Þjóðviljinn - 24.05.1987, Page 2
FLOSI
Þó kaþólska kirkjan sé vafalaust alls góðs
makleg er því ekki að neita að stundum finnst
manni stofnunin full gamaldags í afstöðunni til
þess frjálslyndis sem nútímamaðurinn þráir svo
ákaft og birtist raunar víða sem frelsi til orðs og
æðis.
Það eru einkum siðgæðiskreddur Páfagarðs
sem fara fyrir brjóstið á framsæknu, meðvituðu
og frjálslyndu fólki og virðast eins og tíma-
skekkja í dag, þegar ástin er sterkasta aflið og
þörfin til að ástunda hana meiri en nokkru sinni
fyrr.
En það er nú einu sinni svo að eins er með
ástina og atómsprengjuna. Báðar eru ákjósan-
legar, nauðsynlegar og jafnvel óumflýjanlegar,
en afleiðingar af brúkun stundum vægast sagt
óæskilegar.
Menn hafa tekið það til bragðs að nota at-
ómsprengjuna sem allra minnst hver á annan
með hliðsjón af afleiðingunum, en öðru er nær
hvað ástina áhrærir. í tíma og ótíma eru menn
og konur að njóta ásta hingað og þangað og nú
er svo komið að fólki er farið að finnast þetta
sjálfsagt mál.
Til að koma í veg fyrir uggvænlegar afleiðing-
ar ástarinnar er síðan gripið til getnaðarvarna
og fóstureyðinga og virðist fljóttálitið gráupp-
lagt.
En hér er það sem kaþólska kirkjan spyrnir
viðfótum, frjálslyndu, framsæknu og meðvituðu
nútímafólki til sárra leiðinda og ama.
Nútímamaðurinn vill fá að njóta ásta hvar
sem er, hvenær sem er, með hverjum sem er og
helst allir með öllum um allar trissur, einfaldlega
vegna þess að hægt er með nútímalegum að-
ferðum að koma í veg fyrir afleiðingarnar.
Afstaða kaþólsku kirkjunnar virðist mörgum
kreddubundin tímaskekkja, þó þeir séu til sem
annað hyggja.
Sem dæmi um skilningsleysi Páfagarðs á
þörfum nútímasamfélagsins leyfi ég mér að
birta hér frétt frá fréttastofu Reuters sem kom í
útvarpinu í hádeginu á sunnudaginn 17. maí,
nánar tiltekið á þjóðhátíðardegi Norðmanna.
Þessi litla útvarpsfrétt lýsir því óneitanlega vel
í hvílíku afturhaldsmyrkviði kaþólska kirkjan
hrærist.
Fréttin var svona orðrétt:
Dagblað Páfagarðs, L’Osservatore Rom-
ano, fordæmdi í gær hugmyndir ítalsks
mannfræðings um að skapa apamann með
því að frjóvga simpansa með mannssæði á
rannsóknarstofu. Blaðið minnir á að maður-
inn sé skapaður í guðs mynd og hugmyndir
um annan skapnað séu runnar undan rifjum
satans. Tilraunir með manninn séu því ekki
sæmandi, þeir sem láti sér slíkt til hugar
koma hafi ekki lengur skilning á frumhug-
tökum siðfræðinnar.
Fyrr í þessari viku birtu fjölmiðlar á Ítalíu
viðtöl við Brunetto Chiarelli prófessor við
háskólann í Flórens þar sem hann sagði að
apamenn gætu unnið hvers kyns lítilmótleg
störf og úr þeim mætti fá líffæri til að græða í
menn.
Chiarelli segir að tekist hafi á rannsóknar-
stofu i Bandaríkjunum að frjóvga apaegg
með þessum hætti, en hætt hafi verið við
tilraunina þegar þar var komið sögu.
Þetta var sem sagt orörétt Reutersfrétt úr
Ríkisútvarpinu frá því sunnudaginn 17. maí síö-
ast liðinn og veldur manni óneitanlega svolitlum
heilabrotum og uggi um það hvort kaþólsku
kirkjunni takist með afturhaldssemi að byrgja
mannkyninu þá Ijúfu framtíðarsýn sem fréttin
boðar, sem sagt þá allsherjar lausn á vinnu-
markaðsvandanum í nútímaþjóðfélagi að láta
menn geta afkvæmi við simpansa, afkvæmi
sem gæti svo - eins og segir í fréttinni - unnið
hvers kyns „lítilmótleg störf.”
Eitt þyrfti að vera afstaðið þegar apaskoffínin
kæmu á vinnumarkaðinn. Það þyrfti að vera
.búið að skilgreina hvað eru „lítilmótleg störf.”
Og auðvitað þarf ekki lengi að velta vöngum
yfir því. Það eru að sjálfsögðu láglaunastörfin.
Og þá kemur enn einu sinni upp í huga minn
setningin sem stjórnmálamaðurinn sagði um
daginn í sjónvarpsviðræðunum:
- það er eins og konur sæki alltaf í láglauna-
störfin.
Semsagt. Ef kaþólsku kirkjunni tekst ekki að
koma í veg fyrir eðlilega og sjálfsagða þróun
mannlegra samskipta í apa- og mannfélaginu,
má vænta þess að láglaunavinnumarkaðinn
prýði í framtíðinni þurftalítill og viðmótsþýður
vinnukraftur sérhannaður fyrir „lítilmótleq
störf.”
