Þjóðviljinn - 28.09.1986, Qupperneq 3
Svefnpoka-
tengslin
Sem kunnugt er bannaði Jón
Baldvin Hannibalsson ung-
um krötum á dögunum að
skunda á Þingvöll og treysta
sín heit við lagsbræður og
-systur úr æskulýðsfylkingu
Alþýðubandalagsins. Jó-
hanna Sigurðardóttir hafði
lofað ungviðinu að mæta á
hinn forna þingstað þjóðar-
innar ásamt Svavari Gests-
syni og mæla af munni fram
létta speki. Jón Baldvin harð-
bannaði henni hinsvegar för-
ina og það varð til þess að
ferðin lagðist af. ( blöðum lét
Jón Baldvin að því liggja að
hann vildi ekki að hinir sak-
lausu ungkratar spilltust af
tengslum við kommana, og
tók sérstaklega til
svefnpokatengsla í því sam-
bandi, vafalaust minnugur
þess hvernig hin pólitísku
samskipti bræðraflokkanna
fóru fram á unglingsárum
hans... En nú erhinsvegarallt
útlit fyrir óhóflega náin tengsl
ungra Alþýðubandalags-
manna og krata sem meira að
segja sjálfur formaður krata
mun ekki geta eyðilagt. Helg-
ina 3.-5. október munu kratar
nefnilega halda þing sitt að
Hótel Ork í Hveragerði. En
talsverður hópur frá þeim
mun þurfa að gista að Ölfus-
borgum. Þar verða hinsvegar
ungir allaballar á sama tíma
með landsfund sinn, og verð-
ur ekki betur séð en góðir
möguleikar séu á nánum
tengslum milli þeirra og krat-
anna. Sagt er að Ámundi
Ámundason og Jón séu nú
uggandi yfir öllu saman...*
Skipulags-
slys
Nýjasta afrek íhaldsins í
Reykjavík í skipulagsmálum á
væntanlega eftir að vekja
mikla ólgu á meðal þeirra sem
unna gamla bænum og Tjörn-
inni. Eftir mikið pukur á nú að
færa upp á yfirborðið hug-
myndir um að breyta götunni
kringum Tjörnina á hreint
ótrúlegan hátt. Þessar hug-
myndir ganga út á það að
gera Vonarstræti, Tjarnar-
götu að Fríkirkjuveg og fjög-
urra akreina götum! Þetta
mun þýða að allt að tíu metra
sneið verður tekin af Tjörninni
og álíka sneið af Hljómskála-
garðinum. Þarfyrir utan á Da-
víð Oddsson þá ósk heitasta
að byggja sér monthús, sem
hann raunar kallar ráðhús, við
miðbæjarenda Tjarnarinnar.
Er bara ekki hreinlegast að
malbika yfir Tjörnina...*
Bókin sem
beðið var eftir
Bæjarblöð ýmissa staða úti á
landi hafa tekið upp á því að
birta á síðum sínum skattskrár
viðkomandi þorps eða bæjar.
Eitt slíkra er Bæjarins besta á
(safirði, og birtist skattskráin:
þar undir fyrirsögn „Bókin
sem beðið var eftir“... Skráim
er að sjálfsögðu mörgum
bæjarbúum tilefni til mikilla;
vangaveltna, og fljúga núj
ýmsar sögur um bæinn um
undarlega lág gjöld og útsvörj
hjá mörgum velmektarmann-
inum. Einn af þeim er Georg
Bæringsson eigandi og for-
stjóri fyrirtækisins Pensilsins,
sem hefur margt manna í
vinnu. Sá ku hafa lægra út-
svar en einn af ellilífeyrisþeg-
um ísafjarðarkaupstaðar,
sem hefur haft það atvinnu að
sópa götur bæjarins undan-
farin ár til þess að drýgja
tekjurnar...*
Hæstaréttarlögmaðurinn ásamt skólastjóra Myndlistarskólans.
