Þjóðviljinn - 24.05.1987, Side 6
Guðmundur R. Gíslason söngvari,
Ingvar Jónsson hljómborö,
Austfirðir eru
Mekka rokksins!
- Við erum
lýðrœðis
kynslóðin
samankomin
íeinni
hljómsveitsegir
SúEllen
fráNorðfirði
sem ómaklega
er einalt ruglað
saman við
konuna hans
J.R. íDallas
GLÆTAN
Umþærmundirsem
reykvískir rokkarar voru festir
á filmu í gagnmerkri bíómynd
Friðriks Þórs Friðrikssonar
var Jóhann GeirÁrnason að
slá sér upp austur á Norðfirði.
Það var heljarins mikil gróska
í tónlistarlífinu og band að
spila í hverjum bílskúr. Pönkið
náði mestu vinsældum sem
um getur í nokkru landi og er
þá vitanlega miðað við fólks-
fjölda...
En Jóhann Geir var semsagt
með þessari stúlku fyrir austan.
Og í sjónvarpinu bar mest á J.R.
Ewing og hyski hans og ættu
menn nú að sjá nokkurt sam-
hengi. Því J.R. átti konu, eins og
þjóðin man, og konan hét Sue
Ellen. Kærastan hans Jóhanns
Geirs hét líka Ellen. Það var sem-
sagt sú Ellen sem hann var með.
Ekki Sue Ellen.
Nokkrir drengir á Norðfirði
urðu hugfangnir af rokkinu í
Reykjavík. Þessvegna stofnuðu
þeir hljómsveit, Jóhann Geir
mundaði kjuðana og hefur barið
húðir uppfrá því. En hljómsveitin
var vitanlega skýrð Sú Ellen.
Það hefur jafnan valdið mis-
skilningi: Fólk þekkir náttúru-
lega amerísku konuna hans J.R.
betur en kærustu Jóhanns Geirs.
Drengirnir í Sú Ellen voru
farnir að semja músík áður en
þeir lærðu á hljóðfæri. Hinsvegar
fullyrða þeir að þeir hafi verið
byrjaðir að læra á hljóðfæri áður
en þeir fóru að spila.
Sú Ellen eitt
Sú Ellen er enn að og er á
fimmta ári og kemst þannig bráð-
lega í hóp virðulegra miðaldra
hljómsveita. En jafnframt er Sú
rétt að byrja og drengirnir í band-
inu taka músíkina alvarlega. Og
innan nokkurra vikna kemur
fyrsta plata hljómsveitarinnar út.
Jóhann Geir er enn fyrir
austan. „Hann er í bræðslunni,"
sagði afgangurinn af hljóm-
sveitinni sem um þessar mundir
frílystar sig í Reykjavík. Og við
þessi áttatíu prósent er þetta
spjall.
Þeir sátu á Hressó og blaða-
manni til glöggvunar var borðið
kirfilega merkt. Sú Ellen. Fönd-
rarar kaffihúsanna ráku upp stór
augu.
Sú Ellen tvö
Og drengimir í bandinu, auk
Jóhanns Geirs, eru Steinar
Gunnarsson á bassa, Tómas
Tómasson á gítar, Ingvar Jónsson
á hljómborð og Guðmundur R.
Gíslason syngur svo undir öllu
saman.
Plata frá Sú Ellen. Hvernig
gekk að fá útgefanda?
„Við fengum útgefanda í
gær...“ (Kumpánlegur náungi
sem vantar einungis vindil til að
undirstrika kaupsýslulegt útlit
sitt brosir glaðlega) „Það verða
Pjesta Records sem gefa plötuna
út“.
Fóruð þið ekkert til stórlaxanna
í bransanum?
„Við gerðum engar alvarlegar
tilraunir. Við leyfðum þeim að
heyra efni sem var enn í vinnslu
og óklárað. Annars er mjög erfitt
að fá útgefanda ef hljómsveitir
eru ekki búnar að skapa sér nafn
og vinsældir. Útgefendur fylgja
bara markaðinum eftir“.
Víkjum að sögu Sú Ellen. Hef-
ur þetta verið starfsöm hljómsveit
í gegnum árin?
„Já, þetta er náttúrlega orðin
býsna gömul hljómsveit og við
höfum spilað víða. Á konsertum
og sveitaböllum og víðar. Svo
höfum við líka spilað í Atlavík-
inni oftar en einu sinni og urðum
raunar í öðru sæti í hljómsveitak-
eppni þar fyrsta árið. Það var
þegar Skriðjöklarnir unnu.“
(Greifarnir voru í þriðja sæti, -
eigum við nokkuð að láta það
fylgja með?)
Sue Ellen þrjú
Hvernig tónlist spilið þið?
„Fyrst vorum við eiginlega lær-
isveinar Utangarðsmanna... Já,
við spiluðum rokk, hrátt rokk og
undir miklum áhrifum frá þeim.
