Þjóðviljinn - 08.04.1987, Síða 14
getrsuna-
VINNINGAR!
33. LEIKVIKA - 4. APRÍL 1987
VINNINGSRÖÐ: 1X1-2X1-X21-12X
Lesendabréf
1. VINNINGUR: 12 RÉTTIR
8090 43794(4/11)
2. VINNINGUR: 11 RÉTTIR
13217 57791 60307+
47010 58939 127101
51912
Kr. 342.845.-
54238(4/11) 218723(8/11)
Kr. 19.591.-
210595* 223303 657195
223294 575038 660541
Eftir stuttar en harðar fæðing-
arhríðir hefur nýr flokkur, Borg-
araflokkurinn, litið dagsins ljós
og boðið löglega fram í sjö kjör-
dæmum þegar þetta er ritað.
Nokkur vafi leikur hins vegar enn
á því hvort þetta sé að öðru leyti
stjórnmálaflokkur, því að stefnu-
skrá og skýr afstaða í þeim mál-
um, sem nú á að fara að kjósa um,
virðist vera algjört aukaatriði hjá
þeim sem þarna eru í fyrirsvari,
eða a.m.k. alveg á huldu. Má
vera að þar sé komin skýringin á
nafni framvarðasveita flokksins:
Hulduher.
Hér sýnast miklu fremur vera
sprottin upp laustengd samtök
mjög ósamstæðra einstaklinga,
sem koma sinn úr hverri áttinni.
Þarna hafa vanræktir íhaldsmenn
leitað skjóls, Aðalheiður Bjarn-
freðsdóttir bundið trúss við
helsta forsprakka „Varins
lands“, hvítasunnumenn og „þor-
staheftir" fallist í faðma, Gunn-
arsliðar úr Sjálfstæðisflokknum
tekið höndum saman við harð-
svíraða frjálshyggjumenn, en yfir
öllu tónar prestur Fríkirkjusafn-
aðarins í Reykjavík.
Og nafnið á flokknum er skrít-
ið. Upptökin að stofnun hans
voru opinberar deilur um það
hvort allir skyldu jafnir fýrir
skattalögunum; hvort menn ættu
að borga skatta sína, vera borgar-
ar eða ekki borgarar. Borgara-
flokkur er þess vegna algjört
rangnefni á þessum nýja flokki,
því í hann hafa safnast þeir sem
telja að sumir menn eigi ekki að
þurfa að borga skattana sína og
alls ekki nema skattalögreglan
neyði þá til þess.
Ýmsir halda meira að segja að
nafnið sé stytting úr „Skattborg-
araflokkur“, og sjá þá allir hvert
rangnefni þetta er. Aðrir vilja
halda því fram að nafnið eigi að
vera táknrænt fyrir það menning-
arskeið, sem nú er runnið upp á
íslandi, og sé stytting úr „Hamb-
orgaraflokkurinn“, en þetta fær
naumast staðist þar sem einn
höfuðpaur flokksins er pylsusali
og á í harðri samkeppni við
hamborgarasala.
En hvað sem um þetta má segja
eru menn almennt á því að önnur
nöfn hefðu hæft flokknum betur.
Viðeigandi nafn hefði til dæmis
verið „Gæðaflokkurinn" og má
vísa til eftirfarandi ummæla guð-
föðurins: „Ég þarf að hafa að-
stöðu til að geta hjálpað öðrum,
en völd sem slík er ekki það sem
ég sækist eftir. Ég sækist eftir að-
stöðu til að geta hjálpað öðr-
um. ... Aðalheiðurereinskonar
góðgerðarstofnun útaf fyrir sig.
Hún hefur þetta sama hjartalag
og ég.“ (Þjóðviijinn 28.3.)
Já, hefði ekki verið nær að
flokkurinn hefði dregið nafn af
öllum þessum gæðum?
G.J.
Afmœlistónleikar
Sinnhoffer-
strengjakvartettinn
í Bústaðakirkju
í kvöld
Kammermúsíkklúbburinn í
Reykjavík er 30 ára um þessar
mundir. Af því tilefni efnir hann
til tónleika í Bústaðakirkju kl.
20.30 í kvöld, og munu þar koma
fram gestir klúbbsins frá þýska
sambandslýðveldinu: Sinnhoff-
er-strengjakvintettinn frá
Munchen. Á efnisskránni er
meðal annars strengjakvintett
eftir stjórnanda kvintettsins,
Ingo Sinnhoffer, sem gerður er
við þjóðlagið „Viel Freuden mit
sich bringet die frölich Sommerz-
eit“ og saminn var 1979. Auk
þess verður einnig fluttur
Strengjakvintett í C-dúr k 515
eftir W.A. Mozart og Strengjak-
vintett í F-dúr op. 88 eftir Jo-
hannes Brahms. Þetta eru 4. tón-
leikar Kammermúsíkklúbbsins á
starfsárinu, en þeir 5. verða svo á
föstudaginn kemur, þar sem
Sinnhoffer-kvintettinn mun aftur
koma fram í Bústaðakirkju og
flytja 2 kvintetta, eftir Anton
Bruckner og Ludwig van Beet-
hoven.
