Þjóðviljinn - 08.04.1987, Qupperneq 16

Þjóðviljinn - 08.04.1987, Qupperneq 16
Aðalsími 681333 Kvöldsími 681348 Helgarsími 681663 þJÓÐVIMIN SAMVINNUBANKI ÍSLANDS HF. Miðvlkudagur 8. aprfl 1987 82. tölublað 52. ðrgangur Reykjavík Fóstnir f lýja Reykjavík Seltirningar: bestulaun ogýmsarsporslur. KristínÁ. Ólafsdóttir: Útlitfyrir að velflest barnaheimili íReykjavík loki um mánaðamótin. Ingibjörg Sólrún Gísladóttir: Vanmat ástörfumfóstra Við sjáum fram á það eitt að fóstruflóttinn aukist enn yflr til nágrannasveitarfélaganna, sagði Margrét Pála Ólafsdóttir, formaður kjaranefndar Fóstrufé- lags íslands, í spjalli við Þjóðvilj- ann í gær, aðspurð um launakjör fóstra hjá borginni ef gengið verður að samningsdrögum þeim sem nú liggja fyrir. Allar líkur eru á að þetta gangi eftir. Foreldrafélag Sólbrekku á Seltjarnarnesi hefur nú sent frá sér bréf til fóstra vítt og breitt um bæinn, og eru þeim boðin ýmis kostakjör ef þær vilja koma til starfa á Nesinu. Meðal annars er Jón Baldvin Vekur kátínu Jón Baldvin biðlar til Kvennó. Kristín Halldórsdóttir: Erum vanar þ ví að karlmenn leiti til okkar í vandrœðum sínum „Ég verð að segja eins og er að þessi ummæli Jóns Baldvins Hannibalssonar vöktu hjá mér kátínu og undrun. Hann er eini stjórnmáiamaðurinn sem hefur lýst því yflr opinberlega að við Kvennalistakonur séum ekki stjórnhæfar,“ segir Kristín Hall- dórsdóttir þingmaður Kvennalist- ans á Reykjanesi. Athygli vakti í gær frétt sem birtist í Alþýðublaðinu þar sem Jón Baldvin formaður Alþýðu- flokksins er á biðilsbuxum við Kvennalistann og Sjálfstæðis- flokkinn sem möguleika fyrir væntanlegu stjórnarsamstarfi eftir kosningar. „Við erum ekki í neinum stjórnarmyndunarviðræðum og verðum það ekki fyrr en niður- stöður kosninganna liggja fyrir. En það eru auðsjáanleg breytt viðhorf komin upp í stjómmálum fyrst Jón Baldvin er farinn að biðla til okkar. Við erum sosum vanar því konur, að karlmenn leiti til okkar í vandræðum sínum og Jón á víst í einhverjum atkvæða-vandræðum þessa dag- ana,“ sagði Kristín Halldórsdótt- ir. grh. Siglufjörður Ofundinn enn Maðurinn sem leitað hefur ver- ið að á Siglufirði frá því á sunnu- dag er enn ófundinn. Leitarmenn hafa beint leitinni að sjónum eftir að húfa mannsins fannst í gær út á Siglunesi. Er talið að hána hafi rekið þangað. Hafa björgunar- menn sett út dufl hér og þar í fírðinum til að athuga strauma, leitað á bátum og gengið fjörur. 15-20 manns voru við leitina í gær, en þegar flest hefur verið hafa um 50-60 manns tekið þátt. grh. talað um „bestu laun sem fóstrum bjóðast á markaðnum í dag,“ og að auki „ýmsar sporslur sem beint eða óbeint skila sér í auknum launum". „Það er virðingarvert að for- eldrar á Seltjarnarnesi geri sitt til að fá vel menntað og hæft starfs- fólk til að sinna uppeldi barna sinna, en fyrst og fremst hef ég stórkostlegar áhyggjur af ástand- inu í Reykjavík. Stjórnarand- staðan í borgarstjórn hefur hvað eftir annað varað við ástandinu á barnaheimilum borgarinnar sem erfíðlega hefur gengið að manna í langan tíma vegna lélegra launa. Núna er útlitið þannig að maður sér ekki hvernig á að koma í veg fyrir að velflest barnaheimili í Reykjavík loki um næstu mán- aðamót, nema stjórnendur borg- arinnar geri eitthvað raunhæft í málinu,“ segir Kristín Á. Ólafs- dóttir borgarfulltrúi. Samningur Starfsmannafélags Reykjavíkur og Reykjavíkur- borgar var til umræðu í borgar- ráði í gær, og kemur til afgreiðslu á næsta fundi borgarráðs eftir viku. Á fundinum lagði Ingibjörg Sólrún Gísladóttir, fram bókun, og kveðst hún útaf fyrir sig fagna því að náðst hafi samningar þar sem meðal annars sé komið til móts við kröfur sjúkraliða sem er fjölmenn kvennastétt, en sagði jafnframt alvarlegan galla á samningnum að fóstrur fá engar sérstakar leiðréttingar á kjörum sínum. Sé þetta vanmat á störfum fóstra í hróplegu ósamræmi við anda þeirrar samþykktar sem borgarstjórn