Þjóðviljinn - 25.03.1986, Síða 2
ÍÞRÓTTIR
Hér eigast þeir við Einar Þorsteinsson KFR og Finnbogi Karlsson KSK, í -^73 kg flokki. Finnbogi sigraði í þessari viðureign sem öðrum, en hann varð
meistari í þessum þyngdarflokki.
íslandsmót
KFR gullsæknast í karatinu
Það var hart barist á íslands-
mótinu í karate sem haldið var í
Laugardalshöllinni á sunnudags-
kvöld. Keppnin var jöfn og
spennandi, og mikið um óvænt
úrslit.
Karatefélag Reykjavíkur vann
til flestra verðlauna, cn önnur fé-
lög voru þeim ekki langt að baki.
Hér fylgja einstök úrslit:
Kata kvenna: 1. Jónína Olsen
KFR, 2. Kristín Einarsdóttir Gerplu,
3. Ingibjörg Júlíusdóttir Þórshamri.
Kata unglinga: 1. Halldór Stefáns-
son Þórshamri, 2. Kristjana Sigurðar-
dóttir Gerplu, 3. Gísli Helgason
Stjörnunni. Kata karla: 1. Árni Ein-
arsson KFR, 2. Atli Erlendsson
KFR, 3. Sigþór Markússon Þórs-
hamri. Kumite kvenna: 1. Kristín
Einarsdóttir Gerplu, 2. Jónína Oles-
en KFR, 3. Elín Grímsdóttir Þórs-
hamri. Kumitekarla -65 kg: l.Árni
Einarsson KFR, 2. Halldór Svavars-
son KFR, 3. Sölvi Rafnsson Baldri.
Kumite karla —73 kg: 1. Finnbogi
Karlsson KSK, 2. Árni Jónsson Þórs-
hamri, 3. Atli Erlendsson KFR. Ku-
mite karla -80 kg: 1. Konráð Stef-
ánsson KFR, 2. Sigurjón Gunnsteins-
son KFR, 3. Víktngur Sigurðsson
Þórshamri. Kumite karla +80 kg: 1.
Ævar Þorsteinsson Breiðabliki, 2.
Ómar ívarsson KFR, 3. Magnús
Blöndal Þórshamri. Kumite karla
opinn flokkur: 1. Atli Erlendsson
KFR, 2. Ævar Þorsteinsson Breiðab-
liki, 3. Árni Einarsson KFR.
Alls tóku 8 lið þátt í þessari
keppni og voru þátttakendur um
40 talsins. Mest var spennan í ku-
mite kvenna, en þar áttust þær
við Jónína Olesen KFR og
Kristín Einarsdóttir Gerplu.
Viðureign þeirra var spennandi
og mjög góð tæknilega séð. En
Kristín sigraði að lokunt með 3
stigum gegn 2.
Keppni var einnig mjög spenn-
andi í opnum fiokki karla. Þar
börðust til úrslita þeir Atli Er-
lendsson KFR og Ævar Þor-
steinsson og voru þeir mjög jafn-
ir. Ævar gerði sig þó sekan um of
mikla snertingu og var því Atla
dæmdur sigurinn.
Árni Einarsson KFR var eini
keppandinn sem náði tvisvar
Karate
0f mikið um slys
Of mikið um slys, -
er samhljóða álit þeirra sem
Þjóðviljinn ræddi
við á Islandsmótinu í karate
Árni Einarsson, Jónína
Olesen, Sigurjón Gunn-
steinsson og Omar ívars-
son Karatefélagi Reykjavík-
ur:
„Við erum ekki ánægð með
þetta mót. Það var ekki nógu
vel undirbúið og það vantaði
fleiri reynda dómara. Það þarf
líka að stöðva þessi klaufalegu
slys.
En það sem er verst er að
menn vantar meiri tækni og
keppnisreynslu. Það var eins
og neistann vantaði í fólkið og
áhuginn ekki nógu mikill.“
Ævar Þorsteinsson
Breiðabliki:
„Þetta var mjög gott mót,
svolítið mikið af slysum að
vísu, en að öðru leyti gott. Ég
er ekki ánægður með minn ár-
angur og það var slæmt að
tapa í opna flokknum.
Ég held við séum á uppleið,
við höfum góða einstaklinga,
en ekki nógu nrikla reynslu."
Karl Gauti Hjaltason
dómari:
„Það senr okkur dómara
vantar er reynsla. Við hefðum
kannske getað dæmt harðar
en ég er ekki viss um að það
hefði komið í veg fyrir þessi
slys. Annars held ég að dóm-
gæslan núna hafi verið ntun
betri en í fyrra og þetta hafi
verið jafnara mót. Við
reyndum að fá erlenda dóm-
ara en það gekk ekki.
