Þjóðviljinn - 21.09.1986, Page 14
Jólaplötuflóðið
Á leið
undir
nálina
Ný plata með Bubba, önnur
með Mezzoforte, Sinfónían með
íslensk dægurlög, Gammarnir
lyfta sér aftur til flugs, Sykur-
molar, Richshaw og Bjöggi Hall-
dórs. Þetta er örlítið brot af þeirri
tónlist sem væntanleg er pressuð í
vínil núna fyrir jólin. Og upp úr
áramótum mun hljómsveitin
Strax, Stuðmenn endurbornir til
útflutnings, gefa út hljómplötu á
erlendum vettvangi og sömu-
leiðis mun platan hans Bubba
koma út á ensku í eitthvað
breyttri útgáfu. Heimsfrægðin
kitlar einnig Björgvin Halldórs-
son því sólóplata hans mun koma
út bæði á íslensku og ensku.
Með haustinu fer yfirleitt að
færast líf í plötuútgáfuna, sem
nær svo hámarki í jólagjafahas-
arnum. Okkur lék forvitni á að
vita á hverju íslenskir hlustendur
ættu von þetta haustið og höfðum
samband við nokkra hljómplötu-
útgefendur. Einsog endranær var
mest um dægurtónlist að ræða þó
inn á milli leynist einstaka jass-
plata, barnaplata og glens.
Sér á báti
Grammið hefur töluverða sér-
stöðu meðal íslenskra hljóm-
plötuútgefenda. Það hefur yfir-
Ieitt tekið upp á arma sína tón-
iistarmenn, sem hafa notað sam-
neyti sitt við tónlistargyðjuna í
skapandi tilgangi en ekki sem að-
göngumiða að vinsældalistum, þó
einstaka sinnum geti þetta tvennt
farið saman.
Ásmundur Jónsson, hjá
Gramminu, sagði að ýmislegt
væri á döfinni hjá þeim. í lok
þeirrar viku sem nú var að líða,
var væntanleg ný hljómplata með
bandaríska trompetleikaranum
Leo Smith, sem nokkru sinnum
hefur heimsótt okkur. Heitir
platan Human rights. Tvö verk á
plötunni eru hljóðrituð hér.
Ásmundur sagði að platan væri
innlegg í frelsisbaráttu svartra í
Suður-Afríku, en flest lögin fjalla
um kynþáttaofsóknir.
í sumar gaf Grammið út trúba-
dúrplötu Bubba Mortens, Blús
fyrir Rikka og hefur hún selst
mjög vel að sögn Ásmundar. 1.
nóvember er svo áætlaður út-
komudagur rokkplötu Bubba,
Frelsi til sölu, sem hann hefur
unnið að í Svíþjóð í samvinnu við
bassaleikara hljómsveitarinnar
Imperiet, Christer Falk. Frelsið
mun svo koma út með enskum
textum eftir áramót, en sú útgáfa
verður töluvert ólík íslensku út-
gáfunni.
„Bubbi er alveg sér kapítuli í
íslenskri rokksögu,“ sagði Ás-
mundur. „Það hefur enginn hald-
ið jafn lengi út og hann og stöðugt
getað endurnýjað sig á sama hátt.
Allar plötur hans eru ólíkar inn-
byrðis þó alltaf þekkist yfirbragð-
ið á þeim, að þar fer Bubbi.
Rokksveit Bubba MX21 mun
kynna nýju plötuna á tónleikum í
Austurbæjarbíói 4. október.
Þetta eru fyrstu eiginlegu tón-
leikar Bubba í Reykjavík í tvö ár.
Þeir hefjast á því að Bubbi flytur
nokkur lög sem trúbadúr, þá
koma fram hljómsveitir. Eftir hlé
birtist svo MX21 og flytur tónlist-
ina af Frelsi til sölu.
Annað sem Grammið sendir
frá sér í haust er seinni Ijóðakass-
ettan, en í fyrra kom út fyrri kass-
ettan. Á hvorri kasettu fyrir sig
flytja sjö ljóðskáld af yngri kant-
inum ljóð eftir sig og sum þeirra
með undirleik. Fylgir bók með
kasettunum. Spólan í fyrra seldist
upp og verður því endurútgefin
nú.
Þá er væntanleg tólf tommu
plata frá Hilmari Erni Hiim-
arssyni, sem ber nafnið Orna-
mental. Með honum leika bæði
innlendir og erlendir hljómlistar-
menn.
Þá hefur Grammið ákveðið að
dreifa nýrri plötu með Sykurmol-
unum, en þeir eru samansettir af
fyrrverandi Kuklurum og öðrum.
Sú plata á að koma út í nóvem-
ber.
