Þjóðviljinn - 24.08.1986, Qupperneq 8
reið kona
Viðtal við Marilyn French, sem hefur nýlega
skrifað nýja mannkynssögu, sem fjallarum
sögu karlaveldisins
Feminisminn er eina alvarlega
og algilda heimspekin, sem leitar
upphafsins og býöur upp á
eitthvað annaö en karlaveldi.
Feminisminn er byltingarkenn-
dur, en reynir samt ekki aö eyði-
leggja kerfið. Ég vil bylta og
breyta hugsunarhætti fólks. Sag-
an hefur aö geyma ótal byltingar,
þar sem nýja stjórnarfarið er jafn
líklegt til að kúga og það gamla,
sem kastað var fyrir róða.
Þetta segir Marilyn French,
doktor Marilyn French, með
öllum þeim myndugleik, sem
hæfir höfundi nýrrar mannkyns-
sögu í bókinni „Frelsi - ekki
vald“, um konur, karla og sið-
ferði. Doðrantur upp á sjö
hundruð blaðsíður, sem hefst
með öpum og endar á kjarnorku-
vopnum. Glæsilegt verk, þar sem
Marilyn French tekur fyrir karla-
veldið, upphaf þess og þróun og
lýkur því, með því að reiða til
höggs með feminismann að
vopni. Hún heldur fortakslaust
fram að hægt sé að iifa ög
blómstra í þjóðfélagi án ofbeldis,
þar sem valdið er einungis notað
til að þroska einstaklinginn. Hún
gerir sér réttilega grein fyrir því
að það er langt í land, því við
hrærumst í heimi, þar sem kerfis-
bundið ofbeldi og valdníðsla rík-
ir. En með jákvæðu hugarfari
mun framtíðin verða okkar.
Ef við eigum einhverfa fram-
tíð. Ef við ætlum að kenna börn-
um okkar að það sé allt í lagi að
drepa, munu þau drepa til að
þóknast okkur. Ameríkanarselja
vopn, sjónvarpið er gegnsýrt af
ofbeldi og samt spyrjum við af
hverju borgirnar séu fullar af of-
beldi. Við höfum einskorðað
okkar vald við val milli Péturs og
Páls sem forseta, og milli mis-
munandi sjónvarpsstöðva, sem
allar sýna óþverra. Við erurn öl!
fórnardýr karlasamfélagsins, þar
sem menn læra að mikilvægast sé
að hafa stjórn á sjálfum sér og
vald yfir öðrum. Karlaveldið er
alls staðar, í fjölskyldunni, í
kirkjunni, á vinnustaðnum og í
ríkisstjórninni. Við verðum að
gera okkur grein fyrir að við þjá-
umst öll af sama sjúkdómi.
Marilyn French er reið og
óþolinmóð fyrir hönd feminista
og biðst ekki afsökunar á því!
Hún segist hafa skrifað þessa bók
vegna þess að konur hafi komið
til hennar eftir útkomu bóka
hennar „Kvennaklósettið" og
„Þótt blæði hjartasár" og spurt
gáfulegra spurninga um hvers
vegna lífi kvenna væri komið,
sem raun bæri vitni:
Ég skrifaði 150 síðna ritgerð
sem útgefandi minn neitaði síðan
að taka. Ég hafði gert ráð fyrir að
lesendur mínir hefðu sömu bók-
legu þekkingu og ég sjálf, en
hann var á annarri skoðun. Þá
varð ég að fara aftur í heimildirn-
ar og skrifa allt upp á nýtt til að
sýna hvað við getum gert til að
breyta skoðunum þjóðfélagsins á
konum og körlum.
Ég vildi skrifa bók, sem hægt
væri að nota eftir 100 ár, sem ekki
byði upp á fyrirfrant ákveðna
dagskrá, heldur framtíðarsýn. Ég
held að enginn hafi skrifað slíka
bók áður enda hefði ég þá sleppt
því að skrifa hana. Égget sagt þér
að þetta er ekkert áhlaupaverk.
Ég vil skilgreina hið mannlega.
Ég held að við séum að upplagi
ágætis skepnur, lítil börn sem
heimtum viðbrögð og vingjarnleg
orð. Ég held að mannkynið sé
friðsamlegt í eðli sínu þó okkur
langi stundum í smá samkeppni
og getum átt til að reiðast. Ég er
sjálf reið kona.
Spurningin um það hvort bók-
in hennar sé framhald af verkum
Simone de Beavoir og Betty Frie-
dman svarar Marilyn á þann veg
að hún hafi haft „Das Kapital“
fyrir sér sem fyrirmynd.
í „Frelsi - ekki vald“ tekur
Marilyn French málnotkun til
umræðu. Hjá konum hefur málið
tilhneigingu til að verða óhnit-
miðaðra en hjá körlum, minna
skipandi en opnara til umræðna,
einsog t.d. þegar þær bæta spurn-
ingu við það sem um er rætt:
Finnst þér það ekki?
Máiðerkarlamál. T.d. ermað-
ur karlkyns. í Bandarfkjunum
leitum við ákaft að nafnorði sem
kemur í staðinn fyrir „hann“ og
„hans“ og er hlutlaust. Ég hef
sjálf tilhneygingu til að nota kar-
lamál, loka umræðum í stað þess
að opna þær, það er eiginleiki
sem ég er lítið hrifin af hjá sjálfri
mér. Eg vil hafa stóran áheyrend-
ahóp og reyni að tala eins hnit-
miðað og ég get. Mikið af
heimspekinni er skrifað á máli
sem fæstir skilja, en sýnist glæsi-
legt á prenti. Ég er á móti slíkri
málnotkun. Bækur mínar, sér-
staklega „Kvennaklósettið", eru
skrifaðar einsog milli vinkvenna
yfir kaffibolla. Margir hafa
gagnrýnt þetta og kallað það
barnalegt. Mörgum bregður í
brún þegar þeir komast að því að
ég er menntuð.
Feministar segja að þú getir
rifið kofa húsbónda þíns með
hans eigin verkfærum. Við þetta
vil ég bæta því að við höfum engin
önnur verkfæri.
Marilyn French tók þátt í
heimsráðstefnu mannfræðinga
um vald, siðferði og feminisma.
Næsta haust kemur út ný bók
eftir hana um mæður og heimilis-
störf og fléttar hún sögu móður
sinnar í þá bók. (
Sigrid Österby þýddi
úr Dagbladet
REYKJAVKI
11786-1986
Borgarleikhúsið
TÆKNISÝNING
REYKJAVÍKURBORGAR
OPIÐ KL. 10-22 17.-31. ÁGÚST
Lentur
í Reykjavík
fann
Tæknisýninguna j.
í Borgarleikhúsinu
Þekkingargetraun
Byggingadeiki
endurbyggíngu
tækniþjónustu
Bygginp-
viö H'
Borr
adeild
nýbygglngu, viðhald og
veitir öðrum stofnunum
aldraðra
fyrir