Þjóðviljinn - 28.03.1987, Blaðsíða 9
Afreksverk
erfidismanns
Sigurjón Sigtryggsson:
Frá Hvanndölum tii Úlfsdala
Þættir úr sögu Hvanneyrarhrepps
Sögusteinn 1986.
Nokkru eftir áramótin fékk ég í
hendur þriggja binda verk, sem
út kom í bókaflóðinu fyrir jólin.
Bókaútgáfan Sögusteinn gaf
verkið út, en það nefnist: Frá
Hvanndölum til Úlfsdala. Þættir
úr sögu Hvanneyrarhrepps.
Nú er það þannig með mig að
slíkar bókmenntir freista mín
meira en flest annað lesmál. Ég
skeiðaði því af stað gegnum þessi
þrjú bindi og þótti mér þau síst of
löng verið hafa, er ég lokaði því
siðasta. Þetta er ekki einasta stór-
fróðlegt verk, heldur er það líka
svo vel skrifað, að það er beinlín-
is skemmtilegt aflestrar. Efninu
skiptir höfundur þannig í bindin:
Fyrsta bindið fjallar um
Hvanndali, Héðinsfjörð og Siglu-
nes. Fyrst er skýrt frá landnáms-
sögu þessa svæðis, þá frá sam-
gönguleiðum um þetta erfiða
byggðarlag og loks er greint frá
hreppamörkunum. Landnáms-
jörð þessa svæðis var Siglunes.
Þar var fyrsta kirkjan, þar voru
manntalsþingin háð og fyrsta
nafnið á hreppnum var Siglunes-
hreppur. Árið 1614 er kirkjan
flutt frá Siglunesi að Hvanneyri í
Siglufírði, en það er ekki fyrr en
1722 að Hvanneyri er gerð að lög-
boðnum þingstað. Eftir það var
alltaf talað um Siglufjarðarhrepp
og hélst það til 1807. Þá fyrst
kemur til nafnið Hvanneyrar-
hreppur, sem hélst óbreytt þar til
Siglufjörður fékk kaupstaðar-
réttindi 1918, en þá var hrepps-
nafnið lagt niður um leið.
Fjórði kaflinn fjallar svo um
kirkjusóknina. Um breytingar á
sókninni, um staðsetningu sókn-
arkirkjunnar og um hálfkirkjur
og bænhús. Þá eru raktar kirkju-
byggingar og skýrt frá ýmsum af-
skipum biskupsstólanna af
kirkjumálum í sókninni.
Fimmti kafli fyrsta bindis ber
heitið: Hnignun byggðarinnar.
Þar lýsir höfundur kostum og ó-
kostum byggðarlagsins og reynir
að gera sjálfum sér og lesendum
grein fyrir orsökum þess hve
byggð í Hvanneyrarhreppi er ó-
stöðug. Hann lýsir allnákvæm-
lega landkostum og lífsbjargar-
möguleikum, því þó hreppurinn
væri harðbýll var þar mörg mat-
arholan. En sérstaklega fannst
mér fróðleg og athyglisverð
greinargerð hans um þátt Hóla-
stóls í hnignun byggðarinnar.
Varð mér hugsað til Guðrúnar í
Bæ á Rauðasandi, sem átti allan
Rauðasandshrepp og þrúgaði
bændum með háum iandskuldum
og mörgum öðrum kvöðum og yf-
irgangi, svo þeir fengu hvergi
rönd við reist. Sá var þó munur á
Guðrúnu og forráðamönnum
Hólastóls, að hún bjó í Rauðas-
andshreppi og þekkti þar allt og
alla. En herrar Hólastóls voru
víðsfjarri og ókunnugir öllum að-
stæðum í Hvanneyrarhreppi.
Þarna er mikil saga sögð á fáum
síðum og væri vel þess verð að
vera gaumgæfð af sérfróðum
mönnum. Að loknum þessum
inngangsköflum hefst aðalkafli
fyrsta bindis, en hann nefnist:
Bújarðir og bændatöl. Hann
fjallar um Hvannadali, Héðins-
fjörð allan og Siglunes. Þarna er
hverri jörð lýst nákvæmlega,
stærð, legu og kostum hennar og
göllum sem bújarðar. Þá er sagt
hverjir áttu jarðirnar og að lok-
um taldir allir bændur og húsfólk
sem jarðirnar sátu svo lengi sem
þær voru í byggð. Af búendum er
mjög mislöng saga að vonum, en
af sumum þeirra er þó ótrúléga
nákvæm saga.
