Þjóðviljinn - 27.05.1986, Blaðsíða 4

Þjóðviljinn - 27.05.1986, Blaðsíða 4
ÍÞRÓTTIR Reykjavík Fjögur í seinni hálfleiknum Víkingur-ÍBÍ Það blés ekki byrlega fyrir Vík- ingum í hálfleik gegn ÍBI. Leikið var á gervigrasinu á laugardaginn í leiðindaveðri, roki og rigningu. Staðan í hálfleik var 0-2 ÍBÍ í hag. En Víkingar hresstust heldur bet- ur við í síðari hálfleik, skoruðu fjögur mörk og sigruðu 4-2. Isfirðingar byrjuðu af krafti og skoruðu 2 mörk strax í upphafi leiksins og voru þau bæði mjög svipuð. Gefið var fyrir Víkings- markið, vörnin illa á verði og þeir Guðmundur Gíslason og Haukur Magnússon áttu ekki í erfið- leikum með að renna boltanum yfir línuna. Lítið var um hættuleg færi í fyrri hálfleik, helst að Andra Marteinssyni tækist að ógna ís- firðingamarkinu annað slagið, en ekki voru fleiri mörk í fyrri hálf- leik. Víkingar skoruðu svo strax á fyrstu mínútu síðari hálfleiks. Trausti Ómarsson gaf fyrir, ís- firðingum tókst ekki að hreinsa 4-2 (0-2) ** frá og Jóhann Holton skoraði með föstu skoti frá markteig. Víkingar áttu svo nokkur góð færi, en annað markið kom stuttu síðar. Andri skoraði með góðu skoti frá markteig eftir sendingu Gylfa Rútssonar. Elías Guð- mundsson bætti svo þriðja mark- inu við með skoti fyrir utan víta- teig. Fjórða markið kom á 75. mínútu. Atli Einarsson átti þá skalla að marki ÍBÍ. Sigurður Jónsson varði, en náði ekki að halda boltanum og Jón Bjarni Guðntundsson náði að ýta bolt- anum yfir línuna, 4-2 og Víkings- sigur í höfn. Veðrið bauð ekki upp á fíngert spil, þá bar öðru hvoru á skemmtilegu spili hjá Víkingum. Þeir Andri og Björn Bjartmarz ■ voru bestir í liði Víkings og Atli átti einnig góðan leik. Hjá Isfirð- ingum bar mest á Hauki Magn- ússyni. Maður leiksins: Andri Mart- einsson, Víkingi. -lbe Baldur Kjartansson (t.h.) í baráttu við varnarmann Þróttar. Baidur skoraði sigurmark Vopnfirðinga með fallegu á síðustu mínútu leiksins. Mynd: E.ÓI. Reykjavík skoti Mark í byrjun Owæntur Einherjasigur UMFN-Selfoss 1-1 (0-1) ** Þrátt fyrir leiðinda veður mátti á köflum sjá ágætt spil í leik Njarðvíkur og Selfoss. Selfyssing- ar byrjuðu af krafti, en þreyttust fljótlega og Njarðvíkingar tóku við sér og virtust í mun betra út- haldi. Fyrsta markið kom eftir 2 mín- útur. Hilmar Hólmgeirsson gaf þá fyrir mark Njarðvíkur og þar var Jón Gunnar Bergs sem skoraði með skalla af stuttu færi. Hilmar komst svo í dauðafæri á 14. mínútu en Sævar Júlíusson varði vel skot hans. Njarðvíking- ar voru svo nálægt að skora á 38. mínútu. Haukur Jóhannesson átti þá skot en Einar Jónsson bjargaði á línu. Haukur komst í gegnum vörn Selfyssinga í byrjun síðari hálf- leiks en Magnús Brandsson varði skot hans. Haukur jafnaði loks á 75. mínútu. Brotið var á Helga Gunnarssyni og Haukur skoraði af öryggi úr vítaspyrnu. Rétt undir lok leiksins átti Tómas Pálsson skot í þverslá Njarðvík- urmarksins, en ekki urðu mörkin fleiri. Haukur Jóhannesson og Sævar Júlíusson léku báðir mjög vel og Helgi Gunnarsson sem kom inná í síðari hálfleik stóð sig vel. Hjá Selfyssingum bar mest á Hilmari og Tómasi, þá átti Jón Gunnar góðan leik, en hann er markahæstur í 2. deild með 4 mörk. Maður lciksins: Haukur