Þjóðviljinn - 24.08.1986, Qupperneq 11

Þjóðviljinn - 24.08.1986, Qupperneq 11
Ráðist á drottnunar- fyrirkomulagið Félagar í Velvakanda voru 10-12 talsins en þeir sem létu mest að sér kveða auk Skúla voru þeir Finnur Jónsson, síðar prófessor, Páll Briem, síðar amtmaður, og Þorleifur Jóns- son, síðar póstmeistari. Meðal af- reka þeirra Velvakandamanna eru bæklingar sem þeir setja saman og senda heim. Þetta var talsvert mikið átak hjá þeim því þeir voru aura- lausir og sýnir það vel þann sterka áhuga þeirra á stjórnmálum. Þrír af þessum bæklingum fjölluðu um Lærða skólann 1 Reykjavík og einnig gáfu þeir út merkilegan bækling sem hét Fram, fram bændur og búalið!. Þessir bæklingar spegla vel bar- áttusjónarmið þeirra. 1 bæklingun- um um Lærða skólann er ráðist af hörku á drottnunarfyrirkomulagið í skólanum og er skólinn gerður að spegilmynd þjóðfélagsins. Þar eru allir settir undir aga og hvert einasta brot nóterað í nótubækur þannig að lærisveinarnir eru undir stöðugu eft- irliti kennara og yfirvalda. Þeir ráð- ast af hörku á þetta fyrirkomulag í skólanum og predika jafnrétti náms- manna og yfirvalda. Þarna má strax greina rauða þráðinn í stefnu Skúla seinna. í bæklingunum er ekki bara gagnrýnt heldur einnig settar fram tillögur að umbótum á námsefni og kennslufyrirkomulagi. Velvakendur boða nýja umgengishætti sem bera keim af þeirri uppeldisfræði sem var að ryðja sér til rúms um þessar mundir og byggist á jafnréttishug- sjón frönsku byltingarinnar. Það má segja að í bæklingum þessum komi fram nýr straumur í skólamálum á íslandi. Stríðsbœklingar í herskáum stíl Bæklingurinn Fram, fram bændur og búalið! er almennari eðlis. Hann er mjög gagnrýninn á stjórnkerfið og þjóðfélagshætti og eru embættis- mennirnir teknir sérstaklega fyrir og gagnrýndir harkalega fyrir að vera ekki nógu ötulir forvígismenn þjóð- arinnar, bæði út á við og í framfara- átt. Þessa ádeilu á embættismennina má rekja til Jóns Sigurðssonar. Ástæða þess að spjótunum var eink- um beint að embættismönnum var sú að hér var engin eiginleg borgara- stétt. Menntamennirnir urðu flestir embættismenn og kom því í þeirra hlut að hafa forgöngu fyrir þjóðinni. Þetta voru stríðsbæklingar og skrifaðir í herskáum stíl sem Skúli hélt svo áfram er hann hóf útgáfu Þjóðviljans. Dönsk stjórnmál Skúli var mikill áhugamaður um pólitík og sótti fundi hjá sósíaldemó- krötum sem eru að koma frani á sjónarsviðið um þessar mundir. Þetta var mjög strítt tímabil og mikil átök í dönskum stjórnmálum. Hægri stjórn var við stjórnvölinn og stjórn- aði hún einkum með bráðabirgða- lögum því hún hafði ekki meirihluta í fólksþinginu. Þá hrífst Skúli mjög af skrifum Viggos Hörup, sem seinna stofnaði dagblaðið Politiken. Hörup var rit- færasti blaðamaður Danmerkur um þessar mundir og breytti hann danskri blaðamennsku með skrifum sínum. Pólitísku greinarnar hans voru á langtum hærra stigi en gengur og gerist og beitti hann háðskum tón á listrænan hátt. Hann var mjög gagnrýninn og hafa margar greinar hans staðist tímans tönn, sem óvana- legt er með pólitískar greinar. Þær hafa verið gefnar út í bók og eru afburðagott lesefni. Þetta eru klass- ískar pólitískar greinar