Þjóðviljinn - 25.03.1986, Page 3
Fimleikar
Erum á réttri leið
Skemmtileg og spennandi keppni í Höllinni
Viðmælendur Þjóðviljans á
fimleikamótinu voru ánægðir
með framkvæmd mótsins og
sammála um að fímleikamenn
hérlendis séu á réttri leið:
Hanna Lóa Friðjónsdótt-
ir, Gerplu:
„Þetta var skemmtileg og
spennandi keppni og sigurinn
kom mér á óvart. Það eru svo
margar stelpur sem eru mjög
góðar. Þessi árangur kemur
fyrst og fremst af ströngum
æfingum og mikilli vinnu sem
nú er að skila sér.“
Davíð Ingason, Ármanni:
„Þetta var mjög skemmti-
légt mót. Ég gerði mér vonir
um sigur fyrir mótið og ég er
ánægður með minn árangur.
Þetta var spennandi keppni
við Guðjón Gíslason og hann
var hærri eftir fyrri daginn, en
ég náði að komast upp fyrir
hann.
Ég held að ég geti fyrst og
fremst þakkað þjálfaranum
mínum, Jónasi Tryggvasyni,
þennan góða árangur. Hann
er frábær þj álfari og hefur gert
kraftaverk með strákana.“
Jónas Tryggvason, þjálf-
ari Ármanns:
„Það er greinilegt að við
erum á réttri leið og nálgumst
aðrar þjóðir. Við eigurn t.d.
ekki langt í Belga, Skota og
Dani. Við förum á Evrópu-
mót (junior) í maí og þar
koma tveir til greina, þeir
Arnór Diego og Guðjón Guð-
mundsson. Ég er svona í heild
nokkuð ánægður með þetta
mót, en það sem háir fim-
leikum hér á landi er fyrst og
fremst aðstöðuleysi og úr því
þarf að bæta.“
Davíð og Hanna Lóa á verðlaunapallinum
Fimleikar
Davíð og Hanna unnu
íslandsmótið' í fimlcikum var
haldið í Laugardalshöllinni um
helgina. Margir keppendur
mættu til leiks og var keppnin
jöfn og spcnnandi. íslands-
meistari karla í samanlögðu var
Davíð Ingason Armanni og ís-
landsmeistari kvenna var Hanna
Lóa Friðjónsdóttir Gerplu.
Úrslit í einstökum greinum:
Karlar:
Gólf:
1.-2. Daviölngason...............17.55
1 .-2. Guöjón Gíslason...........17.55
3. Guðjón Guðmundsson........¥.....17.45
Bogahestur:
1. Davíð Ingason...............15.95
2. Guðjón Gíslason..............14.70
3. HeimirGunnarsson.............14.65
Stökk:
1. Guðjón Guðmundsson...........18.55
2. Heimir Gunnarsson............18.35
3. Guðjón Gíslason..............18.30
Hringir:
1. Guðjón Gislason..............17.80
2. Davíð Ingason................17.55
3. Heimir Gunnarsson............17.00
Tvíslá:
1. Davíð Ingason................18.10
2. HeimirGunnarsson.............17.35
3. Guðjón Gíslason..............17.20
Svifrá:
1. Daviö Ingason................17.40
2. Guðjón Gislason..............16.70
3. Guðjón Guðmundsson...........15.90
Samanlagt:
1. Daviðlngason, Ármanni.......104.65
2. Guðjón Gislason, Ármanni....102.25
3. HeimirGunnarsson,Gerplu......99.45
Konur:
Stökk:
1. Hlín Bjarnadóttir............17.60
2. -4. Linda Pétursdóttir.......17.50
2.-4. Dóra Óskarsdóttir..........17.50
2.-4. Hanna Lóa Friðjónsdóttir...17.50
Tvíslá:
1. Hanna Lóa Friðjónsdóttir.....16.75
2. FjólaÓlafsdóttir.............15.95
3. Vilborg Hjaltalín................15.40
Slá:
1. Linda Pétursdóttir...............17.20
2. HannaLóaFriðjónsdóttir...........17.10
3. Dóra Óskarsdóttir................17.05
Gólf:
1. Dóra Óskarsdóttir................17.30
2. Fjóla Ólafsdóttir................17.00
3. Hlín Bjarnadóttir................16.90
Samanlagt:
1. Hanna Lóa Friðjónsdóttir.........33.30
2. -3. Fjóla Ólafsdóttir............33.25
2.-3. Linda Pétursdóttir.............33.25
Sjálft mótið gekk mjög vel fyrir
sig. Tímataflan stóðst og voru
keppendur ánægðir með skipu-
lagningu mótsins. Mesta spennan
var í kvennaflokki en þar munaði
aðeins 0.05 stigum á Hönnu Lóu
sem varð í fyrsta sæti og þeim
Fjólu og Lindu sem urðu í öðru til
þriðja sæti. Þar spilaði inní kæru-
mál sem setti leiðinlegan svip á
mótið, en Hanna Lóa er vel að
sigrinum kornin þó að erfitt hafi
verið að gera upp á milli þeirra
þriggja sem lentu í efstu sætun-
um.