gerði sl. vor um að vinna að endurmati á hefðbundn- um kvennastörfum. Þá lagði Ingibjörg Sólrún fram tillögu um að teknar yrðu upp viðræður við fulltrúa fóstra um lausn sem komið gæti í veg fyrir uppsagnir 1. maí. ns. Kosningaslagur á Kópavogsbrúnni. Kosningabaráttan setur stöðugt aukið mark á þessa sfðustu útmán- aðadaga. Þeir sem eiga leið í Reykjaneskjördæmi komast ekki hjá því að uppgötva um hvað slagurinn snýst þar. Hann snýst um að koma öðrum manni G-listans, Ólafi Ragnari Grímssyni, á þing einsog borðinn á brúnni á Digraneshálsi f Kópavogi sýnir. Mynd: Sig. . Menntaskólanemar Tveir þriðju sofahjá Tveir þriðju nemenda í Menntaskólanum í Reykjavík stunda kynlíf samkvæmt kynlífs- könnun með tilliti til eyðni sem gerð var í skólanum í síðasta mánuði. Piltarnir byrja fyrr en stúlkurnar og eru virkari, sofa hjá fleirum. Fjórðungur nemenda greindist í sérstakan áhættuhóp fyrir það að hann stundar kynlíf eftir stutt kynni, er óvarkár í vali á elskhug- um, notar ekki smokkinn, skiptir oft um félaga og er ekki í föstu sambandi. Nánast allir sögðust vita hvern- ig eyðni smitast en rúmlega helm- ingur var haldinn fordómum í garð eyðnismitaðra þar sem hann telur það óviðeigandi að þeir starfi á opinberum vettvangi. Að- eins einn taldi sig ekki vita hvern- ig eyðni smitast. Þá kom það fram að eyðnium- ræðan virtist hafa sett mark á við- horf nemenda, án þess þó að hún hafi náð til þeirra sem kemur meðal annars fram í því að lítill hluti þeirra notar smokkinn. Mikill munur kom fram á skemmtanalífi þeirra sem stunda kynlíf og hinna. Þeir sem gera það skemmta sér aðra hvora helgi en hinir sjaldnar en einu sinni f mánuði. Að sögn Kristins Einarssonar kennara, sem sá um alla fram- kvæmd könnunarinnar, var ráð- ist í þetta vegna þess að hér stóð yfir mikil umræða um eyðni og kynlífshegðan. Af þeim sökum var hægt að spyrja nærgöngulla .spurninga sem annars væri mjög erfítt undir venjulegum kringum- stæðum. Ennfremur hefur komið fram að engin haldbær vitneskja væri til um kynlíf íslendinga og er þetta fyrsta kynlífskönnun á ís- landi. Úrtakið í könnuninni var 20% nemenda eða 155 alls. Var öllu úrtakinu safnað saman á Sal, eins og um próf væri að ræða. grh. Hraðfrystihús Stokkkseyrar Lúalegur málflutningur ÓlafurM. Óskarssonframkvœmdastjóri: Fordœmi lúalegan málflutningArna Johnsen. Greiðslustöðvunin gafokkur nœði til að byggja fyrirtækið upp. Staðan í dag góð Eg er sjálfur yfirlýstur stuðn- ingsmaður D listans en full- yrði engu að síður að áburður Árna Johnsen á hendur Margréti Frímannsdóttur oddvita um að hún eigi sök á erfíðleikum hússins er lúalegur. Það getur hver sem vill kynnt sér og i minni fram- kvæmdastjóratíð hefur ekki verið legið á upplýsingum til þeirra sem hafa spurt, sagði Ólafur M. Ósk- arsson framkvæmdastjóri Hrað- frystihúss Stokkseyrar við Þjóð- viljann. Árni Johnsen, sem féll niður í þriðja sæti Sjálfstæðismanna í síðasta prófkjöri berst nú fyrir pólitísku lífi sínu með kjafti og klóm og hefur fullyrt að Margrét Frímannsdóttir sem skipar efsta sæti á lista Alþýðubandalagsins eigi sem oddviti Stokkseyrar- hrepps sök á rekstrarvanda frysti- hússins, en það er að 80% í eigu hreppsins. Fyrirtækið fékk greiðslustöðvun 2. febrúar sl. og sagði Ólafur M. Óskarsson fram- kvæmdastjóri þetta hafa verið gert til að fá frið til að laga lausafjárstöðuna og endurskipu- leggja fyrirtækið. Það hefði tekist og væri afkom- an nú betri en hún hefur verið um langan tíma. Erfíðleikana mætti rekja til ársins 1979 þegar frysti- húsið brann. Það var síðan endurbyggt á verðbólguárunum fyrir dýrt lánsfé og vinnslan síðan að talsverðu leyti byggst á lönd- unum togarans sem frystihúsið átti ásamt tveim nágranna- sveitarfélögum. Þegar togarinn fer, er húsið einfaldlega vannýtt. Öll þessi forsaga gerðist fyrir oddvitatíð Margrétar. -sá.

x

Þjóðviljinn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.