Þjóðviljinn - 28.03.1987, Blaðsíða 12
0000 SJOEFNAVINNSLAN HF
Aðalfundur Sjóefnavinnslunnar hf. verður hald-
inn laugardaginn 11. apríl nk. á Glóðinni í Keflavík
og hefst kl. 15.00.
Félagsráðgjafar
Félagsmálastofnun Keflavíkurbæjar óskar eftir
félagsráðgjafa til starfa. Um heilsdagsstarf er að
ræða. Umsóknarfresturertil 10. apríl 1987. Upp-
lýsingar um stöðuna veitirfélagsmálastjóri Kefla-
víkurbæjar að Hafnargötu 32, 3. hæð og í síma
92-1555.
Félagsmálastjóri
LAUSAR STÓÐUR HJA
REYKJAVÍKURBORG
1. Fóstrur óskast til starfa á leikskólanum Bráka-
borg v/Brákarsund
2. Fóstrur og ófaglært starfsfólk óskast á:
Dagheimilið Laufásborg, Laufásvegi 53-55,
Dagheimilið Valhöll, Suðurgötu 39,
Leikskólann Fellaborg, Völvufelli 9,
Leikskólann Tjarnarborg, Tjarnargötu 33.
Upplýsingar veitir forstöðumaður viðkomandi
heimila og umsjónarfóstrur í síma 27277.
Umsóknum ber að skila til Starfsmannahalds
Reykjavíkurborgar, Pósthússtræti 9, 5.hæð á
sérstökum eyðublöðum sem þar fást.
* Útboð
Efnisvinnsla á Vesturlandi 1987
''/V/Æ Sm W Vegagerð ríkisins óskar eftir tilboðum í otangreint ' verk. Magn 26.000 rúmmetrar. Verki skal lokið 15. ágúst 1987. Útboðsgögn verða afhent hjá Vegagerð ríkisins í Borgarnesi og Reykjavík (aðalgjaldkera) frá og með 30. mars n.k. Skila skal tilboðum á sömu stöðum fyrir kl. 14:00 þann 13. apríl 1987.
Vegamálastjóri *
Útboð
''//VA
V
V
Efnisvínnsla á Suðurlandi 1987
Vegagerð ríkisins óskar eftir tilboðum í ofangreint
verk. Magn 49.000 rúmmetrar.
Útboðsgögn verða afhent hjá Vegagerð ríkisins á Sel-
fossi og í Reykjavík (aðalgjaldkera) frá og með 30.
mars n.k.
Skila skal tilboðum á sömu stöðum fyrir kl. 14.00 þann
13. apríl 1987
Vegamálastjóri
1 Útboð
''/WÆ Sm Súgandafjörður W Vegagerð ríkisins óskar eftir tilboðum I ofangreint f verk. Lengd vegarkafla 2,4 km, fylling 1.500 m3, neðra burðarlag 4.500 m3. Verkinu skal lokið 10. júlí 1987. Utboðsgögn verða afhent hjá Vegagerð ríkisins á Isa- firði og I Reykjavík (aðalgjaldkera) frá og með 30. mars n.k. Skila skal tilboðum á sömu stöðum fyrir kl. 14.00 þann 13. apríl 1987.
Vegamálastjóri --
v ■
Einvígið Kasparof/Karpof
Tilboð óskast
Kasparof til Reykjavíkur!
Það fór aldrei svo að þeir
erklfjendur Garrí Kasparof,
heimsmeistari í skák, og landi
hans, Anatólí Karpof, fyrrum
heimsmeistari, fengju ekki enn
eitt tækifærið til að glíma um
skákkrúnuna.
Alþjóða skáksambandið,
FIDE, hefur nú gefið út tilkynn-
ingu um að einvígi þeirra félaga
skuli hefjast í haust. Ennfremur
er óskað eftir tilboðum um ein-
vígishaldið og þurfa þau að berast
sambandinu eigi síðar en þann
þrítugasta apríl næstkomandi.
Allt útlit er fyrir hörkueinvfgi.
Kasparof stendur ávallt fyrir sínu
og Karpof er í hörkuformi um
þessar mundir. Einvígi hans og
Sókolofs var leikur kattarins að
músinni.
Mikið væri nú gaman ef einvíg-
ið færi fram á eldgömlu ísafold.
Áfram Jóhann Þórir!
-m -ks.
Grikkland- Tyrkland
Herimir í
viðbragðsstöðu
Grískiflotinn úrhöfn, tyrkneskherskip íEyjahaf. Papandreouneitar
vestrœnum afskiptum. Styrjaldarátök í dag?
Gríski flotinn hefur allur iátið
úr höfn og býr sig undir að
mæta tyrkneskum herskipum
við þrjár grískar eyjar nálægt
ströndum Tyrklands. Herir
ríkjanna beggja eru í fullri við-
bragðsstöðu og er allteins bú-
ist við að styrjaldarátök hefjist
milli fjandþjóðanna á Eyjahafi í
dag.
Papandreou forsætisráðherra í
Aþenu hefur varað Bandaríkin
og Nató við að þrýsta Grikkjum
til ótækra samninga við Tyrki, og
segir að ef af styrjöld verður muni
bandarísku herstöðvunum fjór-
um í landinu verða lokað strax.
Fastafulltrúar Natólandanna í
Brussel hittust á neyðarfundi í
gær, en ekki er vitað hvað þeim
fór á milli.
