Þjóðviljinn - 14.03.1987, Qupperneq 1
Laugardagur 14. mars 1987 61. tölublað 52. órgangur
Launamisréttið
Konur sitja eftir
Kjararannsóknanefnd:
Enn eykstmunur álaunum karla og kvenna. Karlar í afgreiðslu- og skrifstofustörfum hafa 62%
hœrri heildarlaun en konur ísömu störfum.
Bolli Pór Bollason:
Munur á dagvinnutekjum tíuprósent. Að henni slepptri stóreykst munurinn.
Karlarfá yfirvinnugreiðslur og aukasporslur sem konurfá síður
Meðaltímakaup verkamanna á
3. ársfjórðungi 1986 var
11,4% hærra en kvenna í sömu
störfum og meðaltímakaup karla
í afgreiðslustörfum var 34,5%
hærra en afgreiðslukvenna. Arið
1985 var þessi munur 7,1% hjá
verkafólki og 25,9% hjá af-
greiðslufólki. Þetta kemur fram i
nýjasta fréttabréfí kjararann-
sóknancfndar.
Launamunur kynjanna hefur
dregist lítillega saman hjá skrif-
stofufólki, 1985 voru karlar með
38,9% hærra meðaltímakaup en
konur í sömu störfum, en á 3.
ársfjórðungi 1986 var það þriðj-
ungi hærra.
„Það er alveg ljóst að það hefur
orðið meira launaskrið á skrif-
stofum en í verslunum og þess
vegna hafa konur í afgreiðslu-
störfum dregist aftur úr,“ sagði
Magnús L. Sveinsson formaður
Verzlunarmannafélags Reykja-
víkur, í samtali við Þjóðviljann
þegar hann var inntur álits á
þessu.
„Skýringin á því að munurinn
er að aukast gæti verið sú að á
síðasta ári jókst kaupmáttur
nokkuð og þá má vera að konur
hafi, fremur en karlar, dregið úr
vinnu,“ sagði Bolli Þór Bollason.
hjá Þjóðhagsstofnun í samtali við
Þjóðviljann, en hann hefur tekið
saman heildarlaunamun kynj-
anna frá 1980 samkvæmt skatt-
framtölum.
Samkvæmt þeim minnkaði
heildarlaunamunur kynjanna í
Helgi Þór
Níðst á
samherja!
„Ég er sjálfur verkamaður sem
hef brotist áfram og er ekki fædd-
ur með neina silfurskeið í munni.
Mér finnst þið ættuð ekki að vera
að níðast á samherja ykkar,“
sagði Helgi Þór Jónsson í viðtali
við Sunnudagsblað Þjóðviljans.
„Ég ætla að minna á það að ég
hreinsaði hús Þjóðviljans árið
1973 og þurfti að koma þrisvar til
þess að rukka af því eigendur
hússins gátu ekki komið sér sam-
an um hvaða nafn ætti að hafa á
reikningnum... Eru þessi læti í
Þjóðviljanum einhver hefnd fyrir
það?
NAFN VIKUNNAR
í Sunnudagsblaði
Þjóðviljans
verkamannnastétt úr 63% í 48%
á milli áranna 1980 og 1985.
„Munurinn á dagvinnutekjum
er sáralítill, um 10%, en þegar
henni sleppir eykst munurinn í
50%,“ sagði Bolli. „Skýringarnar
á því eru þær að vinnuvika
kvenna er um 10 tímum styttri en
karla, og auk þess fá þeir ýmsar
aukasporslur og yfirvinnu-
greiðslur sem konur fá síður."
Enda þótt launamunur hafi
minnkað þetta mikið hjá verka-
fóiki er ekki sömu sögu að segja
af fólki við afgreiðslu- og skrif-
stofustörf. 1980 voru karlar í
þeim störfum með 65% hærri
heildarlaun en konur en 1985
voru þeir 62% hærri í launum.
„Ég treysti mér ekki til að
skýra þetta án þess að hafa meiri
upplýsingar í höndunum um gerð
þessarar könnunar,“ sagði Magn-
ús L. Sveinson, „en það er stað-
reynd að karlar fá meiri yfirborg-
anir en konur.“
Það vekur athygli að karlar í
störfum hjá ríkinu eru „aðeins“
með tæplega þriðjungi hærri
heildarlaun en konur í sömu
störfum.
-vd.
Karlar í afgreiðslu- og skrifstofustörfum hafa 62% hærri heildarlaun en konur í sömu störfum. Launamunurinn hefur
aðeins minnkað um 3% á 5 árum. Mynd E.ÓI
Alþýðubandalagið
Keflavík
Hannes í pólitfskt oriof
Formaður bœjarráðs fjarverandi áfundum síðan hann varð uppvís að trúnaðar-
broti
Nú gerast veður válynd meðal
Alþýðuflokksmeirihlutans í
bæjarstjórn Keflavíkur. Víkur-
fréttir segja að félagar Hannesar
Einarssonar, formanns bæjar-
ráðs, hafí kraflst þess að hann
færi í „pólitískt orlof,“ í kjölfar
þess trúnaðarbrots, sem hann
framdi er honum varð höndin full
laus í meðferð trúnaðarskýrslu
um úttekt á fjárreiðum bæjarfél-
agsins. Hannes hefur ekki mætt á
fundum bæjarráðs og bæjar-
stjórnar um nokkurt skeið og ýja
Víkurfréttir að því að orlof
bæjarfulltrúans sé til frambúðar.
Hannes Einarsson vildi ekki tjá
sig neitt um málið er Þjóðviljinn
innti hann eftir því hversvegna
hann hefði ekki mætt á fundum
bæjarráðs og bæjarstjórnar síðan
málið komst í hámæli. í viðtali
við Víkurfréttir segir Hannes að
hann muni innan skamms koma
aftur til starfa innan bæjarstjórn-
ar og bæjarráðs. „Ég mun ekki
svíkja þá kjósendur sem kusu mig
til trúnaðarstarfa."
„Það getur vel verið að það sé
eitthvað til í því að við höfum
farið þess á leit við Hannes að
hann mætti ekki á fundum fyrr en
öll kurl væru komin til grafar í
þessu máli. En það var ekki nein
formleg samþykkt gerð þar að
lútandi," sagði Vilhjálmur Ketils-
son, bæjarstjóri og bæjarfulltrúi í
Keflavík.
Óstaðfestar heimildir blaðsins
benda til að hremmingum
alþýðuflokksmanna í Keflavík,
sé langt í frá lokið og herma
fregnir að Vilhjálmur Ketilsson
hóti að segja af sér bæjarstjórast-
öðunni, ef Hannes Einarsson
mæti aftur til leiks.
- RK
Fjölmennt
á náms-
stefnunni
Nær 100 manns höfðu í gær
skráð sig til þáttöku á námsstefnu .
Alþýðubandalagsins um innihald
uppeldis og menntunar. Náms-
stefnan hefst nú árdegis kl. 10 að
Hverfisgötu 105.
Að sögn Kristjáns Valdimars-
sonar skrifstofustjóra ABl. er
mikill áhugi fyrir þessari náms-
stefnu og er gert ráð fyrir að hátt á
annað hundrað manns muni taka
þátt í námsstefnunni þar sem
fluttir verða fjölmörg erindi og
pallborðsumræður síðdegis.
-Ig.