Þjóðviljinn - 22.07.1986, Side 3

Þjóðviljinn - 22.07.1986, Side 3
ÍÞRÓTTIR ÍÞRÓTTIR Friðarleikarnir Næstu leikar í Seattle árið 1990 Sovétmenn fengu langflest verðlaun. Tapið 15 miljónir Friðarleikunum í Moskvu lauk á sunnudaginn og þá var tilkynnt að næstu leikar færu fram í Seattle í Bandaríkjunum árið 1990. í heild þótti árangur á leikunum í slakara iagi, enda van- taði fjölmargt af besta íþróttaf- ólki heims, einkum frá Banda- ríkjunum og Austur-Þýskalandi, en skipuleggjandi þeirra, banda- ríski auðjöfurinn Ted Turner, lýsti yfir ánægju með þessa frum- raun enda þótt tap á leikunum næmi 15 miljónum dollara. Sovétmenn höfðu talsverða yfirburði í mörgum greinum og hlutu langflest verðlaun, 105 gull, 73 silfur og42 brons. Bandaríkja- Sergei Bubka setur annað tveggja heimsmeta sem féllu á Friðarleikunum, fer yfir 6,01 metra í stangarstökki. Mynd: APN. menn fengu 41 gull, 49 silfur og 39 brons, og A.Þjóðverjar 6 gull, 11 silfur og 7 brons. Búlgarir fengu samtals 28 verðlaun en aðr- ar þjóðir til að eiga fulltrúa á verðlaunapalli voru Rúmenía, Kanada, Tékkóslóvakía, Japan, Portúgal, Ástralía, Bretland, Eþíópía, Sviss, Kína, Pólland, Frakkland, Ungverjaland, Mongólía, Norður-Kórea, Tyrk- land, Perú, Finnland, V.Þýska- land, Venesúela, ftalía, Brasilía, Nígería, Fflabeinsströndin, Ken- ýa, Noregur og Holland. Athyglisverðustu úrslit síðustu dagana eru sigur Sovétmanna á bandarísku heimsmeisturunum í blaki karla. Sovétmenn sigruðu 3-2 í leik sem tók hálfa þriðju klukkustund og þykir einn sá besti sem sést hefur. Bandaríkja- menn komust í 2-0 en með geysisterkum varnarleik náðu heimamenn að snúa blaðinú við og sigra. -VS/Reuter- ísafjörður Önnur þrenna Stellu Stella Hjaltadóttir skíðakona skoraði 3 mörk annan leikinn í röð þegar ÍBÍ vann léttan sigur á FH, 5-0, í B-riðli 2. deildar kvenna í knattspyrnu á laugar- daginn. Hún hefur nú gert 9 mörk í deildinni í sumar. Steina Ólafs- dóttir og Sigurlín Pétursdóttir skoruðu hin mörk ísfirsku stúlkn- anna. -GK/ísafirði Hafnarfjörður Gunnar var hetja FH-inga KR-ingar náðu ekki að skora ísjötta ikað mark- koma KR yfir en skallaði frai Guftmundur Torfason skorar sigurmark Fram gegn Breiðabliki, Magnús Magnússon og|Örn Bjarnason markvörður koma engum vörnum við. Mynd: Ari. Reykjavík FH-ingar geta þakkað mark- verði sínum, Gunnari Straum- land, fyrir stigið sem þeir fengu gegn KR á laugardaginn. Gunnar varði oft mjög vel frá KR- ingunum úr dauðafærum en þrátt fyrir góða frammistöðu hans voru KR-ingar klaufar að skora ekki og máttu sætta sig við 0-0 jafntefli. Sjötti leikur liðsins í röð án sigurs. Leikurinn byrjaði rólega. KR- ingar voru þó sterkari aðilinn * fyrstu mínúturnar og áttu nokkur sæmileg færi sem þeir misnotuðu af sannfæringu. Þegar líða tók á leikinn fóru FH-ingar að láta