Þjóðviljinn - 04.03.1986, Blaðsíða 2

Þjóðviljinn - 04.03.1986, Blaðsíða 2
ÍÞRÓTTIR Ísland-Danmörk Von á jöfnun leik 5.-6. sœti enn Cora Barker fyrirliði KR hendir bikarinn á lofti. (mynd: EÓI) Karfa - konur KR meistari Þótt aðeins tveimur umferðum sé ólokið í milliriðlum hér í Sviss og ísland sé í neðsta sæti í sínum riðli er enn fyrir hendi möguleiki á að leika um fimmta sætið í keppninni og komast beint á OI- ympíuleikana í Suður-Kóreu 1988. Sigrar gegn Danmörku í kvöld og gegn Svíþjóð á fimmtudag mundu líklega færa íslenska liðinu þriðja sætið í riðl- inum og hugsanlega annað sætið, þótt það sé öllu draumkenndara. Það eru allir möguleikar fyrir hendi hjá okkur. Við verðum að vinna Dani og Svía en það verður mjög erfitt. Flestir leikir í keppn- Tólf sigrar Danir - gamlir og góðir fjendur íslendingar léku annan hand- knattleikslandsleik sinn við Dani, í Kaupmannahöfn í febrúar 1950. Þá var Bogdan Kowalczyk fjög- urra ára og enginn núverandi landsliðsmanna fæddur, - enda tapaðist leikurinn 6-20. Síðan höfum við háð marga eftirminnilega orrustuna við danskinn, og aldrei er sigurinn sætari en gegn þessum ágætu fjandvinum okkar. Fyrsti sigur- inn var allra sætastur, 15-10 í Höllinni í apríl 1968, en alls höf- um við unnið Dani 12 sinnum, gert við þá 4 jafntefli - og tapað 29 sinnum. Heildarstaðan í mörkum er 812-899. Síðast lék landsliðið gegn Dönum nú í desember og janúar. Fyrst var jafntefli 20-20 í Laugar- dalshöll, síðan kom sigur á Akra- nesi 24-20, þá tap í Höllinni 17- 21, og loks sigur í Árósum 20-17. ekki útilokað inni hafa endað með eins marks mun, nú er þetta spurning um hvort íslenska liðið hefur nægi- legan kraft í þá leiki sem eftir eru, sagði Bogdan Kowalczyk lands- liðsþj álfari um horfur íslenska liðsins. Sjálfstraustið er komið, við höfum enga minnimáttarkennd lengur gegn Skandinavíuþjóðun- um. Það yrði gott að fá þrjú stig úr leikjunum við Dani og Svía, sagði Bjarni Guðmundsson. Er þrek íslenska liðsins á þrot- um eftir hina erfiðu leiki sem að baki eru? Við þurfum að halda einbeitninni í lagi seinni hluta keppninnar, og það gæti orðið erfitt, þreytandi hóteldvöl og lítið ferðafrelsi dregur úr henni. En líkamlega erum við í lagi, við höf- um nógan kraft, og þarsem Bog- dan hefur mikið látið sömu leik- mennina spila eigum við óþreytta leikmenn fyrir utan sem gætu nýst vel í þeim leikjum sem eftir eru, sagði Kristján Arason. ísland Ieikur við Danmörku í kvöld í Luzern og hefst leikurinn klukkan 18 að íslenskum tíma. Danir eru svipaðir og við, mögu- leikar liðanna eru jafnir, segir Kristján Arason. Undanfarin misseri hefur ísland náð undir- tökunum í landsleikjum við Dani, og sálfræðilega séð gæti það vegið þungt í kvöld. Mikið byggist á því að íslensku vörninni takist að halda dönsku horna- mönnunum í skefjum, sérstak- lega Mikael Fenger sem hefur farið á kostum í keppninni og skoraði til dæmis ellefu mörk gegn Kóreumönnum á sunnudag- inn. Það er líka markmið út af fyrir sig að verða fyrir ofan Dan- ina þegar upp er staðið, og í því einvígi er leikurinn í kvöld nánast úrslitaleikur. VS/Sviss. í leikhléi hjá Val og Haukum á sunnudaginn var KR-stelpunum afhentur íslandsmeistarabikar kvenna í körfu. Þær unnu alla sína leiki nema þann fyrsta og eru vel að sigrinum komnar. Síðasti leikurinn I deildinni var um helg- ina, UMFN tapaði heima fyrir ÍR, 33-39, og er lokastaðan þessi: KR............ 12 11 1 513-389 22 IS............ 12 8 4 423-365 16 |BK........... 12 6 6 530-503 12 Haukar........ 