Þjóðviljinn - 24.08.1986, Qupperneq 20

Þjóðviljinn - 24.08.1986, Qupperneq 20
Stendur heima, stýft og gagnbitað Marka-Leifi tekinn tali í síöasta sunnudagsblaði Þjóð- viljans var nokkuð sagt frá Hjör- leifi Sigfússyni, Marka-Leifa. Var jafnframt látið að því liggja, að e.t.v. myndi síðar birtast hér í blaðinu viðtal, sem tekið var við Leifa þegar hann bar að garði á Frostastöðum og bauð mér vind- ilinn fyrir 25 árum. Fer nú spjall okkar hér á eftir. Og nú er hann kominn hér heim á hlað til mín, þessi kynja- kvistur, og farinn að gæða sér á vindlunum sínum áður en mér hefur gefist ráðrúm til þess að bjóða honum í bæinn. - Hvað heldurðu að ég sé búinn að reykja marga vindla frá þér um dagana, Leifi? - Ég veit það ekki. Þeir eru nú varla margir. Ég tel ekki svo- leiðis. Ætli þeir séu þá ekki hvort sem er gerðir til þess að reykjast. Ég finn að það er vonlaust að ætla að hnekkja svona rök- semdum og við löbbum inn. - Ertu nú ekki til með að segja mér eitthvert hrafl af ævisögu þinni, Leifi, og jafnvel lofa mér að birta það kannski ein- hverntíma á prenti? -O, sussu nei, góði minn, ekki hægt, ekki hægt. Fyrst og fremst er nú mín ævisaga ekkert merki- leg og svo, - á prenti, nei, það dugar ekki, það dugar alls ekki, skal ég segja þér. Ég er ekki orð- inn nógu minnisgóður. Man þetta ekki nógu vel í samhengi, og það verður að fara rétt með, um að gera að fara rétt með. - Ekki ertu þó farinn að tapa minni á mörkin? - Jæja, nei, kannski ekki svo mjög, en það er allt annað. Það er eins og það komi af sjálfu sér að muna þau. Það er þægilegra að muna mörk en nokkuð annað. Fimm merkur við fœðingu - Mér finnst ég reyndar muna ýmislegt nokkuð vel frá uppvaxt- arárunum, já, og meira til. Ég held ég geti t.d. talið upp alla bæi þar sem ég hef verið til heimilis og eru þeir þó orðnir nokkuð margir, enda leiðin orðin býsna löng, o-já. Ég er fæddur á Stóru-Ökrum í Blönduhlíð. Var tvíburi og þótti að vonum enginn merkispening- ur þegar ég kom í heiminn, einar 5 merkur, aðeins rúmlega hálf- drættingur við Jónas tvíbura- bróður minn, því hann var þó 9 merkur. Hann dó eftir viku en ég, sem var þó sýnu ómerkilegri, lifi enn. Svona vildi nú guð hafa það. Kannski hefur hann viljað láta mig lifa til þess að fást við bless- aðar skepnurnar. Já, það er nú hætt við því. Maður botnar ekki mikið í svoleiðis löguðu. Frá Ökrum fór ég með mömmu í Víðimýri, til sr. Jakobs heitins Benediktssonar. Þaðan í Húsey. Átta ára fór ég frá Húsey í Hafgrímsstaði og var þar smali í eitt ár. Þaðan fór ég í Starrastaði og var þar smali í annað ár. Frá Starrastöðum í Mælifellsá. Nú, nú, svo var ég hér og þar. Hjá sr. Jóni Magnússyni á Mælifelli var ég í tvö ár. Gaman þar. Ungt fólk og skemmtilegt og mikið fjör. Þar var Kristbjörg Marteinsdóttir, sem seinna giftist Sigurði í Ysta- Felli. Ég kom einu sinni til þeirra hj óna í Ysta-Felli. Þar var gott að koma. Þá var ég £ innheimtutúr austur um sýslur fyrir Svein heitinn á Mælifellsá. Og svo var