Þjóðviljinn - 09.03.1986, Blaðsíða 18

Þjóðviljinn - 09.03.1986, Blaðsíða 18
KROSSGATA Nr. 508 I 2 3 q 5 u_ vfl 7 ? \P 9 10 II V \/ q 12 I3 3 'Y j 12 H "A 15" 12 H \i V N 14 17 I? q II \/ 12 8s n 2o 5 SP w 21 2l 19 II ? n w 21 (d ? 3 23 21 m 1? 22 8 10 V I0 n 4 q óó V 1/ (o 23 M 21 22 17 M 'YS V 29 22 V 10 25 ? IO V lo 24 23 II 4 II N 13 II /r 10 II N v> « 22 23 N 24» 17 24 1 27 fí 24 n s? 12 13 2o 15 24 M 11 n 3 q II 7 10 V 22 15 15 8 10 II SP n 2 18 8 lo H 2o 15 23 ¥ 10 21 S/ 21 22 18 1? 22 15 N? 2? 2T> y M / 22 /7 22 15 lO 21 7 24 m /7- s? 24 N 22 15 15 q? n rO V 22 17 2 17 b II to 9 12 21 2 30 II 19 AÁBDÐEÉFGHIÍJKLMNOÓPRSTUÚVXYÝÞÆÖ SKÁK Setjið rétta stafi í reitina hér fyrir neðan. Peir mynda þó kvenmanns- nafn. Sendið þetta nafn sem lausn d krossgótunni til Þjóðviljans, Síðumúla 6, Reykjavik, merkt: „Krossgóta nr. 508". Skilafresturer þrjór vikur. Verðlaunin verða send til vinningshafa. 19 27 4 30 19 7 15 Stafirnir mynda íslenskt orö eða mjög kunnugleg erlend heiti hvort sem lesiö er lá- eöa lóðrétt. Hver stafur hefur sitt númer og galdurinn viö lausn gátunnar er sá aö finna staflykilinn. Eitt orð er gefið og á þaö að vera næg hjálp því meö því eru gefnir stafir í allmörgum orðum. Það eru því eðlilegustu vinnubrögðin að setja þessa stafi í hvern sinn reit eftir því sem tölurnar segja til um. Einnig er rétt að taka fram, að í þessari krossgátu er gerður skýr greinarmunur á grönnum sérhljóða og breiðum, t.d. getur a aldrei komið í stað á eða öfugt. Verðlaunin fyrir krossgátu nr. 505 hlýtur Pálmar Kristinsson, Leirubakka 22, 109 Reykja- vík. Þau eru Ijóðabókin Fjúk eftir Steinunni Guðmunds- dóttur sem Menningarsjóður gefur út. Lausnarorðið var Hjálmtýr. Verðlaunin að þessu sinni eru viðtalsbókin Stríð og söngur eftir Matthías Viðar Sœmundsson en hún kom úthjá Forlaginu um síðustu jól. BRIDGE Hœgláti Júgóslavinn Sigurvegarinn á Reykjavíkurmót- inu, Júgóslavinn Predrag Nikolic, er ungur að árum en þegar orð- inn harðskeytturstöðubaráttu- skákmaður. Hann tefldi mjög skynsamlega á mótinu, byggði upp trausta stöðu í byrjun og var- aðist að tefla of hvasst. Hann ný- tti hins vegar vel þau færi sem gáfust. Hann fékk sjaldan verra tafl og fáar skáka hans fóru í bið. Hann þurfti því ekki að eyða orku sinni í erfiða vörn eða langar legur yfir biðskákum og hefur það eflaust vegið þungt á lokasprett- inum. Maðurinn er hæglátur og rósamur að sjá og af taflmennsku hans má ráða að hann beitir sig töluverðum sjálfs- aga. Hann er dökkhærður og greiðir slétt en dálítill lokkur aftan í hnakk- anum vill aldrei leggjast almennilega. Má kannski af því ráð að innifyrir búi einhver óhamin element sem birtist á taflborðinu í flækjum og látum. En á þessu móti hélt hann að mestu aftur af slíku. Hér skal hugað að viðureign hans við Browne frá Bandaríkjunum. Nik- olic fékk meira rými, vann peð og síðan annað og kvað svo alla móttil- burði andstæðingsins niður. Þetta er ekki sérlega tilþrifamikil skák en býr þó yfir vissri spennu og það er skemmtilegt að sjá hvernig einn stór- meistari vinnur bug á öðrum með fremur einfölduin mcðulum. Hvítt: Nikolic Svart Brown Drottningarindver.sk vörn. 1. d4 - Rf6 2. c4 - e6 3. Rf3 - b6 4. g3 - Ba6 5. Da4 - c5 6. Bg2 - Bb7 7. 