Þjóðviljinn - 26.09.1986, Síða 8
SJÁVARÚTVEGUR
SJÁVARÚTVEGUR
Ætlum okkur hlut í hagnaðinum
Óskar Vigfússon formaður Sjómannasambands íslands: Staðreyndin ersú að íslenskir
sjómenn eru ekki hálfdrœttingar í launum miðað við norrœnafélaga sína þóttþeir
dragi helmingi meiri afla að landi en þeir
Sparaðu þér sporín í landi,- við höfum..
allt til rækjuveiða
„Það er ánægjulegt að
geta sagt að síðasta ár og
það sem af er þessu ári hef-
ur verið íslenskum sjó-
mönnum ákaflega hag-
stætt. Veðráttan hefur verið
góð og aflinn einnig en
hvort tveggja hefur stuðlað
að góðum tekjum sjó-
manna. Hitt má þó aldrei
gleymast að á bak við þær
tekjur er gífurleg vinna
þessara manna og eins er
hitt staðreynd að þrátt fyrir
allgóðar meðaltekjur eru
margir sjómenn innan um
sem ekki hafa náð þeim
tekjum af ýmsum ástæð-
um“.
Það er Óskar Vigfússon
formaður Sjómannasamb-
ands íslands sem svo
kemst að orði í samtali við
blaðamann Þjóðviljans. Og
hann fer nánar út í þessa
sálma:
Borgarnesi í síðustu viku. Við
þurfum ekki annað en líta á
gámaútflutninginn til að
sannfærast um þetta og svo eru
menn hissa á því að sjómenn vilji
frekar stuðla að útflutningi fersks
fisks heldur en landa hér heima.
Menn eru einfaldlega orðnir
þreyttir á þessu ástandi. í þokka-
bót sýna allar tölur svo ekki verð-
ur um villst að íslenskir sjómenn
afkasta meiru en nokkrir félagar
þeirra í V-Evrópu og draga um
tvöfalt meira aflamagn að landi
en norrænir félagar þeirra. Samt
eru launin þrisvar sinnum lægri ef
landað er heima. Þú skalt hins
vegar ekki spyrja mig um raun-
verulegar ástæður fyrir þessu en
þetta eru tölur sem fulltrúar fisk-
vinnslunnar hafa út af fyrir sig
ekki dregið í efa og hljóta því að
hafa skýringar á“.
Fiskmarkaðurinn
kemur
Nú hafa menn mjög rœtt um
fyrirhugaðan uppboðsmarkað á
fiski hérá landi. Þú ert í nefnd sem
er að kanna þau mál?
„Ég var mjög neikvæður þegar
þau mál bar á góma fyrst en eftir
að hafa rætt við fjölda félaga
minna hef ég komist að raun um
að það sé sjálfsagt að prófa þetta.
Ég óttaðist að það skapaðist mis-
gengi í launum innan sjómann-
astéttarinnar og að þeir sem ekki
hefðu aðstöðu til að selja á slíkan
uppboðsmarkað bæru skarðari
hlut frá borði. Hins vegar er því
ekki að neita að uppboðsmarkað-
urinn ætti að leiða til bættrar
meðferðar á aflanum, en hana
má alltaf bæta og slíkur markaður
ætti að geta leitt til aukinnar
sérhæfingar í vinnslunni og stuðla
um leið að lægri reksturskostnaði
í húsunum. Þeir sjómenn, sem ég
hefi rætt við vilja ólmir prófa
þetta kerfi enda telja þeir sig geta
fengið hærra verð en ef fiskverðið
er fastbundið eins og nú er.“
Hluturinn skertur
„Inn í alla þessa umræðu
blandast auðvitað deila okkar
sjómanna við útgerðina varðandi
hlutaskiptin. Staðreyndin er sú
að æ stærri hlutur hefur verið tek-
inn framhjá sjómönnum á síðustu
árum og hefur útgerðinni tekist
þetta með hjálp löggjafans. Nú
blómstar útgerðin, eins og fréttir
eru af og okkar krafa um að sjó-
menn fái til baka það sem af þeim
hefur verið tekið er því komin
upp á borðið aftur með eindregn-
ari hætti en oft áður. Okkar
leiðréttingakröfur ná allt aftur til
ársins 1975 þegar farið var að
taka af hlutnum til að greiða nið-
ur olíuverðið og þó erum við sér-
staklega að hugsa um síðasta
misseri en olíuverðið hefur farið
snarlækkandi á heimsmarkaði og
sparað útgerðinni stórar fjárfúlg-
ur. Við sjómenn ætlum okkur að
fá hlut í þeim hagnaði".