ég hjá sr. Jóni í þrjú ár eftir að hann flutti að Rípu. Á Sjávarborg var ég í fjögur ár, hjá Pálma heitnum Péturssyni. Þá byrjuðu mínar suðurferðir, sem síðan eru orðnar nokkuð margar. Fór með stóð. Mark- aðshross. Já, það var leiðinlegt að vera að selja þessi blessuð hross úr landi. Það var sagt að mörg þeirra lentu í kolanámum hjá enskinum og væri farið illa með þau. Ég veit það nú ekki. Ég vil trúa því, að þau hafi hlotið góða meðferð. Það er voðalegur glæpur að fara illa með blessuð dýrin. Sem betur fer gera það fáir. Vonandi engir, núorðið. En það er sama. Ég er hræddur um að hrossunum hafi leiðst, þótt vel hafi verið farið með þau. Held- urðu ekki að þau hafi saknað frelsisins og fegurðar öræfanna íslensku? Heldurðu ekki að þau hafi stundum hugsað um vornæt- urnar heima? Því þau hugsa, hrossin. Það gera allar skepnur. Já, miklu meira en sumir menn. En skepnurnar hugsa aldrei nema um eitthvað fallegt. Það er nú það. Blessuð dýrin. Nú, nú, um hvað vorum við nú að tala? Já, Sjávarborg.- Svo var ég í Glæsibæ hjá Sigurjóni Berg- vinssyni og Ónnu konu hans, Þorkelsdóttur frá Flatatungu. Þau fóru til Ameríku. Leiðinlegt hvað margir fóru til Ameríku. Tvö ár var ég í Glaumbæ hjá Birni, sem síðar var lengi á Seylu. Og eitt ár hjá Albert á Páfastöð- um. Sitt árið var ég á hvorum staðnum Efrakoti og Skíðastöð- um. Jónas heitinn, sem síðar var á Álfgeirsvöllum, var þá í Efrak- oti en Hannes Pétursson, faðir Pálma rektors og þeirra systkina, á Skíðastöðum. Éitt ár var ég á Krithóli hjá Jóni Ólafssyni og fjögur ár hjá Ólafi heitnum Briem á Álfgeirsvöllum. Síðar var ég svo aftur tvö ár á Ál- fgeirsvöllum. Horfið ó vit Húnvetninga - Varstu svo ekki um eitt skeið í Húnavatnssýslu? - Jú, ég held nú það. Tuttugu ár, ekkert minna. Þar var ég nú raunar ekki víða. Miklu minni flækingur á mér en í Skagafirði. Af þessum 20 árum í Húnavatns- sýslu var ég 15 ár á tveimur bæj- um: 7 ár hjá Pétri á Bollastöðum og 8 hjá Páli á Guðlaugsstöðum. Pállvar fjármargur. Hann hafði um 600 fjár. Það var afbragðs fé og vel með farið. Margar tví- lembdar. Og alltaf hafðar sér í húsi. Halldór var þá stráklingur. Hann var óskaplega glöggur. Þekkti hornin af ánum eftir að búið var að lóga þeim. - Jæja, bíddu nú við. Tvö ár var ég í Brattahlíð hjá þeim merka manni Jónasi Illugasyni og þrjú ár í Austurhlíð hjá Sigurjóni. Hann var faðir Jóns Baldurs, sem lengi var kaupfélagsstjóri á Blönduósi. Eftir þessa 20 ára útivist kom ég aftur í Skagafjörðinn. Og síð- an hef ég átt heima í Álftagerði hjá Ólafi bróður mínum og nú í Hátúni hjá þeim mætu hjónum, Gunnlaugi og Ólínu. Hvað eru þetta nú orðnir margir bæir? - Sjáum nú til. Líklega einir 23. - Tuttugu og þrír, jæja, ætli það sé þá ekki komið? Alltaf lausakall - Og hefurðu nú stundað öðru fremur einhver sérstök störf í þessum vistum? - Jæja, ég hef nú urinið hvað sem fyrir hefur komið en þó mest við fjárgeymslu. Það hefur mér líka þótt skemmtilegast. - Óg mörgum ertu nú búinn að kynnast