Þjóðviljinn - 27.05.1986, Qupperneq 2

Þjóðviljinn - 27.05.1986, Qupperneq 2
FÍFi SV-riðill Níu Stjörnumörk Stjarnan-HV 9-0 Æfingalitlir Skagamennirnir voru Stjörnunni afar auðveld bráð. Úrsiitin voru ráðin í hálfleik, staðan þá 6-0, og bara spurning hve mörg mörkin yrðu. Jónas Skúlason var iðnastur Garðbæinga, skoraði 4 mörk. Magnús Teitsson gerði 2, Birkir Sveinsson, Ragnar Gíslason og Bjarni Benediktsson eitt hver. ______________—-VS Óvænt í Árbænum Fylkir-ÍK 0-1 Ekki byrjar Árbæjarliðið, sem lék í 2. deild í fyrra, nógu vel. Ovænt tap á heimavelli þrátt fyrir mikla sókn gegn ÍK. Jón Hersir Elíasson skoraði sigurmark ÍK eftir 25 mínútur, fylgdi vel skoti Guðjóns Guðmundssonar sem var varið. Eftir það sótti Fylkir rnjög, án þess að skapa sér nein sérstök færi, en Guðjón var rétt búinn að skora annað mark ÍK skömmu fyrir leikslok. ________________—VS Góður ÍR-sigur ÍR-Grindavík 2-0 ÍR, 4. deildarmeistari í fyrra, byrjar mjög vel, góður sigur á blautu gervigrasinu í fyrrakvöld. Páll Rafnsson skóraði strax í byrjun leiks og eftir að Halldór Halldórs- son skallaði í mark Grindvíkinga í byrjun seinni hálfleiks var sigur Breiðhyltinga ekki í teljandi hættu. Páll var rétt búinn að skora þriðja markið í lokin en Ögmundur Krist- insson markvörður Grindavíkur forðaði því. _______________________—VS NA-riðill Sigurbjörn tvö Leiftur-Reynir Á. 2-0 Nokkuð öruggt hjá Ólafsfirðingum í daufum leik í kalsaveðri. Sigurbjörn Jakobsson skoraði bæði mörkin, það fyrra í fyrri hálfleik með skalla eftir innkast og það síðara úr vítaspyrnu í síðari hálfleik eftir að Óskari Ingi- mundarsyni þjálfara hafði verið brugðið. Árskógs- strendingar, sem léku í 4. deild í fyrra, fengu síðan auka- spyrnu en skotið fór framhjá. —VS Þróttur með 4 Leiknir F.-Þróttur N. 0-4 Daufur leikur í roki og kuida á Fáskrúðsfirði og Hall- dór Pálsson markvörður Þróttar varði vítaspyrnu frá heimamönnum í byrjun leiks. Sigurður Friðjónsson skoraði beint úr aukaspyrnu í lok fyrri hálfleiks og Mart- einn Guðgeirsson lék sama leik í upphafi þess síðari. Marteinn og Guðbjartur Magnason bættu síðan við mörkum og stórsigur Norðfirðinga' var staðreynd. —VS IÞROTTIR IÞROTTIR Vestur-Þýskaland Hameln í Bundesliguna Kristján annar í2. deild. Essen endanlega meistari. Lemgo að sleppa Kristján Arason og félagar í Hameln tryggðu sér á laugardag- inn sæti í Bundesligunni í hand- knattlcik. Hamcln vann Wanne- Eickel 24-20 í lokaumferðinni og hlaut 42 stig í 26 lcikjum en Dor- magen fékk 41 stig og þarf að leika aukaleiki um að komast upp. Kristján skoraði 8 mörk í lciknum og gerði alls 186 fyrir lið- ið í vctur og varð næstmarka- hæstur í dcildinni. Hann leikur ekki mcð því í Bundesligunni næsta vetur því eins og kunnugt er hefur hann samið við stórliðið Gummersbach. Essen tryggði sér endanlega meistaratitilinn með 17-17 jafn- tefli við Lemgo. Þetta var nánast formsatriði vegna góðrar marka- tölu Essen. Alfreð Gíslason meiddist í byrjun leiksins og gat ekkert leikið meira með Essen. Sigurður Sveinsson var í aðalhlutverki hjá Lemgo og gerði 6 mörk. Hann er langt kominn með að bjarga liðinu frá falli en þegar hann byrjaði að leika á ný Spánn Óvænt tap Atletico Atletico