Þjóðviljinn - 31.10.1986, Síða 24
Utvegsbankinn
^ kynnir
nýja, almenna
Með henni geta allir sem spara stefnt á hina háu vexti bundinna reikninga.
Allir, — ekki bara þeir fjársterku.
Og þetta getur fólk gert af fullU öryggi, því það hefur góða
baktryggingu: Reynist bindingin því ofviða, getur það komið í
bankann, sótt fé sitt og náö fullri ávöxtun innlánsreiknings
með Ábót.
SVONA BERÐU ÞIG AÐ
Þú þarft að eiga fé á Innlánsreikningi með Ábót og stefna á að
taka það ekki út í 18 mánuði. Svona einfalt er það. Og þú þarft
ekki að tilkynna bankanum þennan ásetning þinn. Eigirðu
ekki fé á Innlánsreikningi með Ábót þá geturðu auðveldlega
bætt úr því á næsta afgreiðslustað bankans.
OG VEXTIRNIR HLAÐAST UPP
Þessi nýja sparnaðaraðferð er Lotusparnaður.
Fyrsta lotan stendur í 18 mánuði og gefur háa vexti.*
Önnur lota tekur strax við, ef eigandinn lætur féð standa
óhreyft áfram. Hún stendur í 6 mánuði og gefur enn hærri
vexti.*
Þriðja lota stendur í 6 mánuði og enn hækka heildarvextir*
af öllu sparifénu.
Fjórða lotan varir einnig í 6 mánuði og að henni lokinni er
hæstu vöxtum* Lotusparnaðarins náð.
EINSTAKT ORYGGI
Hið einstæða við Lotusparnað er að þú getur hafið hann hvenær sem er, alveg
formálalaust, og hætt honum jafn óformlega.
Þurfir þú á hinu sparaða fé að halda, þá tekur þú það út og rýfur þar með
Lotusparnaðinn í það sinn. Þú fcerð vexti á alla uþþhœðina, samkvcemt því
lotustigi sem þú náðir. Og þótt þú náir ekki að Ijúka fyrstu lotu, þá fcerðu
samt fulla Ábótarvexti fyrir allan þann tíma sem uþþhceðin stóð óhreyfð.
ÞETTA ER ÖRYGGISEM FORSJÁLIR KUNNA AÐ META.
LOTU
SPARNAÐUR
HIN NÝJA, ALMENNA SPARNAÐARAÐFERÐ
* Vaxtalölur verður leyfilegt að kunngera nk. þriðjudag
GYLMIR/SÍA