Þjóðviljinn - 21.03.1987, Side 10
ÓKNIN E
Persaflóastríðið
Skoðanakannanir sýna
fylgisaukningu
G-listans á Reykjanesi.
Kannanir Helgarpóstsins
mars 15,7%
Kannanir Félagsvísindastofnunar
mars 14,2%
9
Við þurfum 2%
í viðbót til að
tryggja kosningu
Ólafs Ragnars
á Alþingi
VIÐ erum á réttri leið!
VIÐ náum árangri!
VERTU MEÐ!
Israel hagnast
Leiðtogi eina stjórnarandstöðuflokks-
ins í Iran gagnrýnir stríðsreksturinn
Mehdi Bazargan leiðtogi
eina stjórnarandstöðuflokks-
ins á íranska þinginu hefur
sent þingforsetanum Rafsand-
jani opið bréf þar sem styrjöld-
in við íraka er gagnrýnd og því
haldið fram að hingaðtil hafi ís-
raelsmenn í raun hagnast
mest á Persaflóastyrjöldinni.
Bréfinu hefur verið dreift í Te-
heran og varð hinn þýski Spiegel
fyrstur til að birta það utan Irans.
Mehdi Bazargan er leiðtogi
Frelsishreyfingar írans, Nehzate
Azadie Iran, sem er eini löglegi
stjórnarandstöðuflokkurinn í
landinu. Bazargan var mikilvirk-
ur í baráttunni gegn keisaranum
og varð fyrsti forsætisráðherrann
eftir byltinguna í febrúar 1979.
Hann hefur áður gagnrýnt friðar-
skilmála írana, að Hussein fari
frá völdum í Bagdad og írakar
greiði írönum gríðarlegar skaða-
bætur, og í ágúst í fyrra steig hann
það skref að gagnrýna Khomeini
æðstaklerk sjálfan.
Það voru írakar sem hófu Pers-
aflóastríði í september 1980 og
réðust inní íran. Eftir tvö ár var
íraksher hrakinn frá íran og hef-
ur styrjöldin eftir það verið háð á
írösku landi. í bréfi sínu til Rafs-
andjani segir Bazargan að frá ‘82
hafi fransstjóm háð styrjöldina
gegn boðum Kóransins, gagnrýn-
ir sérstaklega þögn stjórnvalda
um fórnarlömb loftárása í íran og
spyr hversvegna þeim hafi verið
svarað með eldflaugaárásum á ír-
askar borgir í stað þess að verða
sér út um sæmilegar loftvarnir.
Pá segir Bazargani að í raun
hafi ísraelsmenn hagnast mest á
styrjöld írans og íraks þarsem
hún hafi veikt bæði ríkin ísrael í
hag. Hann tekur þar undir með
mörgum erlendum fréttaskýr-
endum, en í íran er þessi
gagnrýni óvenju hörð þarsem fs-
Mehdi Bazargan opinber stjómar-
andstöðuleiðtogi í Teheran; gagn-
rýnir styrjaldarreksturinn sem ó-ís-
lenskan.
rael er bæði pólitískur og trúar-
legur höfuðandstæðingur.
Fylgismenn Bazargan njóta
álits í Iran umfram aðra stjórnar-
andstöðuhópa enda er um að
ræða samskonar íslamska hreyf-
ingu og við stjómvölinn situr,
þótt túlkanir á Kóraninum og
æskilegum framgangi byltingar-
innar séu ólíkar. Bréf Bazarganis
verður þeim mun þróttmeira sem
það kemur fram rétt fyrir íranska
nýárið sem hefst í dag. Því hefur
verið heitið nokkra stund að hin
endanlega sókn íranshers færi
fram áður en nýja árið gengi í
garð, en ennþá eru íranar langt
frá því að sjá fyrir endann á Pers-
aflóastríðinu þrátt fyrir gott gengi
í síðustu sóknum, við Basra í jan-
úar, og nú í Kúrdahéruðum í
norðri þarsem nokkurt landsvæði
hefur unnist.
Tyrkland
Landabréfabók
bönnuð
Landabréfabók bandaríska
tímaritsins „National Geo-
graphic" er á síðasta bannlista
ritskoðunaryfirvalda í Tyrk-
landi sem birtur var í gær.
Engin ástæða er gefin fyrir
banninu, en landabréfabækur
(Atlasar) eru iðulega á þessum
bannlistum vegna þess að í sögu-
legum hluta þeirra er oft getið um
Armeníu og Kúrdistan. Tyrkja-
stjórn viðurkennir ekki armensk
og kúrdísk þjóðarbrot innan
landamæra sinna, bannar útgáfu
rita á þessum tungum og hefur í
áratugi háð grimmilega baráttu
gegn vopnuðum skæruliðum sem
vilja sjálfstæði til handa þessum
þjóðum.
A hinum nýja bannlista hinna
tyrknesku bandamanna íslands í
Nató eru meðal annars verk um
Marx og Lem'n á þýsku, tyr-
kneskt almanak útgefið í Vestur-
Berlín og írönsk áróðursrit á far-
si. Mörgþúsund erlend rit eru
bönnuð í Tyrklandi, þar á meðal
verk Maxims Gorky, landabréfa-
10 SÍÐA - ÞJÓÐVIUINN
bók frá hinu eðalbreska Times og
bækur Henry Millers. -m
Beirút
Öðrum Sádí-
araba sleppt
Haft er eftir áreiðanlegum
heimildarmönnum meðal
Amal-sjíta að sádíarabíska
gísllnum Khaaled Deeb hafi
verið sleppt í dag.
Er búist við að hann komi fram
á blaðamannafundi bráðlega
einsog hinn fyrri, Bakr, sem var
sleppt á miðvikudag og ræddi við
blaðamenn í höfuðstövum Sýrl-
endinga að viðstöddum Nabih
Berri, foringja Amalsíta.
Deeb var rænt í janúarlok af
óþekktum hópi sem kallar sig
„Fylgismenn heilags íslamsks
stríðs“. Ekki er ljóst hvort frelsun
sádíarabanna er vottur um að
brátt rofi til í málum annarra gísla
í Beirút.
-m