Þjóðviljinn - 26.02.1986, Qupperneq 3
FRETTIR
Húsnœðishugmyndirnar
Framhald vinnuþrælkunar
Ögmundur Jónasson talsmaður húsnœðishópsins: Þvímiður sýnist méraðfólk verði áfram að búa við hlutskipti
vinnuþrœlkunar. Leiðréttingarfrestastenn. Viðbótarfjármagnið einsogskuturinní Hafskip
Eg hugsa fyrst og fremst um það
hvort fólk sem hefur þurft að
vinna tvöfaldan og þrefaldan
vinnudag á umliðnum árum,
þurfi áfram að búa við hlutskipti
vinnuþrælkunar. Og því miður
sýnist mér á þessum samkomu-
lagsdrögum að þar verði ekki
breyting á, sagði Ógmundur Jón-
asson talsmaður húsnæðishóps-
ins í samtali við Þjóðviljann í gær
um hugmyndir ASÍ/VSÍ um hús-
næðismálin.
- Menn verða að átta sig á því,
að það er alltaf verið að tala um
sama fjármagnið. Hér er talað
um 500 miljónir í viðbótarlán, en
ég vek athygli á því að 200 miljón-
ir af þessum 500 eru þegar komn-
ar útí húsnæðislánakerfið og er
búið að margauglýsa.
- Þá vek ég athygli á því, að í
júnímánuði í fyrra var ákveðið að
veita miljarði króna til viðbótar í
húsnæðiskerfið á því ári og árinu í
ár. Það viðbótarfjármagn er ekk-
ert komið í húsnæðiskerfið til við-
bótar. Þannig að ef litið er á þessa
upphæð, 300 miljónir þá er hún í
fyrsta lagi ekki hærri en svona
einsog skuturinn á Hafskips-
gjaldþrotinu og í öðru lagi minni
ég á yfirlýsingar Þorsteins Páls-
sonar eftir húsnæðisákvarðanirn-
ar á alþingi í fyrravor að þá
myndu 300 miljónir fara í „beinar
björgunaraðgerðir" í fyrra. Eru
það þessra miljónir sem ganga
aftur í þessu samkomulagi?
- Þess utan fara þessar miljónir
ekki til endurgreiðslu á því sem
húsnæðiskaupendur hafa ofborg-
að á umliðnum árum, heldur er
verið að gefa þessu fólki kost á að
taka viðbótarlán, bæta við
skuldabyrðina. Þeir voru búnir
að lofa þessu fyrir löngu.
- Menn hafa ekki orðið við
kröfum húsnæðishreyfingarinnar
um afturvirkni, að lánabyrðinni,
sem allir viðurkenna að hafi verið
óréttlát, verði létt af fólkinu.
Leiðréttingin frestast enn.
- A hinn bóginn sýnist mér á
þessunt drögum, bæði varðandi
skattamál og aukið fjármagn til
húsnæðiskerfisins í framtíðinni,
að skilningur fari vaxandi á því að
núverandi húsnæðiskerfi sé hrun-
ið; það geti ekki gengið svona
lengur. Og maður þakkar fyrir
hvert skref.
- Ég vek athygli á því að hús-
næðishreyfingin ályktaði á 1000
manna fundi í Háskólabíói fyrir
rúmri viku, að kaupmáttur
launanna yrði að vera það hár, að
venjulegt fólk gæti staðið undir
fjárhagslegum skuldbindingum
af húsnæðiskaupum. Þann mæli-
kvarða munum við nota á allan
„pakkann", þegar og ef hann
kemur fram, sagði Ógmundur
Jónasson talsmaður húsnæðis-
hópsins. - óg.
Þessir knáu kappar voru í frímínútum í Fossvogsskóla, og riðluðust upp um allar rólur. „Okkar skóli er bestur. Hann er
æði" sögðu þeir og heimtuðu að blað verkalýðsins birti af þeim mynd. Guðjón Birgir Ftúnarsson er kominn upp á
rólustaurana, en Ómar Daði Kristjánsson er á hjólbarðanum og glottir við tönn eins og Skarphéðinn í brennunni forðum.
Þeir eru báðir níu ára og eru í hópi 11 í skólanum. Mynd: E.OI.