í herskáum tón. Skrif Hörups höfðu áhrif á marga íslendinga í Kaupmannahöfn og þeirra á nteðal Skúla. Á vegamótum Þegar Skúli kemur aftur heim 1884 er hann á vegamótum. Hann kemur heim til íslands í mars og fær inni hjá Jóni Árnasyni og Katrínu móður- systur sinni. Á heimilinu hittir hann Theodóru Guðmundsdóttur og felldu þau strax hugi saman. Skúli var á sömu vegamótum og allir námsmenn sem komu aftur heim. Þó menn séu gagnrýnir á kerf- ið og róttækir á námsárunum kemur alltaf upp spurningin hvort þeir haldi sínu striki eða falli inn í kerfið. Marg- ir féiaga hans í Velvakanda féllu inn í kerfið þegar þeir settust í sín emb- ætti, enda áttu embættismenn allt undir stjórnvöldum með stöður sínar. Skúli hélt hinsvegar sínu striki og má merkja af blaðaskrifum hans og bréfaskrifum að honum daprast hvergi flugið og fylgir honum alla tíð sami stríðsandinn. Til ísafjarðar Til að byrja með er Skúli við mál- flutningsstörf í Reykjavík en Magn- ús Stephensen setur hann svo til að rannsaka embættisrekstur og fjár- málaóreiðu Carls Fensmark, sýslu- 10 SÍÐA - ÞJÓÐVILJINN Sunnudagur 24. ágúst 1986 Frú Theodóra Thoroddsen, eiginkona Skúla. Það var hún sem gaf hinu nýja málgagni sósíalista leyfi til að nota Þjóðviljanafnið „Ég hef sett mér að radikalísera ísfirðinga dálítið og um fram allt setja fjör í þá,“ sagði Skúli Thoroddsen í bréfi. manns á ísafirði. Er hann settur sýslumaður á meðan á rannsókninni stendur. Um haustið fer hann suður á Bíldudal og nær í konuefni sitt Theodóru og er brúðkaup þeirra gert í Otradalskirkju. Þau settust svo að á ísafirði og komust 12 barna þeirra upp en eitt lést kornungt. Um þessar mundir var mikill gróska á ísafirði. ísafjarðardjúp var kallað gullkistan og var búið í hverri vík og á öllum nesjum í Djúpinu. Útgerð var í örum vexti og á ísafirði voru sterkar verslanir, svokallaðar selstöðuverslanir. Ásgeirsverslun var t.d. ein stærsta verslun landsins. Á ísafirði voru því um þessar mundir að myndast stéttaandstæður þéttbýl- isins, en þar bjuggu þá 830 manns eða um fjórðungur af íbúafjölda Reykjavíkur um sama leyti. Prentleyfi hafnað Strax og Skúli flyst vestur fer hann að huga að útgáfu blaðs. ísfirðingar höfðu áður velt þeim möguleika fyrir sér en ekkert orðið úr því. Skúli hef- ur samband við ýmsa heimamenn um stofnun blaðs. Séra Sigurður Stefánsson í Vigur, sem var bekkjar- bróðir Skúla úr Latínuskólanum, verður hans hægri hönd í blaðamál- um og seinna á þingi, en séra Sigurð- ur varð þingmaður árið 1886. Til að gefa út blað þurfti að hafa prents- miðju og er ákveðið að stofna hlutafélag um kaupin. Vorið 1886 er svo pantað gamalt prentverk frá Danmörku og sækir Skúli um kon- ungsleyfi fyrir prentsmiðju. Umsókn Skúla fer um hendur Magnúsar Stephensen. Hann vísar því til Jóns Péturssonar landshöfð- ingja með þeim ummælum að það samrýmist ekki stöðu Skúla sem sýslumanns að gefa út blað, þar sem að hann eigi að hafa eftirlit með því að lögum sé framfylgt og þar með töldum prentlögum. Jón er sama sinnis og Magnús og sendir bréfið til ráðherra, sem synjar umsókninni. ísfirðingar eru ekki sáttir við þessa niðurstöðu og nú er sótt aftur um prentleyfi og er það séra