Davíð Ingason sigraði í karla-
flokki, fékk 104.65 stig og er það
mjög há einkunn. Davíð hefur
verið nær ósigrandi síðustu ár og
hefur unnið 3 ár í röð.
Það er greinilegt eftir þetta
mót að íslenskt fimleikafólk er á
uppleið og við stöndum ná-
grannaþjóðum okkar ekki langt
að baki. Munar þar mestu um hvé
mikil breidd er bæði í kvenna- og
karlaflokki og einnig virðist fim-
leikaáhugi vera að aukast hér á
landi. Logi
Metaregn í Eyjum
Systkinin Bryndís og Magnús tvíbættu skriðsundsmet sín
íslandsmótið í sundi fór frám í
Vestmannaeyjum um helgina og
varð allsögulegt, hvert metið féll
af öðru.
Bryndís Ólafsdóttir, Þór Þor-
lákshöfn, bætti fyrri daginn eigið
met í skriðsundi um rúma sek-
úndu, synti á 57,93 sek. og í úr-
slitum sló hún sjálfri sér enn við
og synti á 57,71 sek.. Hún setti
líka íslandsmet í 400 m skriði,
4:32,83.
Bróðir hennar Magnús lék
sama leikinn í 100 m skriði, bætti
fyrri daginn eigið met um hálfa
sekúndu, synti á 51,93 og í úrslit-
urn á enn betri tíma, 51,53.
Njarðvíkingurinn Eðvarð Þór
Eðvarðsson setti tvö met í
bringusundi, synti 100 m á
1:05,28, og 200 m á 2:20,72 og
bætti met Tryggva Helgasonar
um tæpar fjórar sekúndur.
Ingibjörg Arnardóttir, Ægi,
setti íslandsmet í 800 m skrið-
sundi á 9:25,57, og setti telpna-
met í 400 m fjórsundi, 5:20,84.
Ingólfur Arnarson setti pilta-
metílOOmflugsundi, 1:01,68,og
sveit Ægis setti íslandsmet í
4x200 m skriðsundi með 8:14,78.
Úrslit:
800 m skriðs. kvenna:
1. Ingibjörg Arnardóttir, Ægi.9:25,57
2. Þórunn Guðmundsdóttir, Ægi....9:35,80
3. HelgaSigurðardóttir, Vestra.... 10:00,66
íslandsmct hjá Ingibjörgu, og jafn-
framt stúlkna- og telpnamet. Fyrra
metið átti Þóra K. Guðmundsdóttir,
Ægi, 9:27,00, í desember 1984.
1500 m skriðs. karla:
1. RagnarGuðmundsson, Ægi.... 17:05,00
2. Tómas Þráinsson.Ægi...........17:15,02
3. Birgir Örn Birgisson, Vestra 17:43,20
400 m fjórs. kvenna:
1. Ingibjörg Arnardóttir, Ægi.....5:28,84
2. Þórunn Guðmundsdóttir, Ægi.... 5:33,07
3. Helga Siguröardóttir, Vestra.5:35,35
Telpnamet hjá Ingibjörgu.
400 m skriðs. karla:
1. Magnús Már Ólafsson, HSK......4:05,54
2. RagnarGuðmundsson.Ægi........4:12,40
3. Tómas Þráinsson, Ægi.........4:22,59
100 m skriðs. kvenna:
1. Bryndís Ólafsdóttir, HSK........57,93
2. Helga Sigurðardóttir, Vestra.1:01,10
3. Hugrún Olafsdóttir, HSK......1:01,14
Bryndís bætti fyrra íslundsmct sitt,
var 59, 12.
100 m bringus. karla:
1. Eðvarð Þór Eðvarðsson, UMFN 1:05,28
2. Arnþór Ragnarsson, SH........1:08,74
3. Gunngeir Friðriksson, KR.....1:11,47
Eðvarð bætti eigið fsiandsmet frá í
desember, var 1:05, 30.
200 m bringus. kvenna:
1. Þuríður Pétursdóttir, Vestra.....2:50,09
2. Pálína Björnsdóttir, Vestra......2:53,98
3. Sigurlaug Guðmundsdóttir, ÍA ...2:55,43
200 m flugs. karla:
1. Jóhann Björnsson, UMFN.........2:18,07
2. Ólafur Einarsson, Ægi........2:18,21
3. Ingi Þór Einarsson, KR.......2:22,84
100 m flugs. kvenna:
1. Bryndís Olafsdóttir, HSK.........1.06,28
2. Hugrún Ólafsdóttir, HSK..........1:10,36
3. Ingibjörg Arnardóttir, Ægi ...\..1:10,52
Bryndís bætti eigið íslandsmet,
1:00,66 frá apríl 1984.
