Þjóðviljinn - 14.03.1987, Page 16
Aðalsími
681333
Kvöldsími
681348
Helgarsími
681663
þjómnuiNN
Laugardagur 14. mars 1987 61. tölublað 52. örgangur
SAMVINNUBANKI
ÍSLANDS HF.
Húsnœðisstofnun
Klúðraði kröfulýsingum
Fyrirtœkið Stemma áHöfn greiddi ekki skyldusparnað verkafólksins til Húsnœðisstofnunar. Kröfufrestur íþrotabú
Stemmu útrunninn þegar stofnunin sendi kröfulýsingar. Húsnæðisstofnun borgar brúsann
Þegar fyrirtæki greiðir ekki
skyldusparnað til Húsnæðis-
stofnunar, enda þótt það hafi
dregið hann af kaupi fólksins, þá
er ekki hægt að líta á slíkt öðru-
vísi en sem fjárdrátt,“ sagði
Björn Grétar Sveinsson, formað-
ur Verkalýðsfélagsins Jökuls á
Höfn f Hornafirði, í samtali við
Þjóðviljann, en Húsnæðisstofnun
hefur nú samþykkt að greiða fisk-
verkafólki á Höfn skyldusparnað
að upphæð 717.000 þar sem hún
var of sein að senda kröfulýsingu í
þrotabú fyrirtækisins Stemmu,
en það hefur ekki greitt inn-
heimtan skyldusparnað til stofn-
unarinnar frá árinu 1984 til 1986.
Stemma fékk heimild til
greiðslustöðvunar vegna fjár-
hagsörðugleika í fyrrasumar.
„Málið komst ekki upp fyrr en
einn aðili leitaði til verkalýðsfé-
lagsins vegna vangreidds skyldu-
sparnaðar og þá var ákveðið í
samráði við Láru Júlíusdóttur,
lögfræðing ASÍ, að senda málið
til Rannsóknarlögreglu ríkisins
strax í fyrrasumar,“ sagði Björn
Grétar.
í framhaldi af því sendi fyrir-
tækið Veðdeild Landsbanicans
ávísun fyrir skyldusparnaðinum,
en Veðdeildin annast innheimtu
fyrirHúsnæðisstofnun. Sú ávísun
var hinsvegar endursend af Veð-
deildinni og bent á að dráttar-
vextir væru vanreiknaðir. For-
Búvörur
Bændur
fá sitt
Niðurgreiðslur á bú-
vörum koma á móti
hœkkun launaliðs
bœnda. Búvara kemur
þó eitthvað til með að
hœkka
Rfldsstjórnin hefur afráðið að
auka niðurgreiðslur á land-
búnaðarafurðum til að mæta
þeirri 20% hækkun á launalið
bænda, sem Verðlagsnefnd bú-
vara ákvað í upphafi mánaðar-
ins. Að ósk Steingríms Her-
mannssonar forsætisráðherra
komu aðeins 10% hækkunarinn-
ar til framkvæmda 1. mars, en
liðlega 12% hækkunarinnar var
frestað til 15. þessa mánaðar.
Niðurgreiðslurnar verða
greiddar með fé sem bændur
greiða sláturhúsum fyrir kostnað
við birgðageymslu á kjöti og er
meining ríkisstjórnarinnar að
með auknum niðurgreiðslum
takist að minnka kjötbirgðirnar
og draga úr þeim útgjöldum sem
eru kjötgeymslunni samfara.
ráðamenn fyrirtækisins sendu þá
nýja ávísun, nokkru hærri.
Á sama tíma var Stemma tekin
til gjaldþrotaskipta og bústjóri
skipaður. Þrátt fyrir það endur-
sendi Veðdeildin einnig nýju
ávísunina með athugasemdum.
Þá tók Húsnæðisstofnun við inn-
heimtunni og undirbjó loks
kröfulýsingar en þá var það of
seint. Kröfufresturinn var út-
runninn.
