Þjóðviljinn - 24.08.1986, Síða 2

Þjóðviljinn - 24.08.1986, Síða 2
FLOSI V skammtur af brauði og leikjum Þaö hefur víst ekki farið framhjá neinum aö fréttatexti sjónvarpsins hefur í hálfan mánuö jafnan hafist á orðunum „þaö hefur víst ekki fariö framhjá neinurn". Og hvaö er þaö svo,sem ekki hefur fariö framhjá neinum? Þaö ætti ekki aö hafa farið framhjá neinum. Aö sjálfsögöu tvöhundruðára afmæli Reykjavíkurborgar. Allir eru svo undur glaöir og kátir af því þetta tókst allt svo voðalega vel, allir sáu svo vel og þaö sem meira var og merkilegra allir heyröu svo óskaplega vel. Fólk missti bókstaflega ekki af neinu. Aldrei fyrr hafa skilningarvit reykvík- inga, já og aö íslendingum meiötöldum, fengiö annan eins servís. Þetta var nú þjónusta í lagi. Séö var fyrir þörfum: sjónar, heyrnar, ilmanar, smekks og tilfinningar meö þeim hætti sem best gerist í heiminum. hátíö er gengin um garö, sitja bæði reykvíkingar og íslendingar í sólskininu, roktimbraöir af sæluvímunni einni, því ölvun var í lágmarki að sögn lögregluyfirvalda, þrátt fyrir afmælistert- una, sem lá niður Lækjargötuna yfir farvegi gamla lækjarins og rammáfeng. „Fýlupokar eru vansælir rnenn," sagöi amma mín stundum, þegar hún kom meö fisk í soðið og haföi lent í útistööum viö fisksalann sem alltaf var meö ólund. Þegar amma valdi besta fiskinn úr vagninum tautaði hann úrillur: „Þetta átti nú einusinni allt aö seljasþsvo gott og lakara veröur aö fylgjast aö.“ En amma var nú ekki á því og þar viö sat. Og nú eru einmitt vansælir fýlupokar aö byrja aö láta frá sér heyra útaf tvöhundruðárahátíða- höldunum. Sumir fjargviorast útaf því að hátíðin hafi ekki verið nógu menningarleg og veröa þeir sem slíku halda fram aö teljast heimskir og illa lesnir. Þeir menn eru fáfróöari en góöu hófi gegnir, sem ekki skynja þaö, aö forngrísk og rómversk hámenning var lögö til grundvallar í þessu há- tíðahaldi. Hvaö sagöi raunar ekki rómverka skáldið og heimspekingurinn Decimus Junius Juvenalis sem uppi var um svipað leyti og frelsari vor: Duas tantum res anxius optat panem et circenses. (Einskoröar ofsalega löngun (rómverja) að- eins viö tvennt: brauö og leiki. Þetta heföu eins getaö veriö orö Davíðs, því auövitaö var Reykjavíkurhátíðin umfram allt annaö byggö á forngrískri og rómverskri há- menningararfleifð, hátíö brauös og leikja. Kakan í Lækjargötunni og leikarnir við Arnar- hól. Þaö mun talið fullsannaö aö engin mistök hafi átt sér staö viö leikana í túnfætinum á Arnarhóli. Allt varfullkomiö: orö, æöi, ölvun, lýsing og hljóð, og aö grísk-rómverskum siö voru þaö nú guðirn- ir sem voru ákallaðir, ekki guð almáttugur held- ur veöurguöirnir, sem bænheyrðu hátíöargesti svo sannarlega. Hinsvegar heföi mátt takast betur til viö tert- una og kem ég nú að því. Þaö er Ijóst að þessi terta var ekki öllum ætluð. Nokkrum minnihlutahópum varfyrirmun- aö aö fá hennar notið. Fyrst skal þá telja hógværa og af hjarta lítil- láta. Ekki var meö neinum aöferöum séö til þess aö nokkrir slíkir fengju notiö kökunnar. Ólafur Ragnar, sem er einn úr þessum hópi, snéri sér undan, þegar hann sá aö hann fengi ekki af kökunni og gaf sömu yfirlýsingu og refurinn forðum: „Hún er súr.“ Skammel voru engin fyrir smávaxna menn, sem áöur voru kallaöir dvergar, en nú er lög- boðið aö kalla vaxtarhamlaöa einstaklinga. Þá hafði ekki veriö séö fyrir þörfum sykursjúkra meö því að baka sérstaka tertu fyrir þá. Alvarlegast er þó aö langstærsti minnihluta- hópur þjóöarinnar fékk ekki notið þessarar al- menningstertu og hér á ég viö þorstahefta. Ég held að þaö sé rétt skilið hjá mér að búið var aö úöa einhverjum ókjörum af brennivíni í tertuna og brennivín er, aö því er mér skilst, ekki æskilegt fyrir þá sem hættir eru aö drekka brennivín. Þegar á þetta var bent svöruöu yfirvöld því til, aö maður þyrfti aö boröa sjö metra af tertunni til að finna á sér, svo væntanlega hefur margur drykkfelldur maður en hógvær átt í miklu sálar- stríði þarna í Lækjargötunni. Ef svona terta heföi verið á boðstólum fyrir einum áratug, heföi ég sennilega tekiö mig til og étiö af henni fjórtán metra til aö ná sæmilegri góðgleði og veröa hrókur alls fagnaðar, eins og ölóðir menn veröa gjarnan. En nú var mér semsagt fyrirmunaö