Madrid, sem lék til úrslita í Evrópukeppni bikarhafa í knattspyrnu í vor, tapaði mjög óvænt fyrir 2. dcildarliðinu Sest- ao, 3-2, í 8-liða úrslitum spænska deildabikarsins um helgina. Barcelona vann nauman heimasiguráSportingGijon, 1-0, með marki frá Esteban og Real Betis sigraði Valencia 2-1 á úti- velli. Þetta voru allt fyrri viður- eignir liðanna. —VS/Reuter eftir meiðslin var það illa statt í næstneðsta sætinu. Páli Ólafsson skoraði 3 mörk fyrir Dankersen sem tapaði 21-15 fyrir Gunzburg og fellur nánast örugglega í 2. deild. Staðan í Bundesligunni er þessi: Essen..............24 500-383 40 öcnwaomg Gummersbach 24 24 Grosswallstadt 23 Dusseldorf 22 Kiel .21 Dortmund 22 Handewitt 23 Göppingen 24 Lemgo 24 Hofweier 23 Gunzburg 24 586-523 35 467-439 25 18 Dankersen..........24 477-556 14 RF Berlin..........24 468-597 6 Þriðja neðsta liðið þarf að leika aukaleiki um áframhaldandi sæti í deildinni og einsog sjá má eru mörg lið enn í hættu af þeim sökum. —VS wmrfft Ragnar Margeirsson í baráttu við bakvörðinn John Anderson frá Newcastle. Paul McGrath, sem skoraði fyrra mark l'ra, er lengst til hægri. Mynd: E.ÓI. Reykjavíkurleikarnir Hástökk Heimsmet jafnað Búlgarska stúlkan Stefka Kostadinova jafnaði á sunnu- daginn heimsmet löndu sinn- ar, Ludmilu Andonovu, í há- stökki. Hún stökk 2,07 metra á meistaramóti Búlgaríu í Sofia. Andonova er í ævilöngu keppnisbanni fyrir meinta lyfjanotkun og á auk þess von á barni í haust. Hún scgist samt staðráðin í að keppa á nýjan leik. —VS/Reuter Markið óvenjulega sem Arnór Guðjohnsen skoraði gegn írum á sunnu- daginn. Á stóru myndinni sést þegar Pat Bonner markvörður missir boltann yfir sig og á hinum tveimur þegar Pétur Pétursson gulltryggir að ísland hafi skorað án þess að Mick McCarthy miðvörður Ira fái vörnum við komið. Myndir: E.ÓI. Leikur Islands eins og hvrtt og svart Skemmtilegir taktar ífyrri hálfleiknum, írar áttu allan þann síðari. Islenska liðið bakkaði of mikið og spilið datt niður. Góð fœri í fyrri hálfleik og sérkennilegt mark Arnórs. Sigurmark íra á lokamínútunum Skotfélagið skotvisst Skoraðisex ífyrsta leikgegn Augnabliki. Snorrigerðifjögur. Ólafsvíkingar burstaðir í Hveragerði. Sex mörk Gróttunnar Skotfélag Reykjavíkur stóð svo sann- arlega undir nafni á sunnudaginn þegar það lék sinn fyrsta leik á íslandsmóti í knattspyrnu. Skotfélagið skáut hið sterka lið Augnabliks á kaf á Kópavogs- vellinum, sigraði 6-3 og verður í topp- baráttu 4. deildarinnar í sumar með þessu áframhaldið. Snorri Már Skúla- son skoraði 4 markanna. Úrslit í fyrstu leikjum 4. deildar sem fram fóru um helgina urðu þessi: A-riðill: Snæfell 1 (Rafn Rafnsson) Haukar 0 Grundarfjörður 1 (Gunnar Ragnarsson) Þór Þ. 2 (Hannes Haraldsson 2) Augnablik 3 (Gunnar Berg Gunnarsson 2, Jón Einarsson) Skotfélag Rvk 6 (Snorri Már Skúlason 4, Agnar Hansson, Þorfinnur Ómarsson) B-riðill: Víkverji 1 (Tómas Sölvason) Afturelding 4 (Gísli Bjarnason 2, Friðsteinn Stefánsson, Ríkharð Orn Jónsson) Stokkseyri 1 (Steingrímur Sigurðsson) Léttir 3 (Andrés Kristjánsson 2, Ragnar Bogason) Hveragerði 5 (Ólafur Jósefsson 2, Páll Leó Jónsson, Björgvin Sigurðsson, Sigurjón) Víkingur Ó. 1 (Bogi Pétursson) C-riðill: Árvakur 4 (Ólafur H. Ólafsson, Snorri Giss- urarson, Árni Guðmundsson, Björn Péturs- son) Hafnir 1 (Guðmundur Franz Jónasson) mann, Berhard Petersen, Sverrir Herberts- son, Valur Sveinbjörnsson) E-riðill: Vaskur 0 Hvöt 0 Eyfellingur 0 Grötta 6 (Kjartan Steinsson 2, Gylfi Dal- í E-riðli var leik Höfðstrendings og Svarfdæla frestað og í F-riðli leikjum Núpa við HSÞ.b og Tjörness við Austra Raufarhöfn. Skellur Ólafsvíkinga í Hveragerði vekur einna mesta athygli en Víkingarn- ir féllu úr 3. deildinni í fyrra. Glímu- kóngurinn Ólafur Haukur Ólafsson skoraði glæsilegt mark fyrir Árvakur gegn Höfnum af 25 m færi og félagi hans Snorri Gissurarson gerði annað frá miðju. —Ibe/VS Hann var köflóttur, leikur ís- lenska landsliðsins gegn því írska á Laugardalsvellinum á sunnu- daginn. Þar má segja að fyrri hálfleikur hafi verið hvítur, sá seinni svartur — írar tóku öll völd í seinni hálfleik og uppskáru sigurmark, 2-1, fimm mínútum fyrir leikslok og cru þar með í efsta sæti eftir fyrsta leik Reykja- víkurleikanna 1986. íslenska liðið sýndi oft stór- skemmtileg tilþrif í fyrri hálf- leiknuni. Pétur Pétursson og Arnór Guðjohnsen stóðu mest fyrir þeim og Halldór Áskelsson var líka virkur ásamt Sigurði Jónssyni sem átti fjölmargar fal- legar sendingar. Eftir góðan undirbúning Halldórs og Péturs slapp Arnór innfyrir írsku vörn- ina á 12. mínútu en renndi bolt- anum hárfínt framhjá stönginni. Fjórum mínútum síðarátti Arnór fallegt skot sem Pat Bonner varði vel. írar komu síðan meira inní leikinn og nokkurt jafnræði ríkti út fyrri hálfleikinn. írland náði forystu, 1-0, á 35. mínútu þegar Ray Houghton tók aukaspyrnu frá hægri. Tony Galvin skallaði á Paul McGrath sem skoraði af markteig, óverjandi fyrir Bjarna Sigurðsson. Island var aðeins fimm mínút- ur að jafna. Sigurður átti laglega sendingu upp hægri kantinn á Arnór. Hann sendi fyrir markið, full innarlega að því er virtist, en Bonner missti af boltanum sem hafnaði í hliðarnetinu fjær! ,Jú, ætli þetta hafi ekki átt að vera fyrirgjöf á Pétur,“ viðurkenndi Árnór eftir leikinn. „En svo framarlega sem boltinn fer í rnarkið er maður ánægður,“ bætti hann við og undir það taka víst allir. Sem sagt, staðan 1-1 í hálfleik eftir all frísklega frammi- stöðu íslands. Því miður entist það ekki lengur. írar náðu öllum tökum á leiknum strax eftir hlé og héldu þeim til leiksloka. „Við komum íslensku vörninni í vandræði með því að senda háa bolta innfyrir hana og pressa vel á eftir. Hún réð ekki við það, ég er sáttur við hvernig mitt lið lék á erfiðum vell- inum og þetta var frckar auðveld- ur sigur,“ sagði hinn kunni lands- liðseinvaldur íra, Englendingur- inn Jack Charlton, eftir leikinn. íslenska liðið skapaði sér nán- ast engin marktækifæri í seinni hálfleiknum en færi íranna voru ekki svo mörg heldur þrátt fyrir mikla pressu. Hin óreynda vörn Islands náði að halda sókn fra nokkuð vel í skefjum með geysi- legri baráttu en kom boltanum hinsvegar sjaldan á miðjumenn eða framherja þannig að sjaldan var hægt að byggja upp sóknir. „Við bökkuðum of langt og náðum ekki að spila. Þetta datt allt niður eftir góðan fyrri hálf- leik og það er erfitt að finna ein- hverja eina skýringu á því,“ sagði Pétur