Þorvaldur Jónsson á ísafirði sem skrifar undir umsóknina. Yfirvaldið fyrir sunnan hafði ekkert út á það að setja og leyfið fékkst. Þjóðviljinn kemur út „Heiðruðu landar. Seint koma sælir og koma þó megum vér segja. Vér erum orðnir ofurlítið seinni á oss en ætlað var í fyrstu. En hvað um það? Þjóðviljinn brýzt nú fram, er hann hefir unnið sigur á hinni fyrstu mótspyrnu. Vér vonum, að hann muni og verða sigursæll síðar í svipt- ingunum..." Þetta voru upphafsorð fyrsta tölu- blaðs Þjóðviljans, sem kom út 30. október 1886. Einsog sjá má þá fer blaðið strax geyst og er tónninn her- skár, enda hófust strax ýfingar meðal hluthafa blaðsins eftir útkomu þessa tölublaðs. Seinna í sömu grein segir orðrétt: „Það eitt getum vér sagt, að blað vort mun verða stefnufast, því að stefnu- laust blað er að vorri hyggju eins og stefnulaus maður, hvorttveggja til lítillar uppbyggingar í lífinu'1. En hluthafarnir voru ekki allir á eitt sáttir með stefnu blaðsins og segir séra Þorvaldur sig strax úr stjórn. Líkaði honum ekki sá herskái tónn sem var á skrifum Skúla. Svo var og um fleiri og héldu deilurnar áfram innan stjórnarinnar þar til Skúli eignaðist sjálfur blaðið árið 1892. Gagnrýnið framfarablað Aðalhlutverk blaðsins var að mati Skúla að vera pólitískt herskátt og gagnrýnið framfarablað. Fréttaþjón- ustuhlutverkið var aukahlutverk blaðsins. Blaðinu var ekki ætlað að vera til skemmtunar heldur fyrst og fremst að vera baráttublað. Þjóð- málin skipuðu fyrsta sætið en allt annað kom þar á eftir. Blaðinu var ætlað að efla pólitískt uppeldi þjóðarinnar og vekja áhuga alþýðu manna á stjórnmálum. Taldi Skúli mikilvægt að almenningur fylgdist með í stjórnmálum því: „Barátlan hefur vekjandi áhrif“, einsog hann sagði sjálfur. ísfirðingar radikalíseraðir Hann taldi fyrir neðan allar hellur að lýsa yfir pólitísku áhugaleysi, taldi slfkt viðriðnishátt því stjórnmálin kæmu öllum við. En áhugann þurfti að skapa og það var hlutverk Þjóð- viljans: „Ég hef sett mér að radikalís- era þá (þ.e. ísfirðinga) dálítið og um fram allt setja fjör í þá“, segir á ein- um stað í bréfum Skúla. Einsog sjá má á upphafsorðunt Þjóðviljans er lögð mikil áhersla á stefnufestu. Skúli kvartaði mjög um losarabrag í íslenskum stjórnmálum. Þá leggur hann mikla áherslu á að blaðið eigi að vera gagnrýnið. Skoðun hans á gagnrýni kemur vel fram í svari hans í Þóðviljanum unga 8. febrúar 1896, þar sem hann svarar ásökunum Magnúsar Stephensen, landshöfðingja, um að hann (Skúli) haldi uppi römmustu æsingum gegn stjórninni: „...Vér segjum heiður, af því að því fer svo fj arri, að vér telj um nokk- uð ljótt eða ósæmilegt í því að vekja óánægju með ýmsar óþjóðlegar at- hafnir stjórnarinnar, sem til þess eru vel fallnar að vekja óánægju, að vér myndum þvert á móti þykjast maður að meiri, ef vér í sannleika ættum þann vitnisburð skilið, að vér hefð- um getað áorkað eitthvað lítið í þá áttina. Hvers vegna? Af þeirri eðlilegu orsök, að óá- nægjan er fyrsta skilyrði eða frum- móðir allra umbóta og framfara." Gegn Dönum en með lýðrœði og mannréttindum Baráttumál blaðsins eru einkum tvennskonar. Annarsvegar gegn yf- irráðum Dana á íslandi í hvaða mynd sem þau