Lúðueldi
Luðumar dafna
Jón Þórðarson hjá íslandslaxi: Mesti vandinn að kenna þeim að borða breyttfœði
því þcer fá ekki lengur lifandifœðu
Útvarpið
DV-maður
víttur
Eiríkur Jónsson, Eir á DV,
verður víttur af Þorgeiri Ast-
valdssyni forstöðumanni á Rás 2,
fyrir að misnota sér aðstöðu sína
sem dagskrárgerðarmaður.
Forsaga málsins er sú að Eir
var sendur af DV austur á Eski-
fjörð til að skrifa æsifréttir um
komu þriggja breskra stúlkna til
landsins með íslenskum togara.
Á Eskifirði ræddi Eir meðal ann-
ars við móður yngsta áhafnar-
meðlimsins. Líkaði henni illa
framkonta blaðamannsins og
skrifaði lesendabréf sem birtist í
Morgunblaðinu sl. laugardag.
Eir er með þátt ásamt Katrínu
Baldursdóttur og kallast hann
Dæmalaus veröld. í útsendingu
sl. sunnudag notaði Eir tækifærið
og svaraði lesendabréfinu.
Elfa Björk Gunnarsdóttir
framkvæmdastjóri Hljóðvarps-
ins, fundaði um þetta ntál í gær
með Þorgeiri Ástvaldssyni. Sagði
hún við Þjóðviljann að Eir hefði
með þessu þverbrotið meginregl-
ur sem gilda á rás tvö, með því að
svara lesendabréfum í þessum
miðli. Þarna hefði hann misnotað
sér aðstöðu sína sem þáttargerð-
armaður, og sagði hún að for-
stöðumenn útvarpsins vonuðust
til að slíkt endurtæki sig ekki.
Mun Þorgeir hafa sagt þetta ófyr-
irgefanlegt og mun hann ræða við
Eir í framhaldi af þessu.
Markús Örn Antonsson, út-
varpsstjóri, sagði við Þjóðvilj-
ann, að með þessu misnotaði Eir
sér gróflega aðstöðu sína. Hann
gæti svarað lesendabréfum, þar
sem kvartað væri undan honum
við störf sín hjá DV, annaðhvort í
DV, eða þá í sama blaði og les-
endabréfið birtist, en ekki í þátt-
um sem hann sæi um að gera fyrir
útvarpið. " _ Sáf
Leiöretting
í Sunnudagsblaði Þjóðviljans birt-
ist viðtal við Ævar Kjartansson um
útvarpsmál. Þar slæddist inn sá mis-
skilningur blaðamanns að það hefði
verið fyrir tilverknað Ævars og Helga
Guðmundssonar að í reglugerð um
útvarp var sett inn ákvæði um að leyfi
til útvarpsrekstrar skuli bundið því
skilyrði að Ieyfishafar semji við
eigendur höfundarréttar að því efni
sem þeir hyggjast útvarpa. Þetta
ákvæði var í drögum að reglugerðinni
sem lögð voru fyrir útvarpsréttar-
nefnd. Hins vegar vildu þeir Ævar og
Helgi hafa þetta ákvæði á meira áber-
andi stað í reglugerðinni. Ævar
leiðrétti þennan misskilning við yfir-
lestur en fyrir mistök í prentsmiðju
rataði sú leiðrétting aldrei inn í viðtal-
ið. Á því biðst Þjóðviljinn velvirðing-
ar. —ÞH
Tilraun sú til lúðuddis, sem ís-
landslax er að gera með styrk
Rannsóknarráðs ríkisins virðist
ætla að heppnast vel. Að sögn
Jóns Þórðarsonar hjá Íslandslaxi
eru lúðurnar farnar að borða það
fæði sem þeim er gefið, en það var
talið að myndi verða einn aðal-
vandinn. Hætta cr á að fiskurinn
hafni fæðunni eftir að það er ekki
lengur lifandi fæða sem hann fær.
Lúðurnar sem veiddar voru til
þessarar tilraunar voru frá hálfu
og uppí þrjú kíló og voru þær sett-
ar í eldisker um miðjan deseni-
ber. Það er fyrst nú að þær eru
farnar að taka við þeirri fæðu sem
hent er til þeirra.
Jón benti á að þetta væri allt á
tilraunarstigi og því ósköp lítið
hægt að segja um hvað verður í
þessu sambandi. Ef lúðueldið
tekst og af því verður í stórum
stíl, þá miða menn við að ala lúð-
urnar upp í þá stærð sem vinsæl-
ust er á markaðnum hverju sinni.