Pétursson fyrirliði. „Miðj- an datt alveg útúr leiknum, það var of mikið hreinsað frá marki í stað þess að koma af stað spili. Seinni hálfleikurinn var geysilega erfiður fyrir okkar framherja, eintómir háir boltar fram og þeir tveir gegn vörn íra,“ sagði Arnór Guðjohnsen. Frank Stapleton átti þrumu- skot í þverslá og yfir á 58. mín, en síðan fengu frar ekkert umtals- vert færi fyrr en þeir skoruðu sigurmarkið á 85. mínútu. Gerry Daly var nýkominn inná sem varamaður. Hann fékk bolt- ann rétt utan vítateigs, skaut fyrst í vörnina og fékk hann síðan aftur og skoraði framhjá liggjandi Bjarna Sigurðssyni sem kom hendi á boltann en hélt honum ekki. „Ég lá eftir fyrra skotið sem fór í varnarmann og komst ekki upp, þctta gerðist svo snöggt og ég sá ekki boltann fyrr en of seint,“ sagði Bjarni. Niall Ouinn fékk síðan opið færi á 89. mín. til að skora þriðja markið en vippaði yfir Bjarna og markið af vítateig. „Þetta var ekki nógu gott og liðið verður að leika mun betur gegn Tékkum. í fyrri hálfleik fengum við frábær færi til að skora sem ekki nýttust. Ég get ekki sagt að ég sé sáttur við frammistöðuna. Ég mun breyta liðinu talsvert fyrir leikinn við Tékka á fimmtudag, þrír nýir leikmenn koma og ég vil sjá hvernig allir í hópnum standa sig gegn sterkum andstæðingum,“ sagði Sigi Held landsliðsþjálfari. Frammistaða varnarinnar í seinni hálfleik er ljós punktur. Viðar, Ágúst Már og Loftur voru að leika sína fyrstu „alvörulands- leiki“ en þeir höfðu áður aðeins leikið gegn Bahrain og Kuwait í vor. Gunnar Gíslason lék fyrir aftan þá sem „sweeper" og stóð sig vel þrátt fyrir að vera ekki vanur stöðunni. „A góðum degi er létt að leika þessa stöðu, þetta er fyrst og fremst „lestur“ á leiknum. Seinni hálfleikur var erfiður en ég er ánægður með hvcrnig vörnin náði saman,“ sagði Gunnar. Bjarni markvörður var líka ánægður með vörnina. „Hún stóð sig frábærlega vel — það þarf ekki að kvíða framtíðinni að þessu leyti. í heild er ég ánægður með leikinn, nýr þjálfari og margir nýir leikmenn sem þurfa tíma til að kynnast,“ sagði Bjarni sem flaug aftur til Noregs í gær til að leika með Brann í2. deildinni í gærkvöldi. Miðjan var sterk í fyrri hálf- leiknum en úr sambandi mest all- an þann seinni. Skemmtileg sam- vinna miðju og sóknar í fyrri hálf- leik lofar góðu og Halldór Áskelsson sýndi að hann á fullt erindi í hóp okkar bestu sóknar- manna. Pétur og Arnór yljuðu oft áhorfendum með snilli sinni. Sigurður Jónsson gætti Tonys Galvins og dróst aftarlega við það en sendingar hans voru margar hverjar frábærar. ísland tefldi ekki fram sínu sterkasta liði og írana vantaði líka nokkra snjalla. Guðmundur Þorbjörnsson, Sigurður Grétars- son og Ómar Torfason koma í leikinn við Tékka á fimmtudag og fyrirutan þennan hópstanda Jan- us Guðlaugsson, Ásgeir Sigur- vinsson, Sævar Jónsson, Lárus Guðmundsson og Atli Eðvalds- son. Breiddin í íslenskri knatt- spyrnu er orðin mjög góð, það sést þegar þessi leikur við íra er skoðaður ofaní kjölinn, og þetta tap á ekki að þurfa að valda hug- arangri hjá þeim sern knatt- spyrnumálum þjóðarinnar stjórna eða fylgjast með. —VS Island-Irland Leikurinn í tölum ísland-írland 1-2 (1-1) Laugardalsvöllur 25. maí Dómari Joe Worrall (Englandi), línuveröir Friögeir Hallgrímsson og Guðmundur Har- aldsson. Áhorlendur 4246 (um 5000 i allt). 