í bændatölunum er saman
kominn geysimikill ættfræðilegur
fróðleikur. Mætti segja mér að
mörgum ættfræðigrúskaranum
þætti þar gott til fanga í framtíð-
inni.
Fyrsta bindinu lýkur svo á
Siglunesi. Sá kafli er bæði langur
og ýtarlegur. Er þar samandreg-
inn mikill fróðleikur um þetta
byggðarlag alveg frá landnámi til
okkar daga. Þar er lýst Iandslagi,
landgæðum og afkomumögu-
leikum, en Siglunes var lengi tal-
ið byggilegasti hluti hreppsins.
Að lokum er svo bændatal, sem
nær til 1959. Þótti mér þetta með
skemmtilegustu köflum verksins.
Annað bindi þessara ritverks
fjallar um Siglufjörð, en þar var
alltaf bæði fjölmennasta byggðin
og stöðugasta. Þar er byrjað. á
Staðarhóli og endað á prestatali
Hvanneyrar. Eins og áður er gerð
grein fyrir hverri jörð og afbýli
ásamt ábúendum hverar jarðar.
Þéttbýlismyndunin á Þormóðs-
eyri er þó ekki í þessu bindi, held-
ur sérkafli í síðasta bindinu. Ég
var búsett á Siglufirði í þrjú og
hálft ár og hafði áður verið þar
tvö sumur í sfld. Við lestur þessa
bindis rann upp fyrir mér hve
ótrúlega lítið ég vissi um þennan
stað eftir þó þetta langa dvöl.
Þriðja og síðasta bindi þessa
stórmerka ritverks fjallar fyrst
um Dalabyggðina. Þessi litla
byggð, sem hét fullu nafni Úlfs-
dalir, en gekk alltaf manna á milli
undir nafninu Dalir, lá milli
fjallsins Stráka við Siglufjörð og
Álmenninga í Fljótum. Þegar
maður ekur þama um finnst
manni alveg lygilegt að þarna
skyldi vera búið um aldur og það
langt fram á tuttugustu öld.
En við lestur kafíans um Dala-
byggðina komst ég að raun um að
þessi staður á sér langa og á marg-
an hátt merkilega sögu. í ljós
kom að þarna höfðu búið miklir
atorku- og framkvæmdamenn og
hafði sumum þeirra jafnvel tekist
að verða ríkir. Það var þó aðeins
hægt með harðfenginni sjósókn,
því af landbúnaði varð enginn
ríkur í Dölum. í augum nútíma-
mannsins er þó sjósókn ekki sér-
lega fýsileg frá þessum stað.
Þarna voru þrír bæir og er rakin
byggðasaga þeirra og síðan fylgir
bændatal þeirra allra. Þessi kafli
er allur ótrúlega forvitnilegur og
skemmtilegur aflestrar.
Þá er komið að kafla sem nefn-
ist: Ágrip af verslunarsögu. Þar
rekur höfundur verslunarsögu
Hvanneyrarhrepps, sem er fyrst
og fremst saga Siglufjarðarversl-
unar. Sú saga er ekki bara
fróðleg, heldur mjög skemmtileg
og á köflum beinlínis spennandi.
Þar kemur fram m.a. að fyrsta
kona, sem stóð fyrir verslunar-
rekstri á eigin ábyrgð, var kaup-
maður á Siglufirði, en konan var
að vísu dönsk. Verslunarsögunni
fylgja svo æviþættir faktora allt
frá 1792 til 1927.
í næst síðasta kafla ritverksins,
sem nefnist: Kauptúnið byggist,
rekur höfundur sögu þéttbýlis-
myndunar á Þormóðseyri. Á Þor-
móðseyri, eins og víða annars
staðar á landinu, voru verslunar-
húsin lengi einu byggingarnar á
staðnum. í þessum kafla er frá
því greint hvar fyrstu íbúðarhúsin
voru byggð, hvenær þau voru
byggð og hverjir byggðu þau. Sú
saga er rakin allt til síðustu alda-
móta og gerð góð grein fyrir
fyrstu íbúum þessa staðar, sem
seinna varð Siglufjarðarkaup-
staður. Allt þetta gerir höfundur
svo vel að maður fyllist óþreyju
að komast til Siglufjarðar til að
ganga um eyrina með höfundi og
sja alia pessa staöi meo eigm
augum. Það er aðall góðrar sögu
að vekja forvitni lesandans og
brennandi löngun til að fá meira
að heyra.