Engin takmörk
„Plötusala er almennt að sækja
í sig veðrið,“ sagði Jónatan Garð-
arsson, hjá Steinari. „Hinsvegar
hefur munstrið á plötusölunni
breyst og núna seljast plötur á
lengri tíma en áður. Það sem upp-
úr stendur í plötusölunni er svok-
allað gáfumannapopp.
Á vegum Steinars kemur út ný
hljómplata með Mezzoforte upp
úr miðjum október, sem ber
nafnið No limits. Hófust upp-
tökur að henni sl. vor og er nú
verið að ljúka við hljómblöndun-
ina.
Jónatan taldi að þrjú lög á
plötunni gætu verið vænleg til
vinsælda en þau eru öll sungin af
Noel Mack Calla, sem söng This
is the night. Það eru tiltillagið,
No limit, Nothing lasts forever,
sem kemur út á smáskífu innan
þriggja vikna og Another day.
Önnur lög á plötunni eru í þyngri
jasskanti og má þar m.a. nefna
EG blúsinn sem hefur fylgt
Mezzo á hljómleikum í gegnum
árin.
Upptökustjóri á plötunni er
Nigel Wright og semur hann jafn-
framt tvo texta. Auk fjórmenn-
inganna sem mynda Mezzokjarn-
ann leika þrír ásláttarmenn m.a.
Jerome de Rijk, sem hefur verið
með piltunum nokkuð lengi og
enski saxafónleikarinn Phil
Todd.
Önnur plata sem Steinar hefur
ákveðið að gefa út er plata með
þremenningunum Karli Ágúst
Úlfssyni, Sigurði Sigurjónssyni
og Erni Árnasyni, úr Sama og
þegið hópnum. Þetta eru sketsar
og annað grín með tónlistarívafi.
Fleira vildi Jónatan ekki upp-
lýsa um útgáfuáform Steina.
Sagði að ákvörðun um útgáfu
væri oftast nær tekin á síðustu
stundu.
Nú í sumar komu út þrjár
plötur á vegum Steina og gengu
þær misvel. Plata Greifanna seld-
ist vel en hinar tvær áttu ekki eins
upp á pallborð kaupenda en það
voru Bjarni Tryggvason og þeir
félagar Pétur og Bjartmar.
Sinfónían rokkar
Hjá Skífunni fengust svipuð
svör og hjá Steinari, að enn væri
of snemmt að upplýsa um öll út-
gáfuáform en það sem þegar hef-
ur verið ákveðið er að seinni
hluta nóvember kemur út hljóm-
plata með Sinfóníuhljómsveit ís-
lands, þar sem hún leikur íslensk
dægurlög undir stjórn ensks
stjórnanda. Er ætlunin að hér
verði um svipaðar útsetningar að
ræða og hafa verið hjá Sinfóníu-
hljómsveit Lundúna á gömlum
sígildum rokkurum.
Þá sagði Óskar Þórisson, hjá
Skífunni, að fyrir jól væri væntan-
leg sólóplata með Björgvini Hall-
dórssyni og verður hún gefin út
bæði með enskum og íslenskum
textum, en ætlunin er að reyna að
dreifa henni erlendis. Á plötunni
verða bæði íslensk og erlend lög
m.a. eftir Björgvin sjálfan og Jó-
hann G. Jóhannsson. Er unnið að
upptökum í Hljóðrita um þessar
mundir.
Þá hefur verið ákveðið að gefa
út tvær safnplötur í tilefni af tíu
ára afmæli Skífunnar í haust.
Annarsvegar er um að ræða úrval
af barnaplötum Skífunnar og
hinsvegar tvöfalt albúm með
dægurlagatónlist, sem Skífan hef-
ur gefið út. Verður önnur í ró-
legri kantinum en hin meira á
stuðvængnum.
Gammar
á Geimsteini
Geimsteinn í Keflavík, er eina
útgáfufyrirtækið utan Reykjavík-
ur sem haft var samband við.
Rúnar Júlíusson sagði að væntan-
leg væri á markaðinn frá þeim ný
plata með Gömmunum, Gam-
mar II. Bjóst hann við að hún
kæmi út eftir tvær til þrjár vikur.
Er það frumsamin tónlist eftir
Gammana, Björn Thoroddsen,
Stefán S. Stefánsson og Þóri
Baldursson.
Rúnar sagði að þó tónlist Gam-
manna væri ekki líkleg til stórrar
sölu teldi útgáfan sér skylt að gefa
út fleira en það sem færi beint á
vinsældarlistana. Sagði hann að
plata þyrfti að seljast í þúsund til
tvö þúsund eintökum til að
standa undir; sér það væri því
stundum erfiður róður að ná
endum saman.
Annars sagði Rúnar að plötu-
og kasettusala hefði verið góð í ár
þó ekki væri um sömu upplög að
ræða og fyrir 10 árum er Lónlí blú
bojs voru upp á sitt besta.