Jó- hannesson, UMFN. -SÓM/Suðurnesjum. Það má segja að baráttan hafí setið í fyrirrúmi í leik Þróttar og Einherja sem fram fór á Val- bjarnarvellinum á laugardaginn. Nýliðarnir frá Vopnafirði sigr- uðu mjög óvænt, 2-1, og eru til alls líklegir í sumar. Þróttarar byrjuðu vel og skoruðu strax á 18. mín. Birgi Sigurðssyni var þá brugðið í víta- teig Einherja og Kristján Jónsson skoraði örugglega úr vítaspyrnu. Stuttu síðar komst Sigurður Hallvarðsson í dauðafæri en skaut yfir mark Einherja. Þróttarar hafa líklega álitið sig- urinn í höfn því þeir tóku lífinu með ró í síðari hálfleik. Þeir Húsavík Þrjú möifc á korteri Völsungur-Skallagrímur 3-0 (0-0) * * Heldur var dauft bragð af fyrstu 45 mínútunum í sigri Völsunga á Skalla- grími á Húsavík á laugardaginn. Staðan stórt núll í hálfleik. Fyrstu 10 mínúturnar voru Borgnes- ingar skárri. Uppskáru 3 hornspyrnur í röð og eitt langskot sem Þorfinnur varði auðveldlega. Þar með voru Borgnesingar búnir. Kristján Olgeirsson og Vilhelm Fredriksen áttu góð skot á mark gest- anna og skoti Kristjáns var síðan bjargað á línu á elleftu stundu. Völs- ungar skoruðu snoturt mark á 43. mín. þegar Vilhelm þrumaði boltan- um í netið en dómarinn dæmdi hann rangstæðan, hæpinn dómur mjög. Leikur Völsunga varð mun beittari eftir hléið. Jónas Hallgrímsson stóð á markteigshorni og skallaði inn eftir netta fyrirgjöf Kristjáns á 55. mín. en öllum til mikillar furðu dæmdi dóm- arinn markið af, að ábendingu línu- varðar. Skrýtinn dómur. Nokkrum mínútum síðar var Svavar Geirfinns- son, nýkominn inná, á ferð með hörkusicot sem Bjarki Þorsteinsson varði vel. Á næstu 15 mínútunum komu mörkin þrjú. Jónas skallaði í netið á 61. mín. eftir hornspyrnu. Þremur mínútum síðar kom annað markið. Vel útfærð sókn og einum varnar- manni Borgnesinga mistókst að EOP-mótið Mörg ágæt afrek Aðalsteinn Bernharðsson, KR, og Svanhildur Kristjónsdóttir, Breiðabliki, unnu bestu afrekin á EOP-mótinu í frjálsum íþróttum sem fram fór á Valbjarnarvelli á laugardaginn. Aðalsteinn hljóp 400 m grindahlaup á 52,84 sek (ísl.met er 51,38) og Svanhildur hljóp 100 metra á 11,95 sek. en met hennar er 11,79 sek. Gunnlaugur Grettisson, KR, sigraði í hástökki karla, stökk 2,00 metra. Guðmundur Sigurðsson, Breiðabliki,sigraði í 800 m hlaupi karla, hljóp á 1:57,35 mín. Jón Diðriksson, FH, sigraði í 5000 m hlaupi á 14:56,9 mín. At- hyglisvert er að 7 hlupu á betri tíma en 16:00,0 og áttundi mað- ur, Finnbogi Gylfason, FH, setti sveinamet, 16:01,7 mín. Sigurjón Valmundsson, Breiðabliki, sigraði í langstökki karla, stökk 6,82 metra. Unnar Garðarsson, HSK, sig- raði í kúluvarpi karla, kastaði 13,15 metra. Jón A. Sigurjónsson, KR, sig- raði í kúluvarpi drengja, kastaði 11,90 metra. Einar Gunnarsson, Breiðab- liki, sigraði í 200 m hlaupi á 23,41 sek. Kristján Gissurarson, KR, sig- raði í stangarstökki karla, stökk 4,80 m, og Þorsteinn I. Magnús- son, KR, í stangarstökki drengja, stökk 3,35 metra. ÍR sigraði í 4x100 m boðhlaupi karla á 44,14 sek. og KR í 4x100 m boðhlaupi drengja á 48,75 sek. Guðbjörg Gylfadóttir, USAH, sigraði í kúluvarpi kvenna með 12,15 metra. Fríða R. Þórðardóttir, Aftur- eldingu, sigraði í 1500 m hlaupi kvenna á 5:22,00 