Þjóðviljinn - 15.04.1986, Page 1

Þjóðviljinn - 15.04.1986, Page 1
Handbolti Stjaman í Evrópukeppni Mœtir Víkingi í úrslitaleik bikarkeppninnar Stjarnan varö íslandsmeistari í 3. flokki karla í handknattleik, sigraði Selfoss í sögulegum úrslitaleik. Á mynd E.ÓI. lyftir Bjarni Benediktsson fyrirliöi Garða- bæjarliösins bikarnum. Sjá bls. 10-11. Stjarnan leikur í Evrópu- keppni í fyrsta skipti næsta vetur. Garðabæjarliðið verður fulltrúi íslands í Evrópukeppni bikar- hafa, það varð ljóst í gærkvöldi eftir að það hafði burstað Ár- mann 22-11 í Höllinni og Víking- ur sigrað FH 23-21 í Hafnarfirði í undanúrslitum bikarkeppninnar. Víkingur og Stjarnan leika til úr- slita um bikarinn en Víkingar hafa þegar tryggt sér sæti í Evr- ópukeppni meistaraliða. Stjarnan var drjúga stund að hrista Armann af sér í gærkvöldi. Eftir 14 mín. stóð 2-2 en á 30. mín. var staðan hinsvegar orðin 9-2. í hálfleik 9-3, Ármann lagaði England Francis í hópinn Trevor Francis var í gær kall- aður á ný í enska landsliðshópinn í knattspyrnu. Hann leikur með Sampdoria á Ítalíu en hefur misst mikið úr í vetur vegna meiðsla. Hann er í 21-manns hópi sem Bobby Robson hefur valið fyrir leik gegn Skotum á Wembley í næstu viku. Hann fær þarna tæk- ifæri til að tryggja sig í HM-liðið. —VS/Reuter V.Þýskaland Uerdingen hótar málsókn! Bayer Uerdingen, félag Lárus- ar Guðmundssonar og Atla Eð- valdssonar, íhugar málsókn á hendur vestur-þýska knattspyrn- usambandinu! Uerdingen er komið í undan- úrslit Evrópukeppni bikarhafa og á inni nokkra frestaða leiki í Bundesligunni. Knattspymusam- bandið fyrirskipaði að öllum leikjum liðisins yrði að vera lokið þann 26. apríl sem þýðir að það verður að leika 5 leiki síðustu 9 dagana. Forseti félagsins sagði í gær að þetta álag kynni að kosta félagið sæti í UEFA-bikarnum næsta vetur og þar með yrði það hugs- anlega af tekjum sem næmu einni miljón marka. Einmitt þá~ upp- hæð hyggst félagið krefja sam- bandið um. Neitun sambandsins er byggð á því að frá og með 26. apríl hefjist lokaundirbúningur landsliðsins fyrir heimsmeistar- akeppnina. —VS/Reuter stöðuna í 12-8 en Stjarnan breytti því í 19-9 og loks 22-11. Stjörnuliðið var jafnt, hinn efnilegi Einar Einarsson vakti einna mesta athygli. Guðmundur Friðriksson varði mark Ármanns af snilld og kom í veg fyrir enn stærra tap. Haukur Haraldsson er athyglisverður leikmaður en að öðru leyti virðist Ármann eiga erfiðan 1. deildarvetur fyrir höndum næsta keppnistímabil. Mörk Stjörnunnar: Hermundur 5, Einar 4, Magnús 4, Hannes 3, Sigurjón 3, Haf- steinn 2 og Stefán 1. Mörk Ármanns: Haukur 4, Einar E. 3, Bragi 2, Friðrik 1 og Einar N. 1. Lokatölurnar í Hafnarfirði, 23- 21 fyrir Víking, gefa ekki alveg rétta mynd af leiknum því FH gerði þrjú síðustu mörkin. Leikurinn var jafn framanaf en Víkingar gerðu síðustu 3 mörk fyrri hálfleiks, 10-7 í hléi. Þeir héldu forystunni, komust í 18-14 og síðan 23-18 og sigur þeirra var ekki í hættu seinni hlutann. Þeir Páll Björgvinsson, Guð- mundur Guðmundsson og Steinar Birgisson voru bestir í liði Evrópukeppnin í körfuknatt- leik, C-riðill, hefst í Laugardals- höllinni í kvöld. Það eru Skotland og Portúgal sem leika fyrsta lcikinn. kl. 19.15, en kl. 21. hefst leikur Islands og Irlands. ísland hefur orðið í 4. sæti C- riðils síðustu tvö árin en hafnaði