meira að sér kveða án þess þó að skapa sér hættuleg færi. Um miðjan fyrri hálfleik fékk Gunnar Gíslason gullið færi til að koma KR yfir en skallaði fram- hjá. Þeir Willum Þórsson og Ás- bjöm Björnsson fóru líka illa með góð færi í hálfleiknum. Á þriðju mínútu síðari hálf- leiks varði Gunnar Straumland glæsilega frá Þorsteini Hall- Leik sinum an sigurs FH-KR 0-0 * * * Kaplakriki, 19. júli Dómari Baldur Scheving * Áhorfendur 350 Stjörnur FH: Gunnar Straumland * * Ólafur Jóhannesson * Stjörnur KR: Gunnar Gíslason * Þorsteinn Halldórsson * dórssyni, nýiiðanum frá Nes- kaupstað, og stuttu síðar komust KR-ingar í tvígang innfyrir vöm FH en Gunnar varði. Það sem eftir var leiksins náðu liðin ekki að skapa sér hættuleg færi. Þó ekki hafi verið skorað var þessi leikur ágætur á að horfa og alls ekki léleg knattspyma sem liðin buðu uppá. Gunnar var bestur FH-inga, Pálmi Jónsson og Ólafur Jóhannesson áttu einn- ig ágætan leik. Hjá KR bar mest á Gunnari Gíslasyni en Loftur Ól- afsson og Þorsteinn Halldórsson áttu góða spretti. -Ibe. Fram-Breiðablik 2-1 (1-1) * * Laugardalsvöllur, 20. júlí Dómari Ólafur Lárusson * « Áhorfendur 971 0-1 Rögnvaldur Rögnvaldsson (15.), 1-1 Guðmundur Torfason (26.), 2-1 Guðmundur Torfason (47.) Stjörnur Fram: Gauti Laxdal * Guðmundur Steinsson * Guðmundur Torfason * Pétur Ormslev * Stjörnur Breiðabliks: Þorsteinn Geirsson * undur ger Skoraði bœði mörk Fram gegn Breiðabliki og stefnir á markamet Péturs Péturssonar Stjörnugjöfin Leikur: 1 stjarna = lélegur, 2 = sæmilegur, 3 = góður, 4 = mjög góð- ur, 5 = frábær. Leikmaður: 1 stjarna = góður, 2 = mjög góður, 3 = frábær. Dómari: 1 stjarna = ekki nógu góður, 2 = eðlileg dómgæsla, 3 = mjög góður. Guðmundur Torfason er svo sannarlega betri en enginn í leik og spili Fram. Það sýndi hann og sannaði er Framarar sigruðu Breiðablik 2-1 í fyrrakvöld og náðu fímm stiga forystu í 1. deild. Guðmundur skoraði bæði mörk- in og langmarkahæstur í deildinni með 13 mörk. Það aukast alitaf líkurnar á að þessi mikli marka- skorari slái markamet Péturs Pét- urssonar í 1. deildinni, 19 mörk. Leikurinn var frekar tíðindalít- ill og ekki skemmtilegur á að horfa. Framarar voru mun sterk- ari frá fyrstu mínútu og pressuðu oft mjög án þess þó að skapa sér mörg umtalsverð tækifæri. Þeir spiluðu oft of þröngt og það nýttu Blikarnir sér, en mark þeirra kom einmitt eftir að þeir komust inm sendingu Framara. Það kom á 15. mínútu, alveg gagnstætt gangi leiksins. Ein af fáum skyndisóknum Blikanna og hana endaði Rögnvaldur Rögnvaldsson laglega með því að senda boltann efst í markhornið, rétt utan markteigs, 0-1. Óverj- andi fyrir Friðrik markvörð og vel að markinu staðið. Á undan hafði Guðmundur Torfason komist í gott færi en Ólafi Björns- syni tókst að bægja hættunni frá á síðustu stundu. En Fram