Þjóðviljinn - 27.01.1987, Side 2

Þjóðviljinn - 27.01.1987, Side 2
KVENPÉTTINDAFÉLAG ÍSLANDS 80 ÁPA Kvenréttindafélag ís- lands er áttatíu ára í dag. Tildrögin að stofnun félags- ins voru með nokkuð sér- stökum hætti. Árið 1904 voru stofnuð í Berlín Alþjóðasamtök kvenréttindafé- laga, fyrir frumkvæði kvenna frá Bandaríkjunum og var fyrsti for- maður þess Carrie Chapomann Catt. Þetta sama ár var Bríet Bjarnhéðinsdóttir, þá ritstjóri Kvennablaðsins, í kynnisferð um Norðurlöndin og kynntist hún þar mörgum konum sem verið höfðu á stofnfundinum í Berlín. Þessar konur hvöttu Bríeti til að stofna félagsskap á íslandi sem hefði það eitt á stefnuskrá sinni að vinna að pólitískum kosninga- rétti kvenna og fullu jafnrétti kvenna við karla í öllum efnum og félagið gengi síðan í Alþjóða- samtökin. Upphafið Árið 1906 var haldið annað þing Alþjóðasamband kvenrétt- indafélaga í Kaupmannahöfn og var mjög lagt að Bríeti að koma á fundinn. Hún sneri sér þá til Hins íslenska kvenfélags sem stofnað var 1894 en það hafði í upphafi haft pólitísk réttindi íslenskra kvenna á stefnuskrá sinni. Það fé- lag hafði hins vegar snúið sér síð- ar að líknarmálum. Bríet vildi að félagið tæki aftur upp pólitísk réttindi kvenna á stefnuskrá sína. Við það var hins vegar ekki kom- andi. Bríet sá þá að annað hvort yrði hún að taka málin í sínar hendur ellegar þeim yrði ekki hreyft hér á landi um óákveðinn tíma. Hún fór síðan á fundinn í Kaupmannahöfn og naut þar sömu réttinda og aðrir fundar- menn. Það var síðan hinn 27. janúar árið 1907 að Bríet boðaði 15 kon- ur til fundar á heimili sínu í Þing- holtsstræti 18 til að ræða stefnu- skrá féiags sem hefði réttindamál kvenna á stefnuskrá sinni. Á þessum fundi var ákveðið að stofna slíkt félag. Kosin var bráð- abirgðastjórn og var Bríet kjörin formaður. Nafn þessa félags var Hið íslenska kvenréttindafélag. Þessu nafni var aftur breytt nokkru síða í Kvenréttindafélag íslands að ósk Hins íslenska kvenfélags. Stjórnin undirbjó lög féiagsins og boðaði síðan til þess sem í dag væri sjálfsagt nefnt framhaidsstofnfundur, í Iðnó 20. mars sama ár til þess að gefa fleiri konum kost á að ganga í félagið. Úr fyrstu lögum félagsins: Markmið félagsins er: a) að starfa að því að íslenskar konur fái fullt stjórnmálalegt jafnrétti við karlmenn: Kosn- ingarétt og kjörgengi, einnig rétt til embættta og atvinnu með sömu skilyrðum og þeir. b) að efla þekkingu og glæða áhuga íslenskra kvenna á málefni þessu með fundum, fyrirlestrum og blaðastarfi. c) að efla félagsskap og samvinnu meðal íslenskra kvenna, með því að stofna sambandsdeildir víðs vegar um land, sem allar vinni að sama markmiði, hlýti sömu lögum og standi í sambandi við aðaldeildina sem er í Reykjavík. Það æxlaðist síðan þannig til að einmitt á stofnári KRFÍ öðluðust konur konsingarétt og kjörgengi á við karlmenn hvað sveitastjórn- ir varðaði. Árið 1908 áttu að fara fram sveitarstjórnarkosningar í Reykjavík. Það var því fyrsta stóra verkefni félagsins að beita sér fyrir því að konur væru þar í kjöri. í samvinnu við önnur féiög kvenna í bænum var boðinn fram kvennalisti með fjórum konum og það óvænta gerðist að þær komust allar að. Kvennafram- boðið árið 1908 var merkisvið- burður í sögu kvenna almennt og KRFÍ sérstaklega. Barnaleikvöllur við Grettisgötu KRFÍ sneri sér fljótt að öðrum brýnum málefnum konum til Nokkrirpunktar ísögu Kvenréttinda félags fslands framdráttar. Þar var auðvitað stór áhersluþáttur að efla þjón- ustu við börn og mæður. Árið 1915 tók félagið sér fyrir hendur að láta reisa barnaleikvöll við Grettisgötu. Félagskonur öfluðu að mestu leyti sjálfar til hans fjár og höfðu eftirlit með framkvæmd verksins. Þegar þessi leikvöllur var fullbúinn önnuðust félags- konur sjálfar gæslu á honum í sjálfboðavinnu til að byrja með en síðar unnu verkið fastar gæslu- konur á launum frá KRFÍ. En smám saman tóku síðan bæjar- yfirvöld þetta verkefni í sínar hendur. Hér var um brautryðj- endaverk að ræða þar sem þetta var fyrsti gæsluvöllur fyrir börn í Reykjavík. Kvenréttindafélagið beitti sér fyrir stofnun Mæðrastyrksnefnd- ar árið 1928 en