Þjóðviljinn - 11.12.1986, Blaðsíða 1
Fimmtudagur 11. desember 1986 283. tölublað 51. árgangur
Spítalasalan
Bakslag í söluáfbrmin
Davíð hikar vegna andstöðu íeiginflokki. Mikill ágreiningur í þingflokki Sjálfstæðisflokksins.
Guðrún Helgadóttir: Munum heita okkurgegn sölunni. Auðunn Svavar Sigurðsson: Davíð skal niðurí þessu máli
Ljóst er að andstaða starfsfólks
Borgarspítalans og afla innan
Sjálfstæðisflokksins hafa komið
hiki á Davíð Oddsson varðandi
áform hans um að selja ríkinu
Borgarspítalann. Þingflokkur
Sjálfstæðisflokksins hefur fundað
stíft um málið og í gær fól hann
Davíð, Þorsteini Pálssyni og Ragn-
hildi Helgadóttur að komast að
samkomulagi um framtíð Borg-
arspítalans. Þorsteini var falið að
leiða þær viðræður.
Mikill ágreiningur er uppi um
málið í þingflokknum og er talið
að þremenningunum hafi verið
falið að koma málinu þannig fyrir
JÓl
Sveinarnir
á leiðinni
í dag eru þrettán dagar til jóla
og kemur því Stekkjastaur til
byggða. Síðan koma bræður hans
í kjölfarið einn af öðrum þar til
Kertasníkir birtist síðastur á að-
fangadagsk völd.
Verður koma sveinanna kynnt
daglega í Þjóðviljanum með vís-
um Jóhannesar úr Kötlum og
myndum Tryggva Magnússonar.
Kvæðið Jólasveinarnir er úr
kvæðabók Jóhannesar úr
Kötlum, Jólin koma. Var bókin
fyrst prentuð árið 1932 og hefur
verið sívinsæl síðan. Nú fyrir jólin
var bókin prentuð í 13. sinn og
hafa þegar verið pöntuð tvö þús-
und eintök frá forlaginu. Þar sem
Jólin koma hefur verið prentuð í
nokkur þúsund eintökum í hvert
sinn skiptir eintakafjöldinn nú
tugum þúsunda og er vafamál að
margar bækur hafi selst meira hér
á landi. Öruggt má telja að engin
barnabók hefur verið vinsælli en
þessi sígildu kvæði um Grýlu, jól-
asveinana og jólaköttinn. -Sáf
að sætta megi ólík sjónarmið.
Margir eru þeirrar skoðunar að í
framhaldi af þessu verði hætt við
sölu spítalans um sinn og ákvörð-
un um að setja spítalann á fjárlög
verði frestað. Búist er við að
ákvörðun um málið verði tekin
einhvern næstu daga.
Albert Guðmundsson iðnaðar-
ráðherra sagði í samtali við Þjóð-
viljann í gær að hann teldi rétt að
bíða með ákvörðun um framtíð
spítalans. Hann játaði því hvorki
né neitaði að hann myndi beita
sér gegn hugmyndum Davíðs.
Ellert B. Schram hefur lýst yfir
andstöðu sinni við kaup ríkisins á
spítalanum og vitað er að fjöl-
margir aðrir þingmenn flokksins
eru sömu skoðunar.
Guðrún Helgadóttir alþingis-
maður sagði á fundi í Gamla bíói í
gær að hún og aðrir þingmenn
Aiþýðubandalagsins myndu
beita sér af öllum mætti gegn
kaupum ríkisins á spítalanum.
Sömu sögu er að segja um þing-
fiokk Alþýðuflokksins. Guðrún
fór hörðum orðum um þau vinnu-
brögð sem viðhöfð hafa verið í
þessu máli og sagði: „Ég sé enga
ástæðu til þess að selja Borgar-
spítalann. Davíð verður að borga
afmælisskuldir borgarinnar á ein-
hvern annan hátt.“
Auðunn Svavar Sigurðsson,
ötull talsmaður frjálshyggjunnar
í Sjálfstæðisflokknum og stuðn-
ingsmaður Davíðs, sagði í gær að
söluáformin stríddu gersamlega
gegn stefnu Sjálfstæðisflokksins.
„Davíð skal niður í þessu máli,“
sagði Auðunn.
-gg
(þessu húsi ríkir mikil óánægja með samningana, sögðu þær (f.v.) Guðbjörg, Þórunn og Málhildur. Mynd: E.ÓI.
Samningarnir
Hyggjumst fella samningana
Iþessu húsi ríkir mjög mikil óá-
nægja með samningana, sögðu
þær Málhildur Sigurbjörnsdótt-
ir, Þórunn Ellertsdóttir og Guð-
björg Bcnjamínsdóttir starfs-
menn Granda hf. um þá þætti
samninganna sem snúa að lág-
markslaunum og bónusútreikn-
ingum.
„Það er ekki hægt að vera
ánægður með samninga sem
breyta í engu stöðu okkar. Við
fáum enga kauphækkun því það
verður bara millifærsla frá bónus
yfir á fastalaun. Þessi millifærsla
kemur þeim auðvitað vel sem ná
ekki bónus en það eru svo fáar
konur. All flestar ef ekki allar
konurnar á bónus hér náðu þeim
lágmarkslaunum sem samið var
um og fá því enga kauphækkun.
Það er því jafnframt ljóst að
streitan sem fylgir starfinu
minnkar ekkert eftir þessa samn-
inga eins og stefnt var að“.
Hvernig hefðuð þið kosið að
samkomulagið hefði verið?
„Það hefði átt að semja um
mun hærri lágmarkslaun, en að
gefnum þeim lágmarkslaunum
sem samið var um hefði átt að
gefa okkur kost á að ná bónus-
Islenskum vísindamönnum hef-
ur tekist að sýna fram á að
sömu frumur mynda veiruprótín í
heilasneiðum sem sýktar eru
visnu annars vegar en eyðni eða
AIDS hins vegar. Ennfremur
leiddu rannsóknir á Keldum í Ijós
að tiltölulega fáar frumur mynda
þessar tvær veirur.
Þetta keinur fram í viðtali við
Guðmund Georgsson lækni í
Þjóðviljanum í dag. Þar segir
markinu mun fyrr en samning-
arnir kveða á um“.
Hyggist þið fella þessa samn-
inga?
Eyðni
hann m.a. frá því að Björn
heitinn Sigurðsson fyrrum for-
stöðumaður á Keldum hafi orðið
fyrstur manna til að setja fram
hugmynd um hæggengar veiru-
sýkingar, en eyðniveiran telst ein-
mitt til þess flokks. Þá tókst hon-
um 1954 að rækta veiru sem veld-
ur visnu í sauðfé, en hún er ná-
skyldur ættingi eyðniveirunnar.
Telur Guðmundur að erfitt hefði
verið að sniðganga Björn Sig-
„Að sjálfsögðu munum við
sýna óánægju okkar með því að
gera það“.
-K.Ól.
urðsson við veitingu Nóbelsverð-
launa á þeim tíma, en hann lést
skömmu síðar og gat því ekki
orðið þess heiðurs aðnjótandi.
Guðmundur segir í viðtalinu
að rannsóknir vísindamanna á
Keldum á visnu geti gefið vís-
bendingar um orsakir og eðli
heila- og mænusiggs eða MS.
-v.
Sjá bls 7-9
Framlag fiá Keldum
Þar hefur tekist að sýnafram á að sömufrumur mynda veiruprótín í
sjúklingum með eyðni og visnu.