Sú stund er í sjónmáli að óskadraumur vinnu-
veitenda rætist. Verkamenn og konur, innan-
búðarfólk, sóknarkonur, kennslukonur, fóstrur,
bankastarfskraftar, símadömur, félagsráðgjaf-
ar, sálfræðingar, já, og húsmæður, öll heila
hersingin lítil apaskrípi í einhvers konar manns-
mynd.
Lífverur sem ekki eru síkvabbandi.
Og svo þegar við sem guð skapaði í eigin
mynd erum búin að klára í okkur öll líffærin með
óguðlegu líferni, má- samkvæmt Reutersfrétt-
inni - rífa innyflin úr apaskrípunum og græða
þau í okkur, guðs útvalda, svo við getum haldið
áfram að lifa og njóta þeirra dásemþa sem lífið á
jörðinni hefur upp á að bjóða.
Það er að segja þegar einhverjir aðrir en við
hafa tekið að sér „LÍTILMÓTLEGU STÖRFIN.”
Allir kunna vísuna:
Skrattinn fór að skapa mann
skringilega með hár og skinn
andanum kom ekki í hann
úr því varð þá kötturinn.
í dag passaði vísan ef til vill betur svona:
Skrattinn fór að skapa smá
skoffín fyrir heiminn sinn
kvikindið er komið á
kvennavinnumarkaðinn.
Skáldkonan Isabell Allende,
náfrænka hins myrta forseta
Chile mun koma til landsins í
haust og sitja Bók-
menntahátíð í Norræna hús-
inu dagana 13.-19. septemb-
er. Það er Norræna húsið í
samvinnu við bókaútgáfu
Máls og menningar sem hafa
samvinnu um að Allende
komi hingað, en bók hennar
Hús andanna mun koma út
hjá MM í haust. Frést hefur af
fleiri bókum sem væntanlegar
eru frá útgáfunni á afmælisári
hennar, en MM verður 50 ára í
sumar. Þeirra á meðal er ný
skáldsaga eftir Ijóðskáldið
Gyrði Elísson, en hann hefur
verið á launum hjá MM við að,
semja hana. Einnig er vænt-;
anleg afar forvitnileg bók umi
fjölmiðla eftir Stefán Haf-
stein. í henni mun Stefán
fjalla um sögu fjölmiðlunar og
fjölmiðlun á okkar tímum.
Hann mun taka dæmi um fjöl-
miðlaheiminn héðan frá ís-
landi, frá Bandaríkjunum, So-
vétríkjunum og Bretlandi. Að
lokum má geta þess að mikil
fuglabók eftir Guðmund Ól-
afsson er væntanleg. Sú bók
mun pökkuð af upplýsingum
og hafa handbókargildi. ■
Hann Tommi sem færði okk-
ur hamborgaramenninguna á
sínum tíma er nú að fullgera
veitingahús í Kringlunni. Þar
leggja iðnaðarmenn nú nótt
við dag og allar helgar til að
fullgera húsið fyrir 4. júlí, þjóð-
hátíðardag Bandaríkjamanna
en það er mikið kappsmál fyrir
Tomma að húsið verði tilbúið
fyrir þann tíma, enda á
veitingastaður þessi að hafa
þjóðlega menningu Banda-
ríkjanna í hávegum. Er þetta
svokallað „Hard rock café",
sem breiðst hafa út frá
Bandaríkjunum til Vestur-
landa. í raun mun hér vera um
fínni hamborgarastað að
ræða og verður væntanlega
hægt að sötra léttvín með
fæðunni. Þá mun rokktónlist
drynja úr hátölurum og einnig
verður hægt að halda hljóm-
leika á staðnum. 250 manns
verður boðið á opnunina og
mun enska popphljómsveitin
The Smithereens verða
fengin hingað til lands til að
skemmta boðsgestum. Dag-
inn eftir mun hljómsveitin svo
halda tónleika í Háskólabíói
fyrír pöbulinn. ■
2 SÍÐA - ÞJÓÐVILJINN Sunnudagur 17. maí 1987
Þjóðhátíðar-
hamborgara-
vígsla
Eitthvað hefur siðgæðisvit-
und Moggamanna verið of-
boðið þegar Laugarásbíó tók
til við að auglýsa Hrun amer-
íska heimsveldisins. Senni-
lega hefur nafn kvikmyndar-
innar eitthvað farið fyrir brjóst-
ið á þeim en þó tók fyrst
steininn úr þegar þeir sáu Ijós-
mynd þá sem fylgdi auglýs-
Auglýsingin einsog hún birtist í
Þjóðviljanum.
Hér hafa skæri Moggamanna
klippt undan kauða.
ingunni. Er myndin af karli og
konu og hefur verið krotað yfir
andlit beggja. Á konuna eru
teiknuð brjóst og á karlinn
bísperrtur getnaðarlimur. Nú
voru góð ráð dýr og Mogga-
menn gerðu sér lítið fyrir og
skáru undan karlinum en létu
brjóstin á konunni eiga sig. ■