Sendiráð Sambandslýðveldis-
ins í Reykjavík, Flugleiðir og
hjónin Wolfgang Stross og Ásdís
Þorsteinsdóttir hafa aðstoðað
Kammermúsíkklúbbinn við
heimsókn hinna þýsku gesta.
-ólg.
*=2/11
Kæruf restur er til mánudagsins 27. apríl 1987 kl. 12.00 á
hádegi.
Nafnlausir seðlar úr 32. leikviku: 11. réttir, kr. 415,-
41348 54009 57460 126017* 128492 222535
45776 54016 60047 126037 128895
48946 55393 60213* 126041* 128961*
52564 55397 125530 126064 221607*
Kærufrestur er til þriðjudagsins 21. apríl kl. 12.00 á
hádegi.
Kærur skulu vera skriflegar. Kærueyðublöð fást hjá umboðsmönnum og á
skrifstofunni í Reykjavík. Vinningsupphæðir geta lækkað, ef kærur verða tekn-
ar til greina.
Handhafar nafnlausra seðla (+) verða að framvísa eða senda stofninn og fullar
upplýsingar um nafn og heimilisfang til íslenskra Getrauna fyrir loka kæru-
frests.
Auglýsið í Þjóðviljanum
/
Alþýðubandalagið Hafnarfirði
Bæjarmálaráðsfundur
Fundur verður i bæjarmálaráði ABH, í Skálanum, Strandgötu
41, laugardaginn 11. apríl kl. 10.00. Aðalumræðuefni fundarins
verða skóla- og umferðarmál. Steingrímur Þórðarson fulltrúi í
Fræðsluráði, Gunnlaugur R. Jónsson fulltrúi í Skólanefnd Iðn-
skólans og Sólveig B. Grétarsdóttir formaður Umferðarnefndar
opna umræðuna. Önnur mál.
Stjórnln.
Alþýðubandalagið Reykjavík
Borgarmála ráð
Fundur í borgarmálaráði verður haldinn miðvikudaginn 8. april
kl. 17.00 að Hverfisgötu 105. Á dagskrá: Dagvistarmál og fl.
Stjómln.
'ALÞÝÐUBANDALAGIÐ'
Jónas
Slgurgelr
Margrét
Alþýðubandalagið heldur G-listahátíð á Hótel Selfossi, föstu-
daginn 10. apríl. Hátiðin hefst með borðhaldi kl. 20.00. Húsið
opnar kl. I9.30.
Fjölbreytt skemmtiatriði. Á eftir sér hljómsveitin Krass um
fjörið fram eftir nóttu. Gestur kvöldsins verður Jónas Árnason
rithöfundur. Veislustjóri Sigurgeir Hilmar.
Forsala aðgöngumiða og miðapantanir á kosningaskrifstof-
unni, Sigtúni 1 sími 1006 og hjá formönnum félaganna. Allir
velkomnir. Frambjóðendur.
Ríkarð
Ólöf
Alþýðubandalagið Vesturlandi
Almennir stjórnmálafundir
í Brún, fimmtudaginn 9. apríl kl. 21.00 Ólafsvík - í Mettubúð,
sunnudaginn 12. apríl kl 14.00.
Á fundina mæta þau Skúli, Gunnlaugur, Ólöf og Ríkharö.
Alþýðubandalaglð
KOSNINGASKRIFSTOFUR
Alþýðubandalagið
Utankjörfundarkosning
Utankjörfundarskrifstofa Alþýðubandalagsins er að Hverfisgötu
105. Opið frá kl 9 á morgnana og fram eftir á kvöldin. Slminn er
91-22335 og 91-22361. Símsvari 91-623484.
Norðurlandskjördæmi vestra
Hvammstangi: Kosningaskrifstofan er að Spítalastíg 16.
Opið virka daga frá kl. 20.30 - 21.30 og um helgar frá kl. I5 -18.
Síminn er 95-1460. Lítið inn eða hafið samband.
Blönduós: Kosningaskrifstofan erá Aðalgötu 1 sími 95-4561.
Opin frá kl. 15 -18 alla daga nema laugardaga. Starfsmaður er
Þorleifur Ingvarsson.
Siglufjörður: Kosningaskrifstofa Alþýðubandalagsins á
Siglufirði er að Suðurgötu 10, og verður opin fyrst um sinn kl. 14
- 19 mánudaga til föstudaga. Sími 96-71294 og 71934.
Norðurlandskjördæmi eystra
Aðalkosningaskrifstofan er á Akureyri í Lárusarhúsi, Eiðsvalla-
götu 18. Opið alla virka daga frá kl. 9 -12 og 13 -18. Síminn er
96-25875 og-27413. Kosningastjóri er Gunnar Helgason.