Bættar
lífeyrisgreiðslur
Svo við snúum okkur að öðru
Óskar í lokin. Þið hafið náð fram
leiðréttingum hvað varðar líf-
eyrismálin?
„Sjómönnum tókst að fá fram
verulegar leiðréttingar varðandi
iðgjaldagreiðslur og frá síðustu
áramótum eru greidd iðgjöld af
öllum tekjum bátasjómanna.
Áður var aðeins greitt af
kauptryggingunni og raunar
innan við þá upphæð og var svo
allt frá upphafi árs 1970 þegar líf-
eyrisgreiðslur hófust hjá þessari
stétt sjómanna. Þetta er nú loks
komið í lag en þó áratug of seint
að mínu mati enda eru eldri menn
nú að súpa seiðið af þessu því
greiðslur til þeirra úr lífeyrissjóði
eru allt niður í nokkur þúsund á
mánuði. Hins vegar fengu sjó-
menn á stóru togurunum þessi
mál í gott horf strax á 6. áratugn-
um enda eru dæmi um menn í dag
sem fá allgóð verkalaun út úr líf-
eyrissjóðnum í dag.“
-v.
Forystumenn sjómannastéttarinnar, Óskar Vigfússon t.v. og Guðjón Kristins-
son formaður Farmanna- og fiskimannasambandsins. Ljósm. eik.
Ljósmyndari: Snorri Snorrason
PALL PALSSONIS-102
treystir á Skjpaþjónustu Skeljungs
Páll Pálsson var smíðaður í Japan 1972 og er 462
brúttórúmlestir að stærð. Aðalvélin er einnig japönsk,
2000 hestöfl og er af gerðinni Niigata.
Eigandi Páls Pálssonar er Miðfell hf. í Hnífsdal.
Það verður enginn aflakóngur á íslandi fyrirhafnar-
laust. Til þess þurfa allir þættir útgerðarinnar
að uppfylla ströngustu kröfur. Til þess þarf
afburða áhöfn, frábært skip, trausta
stjórnun í landi og fullkomna
þjónustu við skip og áhöfn,
- því ekki er lengur
á vísan að róa þar
sem fiskurinn er.
Úthaldsdagar mega ekki fara forgörðum vegna
bilana og því er áríðandi að allt gangi vel smurt
um borð.
Smurolían rennurum lífæðarskipsins. Hún hreinsar
burt úrgangsefni, flytur „næringu" um vélina og
heldur vélakerfinu gangandi.
Páll Pálsson ÍS-102 notarSHELLsmurolíur. Eigendur
hans treysta á SKIPAÞJÓNUSTU SKEUUNGS,
- þar er á vísan að róa.
Skipaþjónusta Skeljungs
Óskar Vigfússon: Talsmenn fiskvinnslunnar og útgerðarinnar verða að svara því hvers vegna íslenskir sjómenn og
hálfdrættingar í launum miðað við norræna félaga sína. Ljósm. E.ÓI.
landverkafólk í sjávarútvegi em ekki
Skop
iír
Firðinum
Af hverju hafa hafnfirskir
hundar flöt trýni? Vegna þess
aö þeir elta kyrrstæöa bíla!
Hafið þið heyrt um
Hafnfirðinginn sem aldrei fór
út með konunni sinni? Móðir
hans sáluga hafði varað hann
við að fara út með giftum kon-
um!