Dænri eru um að lúður hafi verið
aldar uppí allt að 30 kg. þyngd.
Mikill markaður er fyrir lúðu
og verð mjög gott að sögn þeirra
sem best vita og þykir þetta því
hinn álitlegasti kostur ef vel tekst
til með þessa frumtilraun.
Alþingi
Húsnæðis-
málin ekki
til umræðu
Fyrirhuguð
utandagskrárumrœða í
gær stöðvuð.
Málshefjandi vísará
forseta sameinaðs þings.
Fóru auglýsingar
Sigtúnshópsins í taugar
Sjálfstœðismanna?
Ekkert varð úr utandagskrár-
umræðu um húsnæðismáiin á al-
þingi í gær eins og búist hafði ver-
ið við. Gunnar G. Schram sem
hafði óskað eftir umræðunni í
framhaldi af Háskólabíósfundin-
um vísaði á forseta þegar hann
var spurður hvað hefði valdið en
sagði sjálfur myndi koma með
málið á dagskrá þingsins með fyr-
irspurn innan tíðar.
Á mánudag mun Þorvaldur
Garðar Kristjánsson hafa gefið
Gunnari vilyrði fyrir stuttri utan-
dagskrárumræðu og höfðu þing-
menn búið sig undir hana, svo og
áhugahópur uni húsnæðismál
sem hvatti menn til að koma á
þingpalla í útvarpsauglýsingum á
mánudagskvöld. Mönnum bar
ekki saman um það í gær hvort
auglýsingar Sigtúnshópsins hefðu
orðið til þess að Þorvaldur Garð-
ar hætti við að leyfa umræðuna
eða hvort þingflokkur Sjálfstæð-
isflokksins greip í taumana. Ljóst
er hins vegar að það er Alexander
Stefánsson félagsmálaráðherra
sem verður í sviðsljósinu þegar
Gunnar ber fram fyrirspurn sína
því ráðherra hefur tvöfalt lengri
tíma en fyrirspyrjandi og aðrir
mega ekki taka til máls nema til
að gera örstuttar athugasemdir.
- ÁI.
- S.dór.
Samningarnir
Nýtt launakerfi í haust
ASÍog atvinnurekendur sammála um að vinna að nýju launakerfisemfœrir kauptaxta nœr greiddu kaupi
Eitt af þeim atriðum sem samn-
ingar Alþýðusambandsins og
atvinnurekenda stranda á, er
hvernig bæta skuli laun þeirra,
sem ekki hafa notið launaskriðs.
Alþýðusambandið hefur sett það
á oddinn að þessir hópar fái 8%
kaupmáttaraukningu á árinu en
atvinnurekendur hafa ekki verið
til viðræðu um það.
Þó hægt miði um úrlausn í því
efni hafa deiluaðilar þó orðið
sammála um ákveðnar tillögur
um endurskoðun launakerfisins.
Samkvæmt þessum tillögum á að
vinna áð því á árinu að færa
kauptaxta nær greiddu kaupi og
auka hlut fastra launa í heildar-
tekjunum. Þá er jafnframt talað
um að leiðrétta hlut þeirra, sem
hafa borið minnst úr býtum
vegna launaskriðsins á undan-
förnum árum.
Deiluaðilar eru sammála um
að fela Kjararannsóknarnefnd að
vinna að nauðsynlegum rann-
sóknum í samvinnu við sérsam-
bönd og félög launafólks, með
það markmið í huga að taka upp
nýtt launakerfi. Á rannsóknin að
ná til flestra starfshópa af báðum
kynjum og í sem flestum starfs-
greinum unt allt land. Skal henni
lokið fyrir 1. ágúst.
Stefnt er að því að endurskoð-
uninni á launakerfinu ljúki í
haust og nýtt launakerfi taki gildi
1. október.
Til að auðvelda Kjara-
rannsóknarnefnd starfið er farið
fram á að Alþingi leggi fram
frumvarp um upplýsingaskyldu
fyrirtækja og stofnana til nefnd-
arinnar. Jafnframt ætlar VSÍ og
VMSS að beita sér fyrir að þeirra
félagsmenn fullnægi skilaskyld-
unni til Kjararannsókn-
arnefndar. - Sáf
ÞJÓÐVILJINN - SÍÐA 3