Þjóðviljinn - 24.05.1987, Síða 14

Þjóðviljinn - 24.05.1987, Síða 14
Opnanir New York 1. maí 1987 Þá er vorið loks komið af stað hér í Bandaríkjunum, það get- ur maður séð á sjónvarpsaug- lýsingunum sem nú fjalla einkum um svita sprei og grasnæringu. Og um alla borgina eru beraðir upphand- leggir um leið og trjágreinarn- ar klæðast tískulitum laufsins, en í ár ber þar mest ágrænu. Dag eftir dag er hér íslenskt sumarveður uþp á sitt besta með sínu skjóli og roki og maður þykist finna Reykjavík- urlykt á sumum götuhornum, sem er náttúrulega meiri ímyndun en raun því úr hverj- um kima þessarastræta renna lækir hlands og landa, lyktandi af öllum fjanda. Innri fnykur finnur einnig sína útleið á þessu skítuga vori í þessari skemmtilegu borg og banda- rískir blökkumenn hrópa á torgum sína tabú-hluti og spyrja máttlausan fjöldann hvort hann snæði sníp og það kannski með þrjónum eins og kínverjar. Sé vorið hin eina sanna opnun, þá eru þær þó ekki síður mikil- vægari hinar endalausu opnanir í galleríunum, einkum þó okkur þeim myndlistarmönnum sem hvorki viljum verða að einhverj- um heimalningum né útigangs- hestum. Á opnunum er tækifærið til að sýna sig og sjá aðra, kynna sig og minna á sig, hneígja sig og búkka, blikka og nikka, hvá og kveðja. Það er einmitt ákveðin kúnst að koma vel fyrir á opnun- um, þar sem samankomið er allt valdasettið í litheiminum, gallerí- bændur og þeirra búalið, safnarar og hafnarar, snittumenn og snuðrarar, allir með í glasi og frjálslegir í fasi. Mikilvægast er að vera mjög opinn sjálfur, já- kvæður á svip og sískimandi þjónsauga yfir salinn, vera snögg- ur til að notfæra sér lítið rjóður í samræðum og hafa alltaf á reiðum höndum stikkorð og frasa sem geta rúllað af stað nokkrum fleiri þó sjaldan verði um neina skriðu að ræða. Hér á ég við létt- ar athugasemdir eins og „Nei, en skemmtilegt bindi“. Þá hefur einnig gefist vel að hnýta þjóð- erninu aftan við nafn sitt í kynn- ingu sem jafnan getur af sér nokkrar forvitnisspurningar um ísland, þetta græna flotholt við hliðina á ísilögðu Grænlandi. Hinsvegar má aldrei láta nappa sig standandi einan sér á miðju gólfi, eins og einhverja manna- hræðu, nei þá er betra að þykjast vera á leið eftir öðru glasi eða að skoða verkin sem þó er að vísu hálf aumt. Aðrir möguleikar eru svotil engir svo best er að halda sig í samræðum sem þó verður að rjúfa reglulega og hefja nýjar ef viðmælandi á ekki að fá þá til- finningu að hann sé það hálmstrá sem þú hangir í. En þó það sé umgerandi að vera opinn á svip og hress í bragði má það ekki verða til þess að maður verði hreinskilinn og fari að segja móðgandi meiningu sína um það sem á veggjunum er, í þeim efnum er betur heima setið en af stað farið. Þögnin er hið þegjandi samkomulag og upplagt að bíða með kommentin þar til seinna undir sæng. Áður en alla leið þangað er komið er þó upplagt að elta liðið á einhvern af hinum hátt stilltu Kveldúlfsklúbbum borgarinnar, segjum til dæmis the Tunnel, þá nýjustu brautarstöð skemmtana- lífsins þar sem fólk tekur sporið á teinunum undir kristalskrónum í neðanjarðarlestargöngunum. Flestir standa þó á brautarpallin- um og horfa á. Nú eða segjum Nell’s, sem er eftirsóttasti staður- inn „í dag“, þar sem enskt 19. aldar-kallaklúbbs-andrúmsloft svífur yfir níðþungum plusssófunum, sem gott er að halla sér uppað og finna andann úr glasinu svífa á mann við undir- leik þriggja þeldökkra eftirlauna- manna og virða fyrir sér svartk- læddar skuplurnar sem svífa hjá. Aldrei er að vita nema við eitt borðið á bakvið sólgleraugu sitji hálfur Jack Nicholson og reyni að bregða fyrir þær fæti. Dag einn á þessu daunilla vori stendur maður svo í miðjum mið- bænum á horni fertugasta og sjötta strætis og fimmtu breiðgötu kallandi á leigubíl eins og kútinn forðum, ef ekki bú- kollu, með nýbakað og blautt málverk í höndunum, sem maður hefur von til að fái inni fyrir næstu opnun í einu af neðanbæjar- galleríunum. En í mannköldum vorvindinum fýkur askan úr vind- lingum vegfarendanna, hinna dauðlegu manna, og