um dagana? - Já, sussu já, mörgu fólki. Og góðu fólki. Hef yfirleitt ekki kynnst nema góðu fólki. - Það hljóta að hafa verið margar fallegar heimasætur á þessum bæjum, sem þú hefur dvalið á. Varstu aldrei skotinn í neinni þeirra? - Jú, mikil ósköp, margar fal- legar, já, gullfallegar. Og skotinn, þú spyrð að því, blessað- ur, það er von, það gengur nú þannig til. Mér þótti svo sem obbolítið vænt um þær ýmsar, en skotinn, ekki man ég nú eftir að það hafi nokkurntíma orðið til- finnanlegt. Nei, ég hef alltaf ver- ið lausakall. Alltfa einn að skrölta, - þannig lagað. Enda lengst af við fjárrag. Fimmtán sinnum í undanreið - Hvað varstu gamall þegar þú fórst fyrst í göngur? - Ellefu ára, svarar Hjörleifur viðstöðulaust. - Var þá á Mælifellsá. Fór fyrir Ólaf Briem áÁlfgeirsvöllum. Fór á Eyvindarstaðaheiði. Var í svo- nefndum „Austflokk". Þú kann- ast við það. Var einhesta, enda ekki ýkja þungur. En þetta var afbragðs hestur. Grákinnóttur, þýður. Hafði meðferðis heila pottköku handa honum. Fengum ágætt veður. Þetta var hreinasta skemmtiferð, eins og göngur eru nú oftast, já, að minnsta kosti þegar maður lítur til baka. Ég held nú það. Síðan hef ég ótal sinnum farið í göngur. Þessi 7 ár, sem ég var hjá Pétri á Bollastöð- um, fór ég 14 sinnum í göngur fyrir hann. Og 15 sinnum hef ég farið í undanreið í Gránunes. Undan- reiðarmenn gengu einn dag með Árnesingum. Svo var dregið sundur í Gránunesi. Þannig gekk það til áður en pestargirðingarn- ar komu og tóku fyrir samgang fjár af Norður- og Suðurlandi. Érá þessum árum á ég marga kunningja suður í Biskupstung- um: Jörund frá Skálholti, Sigurð Greipsson, Guðmund á Efri- Reykjum, svo að einhverjir séu nefndir. Og það var alltaf veisla hjá Árnesingum. Og mikið sung- ið og með röddum. Tungnamenn voru góðir söngmenn og við gát- um nú tekið undir, Norðlending- ar, o-já. Ja, bassinn hans Bjarna á Bóli. Aldrei gleymi ég honum. Hann var stórkostlegur. Hann gengur næst Benedikt heitnum á Fjalli, þeirra bassamanna, sem ég hef heyrt til. Og glöggir voru þeir. Alveg hárglöggir. Ég man ekki til að eftir yrði kind að sunnan nema einu sinni. Það var lamb, sem Ingvar í Halakoti átti. Það þótti þeim ansi snubbótt. - Þú hefur nú sennilega ekki tafið sundurdráttinn? - Ja, maður gerði það, sem maður gat. Það gerðu allir. Einu sinni þótti drátturinn ganga venju fremur seint. Ég var ofboðlítið lasinn og lá inni í tjaldi. Allt í einu kom gangnaforinginn askvað- andi til mín með kaffi og svolítið út í það. Óg ég upp. Það var ekki hægt að liggja inni í tjaldi þegar maður hafði fengið kaffi og út í það. Jafnvel ekki þótt maður væri dálítið lasinn. Ég skal ekki for- taka að drátturinn hafi gengið eitthvað betur eftir að ég kom. En ég held að það hafi ekki beinlínis verið mér að þakka. Ég held, að það hafi stafað af því, að nú vantaði engan í hópinn. Menn eru glaðari þegar engan vantar í hópinn. Og þegar menn eru glað- ir gengur verkið vel. Þarna voru veturgömul gimbur og lamb, sem