Þjóðviljinn - 13.07.1986, Blaðsíða 18
Nr. 525
KROSSGATA
7 3 W (o 7- 1 9 92 é s )0 n
/2 5 /3 11 92 /Ý )/ ts 99 / lb )7 )S 92 J
5' )0 )é 7- b 92 1 /9 $ ¥ 20 Jii £ T~
2/ ie 9? 22 )3 / 92 23 £ /Z T~ (p 92 ié
l/ /S 22 92 )2 2o 3 2S )Í 92 £ )£ )2 %
)£ V 10 J6" 92 S )2 )S 92 2(* )$ 7 £
)£ IZ II 27- 5- V £ 3 qh 92 2b 2V 22
// W~ IS )2 )2 92 27 )í> )£ ¥ /£ 92 2$ 17
/ /2 27 £ 26 1*) £ 2Ý 12 92 // 2D )*> d
/3 W~ 2Ö 9? £ )S 2b £ 92: 21 JX 2<r
)o> 92 7) 20 /£ 7- TT 7 92 /0 ) 12 )S 92
22 7- )l JS 7 /9 92 £ 3/ 2 7T 92 ) 25
22 T / TW )2 )S £ W )V X )£
Setjiö rétta stafi í reitina hér fyrir neðan. Þeir mynda þá þekkt
örnefni. Sendið þetta nafn sem lausn á krossgátunni til Þjóðvilj-
ans, Síðumúla 6, Reykjavík, merkt: „Krossgáta nr. 525“. Skila-
frestur er þrjár vikur. Verðlaunin verða send til vinningshafa.
2 16 /7 2S 21 22 S /5
Stafirnir mynda íslenskt orð eða mjög kunnugleg erlend heiti hvort sem lesið er
lá- eða lóðrétt.
Hver stafur hefur sitt númer og galdurinn við lausn gátunnar er sá að finna
staflykilinn. Eitt orð er gefið og á það að vera næg hjálp því með því eru gefnir
stafir í allmörgum orðum. Það eru því eðlilegustu vinnubrögðin að setja þessa
stafi í hvern sinn reit eftir því sem tölurnar segja til um. Einnig er rétt að taka
fram, að í þessari krossgátu er gerður skýr greinarmunur á grönnum sérhljóða
og breiðum, t.d. getur a aldrei komið í stað á eða öfugt.
Verðlaunin í dag er
Æskusaga Hannesar
Sigfússonar, skálds,
„Flökkulíf“, sem Iðunn
gaf út.
AÁBDÐEÉFGHIÍJKLMNOÓPRSTUÚVXYÝÞ/EÖ
Verðlaun fyrir krossgátu
nr. 522 hlaut Viðar Jó-
hannsson, Grundargötu
10, Siglufirði. Hann fær
senda heim bókina
Froskmaðurinn, eftir
Hermann Másson, sem
er dulnefni Guðbergs
Bergssonar.
SKAK
BRIDGE
Líður að einvígi
Þegar Þormóður Kolbrúnar-
skáld reis upp morguninn sem
Stiklastaðaorusta stóð eftir um
daginn og virti fyrir sér herflokka
andstæðinganna sem hópuðust
saman niður í héraðinu varð hon-
um þessi vísí á munni:
Ála þryngur að éli,
örstiklandi, miklu.
Skyldut skelknir höldar,
skálmöld vex nú, fálma.
Ala él er orusta og skáldið sér
orustuélin þryngvast (dragast)
saman. Skáldið ávarpar konung
(örstiklandi) og hvetur bardaga-
mennina til að hvika hvergi.
Eitthvað svipað og Þormóði
mun þeim nú innanbrjósts austur
í Rúslandi sem búa sig undir
heimsmeistaraeinvígið. Þeir and-
stæðingarnir Karpov og Kaspar-
ov standa fremstir í fylkingu en
aðstoðarmenn og vinir slá skjald-
borg um hvorn þeirra en síðan
standa fylgismenn, aðdáendur og
öll alþýða þar út í frá. Og nú bíða
menn aðeins eftir því að þeim
ljósti saman.
Um síðustu helgi var eilítið
hugað að Kasparov og því er
röðin nú komin að Karpov. Hann
býr yfir miklum krafti og baráttu-
vilja eins og Kasparov en fer öðru
vísi með það. Frábær tækni ein-
kennir stíl hans hvað mest og það
er ótrúlegt hvað hann getur gert
sér mat úr litlu. Hér á eftir eru tvö
dæmi um það.
