Þjóðviljinn - 24.05.1987, Side 17

Þjóðviljinn - 24.05.1987, Side 17
Nafn vikunnar siaurorau Hannes Hlífar Stefónsson einn efstur á Heimsmeistaramóti unglinga í skák fyrir síðustu umferð Hannes Hlífar Stefánsson er nafn vikunnar aö þessu sinni, enda vart annar kandídat í sjón- máli til að skipa þann heiðurssess. Hannes teflir nú á Heimsmeistaramóti unglinga sem haldið er í Innsbruck í Austurríki, og hefur staðið sig með afbriðgum vel. Lokaumferð- in stendur nú fyrir dyrum, en fyrir hana hefur Hannes hlotið 8,5 vinninga í 10 skákum og er einn í efsta sæti, hálfum vinningi hærri en helsti keppinauturinn, Adams frá Englandi. Átta vinningar hjá Hannesin eitt tap og eitt jafntefli; sannarlega glæsilegur árangur. Skákveiran blómstrar enda með þjóðinni núna eins og jafnan fyrr þegar einhver okkar manna er að gera það gott í þjóðaríþrótt- inni. Eftir góða frammistöðu ís- lensku skáksveitarinnar á síðustu Ólympíumóti í skák virtist mör- landanum skákheimurinn vera á við hálft kálfskinn, en IBM- mótið sællar minningar kom mönnum nokkuð niður á jörðina íþessum efnum. En nú geta skák- áhugamenn sem sagt tekið gleði sína á nýjan leik. Blaðamaður sló á Austurrík- isþráðinn í gærdag og vildi fá okk- ar mann í símann, en hitti þess í stað á þjálfara hans, Guðmund Sigurjónsson, stórmeistara. Guðmundur færðist ljúflega undan því að trufla Hannes við sín fræði. Mjög skiljanleg og skynsamleg afstaða hjá þeim fé- lögum, enda sagði Guðmundur að Hannes gæti fáu öðru sinnt en að tala við blaðamenn að heiman ef hann gæfi kost á því. í staðinn röktum við garnirnar úr þjálfar- anum um gang mála í Austurríki. Heimsmeistaramót unglinga í skák er fyrir sextán ára og yngri. Keppt er í piltaflokki og stúlkna- flokki. f hinum fyrrnefnda eru keppendurnir 46 talsins, en 28 í hinum, þar á meðal Guðfríður Lilja Grétarsdóttir, en hún hefur staðið sig vel og er vel fyrir ofan miðju. Arangur Hannesar er enn athyglisverðari í ljósi þess að hann er ekki nema fjórtán ára gamall, en hann verður fimmtán ára í sumar. Við spurðum Guðmund hvað honum fyndist um skákstyrk Hannesar á svo ungum aldri, og hvort hann teldi að þeir sem núna eru upp á sitt besta í skákinni hjá okkur, Helgi, Jóhann, Margeir og Jón L., hefðu verið jafnöflugir á hans aldri. Guðmundur sagði að vonum að slíkt væri erfitt að meta, en hann sagðist hafa á til- fínningunni að í þessum saman- burði stæði Hannes mjög framar- lega. Nú tapaði Hannes skák eftir mikla sigurgöngu í byrjun móts en það er ekki að sjá að hann láti það mikið á sig fá; er hann sterkur á tauginni? - Hann er sterkari á tauginni en ég bjóst við, en reyndar er hann sjóaður í skákinni og hefur mikla keppnisreynslu. Pað hefur vakið athygli mína að hann virðist miklu þroskaðri en jafnaldrarnir. Til dæmis í endatöflum. Þar er hann miklu nákvæmari og hefur yfir að ráða meiri tækni, en enda- taflið hefur nú viljað vefjast fyrir fólki á ungum skákaldri, enda þótt það geti teflt vel að öðru leyti. Hvaða byrjanir hafa helst verið uppi? - Gegn kóngspeðinu hefur hann beitt franskri vörn og skandínavíska leiknum jöfnum höndum, en gegn