vafi þótti leika á hvaðan væru. Ég sagði þau vera norðan úr Víðidal en mundi ekki í svipinn frá hvaða bæ og taflan inni í tjaldi. Hún var sótt. Jú, kindurnar voru frá Dæli í Víðidal. Engan má meiða Hjörleifur hefur farið fjöl- margar ferðir suður yfir öræfi, sem fylgdarmaður, bæði útlendra og innlendra ferðamanna. En þær ferðir eru svo sem ekk- ert frásagnarverðar, segir hann, - þó að stundum hafi oltið á ýmsu. Það vill svo til, að mér er kunnugt um að á þeim ferðalögum hefur hann oftar en einu sinni bjargað mönnum úr bráðri lífshættu með fyrirhyggju sinni og útsjónar- semi. En hann vill ekki að neitt sé skrifað um það, þótt hann segi mér sitt hvað frá þeim ferða- lögum. - En ég er hræddur um að ég geti ekki sagt frá þessu án þess að það meiði einhvern, bætir hann við. Seinast nú fyrir örfáum vikum fór Hjörleifur aleinn suður um fjöll með hesta fyrir kunn- ingja sinn. Það situr blýfast - Áttu ekki orðið mikið safn af markaskrám? - O-jú, það er dálítð, sem ég á af þeim. Og Hjörtur minn á Mar- bæli hefur bundið töluvert af þeim fyrir mig. Þær eru víðsvegar að af landinu. Þeir eru að senda mér þetta svona til þess að horfa á það. - Og gengur vel að muna mörk- in ennþá? - Já, sæmilega og eins að læra ný. Og boðum, bréfum eða pen- ingum, sem ég er beðinn fyrir, gleymi ég ekki. Það situr allt fast, blýfast. - Nú ert þú 89 ára, Leifi, ætl- arðu í réttirnar í haust? - Já, ætli þaðekki, já. Verði ég við sömu heilsu hef ég hugsað mér það. - Undarlegt er annars hvað sumar skepnur geta flækst langt. Til dæmis tvílembda ærin, sem kom fyrir í Mælifellsrétt fyrir nokkrum árum. Hún fannst uppi í Jökulkrók og var óþæg. Auðvit- að rammvillt. Enginn kannaðist við markið og það lá ekki á lausu í markaskrám. Jóhannes hrepp- stjóri á Reykjum sagði að ég yrði að finna eiganda að þessum kind- um. Ég fór að grúska í mínum markaskrám. Og loks fann ég markið í töflu, sem ég fékk einu sinni hjá Birni heitnum í Grafar- holti. Ærin var sunnan úr Grindavík. Og komin norður í Mælifellsrétt. Það er nú meira röltið. Og hvernig var það með kollóttu ána hans Sigurðar í Borgarfelli, sem tapaðist þriðju- daginn síðastan í vetri? Um haustið kom hún fyrir austur í Vopnafirði. Hún hefur hlotið að fara með jöklum. Eða hryssurnar tvær, heimaldar, frá Bjarna- staðahlíð og Litlu-Hlíð? Þær hverfa allt í einu að heiman og finnast loks austur á Fosshóli. Nei, það skal enginn taka fyrir það hvað skepnan getur farið. - Jú, ég er að hugsa um að fara í réttirnar í haust. Hver veit nema hægt verði að greiða eitthvað fyrir einni og einni kind. Eða hrossi. Og ég er ekki viss um að það sé rétt af guði að láta mig lifa lengur en það, að ég geti farið í réttirnar. Nei, ég er alls ekki viss um það. -mhg „Ég er ekki viss um að það sé rétt af guði að láta mig lifa lengur en það, að ég geti farið í réttirnar". Hjörleifur Sigfússon með eina markaskrána, kannski þá frá Birni í Grafarholti.

x

Þjóðviljinn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.