Onnur útgáfa en Gammarnir
hjá Geimsteini er óráðin en hann
bjóst við að fyrirtækið gæfi út
eina til tvær plötur til viðbótar.
Nýlega kom út safnplatan Skýja-
borgir og hefur hún gengið
þokkalega.
Allt óráðið
„Það hefur ekkert verið ákveð-
ið endanlega um útgáfu hjá okk-
ur, “ sagði Halldór Ástvaldsson,
hjá Fálkanum. Sagði hann að
menn væru að velta ýmsum
möguleikum fyrir sér en enn væri
allt óráðið.
Eitt virðist þó nokkuð á
hreinu, en það er að Fálkinn mun
dreifa nýrri plötu með Richshaw,
sem Frostfilm gefur út.
í tilefni 200 ára afmælis
Reykjavíkur gaf Fálkinn út
Reykjavíkurflugur og sagði Hall-
dór að sú plata hefði gengið mjög
vel. Annars taldi hann að alltof
margar plötur væru gefnar út á
landinu og sl. ár hefðu fáar plötur
staðið undir kostnaði, en fyrir
jólin þá komu út um 50 hljóm-
plötur.
Plata frá Strax
Hljómsveitin Stuðmenn mun
ekki gefa út plötu á árinu, en
hinsvegar mun önnur hljómsveit
náskyld þeim gefa út plötu, sem
kemur þá jafnvel út í fleiri
löndum en á íslandi. Það er
hljómsveitin Strax sem varð til
vegna Kínaferðarinnar.
I Kínaferðinni unnu meðlimir
hljómsveitarinnar að töku
heimildarmyndar um það sem
fyrir vitin bar. Egill Ólafsson
sagði að kvikmyndin væri nú í
vinnslu í Bretlandi undir verndar-
væng BBC og væri væntanleg á
markaðinn í haust. Bjóst Egill við
að íslenska sjónvarpið myndi
kaupa sýningarrétt á henni hér
heima en auk þess verður reynt
að dreifa henni víða um lönd.
Fyrir um tveim árum unnu
Þursarnir að upptöku hljómplötu
sem enn hefur ekki Iitið dagsins
Ijós. Egill var spurður að því
hvernig á því stæði. Sagði hann
að hljóplötuútgefendur hefðu
ekki treyst sér til að gefa út slíka
plötu þá en hann sagðist vonast til
að platan kæmi út eða að minnsta
kosti hlutar af henni.
„Platan með Þursaflokkinum
var vel tilbúin undir tréverk en
það var einhver beygur í útgef-
endum við að gefa út þessa tón-
list. Þar sem við treystum okkur
ekki sjálfir að gefa hana út, rann
þetta út í sandinn. En þetta var
gott efni og féll í ágætis jarðveg
þar sem það var flutt og því lang-
ar okkur alltaf til að gera eitthvað
við upptökurnar.“
Hér hefur verið stiklað á ýmsu
af því sem tónlistarneytendur
eiga von á þegar skammdegið
leggst yfir. Þetta er langt því frá
að vera ítarleg úttekt. Það hefur
færst mjög í vöxt að undanförnu
að hljómsveitir hafa sjálfar gefið
út eigin plötur og því nánast óger-
legt að grafa allt upp. Þá eru
bókaútgefendur farnir að gefa út
plötur og ýmsir aðrir aðilar, t.d.
trúarsöfnuðir og átthagafélög.
-Sáf
IAUSAR STÖÐUR HJÁ
REYKJAVÍKURBORG
Droplaugarstaðir vantar starfsfólk í ræstingar á
hjúkrunardeild (III. hæð) strax. Upplýsingargefur
forstöðumaður, alla virka daga á milli kl. 9 og 12.
Sími 25811.
Umsóknum ber að skila til starfsmannahalds
Reykjavíkurborgar, Pósthússtræti 9, 6. hæð, á
sérstökum umsóknreyðublöðum sem þar fást.
LAUSAR STÖÐUR HJÁ
REYKJAVÍKURBORG
Staða Húsnæðisfulltrúa Félagsmálastofnunar
Reykjavíkurborgar er laus til umsóknar.
Starfið er fólgið í umsjón og eftirliti með leiguhús-
næði á vegum Félagsmálastofnunar Reykjavík-
urborgar svo og þátttöku í úthlutun þessa hús-
næðis. Allar nánari upplýsingar veitir félagsmála-
stjóri í síma 25500.
Umsóknum ber að skila til starfsmannahalds
Reykjavíkurborgar, Pósthússtræti 9, 6. hæð, á
sérstökum umsóknareyðublöðum sem þar fást
fyrir 3.10. n.k..
14 SÍÐA - ÞJÓÐVILJINN Sunnudagur 21. september 1986