„Það er Húsnæðisstofnun sem
ber ábyrgðina á þessu, það er
augljóst,“ sagði Björn Grétar,
„svona mistök eru fáheyrð.“
Lára V. Júlíusdóttir og Ás-
mundur Stefánsson áttu fund
með Alexander Stefánssyni fé-
lagsmálaráðherra nú í vikunni.
Hann samþykkti á mánudag að
Húsnæðisstofnun myndi borga
brúsann, þar sem mistökin liggja
hjá henni.
„Það er mjög mikilvægt að
launafólk fylgist með að þessu fé
sé skilað inn með því að fylgjast
með yfirliti og snúa sér þá tafar-
laust til verkalýðsfélaga ef
greiðslur berast ekki til Húsnæð-
isstofnunar,“ sagði Björn Grétar.
-vd.
Allóvenjulegur árekstur varð á Laugavegi í gær á móts við Nóatún þegar sex þannig koll af kolli þar til bílalestin stöðvaðist á lögreglubifreið. Ein kona var flutt
bílar lentu í einum og sama árekstrinum. Areksturinn varð með því móti að áslysadeild og bifreiðarnar eru allartöluvertskemmdar, sumarónýtar. Mynd-
fólksbifreið lenti harkaleqa aftan á öðrum fólksbíl sem kastaðist á næsta bíl og E.ÓI.
Byggingarmenn
Samningar tókust í gærkvöld
í gærkvöldi tókust samningar
allra hópa Sambands byggingar-
manna vitl atvinnurekendur,
þvert á það sem búist var við.
Fundur deiluaðila með sáttasemj-
ara hafði staðið á annan sólar-
hring. Samningurinn verður
lagður undir fyrstu félögin strax í
dag. Trésmiðafélag Reykjavíkur,
stærsta aðildarfélagið innan
Sambands byggingarmanna, hef-
ur boðað fund kl. 14 í dag.
Þjóðviljinn náði sambandi við
Benedikt Davíðsson, formann
Sambands byggingarmanna,
síðla í gærkveldi. Benedikt vildi
ekki tjá sig um samninginn þar
sem samkomulag væri á milli
deiluaðila um að greina ekki efn-
islega frá samkomulaginu fyrr en
það hefði verið borið undir helstu
aðildarfélögin.
„Annars er ég sæmilega sáttur
við þetta samkomulag. Við get-
um sagt að við höfum náð okkar
takmarki að töluverðu leyti, þ.e.
að færa kauptaxtana í horf við
raunverulegar kaupgreiðslur. Ég
á ekki von á öðru en að
samkomulagið verði samþykkt
hjá aðildarfélögum 'Sambands
byggingarmanna,“ sagði Bene-
dikt Davíðsson.
Heimildir Þjóðviljans herma
að óánægju hafi frá upphafi gætt
meðal margra iðnmeistara með
þá óbilgirni sem ríkt hefur hjá
Vinnuveitendasambandi íslands
til krafna byggingarmanna. En
VSÍ fór með samningsréttinn
fyrir atvinnurekendur og kann
þessi óánægja að hafa ýtt undir að
samkomulag náðist í gærkvöldi.
„Það sem ýtti líka undir að
samningar tókust eins fljótt og
raun ber vitni, er að ýmsum stór-
verkefnum, svo sem byggingu
nýju flugstöðvarinnar, mundi
seinka verulega við verkfallið.
Ýmsum atvinnurekendum og
meisturum var því umhugað um
að ná samkomulagi eins fljótt og
auðið yrði,“ sagði Benedikt Da-
víðsson.
-RK
Þingholt
Umferðin til umræðu
Guðrún Jónsdóttir arkitekt
mun kynna tillögur þær, sem
teiknistofa hennar hefur gert að
hverfisskipulagi Þingholtanna, á
almennum fundi Ibúasamtaka
hverfisins í samkomusal gamla
Verslunarskólans við Hellusund á
sunnudag ki. 16.30. Þá verða
einnig rædd áform borgaryfir-
valda um breikkun Fríkirkjuveg-
ar og Sóleyjargötu í 4 akreinar
auk annarra mála sem kunna að
snerta skipulagsmál hverfisins.
Embættismenn og fulltrúar
flokkanna munu mæta á fundin-
um.