Ástæðurnar fyrir deilum og
hugsanlegum átökum grannþjóð-
anna nú er óeining um eignarhald
á eyjum í hafinu milli ríkjanna,
og þrætur um rétt til olíunytja við
eyjarnar.
Grikkir sögðu fyrir skömmu að
þeir ætluðu að bora eftir olíu fyrir
utan grísku eyjuna Thasos norð-
arlega í Eyjahafi, og Tyrkir svör-
uðu með því að senda olíuborun-
arskip stutt herflota í átt að þrem-
ur grískum eyjum við Tyrk-
landsstrendur. Er búist við að
tyrkneski leiðangurinn komi á
áfangastað í dag, og kynni þá að
slá í brýnu með honum og Grikk-
landsflota.
Grikkir og Tyrkir, sem hvorir-
tveggju eiga aðild að Nató, hafa
löngum elt saman grátt silfur,
bæði vegna landamerkja í Eyja-
hafi og deilna um stjómarfar og
sambúð grískra og tyrkneskra
Kýpurbúa. Árið 1976 lá síðast við
styrjöld milli ríkjanna af mjög
svipuðum ástæðum og nú, en á
síðustu stundu var komið í veg
fyrir átök og ríkin féllust á að
fresta olíuborun á umdeildum
svæðum þartil samkomulag um
þau væri í höfn. Tyrkir segja nú
að Grikkir brjóti þetta samkomu-
lag með atferli sínu við Thasos.
Grikkir buðu Tyrkjum í fyrra-
dag að leggja málin fyrir alþjóða-
dómstólinn í Haag en svarið í
Ankara var neikvætt og sagt að
tilboðinu fýlgdu alls ófullnægj-
andi skilyrði.
Gríski utanríkisráðherrann
flaug í gær til Sofíu til að flytja
búlgarska leiðtoganum Sívkof
orðsendingu frá Papandreou í
samræmi viö nýlegan vináttusátt-
mála ríkjanna sem kveður á um
samráð þegar hætta skapast í
heimshlutanum. Fyrirhugaðri
heimsókn tyrknesks pótintáta til
Búlgaríu í apríl hefur verið aflýst,
en ekki er ljóst hver afskipti Búl-
gara af deilunni gætu orðið. Búlg-
aría er sem kunnugt er Varsjár-
bandalagsríki með afar náin
tengsl við Kreml.
-m
Eósen-öld
Landhvalur á
Suðurskautinu
Fjörutíu milljón ára gömul beinagrindfinnst á
Seymour-eyju
Þær fréttír bárust í gær frá
nýsjálenskum jarðfræðingi,
Ewan Fordyce, að bandarískur
leiðangur sem hann tók þátt í
hafi í janúar fundið nokkuð
heillega beinagrind af hval
sem talinn er 40 milljón ára
gamall og því frá eósen-skeiði
jarðsögunnar.
Beinagrindin er steingervingur
og vegur hálft annað tonn, sá
stærsti og best varðveitti sem
fundist hefur þar syðra.
Það þykir einna merkast við
fornhveli þetta að það markar
milliskeið milli landspendýra og
hvala einsog við þekkjum þá.
Fræðimennimir á Suðurskautinu
halda að hann hafi haft smáa
afturfætur og notað þá til að
skríða um á landi.
Seymour-eyja, þarsem stein-
gervingurinn fannst, er á austurh-
luta Suðurskautsins, um tvo kíló-
metra frá meginlandinu.
Bandaríkin
Elding grandaði flauginni
Enn eitt áfallið setur NASA í klípu
Helst er taiið að elding hafi
valdið því að menn misstu
stjórn á Atlas-Centaur-
flauginni, sem sprengd var í
lofti tæpri mínútu eftir
geimskot frá Canaveral-höfða
í Flórída í fyrrakvöld. Flaugin
var ómönnuð, en óhappið
bakar geimferðastofnuninni
NASA aukinn vanda og er
framkvæmdasaga stofnunar-
innar undanfarið rúmt ár að
verða hinn versti hrakfalla-
bálkur.
Flaugin er metin á rúma þrjá
milljarða íslenskra króna og bar
hemaðargervihnött sem kostar
annað eins.
Flauginni var skotið upp gegn-
um skýjaþykkni og á kvikmynd af
geimskotinu sést elding leiftra
nálægt henni. Flaugin var
sprengd í loft upp þegar hætta
þótti á að hún dúndraðist niður á
þéttbyggðu svæði við höfðann.
Þetta gerist á þeim tíma þeg-ar
álitið var að geimferðaáætlun
Bandaríkjamanna væri að rétta
við eftir erfiðleikaskeið.
Challenger-skutlan sprakk í loft
upp í lok janúar í fyrra með sjö
geimfara innanborðs, ómönnuð
Titan-eldflaug tapaðist í apríl, og
Delta-flaug í maí.
Þessi óhöpp torvelda fram-
göngu fjárbeiðna stofnunarinnar
og spiila áliti bandarískrar geim-
tækni í heiminum. Gervihnatta-
skot em orðin samkeppnisgrein
milli fyrirtækja og þjóða, og
keppa meðal annars Frakkar,
Sovétmenn, Kínverjarog Japanir
við Bandaríkjamenn á því sviði.
-m
12 SÍÐA - ÞJÓÐVIUINN Laugardagur 28. mars 1987