hélt áfram að pressa og markið lá í loftinu. Það kom á 26. mínútu, Jón Sveinsson átti frábæra sendingu frá miðju fram allan völlinn, beint á Guðmund Torfason sem var felldur þegar hann var kominn á auðan sjó. Vítaspyrna og Guðmundur skoraði sjálfur, Örn Bjarnason varði reyndar spyrnu hans en Guðmundur fylgdi vel á eftir, 1- 1. Á 28. mín. átti Guðmundur Valur Sigurðsson þrumuskot frá vítateig að marki Fram en naum- lega framhjá. Á síðustu mínútu fyrri hálfleiks fékk Guðmundur Torfason kjörið tækifæri á mark- teig en hitti boltann ekki nægi- lega vel. Ekki var liðin nema ein mínúta af síðari hálfleik þegar Fram bætti seinna marki sínu við. Að sjálfsögðu var Guðmundur Torfason þar að verki. Boltinn barst til hans hægra megin í víta- teignum eftir mikla þvögu og darraðardans í teignum. Guð- mundur var þar einsamall og þrumaði knettinum í markið svo söng í. Algérlega óverjandi fyrir Öm, svo fast var skotið, 2-1. Enn hélt sókn Fram áfram. Á 56. mín. bjargaði Ólafur Björns- son á línu eftir fast og hnitmiðað skot Gauta Laxdals utan víta- teigs. Tíu mín. síðar kiksaði Guð- mundur Torfason í góðu færi á markteig. Tvö síðustu færi leiksins átti Breiðablik. Það fyrra fékk Magn- ús Magnússon á 78. mín. er hann skallaði beint í fang Friðriks mar- kvarðar. Það síðara skóp Guð- mundur Valur á 81. mín., vel út- færð aukaspyrna en Friðrik bjar- gaði í horn. Blikarnir spiluðu leikinn skynsamlega. Þeir vissu vel að við ofurefli var að etja og léku sam- kvæmt því, drógu sig til baka og beittu skyndisóknum. Það var ekki nema á kafla í síðari hálfleik sem liðið sýndi á sér klærnar en mestan þátt í því áttu þeir Þor- steinn Geirsson og Hákon Gunn- arsson sem komu inná sem vara- menn. í liði Fram bar mest á Pétri Ormslev og Gauta Laxdal sem unnu vel og Guðmundunum í framlínunni. Það vekur athygli hversu illa Janusi Guðlaugssyni gengur að komast inní leikkerfi Framara þótt hann standi alltaf fyrir sínu. v.stef Staöan f 1. deildarkeppninni i knattspyrnu: Fram.. IBK.... Valur.. (A.... Þór.... KR.... FH.... Víðir.. ..12 9 2 . 12 8 0 ........12 7 2 .......12 5 3 .......12 5 2 .......12 3 6 ........12 4 2 .......12 3 3 Breiðablik..........12 3 2 IBV.................12 1 2 1 27-7 29 4 15-14 24 3 18-5 23 4 19-12 18 5 16-21 17 3 13-9 15 6 17-20 14 6 9-16 12 7 9-22 11 9 10-27 5 Markahæstir: GuðmundurTorfason.Fram..............13 GuðmundurSteinsson, Fram.............6 Ingi B. Albertsson, FH...............6 Valgeir Barðason, (A.................6 HlynurBirgisson, Þór.................5 Jón Þórir Jónsson, Breiðabliki.......5 Kristján Kristjánsson, Þór...........5 Sigurjón Kristjánsson, Val...........5 Markvörðurinn skorar og skorar! Markahœsti leikmaður B. I. Haukar og Bolungarvík komin í úrslit. Hvöt heldur enn hreinu og sigur blasir við. Dómari í brunaútkall