festist á mál- verkinu. Framhaldslíf manns er útbíað af andlegu ryki hins fyrra. HALLGRÍMUR HELGASON SKRIFAR FRÁ NEWYORK Loksins fær maður svo leigubfl, en of seint og þarf því að verða fyrir frekari vonbrigðum með meðbræður sína þegar ekki er lengur neitt pláss fyrir verkið, svo það verður að hanga í skrifstof- unni þar sem það er aðeins sjáan- legt frá barnum. Sár þarf maður að sætta sig við eitthvað terugl í kókflösku eftir Jósef Boys og önnur verk eftir aðra menn í lík- um tedúr taka upp allt veggpláss- ið. Þess í stað þarf maður að elta verk sín norður í land þar sem hægt er að láta snjóa framundir maí og málverk með kynfærum fengi aldrei umfjöllun í staðar- blaðinu. En maður lætur sig hafa það að mæta þar á enn eina opn- unina sem endar óvænt í dýra- verndunarpartýi þar sem hin út- brunna poppstjarna Lena Lovich kyrjar aparéttindasönginn máluð eins og hýena og klædd eins og B-hliðin á Röggu Gísla. Aftur í alvöruborginni er mað- ur er maður rétt að komast í hina sjálfumglöðu sigurvímu vinnu- dagsins þegar vellyktandi gallerí- eigandinn lítur inn undir mið- nættið og biður um dekkri liti, þetta séu svosem flottar myndir en þessir ljósu pastellitir gætu fælt fólk frá og þaraðauki séu dökkir litir að komast í tísku. 14 SÍÐA - ÞJÓÐVILJINN Það nægir til þess að snúa öllu á rönguna og daginn eftir vaknar maður við „Post-páska-hret“ á glugganum og sálarleysi í líkam- anum sem nægir þó til að maður staulist fram og aðeins til þess að taka á móti rafmagnsreikningn- um frá ConEdison sem þá er orð- inn jafnhár skrifstofubyggingu fyrirtækisins. Og til að fyrir- byggja frekari hækkun á honum er arkað út í slagveðrið regnh- lífarlaust, (þeirri sfðustu var stol- ið á síðustu opnun). Leigubílarn- ir gelta á mann eins og gulir hund- ar og regnhlífar smærri borga- ranna stinga mann í kinnarnar, en þær ónýtu liggja í götunni eins og fuglshræ. Blankur blautur og svangur nær maður þó að skjóta sér leið um þessa fólksmýri að einum af skýjakljúfunum, þeim sem hefur lúgu sem opnast þegar maður ýtir á takkann og út koma peningaseðlar alla leið frá ís- landi, hundrað íslenskir eyðidal- ir. Og þá, um leið og regndrop- arnir detta niður í höfuð manns eins og atkvæðatölur úr alþing- iskosningunum, verður manni hugsað heim og það svo sterkt að upp kemur heill og nýr þingflokk- ur af orðum sem öll ríma við landið sjálft: Á frœðilegu fróni er frægum meðaljóni og gáfnalegu grjóni greitt af fylgistjóni. Skattalegur skjóni, sem skartaði á nóni sem sínum þarfa þjóni þjóð, og varð að flóni. En þó dropunum fjölgi og verði að lokum jafnmargir hárun- um á höfði manns, hefur maður alltaf í huga huggunarorð hins snjalla sjónvarpsmanns Davids Lettermanns, en hann benti á dögunum réttilega á það að sama hve maður reyni, með skokki eða leikfimisæfingum, þá geti maður aldrei minnkað hausinn á sér. Þar með kveð ég lesendur Þjóðviljans og óska öðrum Al- þýðubandalagsmönnum huggun- arríks sumars. Fóstra - fóstrur óskast aö dagheimilinu Völvuborg nú þegar eöa eftir samkomulagi. Upplýsingar hjá forstöðumanni í síma 73040. Frá Tónlistarskólanum í Reykjavík Inntökupróf fyrir skólaáriö 1987-88 verða sem hér segir: Tónmenntakennaradeild. mánudaginn 25. maí kl. 13.00. Blásaradeild, mánudaginn 25. maí kl. 14.00. Söngdeild, þriðjudaginn 26. maí kl. 11.00. Prófin fara fram í skólanum, Skipholti 33. Umsóknir í aðrar deildir skólans skulu hafa borist fyrir 1. júní n.k. Skólastjóri Hl LAUSAR STÖÐUR HJÁ W REYKJAVIKURBORG Staða forstöðumanns við leikskólann Fellaborg Völvufelli 9 er laus til umsóknar. Fóstrumenntun áskilin. Upplýsingar veita framkvæmdastjóri og umsjón- arfóstrur á skrifstofu Dagvistar barna í síma 27277. Hafnarfjörður gangstéttir Hafnarfjarðarbær leitar tilboða í lagningu steyptra gangstétta sumarið 1987. Útboðsgögn verða afhent á skrifstofu bæjar- verkfræðings, Strandgötu 6, Hafnarfirði gegn 3000 króna skilatryggingu. Tilboð verða opnuð á sama stað þriðjudaginn 2. júní kl. 11. Bæjarverkfræðingur

x

Þjóðviljinn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.