Þjóðviljinn - 28.09.1986, Blaðsíða 7

Þjóðviljinn - 28.09.1986, Blaðsíða 7
Hún vinnur fyrir sér með því að höggva til steina, sem notaðir eru við gatnagerð. 'AUMAR veruleiki ingladesh Ihtisham Kabir. skólann í Berkley í Kaliforníu. Kabir heimsótti föðurland sitt fyrir rúmu ári og var tilgangurinn með ferðinni að taka myndir af fólk- inu þar. Hann sagði að það hefði verið margt sem kom sér á óvart eftir langa fjarvem ieinkum þó lífcþrótt- urinn í börnunum sem lifa við sára fátækt og verða að vinna fyrir sér og sjá sér farborða en virðast samt vera í fullu jafnvægi við um- hverfið. Sagði hann þau mjög upp- finningarík og virtust eiga sínar gleðistundir ekki síður en börn í Bandaríkjunum, sem virðast eiga erfiðara með að finna lífsfyllingu þrátt fyrir alla gnægtina. Annað sem kom honum á óvart var ósamræmið milli hins raunveru- lega lífs á götunum og vestrænna auglýsingaskilta sem héngu um allt, þau virtust á engan hátt falla inn í umhverfið einsog þau þó gera á Vesturlöndum þar sem fólk hefur ráð á að kaupa þær vörur sem auglýstar eru. „Blaðamönnum frá Vestur- löndum sem heimsækja Bangladesh hættir mjög til að gefa einhæfa mynd af landinu. Það er mjög auðvelt að taka hörmungarmyndir þar og vissu- lega er það hluti af raunveruleikan- um í landinu, en það er bara ein hlið hans. Fólkið í Bangladesh á sér sitt eigið líf og myndunum mínum er ætl- að að sýna þá hlið lífsins í landinu sem almenningur á Vesturlöndum sér sjaldan." Ihtisham Kabir ætlar sér að heimsækja föðurlandið aftur bráð- lega. Þá ætlar hann sér að einbeita sér að lífi nokkurra fjölskyldna og skrá það með myndavélinni, auk þess sem hann ætlar að taka viðtöl við fólkið, en hann stefnir að því að gefa út bók þegar hann hefur snúið aftur til Bandaríkjanna. -Sáf Líffræðistofnun Háskóla íslands vill ráða Rannsóknarmann í þróunar- og stofnerfðafræði. Á stofunni fara fram rannsóknir á esterasa og alkóhól dehydrógen- asa í Drosophila, áhrifum stökkla á próteinbreytileika, á svipfars- breytileika brekkubobba (Cepaea), og rannsóknir á hvatbera DNA (mtDNA) í Cepaea. Æskileg menntun er B.S. próf í líffræði. Um- sóknir ásamt upplýsingum um menntun og fyrri störf sendist til Einars Árnasonar, Líffræðistofnun HÍ, Grensásvegi 12, sem einnig veitir frekari upplýsingar. Hefur þú áhuga? Við erum að leita eftir söngmönnum. Haföu samband við Bjarna í síma: 26102 milli kl. 9.00—16.00 eða Böðvar í síma 32584 eftir kl. 19.00. Karlakór Revkjavíkur Staða forstöðumanns bankaeftirlits Með lögum nr. 36 frá 5. maí 1986 um Seðlabanka íslands sem taka munu gildi hinn 1. nóvember n.k. er viðskiptaráðherra falið að skipa forstöðu- mann bankaeftirlits Seðlabanka íslands til eigi lengri tíma en sex ára. Viðskiptaráðuneytið auglýsir hér með stöðu þessa. Umsóknum ber að skila til viðskiptaráð- uneytisins eigi síðar en 30. október n.k. Viðskiptaráðuneytinu 25. september 1986. LAUSAR STÖDUR HJÁ REYKJAVÍKURBORG DROPLAUGARSTAÐI vantar starfsfólk í ræst- ingar á hjúkrunardeild (III hæð) strax. Upplýsingar gefur forstöðumaður, alla virka daga á milli 9-12. Sími 25811. Umsóknum ber að skila til starfsmannahalds Reykjavíkurborgar, Pósthússtræti 9, 6. hæð, á sérstökum umsóknareyðublöóum sem þar fást. Wi Félag járniðnaðarmanna FÉLAGSFUNDUR verður haldinn mánudaginn 29. sept. 1986 kl. 20.00 að Suðurlandsbraut 30, 4. hæð. Dagskrá: 1. Félagsmál 2. Um framkvæmd kjarasamnings 3. önnur mál Mætið vel og stundvíslega. Stjórn Félags járniðnaðarmanna

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.