Fjölhæfur hæsta-
réttarlögmaður
Dagskráin um Jóhannes úr
Kötlum sem haldin var að
Gerðubergi um síðustu helgi
tókst með afbrigðum vel. Eitt
af því sem varð til að krydda
dagskrána var frumflutningur
á lagi við Ijóð Jóhannesar, Eg
hlakka til. Inga Backman
söng lagið en hún lauk ein-
söngvaraprófi frá Söngskól-
anum í Reykjavík í vor, og það
var einmitt bróðir hennar,
Arnmundur Sævar Back-
mann, hæstaréttarlögmaður
sem samdi lagið. Arnmundi er
raunar margt til lista lagt á
tónlistarsviðinu. Djúpskyggn
rannsóknarblaðamennska af
hálfu Þjóðviljans leiddi ótví-
rætt í Ijós að hann á að baki
fjölskrúðugan feril sem skalla-
poppari á Akranesi, þar sem
barnsskóm lögmannsins var
slitið. ÞaraðaukierArnmund-
ur frægur harmonikuspilari og
stemmningarmaður af dansi-
böllum.
En það eru ekki bara þau
Inga og Arnmundur sem
daðra við listagyðjuna af
fjölskyldumeðlimunum. Systir
þeirra er Edda Heiðrún
Backman, sem þekkt er fyrir
leik sinn í ýmsum merkum
verkum. Þess utan er Arn-
mundurgiftur Valgerði Bergs-
dóttur myndlistarmanni, sem
jafnframt er skólastjóri Mynd-
listarskólans í Reykjavík...*
allan hulduherinn með He-
!enu Albertsdóttur í broddi
fylkingar á móti sér. Geir Ha-
arde er svo talinn öruggur í 5.
sætið.
Hins vegar sjá margar kon-
ur þann möguleika að Albert
hrynji niður listann og 4. sætið
verði í rauninni frítt. Því er lík-
legt að innan skamms fari
óopinber hvíslherferð af stað
um stuðning við einhverja
nýja konu í þetta örugga sæti.
Þær geta hins vegar ekki
komið sér saman um hvaða
konu...»
X-Bylgjan
Stöð 2 mun taka til starfa rétt
fyrir prófkjör Sjálfstæðis-
manna. Jón Óttar Ragnars-
son, frumkvöðull og aöal-
eigandi, mun hugsa sér gott til
glóðarinnar því frambjóðend-
urnir hyggjast sumir taka al-
farið upp bandaríska háttu og
kaupa sjónvarpsauglýsingar.
En Bylgjan mun einnig fá sinn
skerf af kökunni, og vænta-
lega verða full með prófkjörs-
auglýsingar. Bylgjan er raun-
ar þegar byrjuð þátttöku í próf-
kjörinu, og vægast sagt finnst
ýmsum undarlegt hversu
auðveldlega kandídötum
Sjálfstæðisflokksins gengur
að komast í hljóðnema stöðv-
arinnar. Þannig er Jón
Magnússon búinn að vera í
viðtali við Sigurð G. Tómas-
son, Bessí Jóhannsdóttir
var sömuleiðis á Bylgjunni og
núna síðast Ester Guð-
mundsdóttir sem slæst við
Bessí um 6. sætiö. Kannski
Bylgjan íhugi að flytja í Val-
höll, þar sem frjálshyggjufé-
lagið var með útvarpsstöð í
BSRB verkfallinu...*
Flótti af
útvarpinu
Miklar breytingar hafa nú orð-
ið á mannahaldi hjá útvarp-
inu. Síðastur til að yfirgefa
skipið var Þórir Guðmunds-
son sem hefur verið í er-
lendum fréttum jafnframt því
sem hann hefur lesið morgun-
fréttirnar. En Þórir er einn af
þeim sem Páll Magnússon á
Stöð 2 hefur veitt í net sín.
Áður var Ólafur E. Frið-
riksson kominn í trollið hjá
Páli, og þykir mikill sjónar-
sviptir að honum. Fyrr á árinu
hafði Bjarni Sigtryggsson
hætt og horfið til starfa á Hótel
Sögu þar sem hann er að-
stoðarhótelstjóri um þessar
mundir. Atli Steinarsson
mun einnig á förum frá gufu-
radíóinu, og þess er skemmst
að minnast að góðkunnur út-
varpsmaður, Gunnar E.
