Þjóðviljinn - 27.05.1986, Blaðsíða 1
HSÍ-þingið
> M.J *
Fjölgunin
samþykkt
IBVmeð, Reynirí2. deild. Breytingar
ogfjármagn tilyngriflokka og
útbreiðslu handboltans
<*<»*»*»*' *»
s sAfc* .. ...
»<*» -3,»», « »v, *-t
-■»« *»* » »5;. V,
SlBllfll --------- nrarfnc:::! imi- .
**** wiiÉ fiHl liPf ^ *
illoix”».bTní
æ^smagmswimpK
>. wyfíÍ!!»í*S
'—•»y:> Www* x
Á ái sþingi HSI sem haldið var
um helgina var samþvkkt að fjöl-
ga liðum í 1. og 2. deild karla í 10
fyrir næsta vetur. Keppni um
lausu sætin hafði þegar farið
fram. Tillagan var samþykkt með
nær öllum greiddum atkvæðum
en þó höfðu farið fram líflcgar
umræður um hana.
Þá var samþykkt að Þór og Týr
frá Vestmannaeyjum sendu sam-
eiginlegt lið, ÍBV, í 2. deildina en
bæði hefðu átt rétt til að leika
þar. Síðan var samþykkt að
Reynir úr Sandgerði, sem varð í
fimmta sæti 3. deildar sl. vetur
fengi lausa sætið í 2. deildinni.
Akveðið var að breyta talsvert
keppnisfyrirkomulagi yngri
flokka og einnig aldursflokkask-
iptingu. Bætt var við einum
flokki karla, 21 árs flokki, sem er
þá á milli 2. flokks og meistara-
flokks. Þá var samþykkt að veita
Frjálsar
verulegum fjármunum til jöfnu-
nar ferðakostnaðar hjá yngri
flokkunum, og jafnframt að
leggja áherslu á uppbyggingu og
útbreiðslu handknattíeiksíþrótt-
arinnar á landsbyggðinni, og að
styðja betur við bakið á félögu-
num.
Stjórn HSÍ var endurkjörin að
öðru leyti en því að Jón H. Guð-
mundsson og Steinar J. Lúðvíks-
son taka sæti þeirra Rósmundar
Jónssonarog JónsH. Karlssonar.
—VS
Besta marktækifæri íslands í leiknum við íraásunnudaginn. ArnórGuðjohnsen ereinn
gegn Pat Bonner markverði og rennir boltanum framhjá honum en hárfint framhjá
stönginni. Mynd: E.ÓI. Allt um landsleikinn í opnunni.
Sviss
Omar hetja Luzem
Skoraði sigurmarkið og UEFA-sœti blasir við
Glæsilegt
met hjá
Ragnheiði
Ragnheiður Ólafsdóttir úr FH
setti glæsilegt íslandsmet í 3000 m
hlaupi á móti í Bandaríkjunum
um helgina. Hún hljóp á 9:09,81
mín. en gamla metið hennar sem
hún setti í Hamborg fyrir fjórum
árum var 9:20,62 mín. Hún bætti
sig því um tæpar 11 sekúndur sem
er frábært afrek og lofar góðu
fyrir framhaldið hjá henni.
—VS
-¥-**-¥- -¥- -¥- -¥-•*-¥--¥-¥-¥-¥-**-¥■
Stjörnuliðið
Eftir leiki 1. deildarinnar í
knattspyrnu á föstudagskvöldið
urðu þrjár breytingar á Stjörnu-
liði Þjóðviljans. Viðar Halldórs-
son, FH, Freyr Sverrisson, ÍBK,
og Valgeir Barðason, ÍA, misstu
sæti sín en Loftur Ólafsson, Daní-
el Einarsson og Ingi Björn Al-
bertsson taka stöður þeirra.
Stjörnuliðið er nú þannig
skipað, stjörnufjöldi í svigum:
Friðrik Friðriksson, Fram (3)
Loftur Ólafsson, KR (3)
Viðar Þorkelsson, Fram (3)
Árni Stefánsson, Þór (2)
Guðni Bergsson, Val (4)
Gunnar Gíslason, KR (4)
Daníel Einarsson, Víði (3)
Guðmundur Guðmundss,
Breiðab.(2)
Ómar Jóhannsson, ÍBV (2)
Ingi B. Albertsson, FH (3)
Jón Þórir Jónsson, Breiðabliki (3)
Fram, Þór, ÍBV og Breiðablik
hafa leikið einum leik færra en
hin liðin.
—VS
Ómar Torfason tryggði Luzern
þýðingarmikinn útisigur á bika-
rmeisturunum Sion, 2-1, í
næstsíðustu umferð svissnesku 1.
deildarinnar í knattspyrnu á
laugardaginn. Ómar kom inná
sem varamaður og skoraði sigur-
markið 15 mínútum fyrir leiks-
lok.
Luzern þarf nú jafntefli í síð-
asta leik sínum til að gulltryggja
sér sæti í UEFA-bikarnum næsta
vetur. Árangur liðsins hefur
komið mjög á óvart en það var
neðarlega í deildinni í fyrra. Sig-
urður Grétarsson lék ekki með
Luzern, var í leikbanni. Þeir fé-
lagar eru væntanlegir heim á
morgun til að leika með fslandi
gegn Tékkoslóvakíu á Reykja-
víkurleikunum á fimmtudaginn.
Körfubolti
Pólland
sigraði
Pólverjar og ísraelsmenn, sem
léku með íslandi í riðli í forkeppni
B-keppninnar í Belgíu á dögun-
um, fóru létt með að tryggja sér
sæti í A-keppninni. I úrslitariðl-
inum stóðu Pólverjar uppi sem
sigurvegarar og leika í A-
keppninni í Aþenu á næsta ári.