0-1 Paul McGrath (35. mín), 1-1 Arnór Guðjohnsen (40. mín), 1-2 Gerry Daly (85. min). ísland: Bjarni Sigurösson, Loftur Ólafs- son, Viðar Þorkelsson, ÁgústMár Jónsson (Guöni Bergsson 80. min), Gunnar Gísla- son, Pétur Ormslev, Siguröur Jónsson (Ólafur Þórðarson 68. mín), Arnór Guö- johnsen, Halldór Áskelsson (Guömundur Steinsson 62. min), Ragnar Margeirsson, Pétur Pétursson fyrirliöi. írland: Pat Bonner, John Anderson, Chris Hughton (Pat Byrne 46. mín), Kevin Mor- an, Mick McCarthy, Mike Kennedy, Paul McGrath (Gerry Daly 80. mín), Ray Houg- hton, John Aldridge (Niall Quinn 85. mín), Frank Stapleton fyrirliöi, Tony Galvin. Bjarni Sigurðsson — 4 erfið skot varin, 4 auðveld skot varin, 7 góð úthiaup, 2 mörk fengin á sig, 1 sláarskot. Loftur Ólafsson — 12 góðar sendingar, 4 slæmar sendingar, 5 unnir boltar, 2 tapaðir boltar, 1 skalli varinn. Viðar Þorkelsson — 12 góöar sendingar, 10 slæmar sendingar, 6 unnir boltar, 3 tapaðir boltar. Agúst Már Jónsson — 8 góðar sendingar, 5 slæmar sendingar. 8 unnir boltar, 7 tapaðir boltar. Fór útaf á 80. mín. Gunnar Gíslason — 11 góðar sendingar, 8 slæmar sendingar, 5 unnin návígi, 2 töpuð návígi. Pétur Ormslev — 16 góðar sendingar, 6 slæmar sendingar, 4 unnir boltar, 6 tapaðir boltar. Sigurður Jónsson — 18 góðar sendingar, 3 slæmar sendingar, 3 unnir boltar, 2 tapaðir boltar. Fór útaf á 68. mín. Arnór Guðjohnsen—- 13 góðar sendingar, 4 slæmar sendingar, 5 unnir boltar, 5 tapaðir boltar, 2 skot varin, 1 skot framhjá, 1 mark. Halldór Áskelsson — 8 góðar sendingar, 2 slæmar sendingar, 2 unnir boltar, 2 tapaðir boltar. Fór útaf á 62. mín. Ragnar Margeirsson — 7 góð- ar sendingar, 5 slæmar sendingar, 4 unnir boltar, 6 tapaðir boltar. Pétur Pétursson — 7 góðar sendingar, 2 slæmar sendingar, 3 unnir boltar, 5 tapaðir boltar, 1 skot variö. Guðmundur Steinsson — 3 góðar sendingar. Lék í 28 mín. Ólafur Þórðarson — 4 góðar sendingar, 1 unninn bolti, 1 tap- aður bolti, 1 skot framhjá. Lék í 22 mínútur. Guðni Bergsson — 4 góðar sendingar, 1 slæm sending, 2 unn- ir boltar. Lék í 10 mínútur. írland fékk 4 hornspyrnur, ísland 1. Dæmdar voru 19 aukaspyrnur á ísland, 16 á írland. Dæmd var 1 rangstaða á ísland, engin á Ir- land. írland átti 17 markskot, 8 varin, 6 framhjá, 1 í slá og 2 mörk. ísland átti 7 markskot, 4 varin, 2 framhjá og 1 mark. —Ibe/gsm/VS Brasilíumenn Zico verður með Cerezo og Dirceu ekki valdir Zico, brasilíska átrúnaðargoð- ið, er í HM-hópi Brasilíu fvrir heimsmeistarakcppnina í knatt- spyrnu. Hann stóðst meiðslapróf á föstudaginn og skoraði cinnig mark í æfingaleik gegn mexík- anska félaginu Pumas. Tveir aðrir snjallir, Cerezo og Dirceu, verða hinsvegar ekki með Brasilíu. Santana þjálfari sagðist ekki geta tekið áhættu á að vera með þrjá meidda menn í keppninni. Cerezo tók fréttunum með jafnaðargeði en Dirceu reiddist ákaflega og taldi að hann hefði verið hafður að leiksoppi. —VS/Reuter 12 SÍÐA - ÞJÓÐVILJINN Þriðjudagur 27. mai 1986 Þriðjudagur 27. maí 1986 ÞJÓÐVILJINN - SÍÐA 13

x

Þjóðviljinn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.