En tónlistin hefur þróast mikið
síðan og er orðin sjálfstæðari.
...Annars er okkur illa við að
skilgreina músíkina okkar, það
hefur ekkert upp á sig. Fólk verð-
ur bara að hlusta sjálft og gera
upp við sig hvort því líkar hún eða
ekki.
Er Sú Ellen vinsœl hljómsveit
austur á fjörðum?
„Ja, - við höfum vitaskuld spil-
að víða og flestir þekkja okkur.
Svo er harður kjami sem fylgir
okkur eftir... 60 manns sem mæta
alltaf. Það er nú ekki svo lítið
miðað við fólksfjölda!
Annars er mikil gróska í lifandi
músík fyrir austan. Góðar hljóm-
sveitir sem enginn þekkir héma
fyrir sunnan. Og hvað sagði ekki
Bubbi Morthens um Austfirðina:
Að þeir væru Mekka rokksins á
íslandi!“ (Sagði hann það, spyr
einhver. Já, eða hann er a.m.k»
búinn að því núna!)
Veldur það ekki mikilli röskun
að búa fyrir austan og standa í
plötuútgáfu í Reykjavík?
„Jú, svo sannarlega. En við
erum ákveðnir að gefa þessa
plötu út og spara ekkert til henn-
ar. Þetta kostar helvítis helling,
við þurfum til sæmis mikil frí úr
vinnu. Það hefur komið okkur
mjög vel að vinnuveitandi okkar
sýnir þessu mikinn skilning. Þú
mátt gjarnan skila þakklæti til
hans í netagerðinni á Norðfirði.
Þrír okkar vinna þar. Hún er
stundum kölluð Poppsmiðjan...
En við emm semsagt ákveðnir í
því að gera þetta vel og eftir að
platan kemur út þá fylgjum við
henni eftir með tónleikum útum
allt land“.
Hver semur tónlistina hjá ykk-
ur og textana?
„Við geram það í sameiningu.
Við höfum íslenskukennara á
okkar snærum sem fer yfir alla
texta til þess að þeir séu ekkert
ragl. Hann hefur raunar samið
fyrir okkur líka. Lögin eru öll
skrifuð á hljómsveitina".
Petta er afar samhent band?
„Já... svo sannarlega. Lýðræð-
iskynslóðin er samkomin í þessari
hljómsveit!“
Það er nú Alþýðubandalagið
sem hefur einkarétt á lýðræðis-
kynslóðinni!
„Já, það er rétt, en við eram nú
frá Norðfirði...“
Sú Ellen fjögur
Sú Ellen spratt uppúr nýbyl-
gjunni í kringum Rokk í Reykja-
vík. Hvernig finnst ykkur ástand-
ið vera núna?
„Það er svona nánast eins og
það var áður en allt þetta gerðist.
Það er allt á hverfanda hveli...!
Það vantar nýja strauma og
eitthvað ferskt.
Það er fullt af góðum hljóm-
sveitum en þær fá enga athygli.
Útgefendur standa í veginum, því
þeir era svo hræddir við nýjung-
ar. En vonandi fer eitthvað að
gerast...“
Og þið eruð samt hvergi
smeykir, eða hvað?
„Ónei, annars væram við ein-
faldlega ekki að þessu. Við höf-
um mikla trú á því sem við erum
að gera. íslendingar eru upp á
síðkastið orðnir dálítið duglegri
við að kaupa íslenskar plötur,
þótt það sé mikið til á sama sviði
allt saman.
Útlenskar plötur seljast vel
hérna, alveg sama hvaða stefnur
eiga í hlut, þannig að það ætti eins
vel að vera hægt að selja íslenska
músík þótt hún sé ekki öll eins“.
Sú Ellen fimm
Það stendur ekkert til að breyta
þessu nafni á hljómsveitinni - eru
þau enn saman Jóhann Geir og sú
Ellen?
„Við breytum ekki nafninu úr
þessu. Þetta er gott nafn. Mjög
gott nafn! Við urðum að láta okk-
ur hafa það að vera ruglað saman
við ameríska fyllibyttu áram sam-
an. - Nú er hún á niðurleið en við
á uppleið! (Hvernig var þetta
með Jóhann Geir? Æ, hann er í
bræðslunni.)
Svo var það eiginlega hann
Valgeir Guðjónsson sem gerði
útslagið á Atlavíkurhátíðinni hér
um árið. Hann snéri svo mikið út
úr þessu nafni að við urðum að
halda því...“
Sú Ellen er semsagt rétt að
byrja, enda drengirnir í bandinu
ákveðnir í því að láta hvergi sinn
hlut. Það má því búast við því að í
sumar verði Sú Ellen að austan á
allra vöram og kærastan hans Jó-
hanns Geir frá því um árið verði
frægari en konan hans J.R.
-hj-
6 SÍÐA — ÞJÖÐVILJINN Sunnudagur 24. maí 1987