12 6 6 485-457 12 IR............ 12 6 6 453-451 12 UMFN.......... 12 5 7 417-423 10 |A............ 12 0 12 115-348 0 (ÍA gaf alla ieiki sína í síðari umferð.) Sviss Rifrildi hjá félagi Guðmundar Baden, lið Guðmundar Þor- björnssonar í 1. deild svissnesku knattspyrnunnar, á við alvarleg innanhússvandamál að etja. Forseti félagsins stendur í deilum við þjáifara iiðsins, og svissneskur blaðamaður segir að ástandið geti haft alvarlegar af- leiðingar fyrir framtíð Baden. „Það versta er að flestir leik- mannanna hafa tekið mikinn þátt í þessum deilum. Þetta var í gangi, sennilega í hámarki, þegar ég kom til liðsins í vetur, án þess að ég vissi af því“, sagði Guð- mundur í spjalli við Þjóðviljann. „Staðan er óljós, maður veit ekk- ert hvað er framundan.“ Svissneski blaðamaðurinn telur aðeins þrjá leikmenn liðsins hlut- lausa í málinu, og Guðmundur er einn þeirra. Baden er neðst í deildinni eftir fyrri umferð, með 4 stig, sem öll fengust eftir að Guðmundur kom. Liðið var í sókn síðustu leikina fyrir vetrarfrí, og það gef- ur því von, þótt útlitið sé slæmt. Paul Wolfishberg, fjallaði um Baden í sunnudagsblaði Blick. „Ég er ekki sáttur við skrif hans, þeir leikmenn sem hann segir að mesta framtíð eigi fyrir sér eru einmitt þeir sem félagið þyrfti helst að losna við“, sagði Guð- mundur. Guðmundur samdi við Baden til vors. „Þeir vildu tveggja ára samning en það kom ekki til greina. Ég get enn ekki sagt um hvað ég geri, það byggist á gengi okkar í seinni umferðinni", sagði Guðmundur. Vetur konungur ræður ríkjum hér í Sviss þessa dagana. Einn svissnesku blaðamannanna sagði að nú væri fínt að vera á skautum og skíðum, - en fótbolti væri úti- lokaður. „Það verður tæplega leikið hér á næstunni“ sagði Sig- urður Grétarsson leikmaður Luz- ern, en hann og Ómar Torfason félagi hans hjá Luzern hafa ekki látið sig vanta á leiki íslands í heimsmeistarakeppninni í hand- knattleik. VS/Sviss. Handbolti - konur 19 marka sigur Handbolti - 3. deild ÍA fatast flugið ÍBK nánast meistari. Fylkir sœkir á Valur fór létt með Haukana Akurnesingar eiga á hættu að missa af 2. deildarsæti á loka- sprettinum í 3. deild í handbolt- anum, jafntefli nú um helgina meðan önnur topplið unnu sína leiki. Skagamenn gerðu jafntefli við Hveragerði 21-21, Fylkir vann Týrara frekar óvænt í Éyjum, 21- 20, og sækja hraustlega á bratt- ann, og eftir þann leik og sigur Keflvíkinga yfir ÍH, 34-21, er ekki nema fjarlægur fræðilegur möguleiki að eitthvert annað lið en ÍBK standi uppi sem 3. deildarmeistari. Ögramenn eru aðdáunarverðir, hafa enn ekki unnið leik í deildinni en spila samt hvað af tekur, töpuðu nú um helgina fyrir Reyni í Sand- gerði, 34-20. Selfoss vann Njarð- víkinga 23-15. Staðan að loknum helgarleikj- unum: (BK...........23 20 0 3 615-436 40 Týr...........21 17 0 4 556-402 34 Reynir........23 13 5 5 559-501 31 ÍA............22 13 4 5 556-460 30 ÞórA..........21 13 3 5 485-411 29 Fylkir........21 13 1 7 477-411 27 Selfoss.......22 10 4 8 468-454 24 Hveragerði....22 8 2 12 522-586 18 Völsungur.....21 8 1 12 505-519 17 UMFN..........22 7 3 12 529-539 17 lH...........21 5 0 16 470-586 10 Skallagrímur... 22 3 1 18 435-571 7 Ögri.........23 0 0 23 344-655 0 Næstu leikir eru annað kvöld: ÍA-Selfoss, Skallagrímur-ÍH, Fylkir-Hveragerði. -m Tveir leikir voru í fyrstu deild kvenna nú um helgina. Valur lagði Hauka léttilega, 34-15, og meistarar Fram unnu KR 27-22. Valur lagði Hauka að velli með hvorki fleiri né færri en 34 mörk- um gegn 15. Leikurinn var nokk- uð jafn í fyrri hálfleik en í þeim síðari kafsigldu Valsstúlkurnar Haukana og áttu Hafnfirðingarn- ir ekkert svar við leik þeirra, Haukastúlkurnar náðu aðeins að skora 4 mörk í seinni hálfleik og þarf ekki að fjölyrða meira um þennan leik, svo miklir voru yfir- burðir Valsstúlknanna; tölurnar tala sínu máli. Mörk Vals: Guðrún 10, Katrín 5, Kristín 4, Erna 4, Steinunn 3, Þórey 2, Ásta 2, Harpa 2, Magnea 