Kvaran, sem um stundarsak-
ir tók þátt í NT-ævintýrinu er
nú kominn í bithaga Ingva
Hrafns hjá sjónvarpinu.e
Divine
á leiðinni
Fituhlúnkar eru að komast í
tísku í skemmtanabransan-
um, og mörlandar munu ekki
fara varhluta af því fremur en
aðrir. Bandaríska spikfjallið
Divine mun þannig væntan-
legur til (slands á næstunni og
skemmta gestum Evrópu. Di-
vine er þekktur fyrir að koma
fram í gervi feitra og subbu-
legra kvenna, og þykirýmsum
sem garpurinn sé konum ekki
mjög vinsamlegur. En westra
er hann vel þekktur og vin-
sæll. ■
Hógvært
kvennalið
Konur innan Sjálfstæðis-
flokksins eru nú nokkuð ugg-
andi um sinn hag í komandi
prófkjöri. Helst vildu þær að
sönnu ná konu í annað hvert
sæti á listanum. Flest bendir
hinsvegar til þess að þeim
takist ekki að koma sér sam-
an um kandídata í örugg sæti,
og gamla brýnið Ragnhildur
Helgadóttir verði áfram eina
konan á þingi fyrir Reykjavík-
uríhaldið.
Svo virðist sem engin
kvennanna þori að stefna op-
inberlega ofar en í sjötta sæt-
ið. Þær reikna dæmið þannig,
að Friðrik Sophusson, Birg-
ir ísleifur Gunnarsson og
Ragnhildur muni örugglega
ná efstu þrem sætunum.
Óvissa ríkir um fjórða sætið,
en Albert Guðmundsson
sækirfast í það. Framtíð hans
er hins vegar óviss, og pólit-
ískir spámenn innan flokksins
treysta sér ekki til að kveða
upp úr með hvort honum tak-
ist að halda sætinu. Engin
nýju kvennanna þorir hins
vegar opinberlega að stefna á
4. sætið, af ótta við að fá þá
rmy
RÍKISÚTVARPIÐ
SJÓNVARPIÐ AUGLÝSIR LAUST T/L UM-
SÓKNAR STARF R/TARA DAGSKRÁRSTJÓRA
/NNLENDRAR DAGSKRÁRGERÐAR. STARF/Ð
FELST1BRÉFASKR/FTUM, SKÝRSLUGERÐ OG
ÖÐRUM TRÚNAÐARSTÖRFUM. E/NN/G VE/T/R
ÞAÐ V/SSA MÖGULE/KA Á AÐ KYNNAST
DAGSKRÁRGERÐ V/Ð SJÓNVARP. GÓÐ
VÉLR/TUNAR- OG ÍSLENSKUKUNNÁTTA AUK
KUNNÁTTU íENSKU OG E/NU NORÐURLANDA-
MÁL/ERNAUÐSYNLEG. R/TAR/ÞARFAÐ GETA
UNN/Ð SJÁLFSTÆTTAÐ AFMÖRKUÐUM
VERKEFNUM, VERA DRÍFAND/ OG ÓFE/M/NN
V/ÐAÐ UMGANGAST ÓKUNNUGA SLÍK/R
KOST/R VEGA ÞUNGT ÞEGAR UMSÆKJAND/
VERÐUR RÁÐ/NN SVO OG ÖLL GÓÐ MENNTUN.
EF ÞÚ HEFUR ÁHUGA Á AÐ KYNNAST
FJÖLM/ÐLUMOG TAKA ÞÁTTíL/FAND/STARF/,
ÞÁUGGJA UMSÓKNAREYÐUBLÖÐ FRAMM//
SÍMAAFGRE/ÐSLU SJÓNVARPS/NS,
LAUGAVEG/ 176.
UMSÓKNARFRESTUR ER T/L 15. OKTÓBER1986.
RITARI ,
DAQSKRAR-
STJORA
Sunnudagur 28. september 1985 ÞJÓÐVILJINN - SÍÐA 3