur.
Margir fangar segja frá því að
þeir hafi verið sviptir mat og
svefni auk annars ofbeldis. Sant-
os Martinez Garcia var bílstjóri
bandaríska sendiráðsins í San
Salvador áður en hann var hand-
tekinn grunaður um ótilhlýðilega
samúð með uppreisnaröflunum.
Hann segist hafa verið barinn,
bundið hafi verið fyrir augu hans
og haldin fyrir honum vaka í 12
daga samfleytt. „Ég var næstum
orðinn geggjaður“, segir hann.
Hann kvaðst hafa fengið raf-
magnslost og voru skautin tengd
við eyrun, nefið og kynfærin. „En
verst af öllu var „capucha“,“
segirhann. Sú aðferð eríþvífólg-
in að poki er settur yfir höfuð
fangans og bundið fyrir við háls-
inn þannig að pokinn verður loft-
þéttur. í pokann er sett límduft
sem brennir .lhngun þegar fang-
inn dregur andann.
ERLENDAR
FRÉTTIR
haraldsson/R ELll E R
Garcia sagðist hafa verið á
mörkum þess að missa vitið.
Læknir sem ekki vill láta nafns
síns getið en hefur fengið til með-
ferðar fanga sem beittir hafa ver-
ið pyndingum segir að svefnleysi
geti á endanum valdið varan-
legum geðtruflunum. Bandarísk
mannréttindasamtök hafa skýrt
frá því að amk. tveir fangar sem
grunaðir voru um að vera skæru-
liðar hafi stytt sér aldur eftir að
þeir voru rændir svefni.
500 pólitískir fangar
Stríðið í E1 Salvador hefur nú
staðið í sex ár og að sögn yfir-
valda eru pólitískir fangar í
landinu um 500 þessa stundina.
Starfsmenn bandaríska sendi-
ráðsins virðast alveg loka augun-
um fyrir þeim mannréttindabrot-
um sem eiga sér stað í landinu.
Þeir segjast hafa ástæðu til að
trúa því að herinn og öryggis-
sveitirnar hafi verulega dregið úr
mannréttindabrotum og að sú
breyting sé varanleg.
Aðrir erlendir sendimenn í E1
Salvador segja hins vegar að sá
samdráttur, ef einhver er, hafi
þann eina tilgang að blíðka
bandaríska þingmenn. Starfs-
maður mannréttindasamtaka í
landinu segir hins vegar að nú
þurfi herinn ekki að hafa neinar
áhyggjur lengur, hernaðarað-
stoðin hafi verið ákveðin tvö ár
fram í tímann.
Og eins og svo algengt er í
Rómönsku Ameríku þá er það
kaþólska kirkjan sem ein þorir að
segja upphátt það sem aðrir
hvísla hver að öðrum. Fyrir
skömmu sagði biskupinn Gregor-
io Rosa Chavez við söfnuð sinn
að „því miður virtust ómannlegar
yfirheyrsluaðferðir sem pólitískir
fangar eru beittir vera að
aukast“.