drottningar- peði hefur hann teflt Benoni- vörn. Sjálfur leikur hann svo e4 í fyrsta leik með hvítt. Þetta gœti okkur venjulegum flóðhestum í skáklistinni þótt benda til að Hannes tefli hvasst; er sú raunin? - Jú, hann hefur hvassan stíl, en er samt mjög fjölhæfur. Hann reynir ekki af öllum mætti að fá fram flækjur, en ræður við það sem upp á kemur, hvort sem það eru einföld töfl, flækjur eða endatöfl. Hann teflir mjög heilsteypt. Það hefur að vísu komið fyrir að hann hefur staðið höllum fæti í einstaka skák, en hann hefur þá verið maður til að vinna sig út úr því. En í flestum skákunum hefur hann staðið með pálmann í höndunum. / nœstsíðustu umferðinni tefldi hann við stigahœsta keppandann og vann. Var sú skák barningur? - Við bjuggumst nú alltaf við erfíðri viðureign þar. Andstæð- ingurinn er Rússi búsettur í Bandaríkjunum og þeir kunna nú ýmislegt fyrir sér! Auk þess var Hannes með svart í þessari skák. Frönsk vörn kom upp og Hannes lenti í erfiðri stöðu. Andstæðing- urinn tefldi mjög hratt og var greinilega búinn að undirbúa sig vel. Það varð honum svo að falli að hann hélt áfram að leika hratt of lengi, og því tókst Hannesi að snúa á hann. Eftir það var engin spurning um úrslitin. í síðustu umferðinni teflir Hannes við De Graeve frá Frakklandi og hefur hvítt, en De Graeve er nú í þriðja til fimmta sæti með sjö vinninga. Mér skilst að það sé byrjað að tefla á þeim ókristilega tíma klukkan átta á morgnana. Ekki vœru morgunsvœfir kappar eins og Fischer og Larsen ánœgðir með það? - Ekki bara þeir, þetta er ó- þægilegur tími. Mér skilst að þetta sé fyrst og fremst fyrir fjöl- miðlana gert. Nú, en fyrir bragð- ið ættu úrslitin að liggja fyrir í hádeginu á laugardaginn. Von- andi flytur hádegisútvarpið heima góðar fréttir af mótslokun- um. Óttinn Þeir sem reyna aö fylgjast meö tillögugerð um eftirlit meö vígbúnaði og afvopnun hafa orð- ið fyrir merkilegri reynslu að undanförnu. Reynsla þessi er í því fólgin, að Sovétmenn hafa tekið að sér það hlutverk að slaka á sínum fyrri kröfum í hverri nýrri lotu meðan Vesturveld- in fara undan þeim í flæmingi Eins og menn rekur minni til var Reykjavíkur- fundur þeirra Gorbatsjofs og Reagans ekki síst merkur vegna þess.að þar var í nokkurri alvöru þreifað á þeim möguleikum að fækka kjarnork- uvopnum. En samkomulag strandaði á því, að Sovétmenn vildu gera heildarsáttmála sem fæli í sér að Bandaríkjamenn hættu við það nýja skref í vígbúnaði sem Stjörnustríðsáætlunin svonefnda er. Ekki var samt öll nótt úti. Gorbat- sjof kom Nató á óvart með því að taka upp svokallaða núlllausn, sem upphaflega kom frá Bandaríkjamönnum. Hún felur í sér samkomu- lag um að koma fyrir kattarnef flestum meðal- drægum eldflaugum, búnum kjarnasprengjum, - m.