200 m baksund karla:
1. Eðvarð Þór Eðvarðsson, UMFN 2:07,96
2. Hugi S. Harðarson, UMFB....2:21,78
3. Tómas Þráinsson, Ægi.......2:25,92
100 m baksund kvenna:
1. Þórunn Guðmundsdóttir, Ægi.... 1:13,63
2. Kolbrún Gissurardóttir, HSK.1:15,23
3. LóaBirgisdóttir, Ægi........1:15,67
4x100 m fjórs. karla:
I.SveitUMFN.....................4:15,54
2. A-sveit Ægis................4:21,29
3. SveitSH.....................4:28,00
4X100 m fjórs. kvenna:
1. A-sveitHSK..................4:49,10
2. Stúlknasveit Vestra.........4:55,70
3. Sveit lA....................5:10,10
HSK sló íslandsmet Vestra, 4:49,71.
400 m fjórs. karla:
1. Ragnar Guðmundsson, Ægi.....4:56,97
2. Ingólfur Arnarson, Vestra...4:59,14
3. Tómas Þráinsson, Ægi........5:06,65
400 m skriðs. kvenna:
1. BryndísÓlafsdóttir, HSK.....4:32,83
2. Þórunn Guðmundsdóttir, Ægi....4:38,02
3. Ingibjörg Arnardóttir,Ægi...4:38,10
Bryndís sló íslandsmet Þórunnar K.
Guðmundsdóttur frá í maí ’85,
4:35,24.
100m skriðs. karla:
1. Magnús Már Ólafsson, HSK......51,53
2. Halldór Kristiansen, Ægi........56,62
3. Jens Sigurðsson, KR............56,81
Magnús bætir íslandsmetið sem hann
setti í undanrásum. Metið þar áður
átti hann sjálfur, 52,28.
100 m bringus. kvenna:
1. Sigurlaug K. Guðmundsd., (A.... 1:19,36
2. Þuriður Pétursdóttir, Vestra......1:19,36
3. Pálína Björnsdóttir, Vestra.......1:20,63
Sigurlaug og Þuríður voru hnífjafnar
og ekki hægt að skera úr, deila því
með sér meistaratitlinum.
200 m bringus. karla:
1. Eðvarð Þór Eðvarðsson, UMFN 2:24,30
2. Arnþór Ragnarsson, SH........2:30,85
3. Gunngeir Friðriksson, KR.....2:34,63
Eðvarð setti íslandsmet í undanrás-
um í greininni, 2:20,72. Gamla metið
Bryndís Ólafsdóttir slær hvert metið af öðru.
átti Tryggvi Helgason, 2:24,27, frá
apríl ’84.
200 m flugs. kvenna:
1. Ingibjörg Arnardóttir, Ægi.....2:33,08
2. Bára Guðmundsdóttir, Vestra.... 2:43,08
3. Helga Sigurðardóttir, Vestra.2:43,63
100 m flugs. karla:
1. Jóhann Björnsson, UMFN.......1:00,77
2. Ólafur Einarsson, Ægi........1:00,88
3. Ingólfur Arnarson, Vestra....1:01,68
Ingólfur setti piltamet, hið eldra átti
Magnús Már Ólafsson, 1:02,13.
200 m baks. kvenna:
1. Þórunn Guðmundsdóttir, Ægi ....2:33,85
2. HugrúnÓlafsdóttir, HSK.....2:37,98
3. Heba Friðriksdóttir, UMFN..2:42,49
100 m baks. karla:
1. Eðvarð Þór Eðvarðsson, UMFN.... 57,77
2. RagnarGuðmundsson.Ægi......1:05,00
3. Kristinn Magnússon, SH.....1:05,76
4X100 m skriðs. kvenna:
1. Stúlknasveit Vestra........4:13,00
2. A-sveit Ægis...............4:26,05
3. B-sveit HSK...............4:32,30
Sveit Vestra setti íslandsmet, og jafn-
framt stúlknamet. Hið fyrra átti sveit
HSK, 4:15,03 frá apríl ’84. A-sveit
HSK var dæmd úr lcik. Þar keppti
Bryndís Ólafsdóttir og setti nýtt Is-
landsmet í 100 m skriðs., 57,71, -
gamla metið átti hún sjálf frá deginum
áður.
4X200 m skriðs. karla:
1. A-sveit Ægis.................8:14,78
2. Sveit Vestra.................8:44,80
3. A-sveitKR....................8:47,59
Ægir sigraði í óopinberri keppni
félaganna; Ægismenn fengu 8
gullverðlaun, 11 silfurverðlaun
og 6 bronsverðlaun. UMFN fékk
7 gull og 1 brons, HSK 6 gull, 3
silfur og 2 brons, Vestri 3 gull, 7
silfur og 6 brons, ÍA 1 gull, 2
brons, SH 2 silfur, 2 brons,
UMFB 1 silfur, KR 5 brons.
Linda Pétursdóttir leikur listir sínar á fimleikamótinu um helgina í Laugardalshöll/(mynd: EÓI).
Sund
Þriðjudagur 25. mars 1986 iÞJÓÐVILJINN — SÍÐA 11