Þjóðviljinn - 13.07.1986, Page 13
Þorsteinn frá Hamri - „Kauðaskap á ekki að líða á ofanverðri tuttugustu öld“.
trúnað sem henni ber - einkum
og sér í lagi á tíð sem kappkostar
að íþyngja mannssálinni með há-
vaða, ágengni og hégómadýrð.
„Leirskáldunum á ekki að vera
vært,“ sagði Jónas Hallgrímsson,
„nema þau fari að taka sér fram,
og hætti með öllu eða yrki betur“.
Þeir sem hann beindi þá geiri sín-
um að urðu þó varla sakaðir um
að hafa ekki hljóðstafi á valdi
sínu, heldur deildi hann á al-
mennan böggulshátt, leiðan vana
sem hafði sett mark sitt á rímna-
kveðskapinn og spillti smekk
manna. Bragvillingarnir komu
ekki þeirri umræðu við, enda
hafði enginn verið að kjassa þá
sérstaklega. Fyrir laginu varð
ekki minni maður en Sigurður
Breiðfjörð, sem þráttfyrir margs-
konar niðurlægingu í lífi og starfi,
líka böggulsháttinn, sýndi listræn
tilþrif er seint fyrnast. Nú er brag-
heltinni og böggulshættinum
samanlögðum hossað á vindsæng
hégómaskapar og lítilþægni. Það
er svo sælt að gleyma. Ég sé enga
ástæðu til að þeim sem hafa
kauðaskap um hönd og í háveg-
um eigi að vera eitthvað værara
nú á dögum - fólki sem er sprott-
ið af sjálfstæðri, upplýstri,
menntaðri og umfram allt stoltri
menningarþjóð á ofanverðri tutt-
ugustu öld ...
Eða var kannski einhver að ef-
ast um það?
Eitt er okkur óhætt að hafa
hugfast um öll svið sem manninn
varða: það sem til heilla mætti
horfa og vel er unnið á yfirleitt í
vök að verjast - nokkurnveginn
einsog réttlætismálin í henni ver-
öld. En ruglið sér um sig. Það er
allsstaðar, allt um kring og í okk-
ur sjálfum. Það hefur alla tíð ver-
ið offramleiðsla á rugli í heimin-
um. Allskonar vitleysa nær sér
jafnan á nógu áberandi flug án
opinberrar aðstoðar, og mætti sú
staðreynd vera huggun þeim sem
helzt vilja unna hégómanum
jafnaðar á við þann skapandi loga
sem auðgar tilveruna og betrar
manninn.
Bff-IAUSAR STÖÐUR HJÁ
W REYKJAVÍKURBORG
Reykjavíkurborg vill ráöa starfsfólk til eftirtalinna
starfa.
Starfsmaður óskast í unglingaathvarfið í 46%
kvöldstarf frá 10.08.86. Umsækjandi þarf aö
hafa menntun í uppeldis-, félagsvísindum og/
eöa annað sambærilegt nám. Reynsla í ung-
lingastarfi æskileg. Um er aö ræöa mjög lifandi
og skemmtilegt uppeldis- og meðferðarstarf
með unglinga.
Upplýsingar eru veittar í síma 20606 eftir há-
degi (14-18).
Umsóknum ber að skila til starfsmannahalds
Reykjavíkurborgar, Pósthússtræti 9,6. hæð, fyrir
kl. 16:00 föstudaginn 25.07.1986.
Svrþjóð
Atvinnu-
rekendur
gegn
kjarnorkuvá
Andstaðan 'gegn kjarnorku-
verum hefur vaxið mjög í Svíþjóð
eftir slysið við Tjernobil.
, Stórkapítalistar í Svíþjóð gefa
út vikurit sem nefnist Vekcans
affárer, einslags Frjáls verslun
þeirra Svía. Rit þetta er málgagn
stóreignamanna, iðjuhölda, pen-
ingaaðalsins í landinu. Á forsíðu
blaðsins 19. júní gat að líta mynd
af kjarnorkuveri og risafyrirsögn
þar sem þess er krafist að kjarn-
orkuverin verði lögð niður strax,
enda hafi ríkisstjórnin vilja þjóð-
arinnar að baki sér. -Sáf
Grunnskóli Ólafsvíkur
Kennara vantar í eftirtaldar stöður: Almenna
kennslu, sérkennslu, tónmennt og íþróttir.
Nánari upplýsingar veita skólastjóri í síma 93-
6293 og yfirkennari í síma 93-6251.
Leikskóli Ólafsvíkur
Forstöðumann vantar við leikskóla Ólafsvíkur.
Fóstrumenntun æskileg.
Nánari upplýsingar á bæjarskrifstofunni í síma
93-6153.
Bæjarstjóri.
Priðja pósisjón
Jallatte öryggisskórnir eru svo léttir og þægilegir,
að ganga í þeim er sem ónægjulegur dans.
Þeir draga úr þreytu vinnudagsins og auka vellíðan.
Stól í tó er vernd gegn þrýstingi og höggi.
Stólþynna í sóla er vernd gegn nöglum og hvössum hlutum.
JALLATTE ER ALLT SEM ÞARF Í
HINN DAGLEGA DANS
Skeifan 3h - Sími 82670