Við þurfum að laga margt
og fyrst og fremst minnka
snertingu á íslenskum mótum,
en ég held að þessi slys stafi
fyrst og fremst af reynslu-
leysi.“ - Logi.
sinnum efsta sæti. Hann sigraði í
Kata og Kumite —65 kg. Hann er
í mikiili framför og hefur náð
góðum árangri á erlendum
mótum nú að undanförnu.
Töluvert var af slysum og má
þar um kenna of lítilli keppnis-
reynslu. Meiðslin settu strik í
reikninginn og urðu nokkrir að
hætta keppni. Þó er karate alls
ekki ofbeldisiþrótt eins og svo
margir halda. Keppnin byggist að
mestu upp á snerpu og tækni, en
ekki afli. Þó er alltaf hætt við að
menn misreikni sig eða fari of ná-
lægt í hita leiksins.
Dómarar voru þeir Ólafur
Wallevik, Karl Gauti Hjaltason
og Stefán Alfreðsson og verður
það að segjast eins og er að dóm-
gæslan var veikasti hlekkurinn.
Það vantar fyrst og fremst er-
lenda dómara eða innlenda dóm-
ara með reynslu. Auk þess var
tíminn nokkuð naumur og lauk
mótinu ekki fyrr en um miðnætti.
Svo virðist sem menn séu í lítilli
keppnisæfingu og bitnar það
nokkuð á tækninni. Það hlýtur
því að vera stefna karatefélag-
anna að halda fleiri mót og efla
þannig íslenskt karate.
-Logi
Hér er yngsti keppandinn á mótinu, Sigurður Arnar. Þó hann sé aðeins 8 ára
stóð hann sig mjög vel og sýndi að margur er knár...
10 S(ÐA - ÞJÓÐVILJINN Þrlðjudagur 25. mars 1986
Karfa - 2. deild
Snæfell
úr leik
Eftir tvo leiki á Króknum um
helgina er Ijóst að Snæfell á ekki
lengur möguleika á sæti í 1. deild
körfunnar næsta vetur.
Tindastóll vann fyrri leikinn,
87-78, á föstudagskvöld, - Snæ-
fell lék „heimaleik“ sinn daginn
eftir og vann hann, 69-61. Liðin
hafa bæði sex stig í úrslitakeppn-
inni, en Snæfell hefur lokið sínum
leikjum meðan Tindastóll á eftir
tvo. Þótt Tindastóll tapaði þeim
báðum yrði liðið ofar en Snæfell á
stigatöflunni, vegna þessara inn-
byrðis leikja sem Tindastóll vann
samanlagt með einu stigi, 148-
147.
Staðan í úrslitakeppni 2.
deildar:
Tindastóll.....4 3 1 338-308 6
Snæfell........6 3 3 422-426 6
Skallagrímur...4 2 2 279-286 4
HSK............4 1 3 268-287 2
Næstu leikir: HSK-Skallagrím-
ur á miðvikudag, og Skallagrím-
ur-Tindastóll föstudag eftir
páska, 4. apríl. Allt stefnir í að
það verði eiginlegur úrslitaleikur
í keppninni. - m.
Platini
meiddur
Michel Platini verður ekki með
þegar Frakkar heyja vináttu-
landsleik við Argentínu á mið-
vikudag.
Platini hefur undanfarið átt í
vandræðum með hásin í hægra
fæti, og lék nú á sunnudaginn
sprautaður við sársauka. Hann á
að liggja í tvo daga og hitta lækni
sinn sama dag og landsleikurinn
fer fram. Platini sagði í fyrradag
að honum þætti leitt að geta ekki
verið með gegn Argentínu, en
hann þyrði ekki annað en að fara
að læknisráðum með tilliti til
framtíðarinnar, og sérstaklega til
sumarsins í Mexíkó.
Holtabú
HSÍfær
eggjastyrk
Handknattlcikssamband Is-
lands fékk nú um helgina veg-
legan styrk frá Holtabúinu í
Rangárvallarsýslu. HSÍ mun fá
50 aura af hverju seldu kílói og er
líklegt að sú upphæð verði í
kringum eina og hálfa miljón
króna fram að Olympíuleikunum
í Seúl 1988.
HSÍ mun í staðinn auglýsa fyrir
Holtabúið auk þess sem það
munu leitast við að efla hand-
knattleik í Rangárvallasýslu.
Á sama tíma var landsliðs-
mönnunum afhentur 50 þúsund
króna styrkur fyrir að hafa náð 6.
sætinu í Heimsmeistarakeppn-
inni í Sviss. Þessi styrkur er til að
bæta leikmönnum upp vinnutap,
en einnig er þetta viðurkenning
fyrir góða frammistöðu.