Þjóðviljinn - 17.03.1987, Blaðsíða 1

Þjóðviljinn - 17.03.1987, Blaðsíða 1
Stadan í 1. delld karla I handknattlelk Víkingur ....15 13 1 1 367-310 27 Valur ....15 9 2 4 385-345 20 Breiöablik... ...15 9 2 4 352-343 20 FH ....15 9 1 5 383-347 19 Stjarnan ....15 7 2 6 374-360 16 KA ....15 7 2 6 347-344 16 KR ....15 6 1 8 311-338 13 Fram ....14 5 0 9 333-337 10 Haukar ...15 2 2 1' I 312-370 6 Ármann ....14 0 1 13 263-350 1 101 ..98 ..81 ..80 ..79 ..79 .78 Bikar Einn leikur Einn leikur var í Bikarkeppni HSÍ í gær. Stjarnan sigraði Reyni frá Sandgerði 35-24. Knattspyrna Leiknir í 3. deild Leiknismenn tryggðu sér sæti í SV-riðli 3. deildar með sigri gegn Ármanni á gervigrasinu. Leiknir sigraði 4-1 og taka því sæti Ármenninga í 3. deild. Allofs til Real Frá Jóni H. Garðarssyni, fráttamanni Þjóðviljans í V-Þýskalandi: Það er nokkuð víst að Klaus Allofs mun leika með Real Ma- drid næsta keppnistímabil. Hann hefur gengið frá öllum samning- um en á aðeins eftir að skrifa undir. Klaus Allofs er 30 ára og hefur leikið með Köln undanfarin ár. Líklegt er að samningur hans sé til 3 ára. Þetta eru ekki góðar fréttir fyrir Köln. Þeir hafa þá misst allar HM stjörnur sínar, Pi- erre Littbarski til RC Paris og Tony Schumacher. Þá bendir flest til þess að Karl Heinz Rummenigge komi aftur heim og leiki með Bayern Munc- hen. Hann er meiddur og fær að öllum líkindum ekki framlengd- an samning sinn við Inter. Hann hefur sagst vilja enda feril sinn hjá Bayern og munu viðræður nú vera í gangi. Þá hefur Uwe Rahn fengið nokkur tilboð sem hann íhugar m.a. frá ESV Eindhoven og Sheffield Wednesday. Markahæstir Sigurjón Sigurðsson, Haukum. Hannes Leifsson, Stjörnunni.... Gylfi Birgisson, Stjörnunni... KonráðOlavsson, KR............ Karl Þráinsson, Víkingi....... Jón Þórir Jónsson, Breiðabliki... Jakob Sigurðsson, Val......... I íslandsmeistaratitlinum fagnað Kristján Sigmundsson, Árni Friðleifsson, Bjarki Sigurðsson, Sigurður Ragnarsson og Ásgeir Sveinsson fagna sigri Valsmanna gegn FH og þar með sigri Víkinga á Islandsmótinu í handknattleik. Mynd:E.Ól. Evrópukepprti Meistaramir áfram V-Þýskaland England Hörkuleikir Það má búast við hörkuleikjum í undanúrslitum FA. Bikarsins. Tottenham bikarmeistarar 1981 og 82 mæta Watford og Leeds mætir Coventry. Um helgina voru tveir leikir í Evrópukeppnunum. Evrópu- meistarar Dynamo Kiev burstuðu Besiktas Istanbul á útivelli í Evr- ópukeppni meistaraliða, 5-0 og Malmo vann Ajax í Evrópu- keppni bikarhafa 1-0. Oleg Blokhin og Yevtushenko skoruðu tvö mörk hvor yfir Dy- namo og Belanov eitt. Það má því teljast öruggt að Dynamo Kiev séu komnir í undanúrslit. Torbjörn Persson skoraði sigurmark Malmö gegn Ajax úr vítaspymu í fyrri hálfleik. Báðir þessir leikir áttu að vera 4. mars en var frestað vegna veðurs. Síðari leikimir eru á morgun. -Ibe/Reuter Blak Risamir úr leik KA kom heldur betur á óvart þegar þeir slógu sjálfa Blakrisana Þróttara úr bikarkeppninni í blaki á laugardaginn. KA sigraði 3-2 og þar með er sigurgöngu Þróttar í bikarkeppninni lokið. Þetta var fyrsta tap Þróttar í bikarkeppninni í 4 ár og ber vitni um gífurlegar framfarir KA. KA vann fyrstu lotuna 15-8, en Þróttarar tvær næstu 13-15 og 10- 15. Akureyringar jöfnuðu 15-4 og úrslitalotan var æsispennandi. Þróttarar komust yfir 2-6, en KA náði yfirhendinni og komst í 8-6. Þróttarar jöfnuðu 10-10 en KA sigraði 15-12. Það munaði miklu að Leifur Harðarson lék ekki með Þrótti. Hann meiddist fyrr í vikunni í hné. KA hefur staðið sig mjög vel og aðeins tapað einum leik á árinu, gegn Þrótti í deildinni. Þá sigraði ÍS Fram 3-2, í hinum undanúrslitaleiknum, 10-15, 15- 7,15-10,13-15,15-11. Það verða því ÍS og KA sem leika til úrslita í bikarkeppninni. Þá vom tveir leikir í Bikar- keppni kvenna. Breiðablik sigr- aði KA 3-1: 15-2, 15-3, 10-15 og 15-1. Þá sigraði ÍS Þrótt 3-2: 15-8, 6-15, 15-12, 11-15 og 15-7. -Ibe Lattek tilKölnar Heynckes t Frá Jóni H. Garðarssyni fróttamanni Þjóðviljans í V-Þýskalandi: Udo Lattek hefur verið ráðinn sem „tæknilegur ráðunautur“ Kölnarliðsins. Við Bayern Munc- hen tekur Jupp Heinckes, þjálfari Borrussia Munchengladbach. Lattek hafur margsinnis lýst því yfir að hann vifji fara að minnka við sig og má segja að hann hafi beðið eftir tækifæri sem þessu. Hann mun þó hafa puttana í þjálfun Kölnar og mun staða hans vera svipuð stöðu enskra framkvæmdastjóra í knatt- spyrnu. Daun mun þó áfram þjálfa liðið. Það má búast við að einhver viö Bayern leikmannaskipti með þjálfara- breytingunum. Michael Rum- minigge hefur lýst sig reiðubúinn til að fara til Kölnar og svo er einnig um fleiri leikmenn. Þá má búast við því að Heynckes reyni að fá til Bayern, uppáhalds leik- mann sinn, Uli Borowka sem leikur með Gladbach, en samn- ingur hans rennur út í vor. Ein megin ástæðan fyrir því að Lattke hættir hjá Bayern segir hann vera að hann vilj i eyða meiri tíma með dóttur sinni. Hann á hús í Köln og ætlar að hafa það rólegt og segist vera orðinn leiður á því að standa uti á velli í roki og rigningu. Logi Bergmann Eiðsson Þrlðjudagur 17. mars 1987 ÞJÓÐVIUINN - SÍÐA 9

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.