1, Helga 1. Mörk Hauka: Elva 5, Björk 3, Ragnhild- ur 3, Linda 2, Steinunn 1, Björk 1. Fram vann KR með fimm mörkum, 27-22, og var þar ekki um neinn stórleik að ræða. Fram hafði yfir í hléi 15-11. Eftir tíu mínútur náðu KR-stúlkurnar að jafna, 16-16, en meistararnir höfðu betur á lokasprettinum. Guðríður Guðjónsdóttir var sem fyrr lang-markahæst Framara og skoraði 10 mörk, Jóhanna Halldórsdóttir kom næst með 4 mörk. Sigurbjörg Sigþórsdóttir KR skoraði 9 mörk og Elsa 5. Staðan í 1. deild kvenna eftir leiki helgarinnar og sigur Stjörn unnar yfir FH í síðustu viku, 23- 14 (11-9): Fram......... 11 11 0 0 262-184 22 Stjarnan..... 11 7 2 2 261-213 16 FH........... 11 7 0 4 196-187 14 Valur........ 11 4 2 5 229-213 10 Víkingur..... 11 3 2 6 209-217 8 KR........... 11 2 2 7 214-249 6 Haukar....... 12 0 2 10 177-275 2 Síðustu leikir í deildinni eru Stjarnan-Fram á laugardaginn, KR-Valur og Víkingur-FH næsta mánudag. -MHM 10 SÍÐA ÞJÓÐVILJINN -Þriðjudagur 4. mars 1986 Sviss/sunnudag Kóreu skellt Naumur sigur heimsmeistaraefn- anna Danir fundu svarið við Kóreustílnum í Aarau á sunnu- daginn. Þeir leiddu 18-17 í hálf- leik og sigruðu 31-27, og horna- menn Dana skoruðu 19 mark- anna, Fenger 11 og Nielsen 8. Þeir fengu þá fyrir skipun að reyna sem mest uppá eigin spýtur og það nýttu þeir sér svo sannarlega. Dönsku vörninni tókst síðan að halda Kang nokkuð í skefjum, hann skoraði „aðeins“ sjö mörk í leiknum, og sama gerðu félagar hans Choi og Lee. Rúmenar eru heillum horfn- ir og máttu þola fimm marka tap gegn Svíum, 25-20. Rúmenía komst í 11-7 en Svíar jöfnuðu 11- 11 fyrir hlé. Fjögur mörk í röð seint í leiknum færðu seigu liði Svía fjögurra marka forystu og þarmeð var sigurinn í höfn. Rúm- enar sakna greinilega mjög hins slasaða Stinga, og hafa nú fyrir- gert möguleika sínum á heimsmeistaratitlinum. Voinea skoraði 11 marka þeirra, Björn Jilsen gerði sjö marka Svía. Austurþjóðverjar fóru létt með gestgjafann, Sviss, í riðli I. Þeir komust í 8-2 og 16-6 og heimamenn áttu aldrei mögu- leika. Hinn snjalli Ingolf Wiegert lék mjög vel og gerði fimm mörk, sem og Winselmann, Delhees skoraði fimm marka Svisslend- inga. Júgóslövum er af flestum spáð sigri í keppninni en sigur þeirra á Spánverjum var merki- lega naumur, 18-17. Spánn gerði tvö síðustu mörk leiksins og fékk boltann í lokin. Dæmt var auka- kast og Spánverjar settu upp þá frumlegu leikfléttu að gefið var inná línuna á markvörðinn Zun- iga. Hann náði þó ekki að komast í gott skotfæri og þarmeð var leiknum lokið. Cvetkovic gerði sex mörk fyrir Júgóslava en Se- rano átta fyrir Spánverja. Sovétmenn virtust ætla að tapa enn einum leiknum þegar þeir mættu Vestúr-Þjóðverjum í Zúrich. Vesturþjóðverjarnir komust í 12-8 og leiddu 19-17 þegar aðeins 8 mínútur voru eftir. Þá gerðu Sovétmenn sér lítið fyrir og skoruðu sex mörk í röð - Wunderlich átti síðan lokaorðið fyrir vesturþýska, úrslit 23-20 og þungu fargi létt af þeim sovésku. Gagin skoraði 5 mörk fyrir Sovét, en Wunderlich, sem hefur leikið mjög vel hér í Sviss, gerði sjö marka Vesturþjóðverja. VS/Sviss. Skíðaganga Matthías fljótastur Um helgina hélt Skíðafélag Reykja- víkur Reykjavíkurmót í skíðaboð- göngu, 3X10 km, í þungu færi fyrir neðan Borgarskálann í Bláfjöllum. A-sveit SR vann á 2.04,17, en í henni voru Einar Matthíasson, Matt- hías Sveinsson og Ingólfur Jónsson. B-sveit SR varð önnur, á 2.15,27. í henni voru Guðni og Eiríkur Stefáns- synir og Kristján Snorrason. Ekki tóku fleiri þátt í keppninni. Sveit öldunga gekk 5 km. á 1.11,37, og voru í henni Sveinn Kristinsson, Pálmi Guðmundsson og Tryggvi Halldórsson. Besta brautartíma náði Matthías Sveinsson.

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.