Framlögum veitt móttaka á skrifstofunni og á tékkareikning nr.
8790 í Alþýðubankanum Akureyri.
Húsavík: Kosningaskrifstofan er í Snælandi. Opin alla virka
daga frá kl. 17 -19 og 20 - 22. Um helgar frá kl. 14 -18. Síminn er
96-42099.
*G-5u$0nfS7
Suðurland
Aðalkosningaskrifstofan er að Sigtúni 1 Selfossi (gamla Iðn-
skólanum). Opnunartími er alla virka daga kl. 14 -19. Síminn er
99-1006. Kosningastjóri er Guðvarður Kjartansson. Alla laugar-
daga fram að kosningum er opið hús í kosningamiðstöðinni kl.
14-17. Frambjóðendur verða á staðnum.
Vestmannaeyjar: Kosningaskrifstofan er á Bárugötu 9
(Kreml). Opið frá 16 - 21 virka daga og frá 16 -18 á sunnudög-
um. Síminn er 98-1003 og -1570.
Kosningamiðstöðin
Reykjavík
Kosningamiðstöðin erað Hverfisgötu
105. Þar er opið alla virka daga til kl.
22.00 á kvöldin. Á laugardögum kl.
10-18ogásunnudögumkl. 14-18.
Síminn er 17500.
Klkið inn og fáið ykkur kaffi og styrkið
kosningastarfið með kaupum á
happdrættismiðum.
Reykjavík
Vestfirðir
Kosningaskrifstofan í Hæstakaupstað, Aðalstræti 42, Isafirði er
opin allan daginn. Sími: 94-4242 og -4298. Kosningastjóri er
Gisli Þór Guðmundsson. Alltaf heitt á könnunni.
Vesturland
Aðalkosningaskrifstofa Alþýðubandalagsins á Vesturlandi er í
Rein á Akranesi. Skrifstofan verður opin fyrst um sinn mánu-
daga kl. 15-19, þriðjudaga, miðvikudaga og fimmtudaga frá kl.
16-19, föstudaga kl. frá kl. 15-19 og laugardaga frá kl. 13-17.
Síminn er 93-3174 og -3175
Kosningastjóri: Sveinn Kristinsson
Borgarnes: Kosningaskrifstofan er i Röðli. Opin virka daga frá
9-12 og 13-19. Á laugardögum og sunnudögum frá kl. 13-19.
Síminn 93-7890. Starfsmaður er Olafur Þ. Jónsson.
Austfirðir
Reyðarfjörður. Aðalskrifstofa Alþýðubandalagsins í Austurl-
andskjördæmi er á Reyðarfirði, Heiðarvegi 22, neðri hæð. Opið
alla virka daga 10-18, og á kvöldin 20-22. Um helgar fyrst um
sinn 14-17. Síminn er 97-4361. Kosningastjóri er Jóhanna
lllugadóttir, heimasími 97-4377. Alltaf heitt á könnunni.
Fáskrúðsfjörður. Kosningaskrifstofan er á Búðavegi 6, sími
97-5444. Opið þriðjudaga til föstudaga 20-22, um helgar 15-18.
Neskaupstaður. Kosningaskrifstofan er að Egilsbraut 11,
símar 97-7571 og 97-7804. Opið 15-18 og 20-22 alla daga.
Kosningastjóri er Lilja Huld Auðunsdóttlr.
Egllsstaðir. Kosningaskrifstofan er að Selási 9, sími 97-1425.
Opin 20-22 öll kvöld, um helgar 14-18.
Höfn í Hornafirðl. Kosningaskrifstofan er á Hafnarbraut 26,
neðri hæð. Sími 97-81426 og 97-81817. Opið 17-19.30 og
20-22 virka daga, um helgar 13-19.
G-listinn Reykjanesi
Aðalkosningaskrifstofa G-listans í Reykjaneskjördæmi er í
Þinghóli, Hamraborg 11, Kópavogi. Þar er opið alla virka daga
frá kl. 10.00-19.00. Alltaf heitt á könnunni og starfsmennirnir
Valþór, Ásdís, Helgi og Unnur til þjónustu reiðubúin. Símarnir
eru 41746 og 46275.
Hafnarfjörður: Kosningaskrifstofarfer i Skálanum, Strandgötu
41. Opið alla virka daga frá kl. 14 - 20. Laugardaga frá kl. 10 -17
og á sunnudögum frá kl. I4 -17. Alltaf heitt á könnunni. Komið og
ræðið málin. Síminn er 54171.
Keflavík - Suðurnes: Kosningaskrifstofan er að Hafnargötu
34 í Keflavík. Síminn er 92 -4286.
14) SlÐA - ÞJÓÐVILJINN Mlðvlkudagur 8. apríl 1987