birtast í stjórnarfari, menn- ingu og atvinnulífi. Það er stærsta baráttumálið að íslendingar ráði yfir sjálfum sér, en að mati Skúla ráða íslendingar ekki eigin húsum ef er- lend stjórn fer nteð völdin. Það ber því að efla Alþingi til að draga stjórnarfarslega og efnahagslega tauma úr höndum Dana og það sama gildir um menningarmálin. Annað sem einkennir málflutning Skúla er baráttan fyrir lýðræði og mannréttindum. Styðst hann við hugsjónir frönsku byltingarinnar um frelsi, jafnrétti og bræðralag. Lýð- ræðinu er ætlað að koma í stað þess fámennisvalds skriffinna sem ríkir hér á landi. Hann ákallar alþýðu manna og hvetur hana til að berjast fyrir réttindum sínum en þannig vill hann skapa afl sem getur tekist á við og barist gegn fámennisvaldinu sem ríkti hér. Barátta Skúla beindist því annars- vegar gegn yfirvöldum, dönsku stjórninni og embættismönnum hennar og hinsvegar stundaði hann pólitískt hvatningastarf sem stefndi að því að efla alþýðu manna. Honum tókst að vekja stéttarvitund bænda og hluta íbúa kaupstaðarins þannig að þeir fylgdu honum að málum. Kaupfélagið og þingmennska Skúli var einn af forystumönnum um að stofna kaupfélag á Isafirði árið 1888 og gerðist hann síðar kaupfélagsstjóri. í kaupfélaginu fær hann félagslegan bakhjarl sem hann teflirgegn verslunareigendum. Þessi bakhjarl nýtist honum svo vel þegar hann býður sig fram til þings á lsa- firði 1892, sama ár og Skúlamálið svokallaða hófst. Skúli hafði reyndar áður setið á þingi fyrir Eyfirðinga en þeir kusu hann 1890 til að gegna þingstörfum fyrir sig og sat hann þingið 1891 sem þingmaður þeirra. Áður en hann liélt til þings sendi hann þeim prent- að ávarp, þar sem stefnumá! hans voru tíunduð, en slíkt var einsdæmi um þær mundir og segir það mikið um manninn. Hann vildi að kjósend- ur sínir vissu fyrir hvað hann stæði og hvers þeir mættu vænta af honum. Þegar Skúlamálið hófst, sem ekki verður rakið hér því það væri efni í annað viðtal ekki smærra í sniðum en þetta um Skúla og Þjóðviljann, en þegar þessi málaferli hófust, og Magnús sendi ntann vestur til að rannsaka embættisferil Skúla, ákvað Skúli að bjóða sig fram til þings fyrir ísfirðinga til að styrkja sig heinta í héraði. Baráttan fyrir jafnrétti Á Alþingi er Skúli einn harðasti baráttumaður fyrir jafnrétti allra þegna þjóðfélagsins, kvenna, hjúa og verkamanna. Hann vill að allir þegnarnir séu jafnréttháir að lögum og taki jafnan þátt í að móta þjóðfé- lagið. Hann er þeirrar skoðunar að lýðræðið fái ekki þrifist nerna allir séu jafnréttháir hvar sem þeir standa í þjóðfélagsstiganum. Hann beinir því spjótum sínum að þrepaskipulagi þjóðfélagsins þar sem réttindi manna fara eftir efnahag, menntun, ætterni og öðru slíku. Hann teflir lýðræðishugmyndinni gegn fámenn- isvaldinu og tókst að koma í gegnum þingið fjölda frumvarpa sem miðuð- ust að auknu jafnrétti. Þegar Skúli gerist þingmaður höfðu um 10% þjóðfélagsþegnanna kosningarétt en aðeins um þriðjung- ur þessara 10% neyttu réttar síns. Þorri þjóðarinnar tók því ekki þátt í pólitísku starfi. Pólitísk starfsemi var lítil og var henni einna helst haldið gangandi í blöðum og tímaritum. Fundahöld voru fátíð, víða vantaði