Þjóðviljinn - 21.10.1986, Blaðsíða 1

Þjóðviljinn - 21.10.1986, Blaðsíða 1
Ísland-A. Þýskaland Belgía Þrír nýir úr Fram Guðmundur Torfa, Friðrik og Pétur í hópinn hjá Held í staðinnfyrir Pétur Péturs, Viðar og Stefán Piltalandsliðið Sigi Held landsliðsþjálfari hefur valið er því þannig skipaður: Markverðir: Bjarni Sigurðsson, Brann Friðrik Friðriksson, Fram Aðrir leikmenn: Ágúst Már Jónsson, KR Arnór Guðjohnsen, Anderlecht Ásgeir Sigurvinsson, Stuttgart Atli Eðvaldsson, Uerdingen Guðmundur Torfason, Fram Guðmundur Þorbjörnsson, Baden Guðni Bergsson, Val Gunnar Gíslason, KR Ólafur Þórðarson, IA Ómar Torfason, Luzern Pótur Ormslev, Fram Ragnar Margeirsson, Waterschei Sigurður Jónsson, Sheff.Wed. Sævar Jónsson, Brann Held stillir vafalítið upp óbreyttu liði frá leikjunum við Frakka og Sovétmenn, að Pétri undanskildum. Líklegast er að Guðmundur Þorbjörnsson taki stöðu Péturs í framlínunni. -VS Ómar Torfason fagnar marki í leik með Luzern. Hann hefur nú skorað 6 mörk fyrir liðið á hálfum mánuði. Guðmundur Torfason, Friðrik Friðriksson og Pétur Ormslev úr Fram hafa verið valdir í landslið- ið í knattspyrnu fyrir leikinn gegn Austur-Þjóðverjum sem fram fer í Kari-Marx-Stadt í næstu viku. Þeir koma í staðinn fyrir Pétur Pétursson, ÍA, sem er í leikbanni, Viðar Þorkelsson, Fram, og Stef- án Jóhannsson, KR. Sextán manna hópurinn sem Sviss Önnur þrenna frá Ómari! Skoraði 3 af4 mörkum Luzern Ómar Torfason skoraði um helgina sína aðra þrennu á hálf- um mánuði þegar Luzern sigraði 3. deildarliðið Sursee 4-0 á úti- velli í svissnesku bikarkeppninni í knattspyrnu. Ómar skoraði 3 mörk í 1. deildarleik gegn Chaux-de- Badminton Frost með 7. í röð Morten Frost sigraði í einliða- leik karla á opna danska meistar- amótinu í Álaborg um helgina - sjöunda árið í röð. Hann vann landa sinn Michael Kjeldsen 15-9 og 15-10 í úrslitaleiknum. I kvennaflokki vann hin kínverska Zheng Yuli sigur á Pernillu Ne- dergaard frá Danmörku, 11-4, 11-3 í úrslitaleik. -VS/Reuter Fonds þann 4. október en þá fékk hann tækifæri í liðinu eftir að hafa verið á varamannabekknum eða í varaliðinu í haust. Nú virðist hann hafa tryggt sér sæti í liði Luzem sem hefur nú skorað 15 mörk gegn 2 í þeim fjórum leikjum sem Ómar hefur leikið í þessum mánuði. Fjórða sætið Piltalandsliðið í handknatt- leik, 20 ára og yngri, hafnaði í fjórða sæti á Norðurlanda- mótinu sem fram fór í Noregi um heigina. Eftir tap í hörkuleik gegn Svíum, 21-25, í fyrstu umferð náði íslenska liðið sér ekki á strik. Það gerði jafntefli við Dani, 24-24, og brenndi þá af 6 vítaköstum! Næst kom tap fyrir Norðmönnum, 21-24, en loks sigur gegn Finnum, 30- 28. Svíar voru með langsterk- asta liðið á mótinu og urðu Norðurlandameistarar. -VS -VS Quðný Gunnsteinsdóttir úr Stjörnunni átti góða leiki í Danmörku. Stúlknalandsliðið Góður leikur gegn Svíum Naumt tap enfjórða sœti á NM „Stúlkurnar voru of hræddar við mótherjana í fyrstu leikjunum en svo náðu þær sér á strik og léku vel gegn Svíum, sem eru með svipað lið og Danir og Norðmenn. Þar sýndu þær hvað