í Ólafsvík og dómaramál á Vestfjörðum í ólestri Haukar og Bolungarvík tryggðu sér um helgina sæti í úrslitakeppni 4. deildarinn- ar í knattspyrnu með stórsigrum. Aftur- elding var áður komin í úrslit. Leiknir úr Breiðholti á alla möguleika á að verða fjórða liðið suðvestanlands en á norð- austursvæðinu er úrslit hvergi endanlega ráðin. Hvöt er þó með pálmann í höndun- um i E-riðli, hefur enn ekki fengið á sig mark í sumar og dugir jafntefli gegn Kormáki heima til að tryggja sér sigur. Tjörnes og HSÞ.b leika hreinan úrslita- leik f F-riðli um næstu helgi og þar þarf Tjörnes að vinna með 3 mörkum til að fara f úrslit. Einnig stefnir allt í hreinan úrslitaleik Hrafnkels og Sindra fyrir austan 'eftir óvænt tap Hattar á heimavelli gegn Hrafnkeli. Dómaramál eru víða ekki uppá það besta en hvergi sennilega verri en á Vest- fjörðum. Þar vantar iðulega dómara á leiki og lið Stefnis frá Suðureyri hefur farið einna verst útúr því. I eitt skiptið var liðið t.d. komið alla leið til Hólmavíkur en ekkert Ieikið þar sem dómari kom ekki. í Ólafsvík gerðist það hinsvegar þegar Léttismenn komu í heimsókn á laugardaginn að hálftíma fyrir leik var dómarinn skyndilega kvaddur á brott í brunaútkall! Heimamaður hljóp í skarðið og stóð fyrir sínu. í Þorlákshöfn var línu- varðarlaust á leik Þórs og Augnabliks en tveir kornungir piltar tóku verkið að sér, annar 4. flokksdrengur úr Kópavogi sem þótti eiga stórleik með flaggið. A-riðill Grundarfjörður 0 Haukar 2 (Grétar Hilmarsson, Eiríkur Jörunds- son) Haukar 14 (Eiríkur Jörundsson4, LýðurSkarp- héðinsson 2, Grétar Hilmarsson 2, Reynir Jó- hannesson 2, Jón Örn Stefánsson, Arnar Hilm- arsson, Albert Jónsson, Bragi Jóhannesson) Skotfélagið 0 Grundarfjörður 1 (Kristmundur Harðarson) Snæfell 5 (Pétur Rafnsson, Rafn Rafnsson, Egill Ragnarsson, Jóhann Isleifsson, Sigurður Sigurþórsson) Þór Þ. 3 (Sæmundur Steingrímsson, Hallfreð Sveinsson, Hannes Haraldsson) Augnablik 8 (Kormákur Bragason 3, Sigurður Halldórsson 2, Jón Einarsson, BirgirTeitsson, Ingvar Teitsson) Haukar 8 9 Augnablik 8 ÞórÞ 9 Skotfólagiö 9 Grundarfjöröur 9 3 1 B-riðill 1 30-7 21 2 21-14 17 2 28-18 14 5 20-26 10 5 15-31 8 7 8-26 4 Afturelding 10 (Láms Jónsson 4, Guðgeir Magnússon 2, Óskar Óskarsson 2, Ríkharð örn Jónsson, Sigurður Sveinsson) Stokkseyri 0 Vfkverji 4 (Tómas Sölvason 4) Hveragerði 2 (Páll Leó Jónsson, Kristján Theodórsson) Vfkingur Ó. Rúnarsson) LéttlrO 2 (Tryggvi Óttarsson, Gunnar Afturelding...............9 9 0 0 49-5 27 Víkverji..................9 5 1 3 29-14 16 Hveragerði................9 4 2 3 20-17 14 Léttir....................9 4 1 4 11-21 13 VíkingurÓ.................9 2 1 6 8-31 7 Stokkseyri................9 0 1 8 10-39 I C-riðill Grótta 1 (sjálfsmark) Lelknir R. 5 (Konráð Arnason 2, Kristján Ósk- arsson, Baldur Baldursson, Ingvar Hannes- son) Eyfellingur 0 Árvakur 6 (Sigurður Indriðason 3, Haukur Ara- son, Bjöm Pétursson, Árni Guðmundsson) LeiknirR................7 5 1 1 26-9 16 Árvakur..................7 5 1 1 27-13 16 Grótta...................7 4 0 3 16-12 12 Hafnir...................7 3 0 4 21-16 9 Eyfellingur..............8 0 0 8 4-44 0 D-riðill Reynir Hn. 0 B.