Á öflugu skákmóti í Hollandi
árið 1985, sem Karpov reyndar
vann, hafði hann hvítt á móti Mi-
les. Eftir mikil mannakaup komu
upp hrókatafllok. Karpov þvældi
þau fram og til baka þar til þessi
staða kom upp eftir 48. leik hvfts:
Hvítt: Karpov
Svart: Miles
Hér er sennilega best að bíða
átekta með því að leika kóngin-
um til d7, e8 og e7. En svartur
veikti peðastöðuna og lék:
48. ... - g6
49. hxgó - fxgó
50. Kd4 - h5
Þetta skapar líka nýja veikingu
en það er alltaf erfitt að bíða að-
gerðarlaus.
51. Ke4 - Kf7
52. Hb3 - b6
Eftir 52. ... Hb8 53. Ha3 Ha8
54. Kf3 Ke7 55. g4 hxg4+ 56.
Kxg4 Kf8 57. Kg5 Kf7 58. Hd3
Ke7 59. Hh3 vinnur hvítur. Þetta
væri hægt af því h-línan opnaðist.
53. Hd3 - Ke7
54. Hd6 - bxc5
Ef svartur valdar c-peðið
(Hc8) valdar hvítur sitt c-peð (b2-
b4) og síðan ryðst kóngurinn inn
á kóngsvæng líkt og sýnt var í síð-
ustu athugasemd en hrókurinn
bindur bæði kóng og hrók svarts.
55. Hxc6 - Hb8
56. Hxc5 - Hxb2
57. Hc7+ - Kf8
58. Hxa7 - Kc2
59. Kf3 - Kg8
60. a4 - Ha2
61. a5 - Kf8
62. a6 - Kg8
63. Ha8+ - Kg7
64. a7 - Ha3+
65. Ke4 og svartur gafst upp.
Svarti kóngurinn má ekki fara
til f7 því þá fer hvíti hrókurinn á
bak við hann og valdar a-peðið
óbeint (Hh8). Hann verður því
að leika 65. ... Kh7 66. Kd4 Kg7
67. Kc4 Hal 68. Kb5 Ha2 69. Kb6
Hb2+ 70 Kc6 Ha2 71. Kd6 Ha6+
72. Ke7 Kh7 73. Kf7 og nú verður
eitthvað undan að láta hjá svarti.
Það er merkilegt hvað Karpov'
þarf lítið til að vinna og óneitan-
lega er hart að tapa svona stöðu á
svart.
Hvítt: Karpov
Svart: Seirawan
Svartur hefur að sönnu peð yfir1
en það er tvípeð og ekki mikils
virði. Hvítur hefur biskupaparið
og þeir njóta sín vissulega vel í
svona opinni stöðu. Menn svarts
vinna heldur ekki vel saman, og
biskup hans er samlitur peðun-
um, hann er sumsé „vondur".
Svartur getur hins vegar gert sér
vonir um að fórna manni á ein-
hver peð hvíts og strax f næsta
leik fækkar þeim um eitt:
54. d5 - Rxc5 60. Bd7+ - Kd8
55. Bb2+ - Kf8 61. Be5 - Rb4+
56. dxc6 - Ra6 62. Kd2 - Rd5
57. Ba3+ - Ke8 63. Be6 - Rc7
58. Be6 - Bb4 64. Bf7 - Re8
59. Bb2 - Bf8
Kóngur svarts er bundinn við
hvíta frípeðið en frípeð svarts er
hættulaust. Biskup svarts er
bundinn við að valda h-peðið og í
næsta leik skiptir hvítur upp á
riddaranum en hann er í rauninni
eini maðurinn sem svartur getur
hreyft.
65. Bxe8 - Kxe8 68. Bg7 - Bf4
66. Bf6 - g4 69. Kb4 - Kd8
67. Kc3 - Bd6 70. Kxb5 - Kc7
Það er unun að sjá hvernig
Karpov beitir biskupnum í þess-
um tafllokum. Nú nýtir hann sér
frípeðið til hins ítrasta.
71. Kc5 - Be3+ 73. Bf8 - Kb6
72. Kd5 - Bf4 74. Bd6 - Bg5
75. Bxg3 og svartur gafst upp.
Hvítur leikur peðinu til c7 og
síðan hirðir kóngurinn svörtu
peðin á kóngsvæng. Svartur fær
ekkert að gert.