í 2. sæti 1981 og var þá hársbreidd frá því að vinna sér sæti í B-riðii. Víkings og Kristján Sigmundsson átti góðan leik í markinu. Hjá FH bar mest á þeirri Guðjóni Árna- syni, Óskari Ármannssyni og Héðni Gilssyni, þótt sá síð- astnefndi léki aðeins seinni hálf- leikinn. Mörk Vikings: Páll 10(5v), Steinar 5, Guðmundur G. 4, Karl 2, Hilmar 1 og Guð- mundur A. 1. Mörk FH: Héðinn 5, Guðjón 4, Óskar 4(2v), Gunnar 3, Stefán 2, Pétur 1 og Val- garður 1. —VS/Logi England QPR vann Staða Leicester í fallbaráttu 1. deildar ensku knattspyrnunnar versnaði í gærkvöldi við 1-4 tap á heimavelli gegn QPR. Úrslitin eru ekki í stöðunni á bls. 12.1 4. deild skildu Halifax og Torquay jöfn, 0-0. —VS/Reuter Möguleikarnir ættu að vera góðir á að ná langt á heimavelli, Skotar, írar og Portúgalir eru þjóðir sem íslenska liðið á að geta sigrað, en hið öfluga lið Norð- manna verður erfiðasti andstæð- ingurinn. Leikið verður við Skota annað kvöld, Portúgali á fimmtudag og Norðmenn á laug- ardag. _VS Matthías Matthíasson, hávaxn- asti leikmaður íslands, verður án efa mikið í sviðsljósinu í keppninni. Svíþjóð Tobbi upp með Saab Saab, undir stjórn Þorbergs Aðalsteinssonar, tryggði sér um hclgina sæti í All-svcnskan, sænsku úrvalsdcildinni í hand- knattleik, eftir tíu ára fjarveru. Saab vann Frölunda 22-19 í lokaumferð úrslitakeppninnar sem var æsispennandi. Saab stóð uppi sem sigurvegari, hlaut 7 stig, og Frölunda og Cliff, sem fengu 6 stig hvort, leika einnig í All- svenskan næsta vetur. H-43 fékk einnig 6 stig en situr eftir með sárt ennið á lakari markatölu. Save- hof fékk 5 stig en Viking ekkert. Þorbergur skoraði 2 mörk í leiknum en hann var tekinn úr umferð allan tímann. Árangur hans er stórkostlegur, hann tók við Saab skömmu fyrir áramót og þá hófst nær óslitin sigurganga liðsins sem náði hámarki nú um helgina. —'VS England Lineker kjörinn Gary Lineker, markakóngur- inn frá Everton, var í gær út- nefndur Knattspyrnuinaður árs- ins af enskum knattspyrnufrétta- mönnum. Hann hcfur skorað 33 mörk í vetur, 24 þeirra í 1. deild, og hlaut hann rúm 80 prósent at- kvæða. Annar varð Peter Shilt- on, markvörður Southampton og enska landsliðsins. —VS/Rcuter Vestur-Þýskaland Fjögur falast eftir Asgeiri Frá Jóni H.Garðarssyni fréttamanni Þjóðviljans í V.Þýskalandi Fjögur af þekktustu knattspyrnuliðum Vestur-Þýskalands hafa að undanförnu gefið til kynna að þau hafi mikinn áhuga á að fá Ásgeir Sigurvinsson til liðs við sig fyrir næsta keppnistíma- bil. Bayern Munchen hefur látið í veðri vaka að Ásgeir sé efstur á óskalistanum til að taka við af Sören Lerby sem fer til franska liðsins Monaco í vor. Ásgeir lék cinn vetur með Bayern fyrir nokkrum árum og hefur lýst því yfir að þangað fari hann ekki aftur. Borussia Mönchengladbach, Köln og Bayer Leverkusen hafa öll sýnt Ásgeiri mikinn áhuga. Hann á eftir eitt ár af samningi sínum við Stuttgart og líklcgast má telja að hann leiki þar í a.m.k. einn vetur í viðbót. Þá má geta þess að Anderlecht í Belgíu og Marseilles í Frakk- landi sækja nú bæði stíft að ná í varnarmanninn frábæra hjá Bayer Uerdingen, Mathias Herget. EM/körfubolti ísland-írland Leikið í Höllinni í kvöld UMSJÓN: VlÐIR SIGURÐSSON Þriðjudagur 15. apríl 1986 ÞJÓÐVILJINN - SÍÐA 9

x

Þjóðviljinn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.