í. 1 (Pétur Guðmundsson) Stefnir 1 (Arnar Guðmundsson) Geislinn 4 (Flosi Helgason 2, Ólafur Magnús- son, Guðmundur V. Gústafsson) Höfrungur 0 Bolungarvfk 7 (Jóhann Ævarsson 2, Jón Kristjánsson 2, Friðgeir Halldórsson 2, Jóhann Kristjánsson) Bolungarvík.............9 9 0 0 48-8 27 Geislinn...............g 7 0 2 53-11 21 B.l.....................8 4 0 4 16-23 9 ReynirHn................9 2 1 6 8-37 7 Stefnir 6 1 1 4 8-20 4 Höfrungur 9 1 0 8 4-38 3 E-riðill Svarfdælir 0 Hvöt 2 (Garðar Jónsson 2) Hvöt 7 6 1 0 11-0 19 Vaskur 6 4 1 1 9-4 13 Svarfdælir 7 3 1 3 8-6 10 5 1 0 4 4-14 3 Höfðstrendingur. 7 0 1 6 2-10 1 F-riðill Austri R. 2 (Jón Ólafsson, Einar Sigurðsson) Núpar 4 (Dagbjartur Halldórsson 3, Stefán Már Guðmundsson) HSÞ.b 5 (Hörður Benónýsson 2, Ari Hallgríms- son, Róbert Agnarsson, Jóhannes Steingríms- son) Æskan 1 (Atli Brynjólfsson) Núpar 0 Tjörnes 2 (Sigurður lllugason, Friðrik Jónas- son) HSÞ.b...................7 7 0 0 33-6 21 Tjörnes.................7 6 0 1 24-2 18 Núpar....................8 2 2 4 13-17 8 Æskan.....................6 0 1 5 5-20 1 AustriR...................6 0 1 5 3-33 1 G-riðill Höttur 1 (Jóhann Sigurðsson) Hrafnkell 2 (Vignir Garðarsson, Ingólfur Arnar- son) Huginn 2 (BirgirGuðmundsson, Guðjón Harð- arson) Neisti 1 (Jóhann Halldórsson) Súlan 1 (Jónas Ólafsson) Sindri 2 (Ómar Ingi Bragason, Hermann Stef- ánsson) Sindri...................8 6 0 2 19-9 18 Hrafnkell................8 5 2 1 12-10 17 Höttur...................8 5 0 3 15-5 15 Súlan....................8 3 2 3 9-9 11 Huginn...................8 2 0 6 11-20 6 Neisti...................8 0 2 6 8-21 2 Pétur Guðmundsson markvörður Bad- mintonfélags ísafjarðar gerir það ekki endasleppt. Hann skoraði sigurmark BÍ gegn Reyni Hnífsdal úr vítaspyrnu tveimur mínútum fyrir lcikslok og er langmarkahæsti maður liðsins með 4 mörk! Jón Einarsson Augnabliki var venj- unni trúr í Þorlákshöfn. Hann átti 2 sláar- skot og er því kominn með 5 í tveimur leikjum. Tómas Sölvason borðtennismaður smassaði fjórum sinnum í mark Hver- gerðinga þegar Víkverjar hefndu fyrir skellinn í bikarkeppninni fyrr í sumar. Skotfélagið mætti með 8 menn í Hafn- arfjörðinn og átti því lítið erindi í Haukana. Sex leikmenn liðsins höfðu brugðið sér úr bænum og tveir voru í út- varpsþætti meðan Icikurinn fór fram! Guðgeir Magnússon úr Aftureldingu lét að sér kveða þegar hann kom inná sem varamaður gegn Stokkseyri korteri fyrir leikslok. Hann