Síðasti kafli þriðja bindis nefn-
ist: Hákarlaveiðar. Þar er gerð
grein fyrir þessum merka þætti í
atvinnulífi Hvannhreppinga, og
lýst bæði veiðiaðferðum og verk-
un hákarlsins. En sérstaklega
finnst mér vel skýrð þýðing há-
karlaveiðanna fyrir lífsafkomu
fólks í öllum hreppnum. Að lok-
um er skrá yfir öll þilskip í
Hvanneyrarhreppi, hvar og hve-
nær þau voru smíðuð, hverjir áttu
þau, hverjir gerðu þau út og
hverjir voru með þau. Loks er
rakin saga skipanna, misjafnlega
nákvæmt eftir heimildum, og
hver urðu endalok þeirra.
Aftan við síðasta kafla er
nafnaskrá upp á 96 síður, og
verkinu lýkur svo á stuttum eftir-
mála höfundar.
En hver er hann þá þessi af-
reksmaður? Hann heitir Sigurjón
Sigtryggsson, verkamaður, er
Svarfdælingur að ætt og uppruna,
en hefur verið búsettur á Siglu-
firði síðan 1946. Þar hefur hann
unnið alla almenna verkamanna-
vinnu allt til ársins 1983. Það ár
varð hann löggilt gamalmenni
með tilheyrandi eftirlaunum og
hefur síðan látið það eftir sér að
sinna eingöngu fræðimennsku.
Gunnar Rafn Sigurbjömsson
skrifar formála að verkinu og get-
ur þar um skólagöngu Sigurjóns.
Hún er sögð þrír vetrarpartar í
bamaskóla á Dalvík fyrir ferm-
ingu. Skólastjóri var Helgi
Símonarson úr Svarfaðardal.
Góður hefur sá gmnnur verið,
sem Helgi lagði þar, og stoltur má
hann vera af nemandanum. Því
Sigurjón Sigtryggsson er
Létt og laggott er helmingi
fituminna en allt annað viðbit
menntaður maður hvað sem
skólagöngunni líður. Margur
langskólagenginn mætti vera
montinn af því málfari og þeirri
stflleikni sem er aðall þessa rit-
verks.
En merkilegast við þetta rit-
verk finnst mér þó, að það er
tómstundaverk erfiðismanns.
Eftir langan og strangan vinnu-
dag í alls konar erfiðisvinnu sest
þessi maður niður og tekur til að
skrifa stórmerkilegt heimildarrit.
Hvernig í ósköpunum hann hefur
haft tíma og tækifæri til að viða að
sér öllum þeim heimildum og
upplýsingum, sem verkið er ofið
úr, er mér hulin ráðgáta.
En hvemig sem Sigurjón hefur
farið að, þá er þetta verk hans
afburða gott. Það er stórfenglegt,
ákaflega læsilegt á kjamgóðu og
orðauðugu alþýðumáli.
Ég hef furðað mig mjög á því
hve hljótt hefur verið um þetta
einstæða ritverk í allri þeirri um-
fjöllun um bækur, sem fram fer í
sjónvarpi, útvarpi, blöðum og
tímaritum. Að mínum dómi er
ritverk Sigurjóns eitt merkasta
verkið sem út kom fyrir þessi jól.
Því hef ég beðið með óþreyju
eftir að einhver fræðimaður,
sagnfræðingur, þjóðfræðingur
eða ættfræðingur skrifaði um
þetta verk. Hafi það skeð hafa
þau skrif farið fram hjá mér. Því
gat ég ekki lengur orða bundist.
Vonandi dettur þó engum í hug
að þetta sé ritdómur um verk Sig-
urjóns. Því fer fjarri, því þar til
skortir mig alla hæfni. Fyrir mér
vakti aðeins að freista þess að
vekja athygli einhverra á þessu
afreksverki.
í formála sínum fyrir verkinu
segir Gunnar Rafn „að almenn-
ingur skilji ekki eftir sig stór spor
í sögu landsins“. Þessu er ég alveg
ósammála. Hið vinnandi fólk á
hverjum tíma skilur vissulega
eftir sig stærstu sporin þ.e. verkin
sín. En samtíðin sá aldrei ástæðu
til að halda nöfnum þess til haga.