mín. Guðbjörg Svansdóttir, ÍR, sig- raði í hástökki, stökk 1,65 metra og Þórdís Hrafnkelsdóttir, UÍA, fór yfir sömu hæð. Ingibjörg ívarsdóttir, HSK, sigraði í 100 m grindahlaupi kvenna á 15,87 sek. Unnur Stefánsdóttir, UMFK, sigraði í spjótkasti kvenna með 35,82 m. Hin 14 ára gamla Helga Árnadóttir, KR, kastaði 32,82 m. Sveit Breiðabliks sigraði í 4x100 m boðhlaupi kvenna á 48,62 sek. sem er aðeins 62/100 úr sek. frá íslandsmeti. —VS hreinsa. Boltinn lenti í Sveini Freyssyni og þaðan fyrir markið. Þar var Svavar á auðum sjó og skallaði vandræðalaust í netið, 2-0. Þriðja markið kom á 76. mín. og enn var Svavar „super-sub" á ferðinni. Borgnesingum mistókst að hreinsa, boltinn barst fyrir fætur Jónasar sem skaut en skotið var varið. Svavar fylgdi vel á eftir og skoraði, 3-0. Völs- ungar hefðu vel getað bætt við fleiri mörkum. Völsungar sýndu sæmilega tilburði í síðari hálfleik. Vörnin átti náðugan dag og nýju leikmennirnir, Þorfinn- ur, Eiríkur og Grétar, styrkja liðið. Bestu menn voru bræðurnir Bjöm og Kristján og þeir Sveinn og Jónas. Frammistaða Svavars voru þó gleði- legustu tíðindi leiksins. Borgnesingar eiga erfitt sumar fyrir höndum ef marka má þennan leik. Stefán Ólafs- son dómari var óheppinn með línu- verði. Maður leiksins: Jónas Hallgríms- son, Völsungi. —ab/Húsavík fengu gott færi um miðjan síðari hálfleik, en Birgir skaut framhjá opnu marki Einherja. Eftir þetta hresstust Vopnfirðingarnir. Gísli Davíðs- son átti skot í hliðarnetið og stuttu síðar fengu þeir víti. Bolt- inn fór í hendi Þróttara og Njáll Eiðsson skoraði örugglega úr vítaspyrnunni. Njáll átti svo gott skot rétt framhjá stuttu síðar. Sigurmark Einherja kom mín- útu fyrir leikslok. Boltinn var gef- inn fyrir og barst út. Þar var Bald- ur Kjartansson og hann skoraði með föstu skoti efst í horn Þrótt- armarksins, óverjandi fyrir Guð- mund Erlingsson. Daði Harðarson og Kristján Jónsson voru bestir í liði Þróttar, Njáll Eiðsson var maðurinn á bakvið sigur Einherja. Þá áttu þeir Gísli Davíðsson og Kristján Davíðsson ágætan leik. Maður leiksins: Njáll Eiðsson, Einherja. -Ibe Stadan i 2. deildarkeppninnl í knattspyrnu: KA.................2 1 10 6-2 4 Selfoss............2 1 10 5-2 4 Völsungur..........2 1 10 3-0 4 Víkingur...........2 1 10 5-3 4 Einherji...........2 10 12-53 UMFN................2 0 2 0 4-4 2 KS.................2 0 2 0 2-2 2 Þróttur R..........2 0 112-31 iBl................2 0 115-71 Skallagrímur........2 0 0 2 1-7 0 Markahæstir: Jón Gunnar Bergs, Selfossi.... T ryggvi Gunnarsson, KA....... Haukur Jóhannesson, UMFN...... Haukur Magnússon, IbI......... HM-fréttir Enskur sigur Hateley skoraði, Lineker meiddist Englendingar sigruðu Kanada- menn 1-0 í landsleik í knattspyrnu sem háður var í Burnaby í Kan- ada á laugardaginn. Það var Mark Hateley sem skoraði sigur- markið eftir að Glenn Hoddle hafði átt hörkuskot á markið úr aukaspyrnu. Markakóngurinn enski, Gary Lineker, meiddist í leiknum, fékk slæmt spark í ristina en ætti að vera búinn að ná sér þegar heimsmeistarakeppnin í Mexíkó byrjar. —VS/Reuter 14 SIÐA — ÞJÓÐVILJINN Þriðjudagur 27. maí 1986 *í CO C\J C\J

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.