í þeim býr og að þær geta staðið í þessum þjóð- um,“ sagði Davíð B. Sigurðsson úr landsliðsncfnd stúlkna í hand- knattleik í samtali við Þjóðviljann í gær. Stúlknalandsliðið, 20 ára og Þriðjudagur 21. október 1986 yngri, varð í fjórða sæti á Norður- landamótinu sem fram fór í Dan- mörku um helgina. Þær töpuðu fyrst 13-27 fyrir Dönum og síðan 14-27 fyrir Norðmönnum. Þá kom sigur á Færeyingum, 29-8, og lokaleikurinn, gegn Svíum, tapaðist naumlega, 18-20. Þar var jafnt, 14-14, þegar 8 mínútur voru eftir en þá skoraði sænska liðið 6 mörk í röð, það íslenska síðan síðustu fjögur. „Sóknarleikurinn var höfuð- verkurinn en varnarleikurinn var yfirleitt mjög góður hjá lið- inu,“ sagði Davíð. Að hans sögn komust línuspilararnir Guðný Gunnsteinsdóttir úr Stjörnunni og Jóna Bjarnadóttir hjá Víkingi einna best frá leikjunum ásamt Sigurbjörgu Sigþórsdóttur úr UMSJÓN: VfÐIR SIGURÐSSON Tvö frá Ragnari Anderlecht með góðan sigur Ragnar Margcirsson skoraði tvívegis fyrir lið sitt, Waterschei, í belgísku 2. deildinni í knatt- spyrnu á sunnudaginn. Það dugði þó ekki til sigurs því Waterschei gerði jafntefli við Harelbeke, 2-2. Arnór Guðjohnsen og félagar í Anderlecht sigruðu Racing Jet 3- 0 í 1. deild og það telst nánast til tíðinda að Arnór skoraði ekki í leiknum. FC Brugge vann Berc- hem 4-1 á útivelli og Standard Liege vann Antwerpen 3-2 á úti- velli. Staða efstu liða er þessi: FCBrugge............8 6 2 0 23-7 14 Anderlecht..........8 6 1 1 23-4 13 Standard............8 5 2 1 16-5 12 Mechelen............8 4 3 1 12-5 11 Beveren.............8 3 5 0 13-5 11 -VS/Reuter Akureyri Jónas útnefndur Knattspyrnuráð Akureyrar út- nefndi Jónas Róbertsson úr Þór „Knattspyrnumann Akureyrar 1986“ nú um helgina. Jónas er 25 ára gamall og var jafnbesti leik- maður Þórsliðsins í 1. deildinni sl. sumar. Tryggvi Gunnarsson, markakóngur úr KA, varð í öðru sæti í kjörinu. Markakóngur Akureyrar hlaut sérstaka viðurkenningu en það var Jón Egill Gíslason úr KA sem 'lék bæði með 3. og 4. flokki. Þá var afhentur Sporthúsbikarinn sem það félag hlýtur sem vinnur fleiri sigra í keppni yngri flokka á árinu. Þór hlaut hann að bessu sinni. -K&H/Akureyri Vestur-Þýskaland Schumacher út! Varamaður gegn A usturríki Franz Beckenbauer landsiiðs- einvaldur Vestur-Þjóðverja hefur ákveðið að fyrirliðinn og mark- vörðurinn Toni Schumacher Toni Schumacher. muni sitja á varamannabekknum í vináttulandsleik við Austurrík- ismenn sem fram fer á miðviku- dag. Eike Immel markvörður Stutt- gart mun leika í hans stað en hann hefur ekki leikið landsleik í fjögur ár þrátt fyrir að hafa oft verið varamarkvörður. Þegar Vestur-Þjóðverjar gerðu jafntefli við Spán á dögun- um voru aðeins 3 leikmenn í liði þeirra sem léku úrslitaleik HM sl. sumar. Tveimur hefur verið bætt við fyrir leikinn í Austurríki, þeim Rudi Völler og Andreas Brehme, en þeir voru meiddir. Hinir þrír sem eftir eru í hópnum eru Schumacher, Lothar Matthe- us og Thomas Berthold. -VS/Reuter ÞJÓÐVILJINN - SÍÐA 9

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.