Jafnvel í dómabókum var oft
trassað að bóka múgamenn með
fullu nafni.
Verkamaðurinn Sigurjón Sig-
tryggsson skilur sannarlega eftir
sig stórt spor í sögunni. Fyrir hans
eljuverk er nú varðveitt á bók,
með nöfnum og heimilisföngum,
lífsbarátta alþýðufólks á einum
afskekktasta og harðbýlasta
hluta Norðurlands. Mín trú er sú,
að margir fræðimenn og grúskar-
ar eigi eftir að ausa ótæpilega áf
þeim brunni í framtíðinni. Mun
þá margur hugsa hlýtt til höfu-
ndarins og halda nafni hans á
lofti.
Um leið og ég færi honum mín-
ar persónulegu þakkir fyrir af-
reksverkið bæti ég við þeirri
frómu ósk: Mættum við fá meira
að heyra.
Guðrún Guðvarðardóttir
BYGGINGA
vðrur
Það er gott að geta gripið
með sér málninguna,
pensla, rúllu og spartl um
leið og þú kaupir í matinn.
Líttu við í byggingavöru-
deildinni og kynntu þér
úrvalið.
Þér verður vel tekið heima.
HAGKAUP
Skeifunni
Eitthvað samanvið....
Sínfóníutónleikar í Hóskólabíói s.l,
finuntudag.
Stjóraandi: Petri Sakari
Einleikari: Dmitri Sgouros
Efnisskrá: Sinfonía nr. 40 eftir
Mozart
Gæsamamma, hfiómsveitarsvíta eftir
Ravel
Píanókonsert nr. 3 eftir Rakmaninov
Dmitri Sgouros, þessi ungi pí-
anómeistari og sjení frá Grikk-
landi, kom í annað sinn að láta
ljós sitt skína yfir landann. Hann
lék fyrst magnað prógram (Beet-
hoven, Liszt, Schumann) fyrir
Tónlistarfélagið og mun þá
reyndar hafa farið kaldur hrollur
um einn og annan yfir hvað hann
fór létt með fræga fingurbrjóta.
Það er ekki nema von að „penir
eldri herrar” séu tortryggnir í
garð „undrabarna” sem virðast
leika sér án fyrirhafnar að ótrú-
legustu tæknigildrum og höndla
ljósið með sjálfsögðum krafta-
verkum meðan góðir og gegnir
listamenn puða í myrkri ævina út.
Það er eitthvað saman við þetta.
En Sgouros er ekkert bam þó
hann sé aðeins 17 ára. Það fór
ekkert á milli mála að það var
fullþroska listamaður með sjálf-
stæðar og afgerandi skoðanir sem
lék þriðja píanókonsertinn eftir
Rakmaninov með sinfóníunni s.l.
fimmtudag. Það er eins víst að
þær skoðanir eigi eftir að breytast
og Sgouros eigi eftir að sökkva
sér niður í innbyggt þunglyndi
þessa verks eins og aðrir. En
þessa stundina leikur hann það af
bjartsýni og rafmögnuðum krafti
æskumannsins, sakleysi sem
snertir mann djúpt í þessari ann-
ars gerspilltu músík.
Hljómsveitarleikurinn var
skýrt mótaður undir stjórn Petri
Sakari frá Finnlandi. Það var
ekkert verið að velta sér upp úr
væmnum hugarórum, heldur
lögð áhersla á að fylgja hreinum
stfl einleikarans til hins ýtrasta.
Tónleikamir hófust með G
moll sinfoníu Mozarts og þar bar
á nútímalegri hreinstefnu sem er
auðvitað allt í lagi. Tempó vom
hröð og skemmtileg, en eitt og
annað vantaði af melankólískri
mýkt sem maður ósjálfrátt tengir
þessu verki. Það er eflaust gam-
aldags tilfinningasemi. En þetta
er þó altént moll??
Gæsamömmusvítan eftir Ra-
vel kom næst og Var fín og fáguð
afþreying. Tréblásarar margir
Iéku af sannri innlifun og heildar-
hljómurinn var sætkaldur og
Kjörbók Landsbankans-Góð bók
i\rir biarta framtið
Landsbanki
íslands
Banki allra iandsmanna