samkomuhús og ótal margir sáu aldrei blað. Auk þess gerði fátæktin og brauðstritið hjá öllum þorra manna það að verkum að lítill tími var aflögu til að starfa pólitískt. Þá var landið mjög dreifbýlt og sam- göngur erfiðar. Allt þetta olli því að mjög erfitt var að halda uppi póli- tískri starfsemi í landinu. Mótspyrna yfin/alda Skúli háði sína stjórnmálabaráttu á tveim vígstöðum, annarsvegar á Alþingi og hinsvegar í Þjóðviljanum. Öll gagnrýni hans vekur upp mót- spyrnu yfirvalda og þeirra sem meira mega sín í þjóðfélaginu því Þjóðvilj- inn var róttækasta og herskáasta blað landsins og hlífði engum. Þjóð- viljinn var því illa þokkaður af mörg- um. Skúlamálið bar líka keim af pólit- ískum ofsóknum, en það varð til þess að Skúli var sviptur sýslumannsem- bættinu í ísafjarðarsýslu 1895 og sneri sér alfarið að kaupfélaginu auk blaðaútgáfunnar. Um aldamótin flyst hann svo suður á Bessastaði og er með eigin verslun vestra auk þess sem hann gefur Þjóðviljann út áfrant. í Reykjavík lætur hann reisa húsið númer 12 við Vonarstræti og sest þar að 1908 með prentsmiðju sína og blað. Þjóðviljinn ungi Árið 1891 skipti Þjóðviljinn um nafn er Skúli eignaðist blaðið eftir harðvítugar deilur við nokkra hluthafanna og ntálaferli sem tengd- ust þeim. Frá 1891 til 1898 er blaðið gefið út undir nafninu Þjóðviljinn ungi. Þá er Þjóðviljanafnið tekið aft- ur upp og kemur blaðið út undir því nafni allt til 1915 að blaðið hættir útkomu. Skúli var þá búinn að missa heilsuna og átti stutt eftir ólifað. Hann lést 21. maí 1916. Þjóðviljinn kom út á viku- til hálfs- mánaðar fresti. Var blaðið 4 síður og var Skúli sjálfur mikilvirkasti penni blaðsins en séra Sigurður í Vigur var einnig ötull í skrifum framan af. Var blaðið gefið út í 6-700 eintökum, sem var há upplagstala á þessum árum miðað við að þarna var um að ræða blað sem gefið var út á landsbyggð- inni. Þjóðviljinn er fyrsta og kannski eina blaðið utan Reykjavíkur sem hefur haft virkileg áhrif. Önnur blöð úti á landi hafa yfirleitt verið mjög staðbundin en Þjóðviljinn var eitt af þjóðmálablöðunum. Blaðið varð enda þjóðkunnugt fyrir skoðanir sínar. Gagnrýninn fram á síðasta dag Skúli var einn af þeim mönnum sem var staðfastur í skoðunum sínum og þær breyttust ekkert þrátt fyrir að aldurinn færðist yfir hann. Hann hélt sínum upptekna hætti og gagnrýndi yfirvöld allt fram á síðasta dag og þessi herskái tónn hélst á blaðinu þar til það hætti útkomu. Það var einna helst að gagnrýnin dempaðist örlítið á árunum 1904-1908 en þá skrifaði Skúli sjálfur lítið í blaðið. Þegar hann tók svo aftur upp pennann hafði honum ekkert förlast flugið, enda bjó ísland við erlent vald og alþýðan við misrétti og því sjálfsagt að brýna fólk til baráttu fyrir þjóð- frelsi og jafnrétti. Stjórnmálin voru að dómi Skúla lífið sjálft, þar sem þau vörðuðu hag og heill hvers ein- asta manns. Stjórnmálabaráttan væri háð til þess að nema burt þjóð- félagsmeinin og sú barátta væri eilífðarverk, enda sagði hann í Þjóð- viljanum 1912: „Vér megum eigi né getum vænst baráttulauss lífs“. -Sáf Sunnudagur 24. ágúst 1986 ÞJÓÐVILJINN - SIÐA 11

x

Þjóðviljinn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.