ö.o. boðið var upp á það langþráða tak- mark að Evrópa gæti lifað án þess að liggja í skugganum frá sovéskum eldflaugum af gerð- inni SS-20 og bandarískum af gerðinni Pers- hing II. Og þetta samkomulag átti ekki lengur að tengjast við lausn ágreinings um Stjörnustríð. Þar á ofan lýsir Gorbatsjof sig reiðubúinn til að semja um skammdrægar eldflaugar (sem draga 500-1000 km). Um miðja síðustu öld komst Karl Marx svo að orði, að vofa kommúnismans gengi Ijósum ___LEtÐARI_______ við afvopnun logum um Evrópu og ylli þar mikilli skelfingu í valdastéttum. Og í minningu þeirra orða eru fréttaskýrendur og skopmyndateiknarar farnir að tala um þá „vofu afvopnunar" sem Sovét- menn hafa vakið upp, og hefur vakið upp miklar geðshræringar meðal ráðamanna í þeim hluta heimsins sem situr undir Natófána. í hvert skipti sem Sovétmenn senda fram tillögur um af- vopnun (og eru sumar svotil orðrétt endurtekn- ing á því sem Bandaríkjamenn áður báru fram) þá hrökkva Natóhöfðingjar í kút og finna sér ótal ástæður til að hafna þeim áföngum í niður- skurði kjarnorkuvígbúnaðar, sem Sovétmenn gera tillögur um í stað þeirrar heildariausnar sem ekki gat séð dagsins Ijós í Reykjavík. Og er þá við hæfi að vísa í Rogers, yfirmann herráðs Nato : hann segir að „útrýming kjarnorkuvopna mun gera Evrópu berskjaldaða fyrir hefð- bundnum herjum Varsjárbandalagsins". Menn þurfa ekki lengi að blaða í pólitískum vikublöðum álfunnar til að finna harða gagnrýni á þennan flótta ráðamanna Nató undan „víg- búnaðarvofunni". Menn benda á, að þeir sem telja sig ekki geta lifað án kjarnorkuvopna megi hugga sig við að jafnvel þótt samið væri um „tvöfalda núllausn", væri enn mikið af kjarn- orkuvopnum í álfunni - í flugvélum, kafbátum og hjá stórskotaliðinu. Og þeim sem leika sér að því að mikla fyrir sér þann mikla fjölda her- manna og skriðdreka sem Varsjárbandalagið hefur á að skipa í hefðbundum herjum, er eina ferðina enn bent á það, að magn er ekki sama og gæði: hver Natóherdeild er miklu betur búin vopnum en hver sovésk herdeild. Fyrir nú utan það, að menn eru gramir yfir því, að Vesturveld- in vilji ekki - sér í hag á ýmsum sviðum reyndar - grípa það tækifæri sem nú býðst til að gera eitthvað af viti úr augljósri þörf Sovétmanna fyrir að spara í vígbúnaði, augljósri þörf þeirra fyrir aukna verslun og viðskipti. Menn hafa vitanlega verið að velta því fyrir sér, hvers vegna Natóhöfðingjar setja upp hundshaus gagnvart tillöguregni Sovétmanna. Hér í Þjóðviljanum var um daginn minnt á þá öflugu „mafíu sem tengir saman hernaðarbrölt og iðnaðarhagsmuni“. Morgunblaðið taldi á- stæðu til að kalla það innlegg bæði „einfeldn- ingslegt og úrelt“ í umræðum um öryggismál. Það er reyndar ekki úr vegi að minna á það, að það voru ekki marxistar og þá ekki íslenskir sósíalistar sem fundu upp formúluna um þann háska sem stafaði af „samkrulli iðjuhölda og herforingja“. Það gerði Eisenhower, forseti Bandaríkjanna, þótt undarlegt megi virðast. Og í framhaldi af því skulum við vitna í pottþéttan borgaralegan fréttaskýranda eins og ritstjóra þýska blaðsins Stern, Heiner Bremer, sem lýk- ursínum leiðara um „ótta kaldastríðsmannavið afvopnun" á þessum orðum hér: „Friðurinn er of mikilvægur til að hægt sé að fela hann valdi heimskra herforingja, þrjóskra pólitíkusa og gráðugra erindreka hergagnaiðn- aðarins." -áb Sunnudagur 24. maf 1987 ÞJÓÐVIUINN - SlÐA 17

x

Þjóðviljinn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.