Svo var það Hafnfirðingur-
inn sem gerði gat á regnhlífina
sína. Hann vildi fylgjast með
því hvenær hættr að rigna!
Veistu hvernig þú getur
fengið Hafnfirðing til að
brenna á sér kinnina? Hring-
du í hann þegar hann er að
strauja!
Tvær gamlar heiðurskonur
voru á gangi í kirkjugarðinum í
Hafnarfirði. Þá segir önnur
þeirra: Hér eigum við eftir að
lenda ef okkur endist líf og
heilsa!
Svikull sjávarafli
En svikull er sjávar afli segir ein-
hvers staðar og þrátt fyrir kvóta
og aðrar aðgerðir stjómvalda
þarf ekki mikið að breytast til að
aflinn minnki. Skilyrðin í sjónum
eru breytileg og fiskurinn dutt-
lungafull skepna þannig að það er
óvarlegt að treysta á góðar tekjur
til frambúðar.“
Svo segja þessar tölur alls ekki
alla söguna. Þið fréttamenn tí-
undið gjarnan veiðiferðir báta og
togara þegar vel gengur en þegið
þunnu hljóði þegar lítið veiðist.
Og skemmst er að minnast síð-
ustu vertíðar bátasjómanna á
suðvesturlandi þegar þeir unnu
varla upp í kauptrygginguna. “
Hærra verð erlendis
„Því er auðvitað ekkert að
leyna að ein ástæðan fyrir betri
launum sjómanna er sala á fersk-
um fisk til Evrópu með gámum.
Þar fæst allt að þrefalt hærra verð
en ef landað er hér heima og þýð-
ir það um leið hærri laun fyrir
okkar sjómenn. Það er margt
sem skýrir þennan mikla verð-
mismun en ætli meginskýringin
liggi ekki í því að vinnslukostnað-
ur við frystihúsin á íslandi er áka-
flega hár. Vaxtavistleysan sem
húsin búa við kemur þeim í koll
og einnig það að erfitt hefur verið
að koma við sérhæfingu hvað
varðar vinnsluna. Hins vegar er
kaup fiskvinnslufólksins
skammarlega lágt, raunar um
þriðjungur af fastakaupi starfs-
manna í færeyskum fiskvinnslu-
stöðvum svo dæmi sé tekið. Það
sjá náttúrlega allir sem vilja sjá
að það er eitthvað að hér á íslandi
þegar svo er málum komið í okk-
ar undirstöðuatvinnugrein."
Mestu afköstin
Þú talar um þrisvar sinnum
hœrra kaup hjá fœreysku land-
verkafólki. Eru kjör erlendra sjó-
manna með svipuðu móti miðað
við okkar?
„Já.þessi mál bar m.a. á góma
á fundi sem verkalýðshreyfingin í
Norður Atlantshafi, þ.e. forystu-
menn verkalýðsfélaga á Græn-
landi, Færeyjum og Islandi, hélt í
L
8 SÍÐA - ÞJÓÐVILJINN Föstudagur 26. september 1986
Föstudagur 26. september 1986 | ÞJÓOVILJINN — SÍÐA 9
Og við seljum aflann,
óskir þú eftir því, á hæsta fáanlega verði,
hvort heldur í Evrópu eða Asíu.
KRISTJÁN Ó
SKAGFJÖRD HF
Holmasloð 4. 101 Reykjavik s. 24120
Á
Við bjóðum þér meðal annars;
gúmmíbobbinga og hálfkúlur frá Cosalt,
keðjur og lása frá Wheway Watson,
Snara keðjulásinn frá Snartaki,
trollkúlur frá Iceplast,
trollhlerar frá Perfect,
trollvírar frá Randers,
og stálbobbingar frá Odda.
netaverkstæði okkar framleiða netagerðameistarar
trollin eftir þínum óskum,-
Skervoy, Kalut, Sputnik og Bastard.