Rúmenía og Holland komast
þangað líka.
Pólland vann 6 leiki af 7 en inn-
byrðis leikir í forriðlinum voru
teknir með í úrslitin. ísrael vann 5
leiki, Rúmenía 5, Holland 4,
Búlgaría 3, Svíþjóð 3, Tyrkland 1
og Finnland 1.
Sem kunnugt er vann ísland
sigur á Tyrkjum og stóð uppi í
hárinu á Svíum en tapaði stórt
fyrir Israelum og Pólverjum.
—VS/Reuter
Young Boys tryggði sér
meistaratitilinn með því að sigra
Neuchatel4-1 áútivelli. Þettavar
nánast hreinn úrslitaleikur unt
titilinn. Baden, lið Guðmundae
Þorbjörnssonar tapaði 1-8 á
heimavelli fyrir Grasshoppers í
síðasta heimaleik sínum í
deildinni en liðið er löngu fallið.
Guðmundur kom heim á sunnu-
daginn til móts við íslenska lands-
liðið.
Staða efstu liða fyrir lok-
aumferðina í Sviss:
YoungBoys......29 18 8 3
Neuchatel......29 18 5 6
Luzern..........29 15 9 5
Zurich..........29 14 9 6
Grasshoppers.... 29 14 8 7
71-26 44
76-30 41
52-39 39
62-42 37
58-32 36
—VS
England
Missir Middles-
boro sæti sitt?
Svo gæti farið að Middlesboro-
ugh, sem til skamms tíma lék í 1.
deild ensku knattspyrnunnar, fái
ekki að leika í deildakeppninni
næsta vetur. Félagið lýsti yfir
gjaldþroti í síðustu viku og hugð-
ist gera það sama og t.d. Charlton
fyrir tveimur árum, þ.e. stofna
nýtt félag á rústum hins gamla og
komast þannig hjá því að greiða
gömlu skuldirnar. Stjórn
deildakeppninnar ákvað hinsveg-
ar á föstudaginn að koma í veg
fyrir að gjaldþrota félög geti losað
sig undan skuldunum á þcnnan
hátt, og það gæti þýtt dauðadóm
yfir Middlesborough. Félagið féll
í 3. deildina í vor.
—VS/Reuter
Reykjavíkurleikarnir
Irar og Tékkar
íslenskir knattspyrnuáhuga-
mennn fá í kvöld það einstæða
tækifæri að sjá tvö sterk evrópsk
landslið, írland og Tékkoslóvak-
íu, leika á Laugardalsvellinum.
Þetta er annar leikur Reykjavík-
urleikanna og hefst hann kl. 19.
frar unnu íslendinga 2-1 á
sunnudaginn eins og kunnugt er
en Tékkarnir komu til landsins í
gær. Þeir mæta íslenska landslið-
inu í lokaleik mótsins á
fimmtudagskvöldið.
Tékkar eru með mjög vaxandi
landslið sem hefur náð góðum ár-
angri undanfarið. Þeim gekk illa í
fyrri umferðinni í sínum riðli i
undankeppni HM og misstu með
því af sæti í Mexíkó. I seinni um-
ferðinni voru þeir hinsvegar óst-
öðvandi, unnu Portúgali og Svía
og gerðu jafntefli við Vestur-
Þjóðverja í Munchen. —VS
UMSJÓN: VlÐIR SIGURÐSSON
AdSCOðó
HM-fréttir
Fjórir fjarverandi?
Allt bendir til þess að fjórir af
frægustu knattspyrnumönnum
heims missi af fyrsta leik sinnar
þjóðar í HM í Mexíkó.
Zico getur tæplega leikið með
Brasilíu gegn Spáni 1. júní. Hann
er ekki orðinn fullgóður af
meiðslunum sem hafa háð hon-
um í margar vikur.
Kari-Heinz Rummenigge fyrir-
liði Vestur-Þjóðverja á við svip-
uð vandamál að stríða og hefur
ekki getað leikið heilan leik síðan
í byrjun apríl. Hann leikur tæp-
lega gegn Uruguay 4. júní.
Paolo Rossi, hetja ítala 1982, á
í miklum erfiðleikum með að að-
lagast aðstæðum í Mexíkó. Hann
þolir hitann verr en aðrir leik-
menn og ólíklegt er að hann leiki
gegn Búlgaríu 31. maí.
Danicl Passarella, varnarmað-
urinn sterki, fékk um helgina
magakveisu og hefur lést um 3
kíló. Hann verðurtæplegaorðinn
leikfær þegar Argentína mætir
Suður-Kóreu 2. júní.
Verndið stjörnurnar
Alþjóða knatjspyrnusamband-
ið, FÍFA, hefur fyrirskipað dóm-
urum á HM að vernda stjörnur
keppninnar fyrir grófurn brotum
og refsa þeim brotlegu óspart.
Þetta þótti fara úr skorðum á
Spáni fyrir4árum. Þáhefurverið
staðfest að leikmenn mega ekki
hlaupa útaf vellinum til að fagna
marki.
Verkfall!
Portúgölsku landsliðsmennirn-
ir fóru í skyndiverkfall í gær og
neituðu að leika æfingaleik gegn
mexíkönsku liði. Ástæðan er sú
að þeir telja sig ekki fá nægilega
háar greiðslur fyrir landsleiki.
England líklegt
„Englendingar eiga mikla
möguleika á að verða heimsmei-
starar,“ sagði Luis Cesar Men-
otti, Argentínumaðurinn sem
gerði þjóð sína að heimsmeistur-
um 1978, þegar hann kom til
Mexíkó sem blaðamaður í gær.
„Englendingar hafa undirbúið sig
frábærlega og eiga marga snjalla
leikmenn," sagði Menotti.
—VS/Reuter