0-0 - cxd4 Predrag Nikolié (mynd: Sig). 8. Rxd4 - Bxg2 9. Kxg2 - Dc7 Svartur hefur létt á stöðunni með þessum uppskiptum. Nú stefnir hvít- ur að því að leggja undir sig miðborð- ið með e2-e4 en svartur reynir að sprengja það upp með d7-d5 eða b7- b5. 10. Rc3 - Be7 11. 13 - a6 12. Hdl - 0-0 13. Bf4 - Db7 Bæði 13. ... e5 14. Rf5ogl3. ...d6 14. Rd-b5 er hvítí í hag. 14. Hd2 - Hc8 Ekki gekk 14. ... d5 vegna 15. cxd5 Rxd5 16. Rxd5 Dxd5 17. Hcl og hvít- ur hefur allar línur á valdi sínu. 15. Ha-dl - Rc6 Og nú mátti ckki leika 15. ... d5 því eftir tvöfalt dráp á d5 kemur Rd4-f5 ogHd8+ ogsíðan De8og hvíturvinn- ur. 16. Rxc6 - Dxc6 17. e4 - b5 Hvítur hótaði e4-e5 nú eða í næstu leikjum og peðið á d7 fellur. Svartur fórnar peði í von um mótspil. 18. cxb5 - axb5 19. Dxb5 - Dxb5 20. Rxb5 - d5 Eftir 20. ... Hxa2 21. Rc3 Ha7 22. e5 er d-peðið í dauðanum. Svartur leitast við að flækja taflið en Nikolic hefur traust tök á stöðunni. 21. Bd6 - ... 21. ... - Bxd6 22. Rxd6 - Hc6 23. Rb5 - Kf8 Eftir 23. ... Hxa2 24. Rc3 og síðan drepur hvítur tvisvar á d5. Hann á þá sælu peði meira en það má lengi þvæl- ast í endatafli með tveim hrókum. Svartur hefði átt að reyna þetta. 24. exd5 - Rxd5 25. Hal - ... Góður leikur. Hrókarnir eiga að vera að baki frípeðunum. 25. ... - Hc5 26. Rd4 - e5 27. Re2 - Hc2 28. Hxc2 - Re3+ 29. Kgl - Rxc2 30. Hcl - Rb4 Hefði hvítur leikið kónginum til f2 í 29. leik ætti svartur nú fjölskylduskák á d3 og hvítur hlyti að tapa peði. 31. a3 - Rd3 32. Hc2 - f5 Svartur reynir í örvæntingu að tryggja riddaranum fótfestu á miðborðinu en það kostar hann annað peð. En eitthvað varð að gera því frípeðin á drottningarvæng verða ckki stöðvuð eftir að þau leggja af stað. 33. Hd2 - e4 34. fxe4 - fxe4 35. Rc3 - Re5 36. Hf2+ - Ke7 37. Rxe4 - ... Hvítur lét ekki skáka af sér hrókinn á f3. Þeir félagar tefldu fram yfir tíma- mörkin en þá gaf Browne skákina enda ekkert að gera við framrás frels- ingjanna á drottningarvæng. Þess verður að geta að Jóhann Þór- ir ritstjóri Skákar gaf út glæsilegt mótsblað eftír hverja umferð. Þar eru allar skákirnar úr mótinu og auk þess fjöldi mynda af keppendum og áhorf- enduin. Er þetta blað hin mesta gull- náma skákefnis. Úrslit um Úrslitakeppni fslandsmóts kvenna og í yngri flokki (spilarar f. 1961 og síðar) í sveitakeppni hefjast í dag kl. 13 í Drangey v/SíðumúIa. Fjórar efstu sveitir úr hvorum flokki spila til úr- slita. f kvennaflokki eigast við sveitir Estherar Jakobsdóttur gegn Sigrúnu Pétursdóttur og Soffíu Guðmunds- dóttur gegn Öldu Hansen. í yngri flokki eigast við sveitir Ragnars Magnússonar gegn Þrastar