aö njóta krásanna þar sem ég er orðinn hógvær og syk- ursjúkur, vaxtarhamlaður, feitlaginn einstak- lingur og þar aö auki þorstaheftur. Vonandi fyrir lífstíö. Davíð bar appelsínugult bindi Kollegar okkar á Dagblaðinu Vísi eru um margt kostulegir. Þegar blaðið greindi frá af- mælisfundi borgarstjórnar þann 18. ágúst síðastliðinn mátti lesa ýtarlega greinar- gerö á klæðnaði viðstaddra áður en minnst var á efni fundarins, það er að segja til- lögu um viðgerðir á húsum í Viðey og að efnt yrði til hug- myndasamkeppni um nýtingu eyjarinnar í framtíðinni. Afmælisklæðnaðinum var svo lýst: „Vigdís var sumar- lega klædd, í heiðbláum kjól og með hatt í sama lit... Davíð var klæddur í Ijósgrá jakkaföt með appelsínugulum rönd- um, í Ijósri skyrtu og bar app- elsínugult bindi með gráum röndum. Ástríður kona hans klæddist dökkblárri dragt með stórum hvítum kraga. A höfð- inu bar hún dökkbláan hatt með hvítri rönd... Magnús var klæddur dökkum, teinóttum jakkafötum, Ijósri skyrtu og var með rautt og blátt bindi.“ Það verður spennandi að 2 SÍÐA - ÞJÓÐVILJINN Sunnudagur sjá vetrartískuna hjá þing- mönnum þegar DV flytur þingfréttir í vetur...* Framboðsskjálfti í Framsókn Þó ekki sé beinlínis hægt að segja að haustkosningar séu á döfinni eru menn vítt um flokka farnir að spá í framboð, og kandídata. Hjá Framsókn-I arflokknum í Reykjavík blasir við nokkur slagur. Ýmsir telja hæpið að Framsókn haldi manni í Reykjavík, og vilja jafnvel freista þess að fá sjálf- an Steingrím Hermannsson vestan af Ströndum í framboð hér syöra til bjargar fleyinu. Ólíklegt er talið að Denni gefi kost á þessu. En heimildir í Framsókn telja reiðubúna í slaginn um fyrsta sætið: sitj- andi þingmann Harald Ólafs- son, Finn Ingóifsson gjald- kera flokksins sem bolaði á sínum tíma Guðmundi G. Þórarinssyni úr þeirri stöðu og hefur reynst nýtur aðstoð- armaður ráðherra, og svc Bolla Héðinsson. Nær ör- uggt er talið að Bolli eigi eng- an möguleika á sætinu, en vilji vera með til að minna á sig, enda frambærilegur maður sem á framtíðina fyrir sér. í annað eða þriðja sæti ætla Framsóknarmenn að setja konu, og sú sem mest er um rætt í þröngum valdahópum gæti reynst þeim drjúg. Það er séra Solveig Lára Guð- mundsdóttir (Benediktsson- ar ráðuneytisstjóra) sem er nýkjörinn prestur Seltirninga. Séra Solveig er valkyrja og að auki gift Hermanni Sveinbjörnssyni gildum Framsóknarfír. Sá er sonur Sveinbjörns Dagfinns- sonar í landbúnaðarráðu- neytinu og móðir Hermanns er systir Steingríms Her- mannssonar. Þannig að séra Solveig er vel tengd ... ■ Blaðra forsetans Þeir sem horfa á sjónvarps- fréttir muna eftir fróðlegu skoti frá Bandaríkjunum um dag- inn. Skýrt var frá því að Reag- an forseti væri í þann veginn að gangast undir þvagfæra- rannsókn og sýnd tól og tæki og skýringarmyndir um vænt- anlega læknisaðgerð. Síðan hefur fróðleiksfús alþýða beð- ið nánari frétta, en sjónvarpið aftur verið þögult. Þetta mál bar á góma á útvarpsráðs- fundi, og lauk umfjöllun með því að sá útvarpsráðsmanna sem umhugaðast er um heilsufar Bandaríkjaforseta, Árni Björnsson, lét bóka þá fyrirspurn til fréttastofu sjón- varps hvort ekki væri skjótt að vænta frekari fregna af þessui máli og von til að sjónvarps-' neytendur megi skyggnast inn í blöðru forsetans.B Einhver Davíð Skoðanir manna á Reykjavík- urmynd Davíðs, nei fyrirgefið, Reykjavíkurmynd Hrafns, eru skiptar. Einstaka kvikmynd- askríbentar hafa hafið hana upp í skýin en aðrir dregið hana niður á jafnsléttuna. Borgarfulltrúar minnihluta- flokkanna hafa tjáð sig um verkið og þótt lítið til koma. Ónefnt skáld á níræðisaldri, sem býr í nágrenni Reykjavík- ur, taldi Reykjavíkurmyndina það lélegasta sem hann hefði séð á hvíta tjaldinu frá því hann var staddur í N-Kóreu einhverntíman á sjötta ára- tugnum og sá kvikmynd um einhvern Kim.B Óli! Þegar íslenskir knattspyrnu- þjálfarar vilja skipta inná manni í leik kalla þeir jafnan í dómarann til að láta hann vita. í okkar litla þjóðfélagi þekkja allir alla og því er oft nafn við- komandi dómara kallað, í stað hins virðulega starfsheitis. Þetta gerði þjálfari íslenska kvennalandsliðsins í fyrra- 24. ágúst 1986

x

Þjóðviljinn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.