18 SÍÐA - ÞJÓÐVILJINNÍ Sunnudagur 13. júlí 1986
Stöðugt góð
aðsókn
Lítið drcgur úr aðsókn í Sumar-
bridge, þrátt fyrir eindæma veðurb-
líðu þessa dagana. Síðasta þriðjudag
mættu 38 pör til leiks og var spilað í
þremur riðlum. Úrslit urðu þessi
(efstu por):
A)
Murat Serdar -
Þorbergur Ólafsson Jakob Kristinsson - 176
Jón Ingi Björnsson 172
Karl - Guðmundur B) Anton R. Gunnarsson - 171
Ragnar Magnússon Gunnar Þorkelsson - 212
Lárus Hermannsson Hrólfur Hjaltason - 194
Oddur Hjaltason 179
Einar Jónsson -
Sturla Geirsson 190
María Ásmundsdóttir -
Steindór Ingimundarson 179
Og efstu spilarar í fimmtudags-
spilamennskunni eru þá þessir: Ást-
hildur Sigurgísladóttir og Lárus Arn-
órsson 111. Anton R. Gunnarsson
99. Gunnar Þórðarson og Sigfús
Þórðarson 97. Lárus Hermannsson
86. Páll Valdimarsson 77. Murat Ser-
dar og Þorbergur Ólafsson 73.
Spilað er alla þriðjudaga og
fimmtudaga að Borgartúni 18 (hús
Sparisjóðsins). Húsið opnar fyrir kl.
18.30 (hálf-sjö) á þriðjudögum, en
fyrir kl. 18 (sex) á fimmtudögum.
Ollum frjáls þátttaka.
Guðmundur Baldursson -
Jóhann Stefánsson 126
Jacqui McGreal -
Hjálmar S. Pálsson 119
Ágúst Helgason -
Gísli Hafliðason 118
Og efstu spilarar í þriðjudagsspila-
mennskunni eru þá þessir: Sigfús
Þórðarson 76. Lárus Hermannsson
72. Jacqui McGreal 69. Guðjón Jóns-
son 61. Úlfar Kristinsson og Anton
Haraldsson 60. Eyjólfur Magnússon
56.
Á fimmtudaginn mættu svo 54 pör
til leiks og var spilað í fjórum riðlum.
Úrslit urðu þessi (efstu pör):
A)
Gunnar Þorkelsson - Lárus Hermannsson 270
Eyjólfur Magnússon - Steingrímur Þórisson 248
Murat Serdar - Þorbergur Ólafsson 226
B) Anton R. Gunnarsson - Ragnar Magnússon 202
Anna Sverrisdóttir - Karl Logason 183
Hrannar Erlingsson - Matthías Þorvaldsson C) Magnús Olafsson - Páll Valdimarsson 183
157
Geirarður Geirarðsson - Sigfús Sigurhjartarson 132
Guðni Sigurbjarnason - Jón Þorvarðarson 122
Skor þeirra Páls og Magnúsar er
með þeim hæstu sem tekin hefur ver-
ið í Sumarbridge í manna minnum.
Nálægt 73%. D) Bragi Hauksson - Svavar Björnsson 197
ÓLAFUR
LÁRUSSON
Bikarkeppnin
Nú standa yfir ieikir í 2. umferð (32
sveita) Bikarkeppni Bridgesambands
Islands. Þeim skal vera lokið fyrir 16.
júlí nk., en þá verður dregið í 3. um-
ferð.
BSf er aðeins kunnugt um úrslit í
einum leik í 2. umferð, utan þeirra
sem áður hefur verið sagt frá. Sveit
fsaks Arnar Sigurðssonar nv. bikar-
meistari frá Reykjavík, sigraði sveit
Halldórs Hallgrímssonar frá Akra-
nesi, eftir miklar sviptingar að sögn.
Einnig má geta þess frá 1. umferð,
að sveit Gylfa Pálssonar úr Eyjafirði
sigraði sveit Eymundar Sigurðssonar
frá Reykjavík með eins stigs mun.
Nokkuð jafnt það. Gylfa-menn spila
því heima í þessari umferð við bak-
arameistarann frá Akranesi, Hörð
Pálsson.
Nokkrir leikir eru framundan,
enda tímamörk orðin knöpp. Áríð-
andi er að fyrirliðar láti vita af úrslit-
um, til Ólafs Lárussonar eða Her-
manns Lárussonar s: 41507 í fjarveru
Ólafs vegna Evrópumóts yngri lands-
liða, sem hefst nk. laugardag. Spilað
er í Búdapest. Liðið heldur utan á
fimmtudag, ef flugvirkjar hjá Arnar-
flugi leyfa.