Ingimarssonar og Júlíusar Sigurjóns- sonar gegn Eymundar Sigurðssonar. Úrslitaleikurinn verður svo spilað- ur á sama stað á morgun, sunnudag, og hefst spilamennska þá einnig kl. 13. Bridgekennsla Hópur ungra og efnilegra bridge- spilara á höfuðborgarsvæðinu hefur nú tekið sig saman, undir samræmdri stjórnun Ólafs Lárussonar hjá Bridgesambandi fslands, og myndað kennsluhóp í bridge. Nú þegar eru starfandi all margir hópar og skólar innan vébanda þessa hóps, svo og einkaaðilar úti í bæ, er notið hafa leiðsögn hópsins. Þessi hópur spilara er reiðubúinn að taka að sér leiðbeiningu í bridge í hvaða formi sem er. Beina tilsögn, kennslu, uppsetningu móta, almenna leiðsögn svo og skriflegar leiðbeiningar. Kennslugjald er yfirleitt kr. 150- 200 pr. einstakling (umsemjanlegt í hvert skipti) fyrir ca. 2 klst. (3 kennslutímar). Kennt er nánast á öllum tímum sól- arhringsins, nema rétt yfir blánóttina. Þau fyrirtæki, skólar, bæjaryfirvöld, almenn félög eða einstaklingar, sem hug hafa á að nýta sér þessa þjónustu, eru beðnir um að hafa samband við Ólaf Lárusson hjá Bridgesambandi fslands, í síma 18350 eða heima s: 16538. Fró Bridgedeild Skagfirðinga Rvk. Eftir 28 umferðir af 43 í Barometer-tvímenningskeppni deildarinnar, er staða efstu para þessi: Stig 1. Jón Þorvarðarson - Þórir Sigursteinsson 455 2. Björn Hermannsson - Lárus Hermannsson 365 3. Jörundur Þórðarson - Sveinn Þorvaldsson 314 4. Ármann J. Lárusson - Sigurður Sigurjónsson 307 5. Murat Serdar - Þorbergur Ólafsson 304 helgina 6. Guðni Kolbeinsson - Magnús Torfason 272 7. Guðmundur Þórðarson - Valdimar Þórðarson 245 8. Kristján Ólafsson - Rögnvaldur Möller 215 9. Baldur Árnason - Sveinn Sigurgeirsson 205 10. Elísabet Jónsdóttir - Leifur Jóhannesson 191 Fró Bridgefélagi Reykjavíkur Útlit er fyrir skemmtilegan loka- sprett í aðaltvímenningskeppni Bridgefélags Reykjavíkur. Ungu mennirnir, þeir Valgarð og Ragnar, eru enn á hælunum á „gömlu mönn- ÓLAFUR LÁRUSSON unum“, þeim Karli og Jóni. Eftir 36 umferðir af 43, er staða efstu para þessi: Stig 1. Jón Baldursson - Karl Sigurhjartarson 526 2. Ragnar Magnússon - Valgarð Blöndal 480 3. Björn Eysteinsson - Guðmundur Sv. Hermannsson 344 4. Aðalsteinn Jörgensen - Valur Sigurðsson 322 5. Hrólfur Hjaltason - Oddur Hjaltason 319 6. Rúnar Magnússon - Stefán Pálsson 307 7. Björgvin Þorsteinsson - Jón Steinar Gunnlaugsson 298 8. Júlíus Snorrason - Sigurður Sigurjónsson 240 9. Hermann Lárusson - Ólafur Lárusson 238 10. ísak Örn Sigurðsson - Ragnar Hermannsson 210 11. Jón Hjaltason - Hörður Arnþórsson 210 Fró Bridgefélagi Akureyrar Sveit Stefáns Vilhjálmssonar sigr- aði örugglega Sjóvá sveitahrað- keppni Bridgefélags Akureyrar. Þeir leiddu mótið frá upphafi. AIIs tóku 21 sveit þátt í keppninni. Sjóvá á Akur- eyri (Þórarinn B. Jónsson) gaf verð- laun til keppninnar. 18 SÍÐA - ÞJÓÐVILJINN Sunnudagur 9. mars 1986

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.