bjargaði á línu, lagði upp mark og skoraði síðan tvö sjálfur. Markahæstir i 4. deild: Jón Gunnar T raustason, Geislanum.....21 Jóhann Ævarsson, Bolungarvík..........14 Lárus Jónsson, Aftureldingu...........14 Hörður Benónýsson, HSÞ.b..............13 Óskar Óskarsson, Aftureldingu.........12 Flosi Helgason, Geislanum.............11 Sigurður Guðfinnsson, Bolungarvík.....10 Tómas Sölvason, Víkverja..............10 -v.stef/VS Vestmannaeyjar Þórsarar skáni og 3jatapBVíröð Þórsarar sloppnir afmesta hœttusvœðinu Eyjamenn töpuðu sínum þriðja leik í röð í 1. deild þegar Þórsarar komu í heimsókn á laugardaginn. Heldur er því farið að syrta í álinn hjá þeim á ný eftir sigurinn og jafnteflið þar á undan og staðan á botninum versnar stöðugt. Þórsarar voru heldur skárri aðilinn af tveimur slökum í leiknum en sýndu þó lítið. Bald- vin Guðmundsson markvörður þeirra forðaði marki á 8. mínútu, Jón Atli Gunnarsson lék þá upp völlinn og sendi á Ómar Jóhanns- son. Fyrirgjöf hans sem var ætluð Bergi Ágústssyni dauðafríum hirti Baldvin með góðu úthlaupi. Þórsarar náðu forystu um miðjan hálfleikinn. Halldór Áskelsson lék upp kantinn og sendi á Hlyn Birgisson, sem skaut góðu skoti rétt utan vítateigs og Þorsteinn Gunnarsson mark- vörður ÍB V réð ekki við það, 0-1. En ÍBV jafnaði á markamínút- unni. Jón Atli sendi á Ómar, hann gaf á Elías Friðriksson sem var á markteig en hitti ekki bolt- ann. Bergur var hinsvegar á markteigshorninu og þrumaði boltanum í fjærhornið, 1-1. Þórsarar skoruðu fljótlega eftir hlé markið sem réð úrslitum. Halldór sendi á Jónas Róberts- ÍBV-Þór 1-2 (1-1) * * Hásteinsvöllur, 19. júlí Dómari Kjartan Ólafsson » Áhorfendur 700 0-1 Hlynur Birgisson (22.), 1-1 Bergur Ágústsson (43 ), 1-2 Jónas Róberts- son (51.) Stjörnur ÍBV: Þórður Hallgrimsson * Stjörnur Þórs: Halldór Áskelsson * Hlynur Birgisson * son sem skallaði yfir Þorstein og í markið, 1-2. Þorsteinn kom út á móti og rakst á Jónas, heima- menn vildu meina að Jónas hefði brotið á honum en undirritaður var í góðri aðstöðu til að skera úr um að markið var fyllilega lög- legt. Á 75. mínútu var mikil hætta í vítateig Þórs en Akureyringarnir náðu að hreinsa frá eftir mikinn barning. Rétt á eftir var mikið um úu vcia. í.iiií gitcsispu niyus ug Halldórs lék Halldór á Þorstein markvörð ÍBV og skaut en Þórð- ur Hallgrímsson bjargaði á línu. Hornspyrna, boltinn beint í stöng Eyjamarksins og út. Þar var hann sendur langt framá völl og Ingi Sigurðsson var skyndilega slopp- inn innfyrir vörn Þórs en Baldvin bjargaði með góðu úthlaupi. Þetta var síðasta færið í leiknum og Akureyringamir flugu heim með þrjú stig sem koma þeim af mesta hættusvæði deildarinnar. -R/Eyjum Þrlðjudagur 22. júlí 1986 ÞJÓÐVILJINN - SÍÐA 11

x

Þjóðviljinn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.