tildrög að stofnun hennar voru þau að reyna að bæta kjör ekkna með sérstökum styrkjum. Fyrir forgöngu KRFÍ var nefndin stofnuð með þátt- töku 15 kvenfélaga í Reykjavík og var ákveðið að starf hennar skyldi ná til allra kvenna sem áttu einar fyrir heimili að sjá, ógiftra mæðra og fráskildra jafnt sem ekkna. Meginmarkmið Mæðrast- yrksnefndar var að vinna að því að viðurkennd yrði skylda þjóð- félagsins við ekkjur og aðrar ein- stæðar mæður með því að veita þeim ekki aðeins meðlög með börnum heldur einnig mæðra- laun svo afkoma heimila þeirra yrði tryggð. Það tók fjölda ára að ná fram þessum markmiðum en fyrir ötula baráttu, þrýsting á stjórnvöld og lagasmíð voru þessi sjónarmið að lokum viðurkennd í tryggingalöggjöf þjóðarinnar. Verkalýðsfélög og vinnumiðlun Réttindamál mæðra og barna voru lengi ein stærstu málin á verkefnalista Kvenréttindafé- Iagsins en félagið lét sér þó engu síður varða hag þeirra kvenna sem unnu fyrir sér utan eigin heimilis, flestar fyrir smánarlega lág laun. Þanig var verkakvenn- afélagið Framsókn stofnað fyrir tilstilli KFRÍ árið 1914 og áttu þær Jónína Jónatansdóttir, fyrsti formaður Framsóknar, og Bríet Bjarnhéðinsdóttir frumkvæði að því. Framsókn var fyrsta verka- lýðsfélag kvenna hér á landi. KFRÍ gekkst einnig fyrir stofnun Félags afgreiðslustúlkna í brauð- og mjólkurbúðum. Þá gekkst KRFÍ einnig fyrir stofnun og rekstri Vinnumið- stöðvar kvenna er tók til starfa árið 1931. Vinnumiðstöðin var starfrækt fyrstu fjögur árin á heimili Bríetar í Þingholtsstræti 18, þar til hún sameinaðist ný- stofnaðri vinnumiðlunarskrif- stofu hins opinbera. Komi þeir tímar... Auk þess sem að framan er tal- ið vann KRFÍ jöfnum höndum að menntunarmálum kvenna. Á fyrstu árum félagsins starfaði lestrarfélag og lesstofa á þess veg- um. Löngu síðar, árið 1941, var svo stofnaður sjóður úr dánargjöf Bríetar Bjarnhéðinsdóttur er nefnist Menningar- og minning- arsjóður kvenna. Hafa fjölda- margar konur hlotið námsstyrki úr sjóðnum fram á þennan dag. í skipulagsskrá sjóðsins er að finna þessi merkilegu orð: „Komi þeir tímar, að konur og karlar fá sömu laun fyrir sömu vinnu og sömu aðstæður til menntunar, efna- lega, lagalega og samkvæmt al- menningsáliti, þá skulu bæði kyn- in hafa jafnan rétt til styr- kveitinga úr þessu sjóði.“ Hallveigarstaðir Á Túngötu 14 í Reykjavík eru Hallveigarstaðir. Kvenrtéttind- afélagið á það hús og rekur sem sjálfseignarstofnun, ásamt Kven- félagasambandi íslands og Bandalagi kvenna. Það var árið 1921 sem Bandalag kvenna sendi ávarp víða um land og óskaði eftir hlutafé til að byggja kvenna- heimili í Reykjavík. Myndi líkast til kallast Kvennahús í dag, líkt og Kvennaframboðið er að gera við Vesturgötuna. En fyrsta húsnefndin fyrir Hallveigarstaði var kjörin 1924 og voru hug- myndir hennar að í húsinu yrðu 50 til 60 gistiherbergi. Voru þau einkum hugsuð fyrir utanbæjar- stúlkur er voru hér við nám og störf. Nokkrar einstaklingsíbúðir fyrir konur voru einnig hugsaðar þarna, kennsluaðstaða eða vinnuskóli ásamt veitinga- og fundasölum. Skrifstofuherbergi fyrir kvennasamtökin. Sölubúð og vinnustofur fyrir Heimilisiðn- aðarfélag fslands. Bókasafn Lestrarfélags kvenna og lestrar- salur. Og leiðbeiningastöð heimilanna. Fjársöfnunin gekk misvel og árið 1925 var stofnað hlutafélagið Kvennaheimilið, síðar bættist Hallveigarstaðnafnið við. Það var síðan ekki fyrr en 45 árum síðar, þann 19. júní, 1967 sem húsið var vígt með listsýningu á verkum kvenna. Það var svo árið 1976 að jafnrétti kynjanna var lögfest frá Alþingi. Slfkt hefur þó auðvitað ekki tryggt jafnrétti kvenna á við karla. Þetta verður ljóst þegar litið er til launamismunarins í landinu. Félagsskapur eins og Kvenréttindafélag Islands á því enn mikið starf fyrir höndum. Þjóðviljinn færir félaginu árn- aðaróskir á þessu afmæli og óskar því velfarnaðar í framtíðinni. IH Bríet Bjarnhéðinsdóttir átti forgöngu að stofnun Kvenréttindafélagsins og var formaður þess fyrstu nítján árin.til 1926. KOMIÞEIR TIMAR... II - ÞJÓÐVILJINN Þrlðjudagur 27. janúar 1987

x

Þjóðviljinn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.