Þjóðviljinn - 27.01.1987, Qupperneq 3

Þjóðviljinn - 27.01.1987, Qupperneq 3
KVENRÉTTINDAFÉLAG ÍSLANDS 80 ÁRA Hluti núverandi stjórnar KFRl. Fremri röð frá vinstri: Erna Bryndís Halldórsdóttir, Amdls Steinþórsdóttir, Lára V. Júlíusdóttir, formaður, Jónína Margrét Guðnadóttir oq Ásthildur Ketilsdóttir. Aftari röð frá vinstri: Edda Hermannsdóttir, Helga Sigurjónsdóttir, Valborg Bentsdóttir Guðrún Gfsladóttir, María Asgeirsdóttir, Kristín Jónsdóttir, Áslaug Brynjólfsdóttir og Dórá Guðmundsdóttir. Myndlistarsýning á afmælinu í dag á Kvenréttindafélag ís- lands 80 ára afmæli. í tilefni þess verður ýmislegt gert til hátíða- brigða. Klukkan 18.00 í dag er síðdeg- isveisla í samkomusalnum að Hallveigarstöðum, Túngötu 18. Til veislunnar er boðið öllum fé- lagsmönnum og velunnurum þess. Auk veislunnar í dag hefur verið opnuð sérstök afmælissýn- ing, myndlistarsýning á verkum núlifandi myndlistarkvenna og er þar að finna verk sem ekki hafa verið sýnd opinberlega áður. Sýningin er að Hallveigarstöðum og var reyndar opnuð hátíðlega um helgina af Vigdísi Finnboga- dóttur, forseta íslands. Verkin á sýningunni eru af ýmsum toga, málverk grafík, tex- tíl, höggmyndir og glerlistaverk, svo nokkuð sé nefnt. Meðal list- akvennanna eru bæði konur sem getið hafa sér góðan orðstír innan lands og titan og aðrar sem eru minna þekktar. Sýningarnefnd skipa þær Hrafnhildur Schram, Björg Þorsteinsdóttir og Jóhanna Bogadóttir. Myndlistarsýningin sem hefur hlotið yfirskriftina „Konur í list kvenna“, enda þótt þar verði einnig að finna verk er falla utan þess efnis, stendur í 2 vikur og lýkur sunnudaginn 8. febrúar. Um helgar stendur til að bjóða gestum upp á ýmislegt til skemmtunar og fróðleiks. Fyrir utan létta tónlist sem er á dagskrá flesta helgardaga verður t.d. op- inn ræðustóll laugardaginn 31. janúar um efnið „Hvers vegna spurði Karítas?" Verður Karítas Gunnarsdóttir málshefjandi en auk hennar taka til máls nokkrar þeirra stjórnmálakvenna er hún spurði í sjónvarpsþættinum „1 takt við tírnann" nú fyrir skemmstu. Sunnudaginn 8. febrúar, síð- asta dag myndlistarsýningarinn- ar, verður skemmtun fyrir yngstu kynslóðina en þá stjórna þær Helga Steffensen og Sigriður Hannesdóttir leikbrúðusýningu frá Leikhúsi brúðubflsins. Verð- ur brúðuleikúsið á dagskrá klukkan 16.00. Auk þessara at- riða er fleira fyrirhugað sem nán- ar verður auglýst síðar. « &rs korvs íj Nú sitja aöeins 9 konur á Alþingi af 60 þingmönnum ■.....--......■ > ■ Hefur þú hugieitt hvað þú getur gert til aö breyta st**u kvenna í þ flokki? Veggspjald sem Kvenréttindafélag íslands lét gera síðastliðið haust um þátt kvenna I flokkapólitík á Alþingi. Ljósari dálkurinn táknar að sjálfsögðu karla á Alþingi. Frá vinstri til haegri; Alþýðubandalag, Alþýðuflokkur, Bandalag jafnaðar- manna (eins og þekkt er orðið fór önnur kvenna Bandalagsins í Sjálfstæðisflokk, hin í Alþýðuflokk) Framsóknarflokkur Sjálfstæðisflokkur. Eftirtalin félög og fyrírtæki senda Kvenréttindafélagi íslands árnaðaróskir í tilefni af 80 ára afmæli félagsins. Verkakvennafélagid Snót Vestmannaeyjum Verkalýðs- og sjómannafélag Miðneshrepps Verkalýðs- og sjómannafélga Gerðahrepps Verkalýðsfélag Akraness Verkalýðsfélagið Afturelding Hellissandi Samband íslenskra samvinnufélaga Alþýðubankinn Samvinnubanki íslands Landsbanki íslands Samvinnuferðir Landsýn Nýja sendibílastöðin Samvinnutryggingar Grandi hf.

x

Þjóðviljinn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.